Dagblaðið - 31.05.1979, Page 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979.
17
Áhugamenn fylkja liði [
DB hafði um daginn spurnir af þvi
að tveir breskir tónlistarmenn sem
hér starfa, þeir Brian Carlile i
Reykjavík og Michael J. Clarke á
Akureyri, hygðust setja saman
stærstu sinfóníuhljómsveit landsins,
en á áhugamannagrundvelli. I henni
verða hátt i sjötíu manns frá Akur-
eyri, Reykjavik og viðar, — hreinir
áhugamenn, tónlistarkennarar og
lærðir tónlistarmenn, — og munu
þeir leika af einskærri ánægju á
Dalvík, Akureyri, Hlégarði og loks í
Háskólabíói þann 10. júni. DB hitti á
þá kumpána um daginn og bað þá að
segja frá tildrögum þessa fyrirtækis
ogáformum sínum.
Hornog
strengir
,,Þarna liggja margar ástæður að
baki,” sagði Michael sem er tón-
listarkennari á Akureyri. „f fyrsta
„Það þarf vart að geta þess að eng-
inn fær eyri fyrir leik sinn eða söng,”
sagði Michael, „hvorki áhugamenn
né atvinnumenn og fjárhagslega
ábyrgð taka allir á sig aö jöfnu.
Kjami þessarar hljómsveitar verður
svo Sinfóniuhljómsveitin í Reykjavík
sem Brian hefur æft og Hljómsveit
TónUstarskólans á Akureyri sem ég
hef æft. Síðan munum við skiptast á
um að stjóma. Aðalatriðiö er
kannski ekki hinn opinberi
flutningur, heldur æfingarnar sem
líta má á sem eins konar námskeið i
samleik.”
Frumflutningur
,,Ef þetta tekst vel,” segir Brian,
,,þá munum við auglýsa eftir þátttöku
á næsta ári og þá getum við kannski
náð saman mjög stórri hljómsveit
sem fengist gæti við meiri háttar
verk, t.d. BerUoz og Mahler. En í
Michael J. Clarke og Brian Carllle.
Reykjavíkurdeildin á æfingu
þetta sinn erum við með forleiki, ein-
leiksverk og verk fyrir blandaða
hljómsveit á dagskrá og svo ætla þau
Garðar Cortes og Ólöf K. Harðar-
dóttir að syngja fyrir okkur ariur úr
La Traviata og Requiem messunni
eftir Verdi, a.m.k. á Akureyri. Það
sem kannski er nýstárlegast við efnis-
skrána er að við flytjum í fyrsta sinn
verk eftir breska tónskáldið Peter
MaxweU Davies á íslandi, en það er
nýtt og heitir „FiveKlee Pictures”.
Og síðan vom þeir þotnir á
æfingu, þessir atorkumenn á tón-
listarsviðinu. En tónleikar þeirra
verða sem hér segir: Á Dalvík (Víkur-
röst) 3. júni kl. 17, á Akureyri
(íþróttahúsi Glerárskóla) 4. júní kl.
17, Hlégarði i Mosfellssveit 9. júní kl.
17 og loks I Háskólabíói 10. júni kl.
15.
lagi fundum við báðir fyrir því í
okkar kennslu að okkur vantaði fleiri
hljóðfæraleikara til ákveðinna verk-
efna, — mig vantaði horn en Brian
skorti strengi, en saman gátum við
gert skemmtilega hluti. Svo erum við
báðir vanir stórum áhugamanna-
hljómsveitum í Bretlandi, en þar eru
þær fyrir löngu orðin hefð. Margar
þeirra eru svo góðar að þær standa
atvinnuhljómsveitum fyllilega á
sporði. Hér hefur þessi hefð ekki
verið til, einhverra hluta vegna, fyrr
en Garðar Cortes stofnaði Sinfóniu-
hljómsveitina í Reykjavík.”
„Hljómsveitarstarfsemi af þessu
tagi hefur talsvert félagslegt gildi,”
sagði Brian Carlile sem einnig er tón-
listarkennari og hljóðfæraleikari í
Sinfóníunni.
„Fólk sem hlotið hefur einleiks-
þjálfun aö vissu marki fær tækifæri
til að æfa sig í samleik og einfaldlega
spila af hjartans lyst. Það má segja
að hér sé of mikið um sólóista í tón-
listinni, bæði meðal áhugafólks og
atvinnumanna og þeir fá ekki næga
æfingu í því að leika saman. Úr þessu
viljum við bæta.”
Brýnþörf
„Það má kannski segja að allt hafi
verið fljótandi í tónlist í vetur,” sagði
Michael, „og þvi bráðræði aö leggja
út í svona nokkuð. En við erum sann-
færðir um að brýn þörf sé á þessu,
enda hafa viðbrögð fólks bent til
þess. Við höfum fengið upphring-
ingar frá fólki viðs vegar af landinu
sem vill taka þátt í þessu.”
„Þama er fólk frá sjö þjóðum,”
skýtur Brian inn í, „og frá 12 ára
aldri til sjötugs.”
Tónlist
íNoregi
'Glæsilegt úrvalaf
SVEFNPOKUM
mr/
með dún og/eða
Hollofil fyUingu
Helsport Heia, verð kr. 22.900.-
Fylltur með dacronfiber, 90 cm rennilás að
framan
Lengd 215 cm, þyngd 1.5 kg, iægsta hitastig: + 5C
Siesta Super, verð kr. 22.600.-
280 cm opinn rennilás, hægl er að renna tveimur
saman. Fylltur með dacron HOLLOFIL, nýja
fibernum sem líkist dún.
Lengd 200 cm, þyngd 1.8 kg, lægsta hitastig: 0°C.
SAVALEN, verð kr. 26.500.-
200 cm hliðar-rennilás. Fylltur m/dacronfiber
Lengd 225 cm, þyngd 1.7 kg. lægsta hitast.: 0°C
VANDRERN, verð kr. 30.700.-
Fylltur m/dacron HOLLOFIL, 90 cm hliðarrennilás
Lengd 225 cm. þyngd 1,75 kg, lægsta hitast.:
—10°C.
BJÖRNOYA, verð kr. 43.500.-
Fylltur að ofan með andadún. Neðan mJdacron-
fber.
Þyngd 1.5 kg. lægsta hitastig: —12C.
TIRICH MIR, verð kr. 78.300.
Fylling: ca 600 gr hvitur gæsadúnn.
Lengd 230 cm. þyngd 1.35 kg. lægsta hitast.:
—25°C.
PÓSTSENDUM
TROLLHEIMEN, verð kr. 58.900.-
Fylling. ca 600 gr grár gæsadúnn.
Lengd 230 cm, þyngd 1.2 kg. lægsta hitast.:
—5°C.
DUNLERRET, verð kr. 76.500.-
Fylling. ca 700gr andadúnn.
Lengd 230 cm, þyngd 1.8 kg, lægsta hitast.:
—20°C
GLÆSIBÆ -
SÍMI30350