Dagblaðið - 31.05.1979, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979.
I
Iþróttir Iþróttir
Iþróttir Iþróttir
HACKiNLAYS
Öi>i Scotch
Jóhannes fékk
viskíflösku!
i
—kosinn leikmaður aprílmánaðar
íSkotlandi
Skozka Mackinley’s fyrirtækið, sem
framleiðir heimsfrægt gæðaviski,
hefur um nokkurra ára skeið veitt ein-
ura knattspymumanni verðlaun i hverj-
um mánuði. Hafa ýmsir frægir kappar
orðið til þess að hljóta hnossið, sem er
hvorki meira né minna en heil gallon-
flaska af úrvals visk í i.
Fyrir nokkrum vikum var Jóhannesi
Eðvaldssyni, nýbökuðum Skot-
landsmeistara, afhent ein slík flaska en
Jóhannes var kjörinn knattspymu-
maður mánaðarins í apríl.
Myndin hér til hliðar er tekin við af-
hendingu flöskunnar og það er Clark
Nelson sölustjóri hjá Mackinley’s fyrir-
tækinu, sem sést afhenda Jóhannesi
flöskuna. Auk flöskunnar góðu hlaut
Jóhannes í verðlaun ávísun upp á 100
sterlingspund.
Segir í fréttinni, sem fylgdi mynd-
inni, að skömmu eftir þessa afhendingu
hafi Jóhannes þurft að fara til Bern til
þess að taka þátt í landsleik þar fyrir
íslands hönd.
íþróttir
Talaðu þá beint við fólkið sem notar vöruna.
Þú nærð til þess í VIKUNNI, mest lesna tímariti á íslandi.*
Sértu að bjóða það sem fólkið í landinu raunverulega vill og á verði og/eða
greiðslukjörum sem því líkar, þá færð þú auðvitað viðskiptin.
*Skv. fjölmiðlakönnun Hagvangs og Sambands ísl. auglýsingastofa.
nKiiv
Það gekk oft mikið á i vitateig liðanna. Á þess
markvörður Fram.
Lokai
fyrir
—ogVals
Víti! Víti! hrópuðu æstir aðdáendur Fram-
ara á lokaminútum leiksins gegn Val í
Laugardalnum í gærkvöldi. Rétt áður hafði
Simoni Kristjánssyni verið illa brugðið innan
vítateigs Valsmanna og augnabliki síðar var
Guðmundi Steinssyni skellt flötum. Dómar-
inn, Sævar Sigurðsson, lét hins vegar ekkert
á sig fá þótt i báðum þessum tilvikum virtist
um augljósar vítaspyrnur að ræða. Hann
hafði vafalitið fengið sig fullsaddan af vita-
spyrnum i bUi því þegar þetta atvik gerðist á
88. minútu hafði hann tvívegis dæmt viti i
leiknum — í bæði sldptin voru það harðir
dómar. Hvað um það, leiknum lauk með
nokkuð sanngjörnu jafntefli, 1-1.
Leikur liðanna í gærkvöldi var vafalítið
bezti leikur sem sézt hefur á þessu vori. Bæði
liðin reyndu að byggja upp skemmtilegar
sóknarlotur og tókst það, en ærið oft vant-
aði herzlumuninn og mörkin urðu því aðeins
tvö er upp var staðið.
Framarar léku undan vindinum í fyrri
hálfleik og það var greinilegt, að þeir ætluðu
að freista þess að koma Valsmönnum í opna
skjöldu í upphafi leiksins. Tvivegis fengu
þeir ágæt færi til að skora, einkum þó Haf-
þór Sveinjónsson á 8. mín., er hann hitti ekki
knöttinn i mjög góðu færi. Sókn Framara
var þung fyrsta stundarfjórðunginn og á 16.
mínútu uppskáru þeir mark.
Rafn Rafnsson tók þá langt innkast frá
vinstri og kastaði knettinum vel inn í teiginn
þar sem boltinn barst algerlega óviljandi í
hönd eins Valsmannanna. Sævar dómari
hikaði ekki eitt augnablik og dæmdi um-
svifalaust vítaspyrnu. Úr henni skoraði Pétur
Ormslev af öryggi. ístaðþess aðtvíeflasttóku
Framarar lífinu með ró og voru ekkerl að
flýta sér. Slíkt getur ekkert lið leyft sér gegn
Val. Valsmenn komu meira inn í myndina en
áður, en tókst ekki að skapa sér nein færi.
Framarar fengu hins vegar tvívegis góð færi
til að skora, en þeim Marteini og Gunnari
Bjarnasyni, sem lék sinn fyrsta leik fyrir
Frám, mistókst að skora.
Á 30. minútu komst Hörður inn í sendingu
frá Símoni ætlaða samherja. Hörður lék
aðeins áfram en sendi síðan boltann með
þrumuskoti að marki. í þetta skipti bjargaði
marksúlan Fram því firnafast skot Harðar
hafnaði efst í stönginni alveg upp við þver-
slá.
Jón Einarsson átti skalla yfir slá og á loka-
mínútu fyrri hálfleiks varð Guðmundur Ás-
geirsson í Valsmarkinu að taka á honum
stóra sínum til að bjarga skoti frá Trausta
Haraldssyni af um 45 m færi.
Síðari hálfieikurinn byrjaði rólega og það
var ekki fyrr en á 58. mínútu að eitthvað
markvert gerðist og þá svo um munaði.
Pétur Ormslev tók hornspymu frá hægri og