Dagblaðið - 31.05.1979, Síða 5
5
Eskifjörður:
Afþreyingarheimili
iðnaðarmanna
Níu einbýlishús eru í smíðum á
Eskifirði að sögn Guðmundar Baldurs-
sonar byggingarfulltrúa. Auk þess er
nýbyrjað á 12 íbúða biokk. Sigbjörn
Haraldsson byggingarmeistari í
Reykjavík tók bygginguna að sér fyrir
190 milljónir króna. Blokkin verður
fullkláruð og lóð frágengin að mestu er
henni verður skilað.
Eskfírðingum lízt vel á það að einn
maður taki að sér áðumefnda blokk,
því þá hafa íbúðareigendur til einhvers
aðleita.
En piparsveinablokkin svonefnda,
sem hefur verið í byggingu hér í 5 ár og
átti að afhenda í apríl eða maí, er ekki
tilbúin og langt er þar tU hún verður af-
hent eigendum. Piparsveinablokkin var
unnin í akkorði þar til hún var fokheld.
Gekk það vel en verkið var unnið af
Byggingarfélagi Fáskrúðsfjarðar.
Síðan hafa ýmsir iðnaðarmenn á
Eskifirði unnið í blokkinni og ber eng-
inn ábyrgð á verkinu. Eru ýmsir hér
farnir að kalla blokkina afþreyingar-
heimili iðnaðarmanna. Svo seint hefur
verkið gengið hjá iðnaðarmönnunum,
að Guðmundi Auðbjörnssyni málara-
meistara undanskildum.
-Regina.
Ekki von á íslenzku
viskfi f bráð
Hjá Áfengis- og tóbaksverzlun ríkis-
ins bíða menn með nýlega uppskrift af
dýrindis viskíi sem enn hefur ekki verið
tekin ákvörðun um hvenær hefja skal
framleiðslu á, að sögn Ragnars Jóns-
sonar skrifstofustjóra Áfengis- og tó-
baksverzlunar ríkisins.
Hefur pólskur sérfræðingur verið
helzti ráðunautur Áfengisverzlunarinn-
ar í þessum efnum og er það undir hans
leiðsögn sem á undanfömum árum
hefur verið farið út í framleiðslu t.d. .á
sjéniver oggini.
Vélakostur víngerðar Áfengisverzl-
unarinnar hefur hihgað til ekki þótt
bjóða upp á að fara út í fyrrgreinda
viskíframleiðslu, hins vegar getur bætt-
ur vélakostur, sem von er á í sumar og
haust, orðið til þess að farið verður út í
aðbjóðauppáislenzktviskí. -BH.
Lagnaðarís
á Eskifirði
Undanfarna daga hefur verið 8—10
stiga hiti á Eskifirði og sól. En á mið-
vikudagsmorgun brá svo við að lagnað-
arís var kominn á Eskifjörð. Sjávarhiti
mun vera mjög lágur, eða um 1 stig á
Celcius.
Hólmatindur kom á þriðjudag með
66 tonn og mjölskip lestaði á miðviku-
dagum600tonn af loðnumjöli.
—Regina.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979.___
Lítið magn ávaxta
fíutt inn fíugieiðis
—ávextir nær tvöf aldast í verði við það
Þessi hraustlegi strákur tók þátt í sumarbúðum við Úlfljótsvatn.
Engin „Rauðhetta” um
verzlunarmannahelgina
— en nóg að snúast að Úlfljótsvatni í sumar
Ekkert „Rauðhettumót” verður
haldið um verzlunarmannahelgina að
Úlfljótsvatni eins og verið hefur undan-
farin ár — við misjafnan orðstír.
í sumar gengst Bandalag íslenzkra
skáta fyrir fjölskyldumóti með skáta-
sniði á „höfuðbóli” sínu, Úlfljóts-
vatni. Mótið verður opið öllum al-
menningi.
Nóg verður að gera hjá skátum við
Úlfljótsvatn í sumar. Sumarbúðir og
útilífsnámskeið verða með svipuðu
sniði og undanfarin ár og eru opin öll-
um krökkum. Sumarbúðirnar eru ætl-
aðar 7—10 ára krökkum, sem fást við
gönguferðir og náttúruskoðun, íþróttir
og leiki, sund- og bátsferðir, kvöld-
vökur, varðelda og fleira. Vikan kostar
24 þúsund.
Útilífsnámskeiðin sækja 11—14 ára
krakkar, sem fá undirstöðuþjálfun í
útilífi og ferðamennsku. Búið jöfnum
höndum i skála og tjöldum.
Nánari upplýsingar veitir Bandalag
isl. skáta.
-ÓV.
Við eigum epli iStuðlafossi.sem nú
er á leið til landsins, en erFitt mun um
viðlegupláss fyrir skipið, þannig að
óvíst er hvort þau epli nást úr skip-
inu. En eplin geymast lengi um
borð.”
„Við höfum ekki flutt inn neina
ávexti flugleiðis,” sagði Ólafur B.
Schram, hjá heildverzlun Björgvins
Schram. „Það eru því allir ávextir
búnir hjá okkur. Lengst áttum við
epli, en síðasta eplasending var send
frá okkur í verzlanir 21. maí sl.
„Við höfum flutt inn smávegis af
ávöxtum flugleiðis,” sagði Aðal-
steinn Eggertsson hjá Eggerti
Kristjánssyni og Co. „Það sem við
fluttum inn voru bananar, grape
ávextir, appelsínur og vínber. Epli
höfum við ekki flutt inn, þar sem þau
voru til í verzlunum.
Ávextir nær tvöfaldast í verði
þegar þeir eru fluttir inn flugleiðis,
þar sem 240 kr. bætast ofan á hvert
kg. auk annarra gjalda. En innflutn-
ingur hjá okkur er mjög lítill nú
miðað við venjulegan maí-mánuð.
Þessir ávextir hafa selzt, þrátt fyrir
að þeir séu dýrir. Enda þurfa margir,
bæði börn og sjúklingar, að fá
Það er orðið langt sfðan svona var umhorfs I hillum verzlana.
ávexti.” hafa flutt inn banana, en Sambandið
„Mé'r er einnig kunnugt um það,” t.d. ekki.”
sagði Aðalsteinn, „að Bananar hf. -JH.
Boranirá
Blönduósi
„Við reiknum með að bora
niður á um 1700 m dýpi og þá sést
hvort meira vatn fæst. Það sem
við höfum núna dugar kannski
næsta vetur en ekki meira,” sagði
Eyþór Elíasson, sveitarstjóri á
Blönduósi, í viðtali við DB en þar
hafa staðið yfir boranir með
jarðbomum Narfa fyrir hitaveit-
unaástaðnum.
„Þetta var ákaflega bagalegt i
vetur, í mestu kuldaköstunum
höfðum við engan veginn nægi-
legt vatn,” sagði Eyþór enn-
fremur. „Við kyntum þó töluvert
af stærri húsum með olíukynd-
ingum, en það var ansi kalt hjá
sumum.”
Borinn Narfi verður áfram við
boranir á Blönduósi, næstu tíu
dagaa.m.k.
-HP.
77/ Luxembofö
.. . _ . w
s
eða lengra...
Luxemborg er friösæll töfrandi
feröamannastaöur, mótaöur af frönskum
og þýskum menningaráhrifum - þar
sameinast franska giaöiyndiö og þýska
nákvæmnin. Þarsem landiö erlítiö, erstutt
aö skjótast til ýmissa stórborga í
nágrannalöndunum. Þannig er25 mínútna
akstur til borgarinnar Trier í Þýskalandi og
klukkustundar akstur til Koblenz, sem stendur
þarsem frægustu fljótahéruö Evrópu
sameinast, á mótum Mosel og Rínar.
LUXEMBORG - EINN FJÖLMARGRA STAÐA
íÁÆTLUNARFLUGI OKKAR.
FLUGLEIDIR