Dagblaðið - 01.06.1979, Síða 3

Dagblaðið - 01.06.1979, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ1979. Dreyf ing mjólkur til bamafjölskyldna —gegn framvísun „blá kortsins” 7210—8868 skrifar: Mig langar til þess að segja ykkur ofurlitla sögu sem sjálfsagt er ekkert einsdæmi í þessu margumtalaða mjólkurverkfalli. Sonur minn er 9 mánaða gamall. Ég ól hann á brjósta- mjólk í rúmlega 7 mánuði. Eftir það hef ég gefið honum kúamjólk. Ég hef því hvorki þurft aö gefa honum „djús” né mjólkurduft. í mjólkur- leysinu tók ég þó það til bragðs að gefa honum Lidamin þurrmjólk. Ánægjusvipnum á andliti barnsins gleymi ég ekki er hann sá að það var Það er góð afsökun fyrir kókdrykkju að mjólk skuli ekki fást. mjólk í glasinus ínu en ekki þetta „djús” sem honum þykir vont. Ég gleymi því heldur ekki þegar hann uppgötvaði að það var alls ekki mjólk í glasinu heldur eitthvað sem hann kannaðist ekki við og líkaði auðsjáanlega ekki. Hann fór aö há skæla er hann hafði drukkið einn sopa og vildi ekki meira. Og éghefði getað grátið með honum. Mér skilst að mjólkurfræðingar hafi boðið Mjólkursamsölunni til- tekið magn af mjólk sem Samsalan treysti sér ekki til þess að dreifa vegna þess hve magnið var lítið. En lítið mjólk er betri en engin. Hægt væri að afgreiða aðeins barnafólk með þá mjólk sem fæst, og er þá hægt að framvísa bláu korti sem öll ungbörn fá frá ungbarnaeftirlitum til þess að sanna tilvist þeirra. Nú ef mjólkin reynist of lítil tii þess að hver fjöl- skylda fái einn dagskammt þá er hæglega hægt að koma því þannig fyrir að hver fjölskylda fái mjólk annan hvern dag. Ég er sannfærð um að þetta er hægt, bara ef viljinn er fyrir hendi. Is Raddir lesenda Gaukshreiður ellinnar: „Enginn gerir svo öllum líki” —ekki sjálf ur Guð í Himnaríki DAG- SKRÁ: Föstudag 1. júní Dansleikur frá kl. 9—2 Laugardagur 2. júní Hljómleikar kl. 2 Meðal dagskrár: Ólafur Þórarinsson flytur frumsamin lög ásamt 10 manna hljómsveit. Tekið skal fram að flest þessara laga eru frum- flutt. Baldur Brjánsson Grétar Hjaltason Fallhlífarstökk Hljómsveitin KAKTUS leikur frá kl. 9—2 Sunnudagur 3. júní Árdegismessa Baldur Brjánsson Grétar Hjaltason Lifandi skák Sýndur verður DISKÓDANS ÞRlFÓTAHLAUP!! (MEN ONLY?) Diskótek Ara Páls og Meatloaf Islands skemmta alla dagana Rumpufjör alla dagana Mætum öll I þrumustuði!! Knattspymudeild U.F.H.Ö. Magnea Hjálmarsdóttir, heimilis- kennari skrifar: Hvað er „Gaukshreiður ellinnar”? Hverjum er sparkað úr hreiðrinu? Er það gamla fólkinu, sem ættingjar annaðhvort geta ekki eða vilja ekki hafa? Væri úr vegi að þakka forstjór- anum á Elliheimilinu Grund, Gísla Sigurbjömssyni, þjónustu og skjól fyrir þetta fólk, sem hvergi hefur rúm í þjóðfélaginu. Viljið þið ekki líta inn og sjá hvað verið er að gera á Grund? Hafið þið kynnt ykkur hve mikil þjónusta er þarna veitt? Einhvers ^ staðar stendur: „Enginn gerir svo öllum líki, ekki sjálfur Guð í himna- ríki”. Enga stofnun, skóla eða einka- heimili þekki ég, þar sem ekkert má ,að finna. Hvers vegna var ekki kvart- að, ef eitthvað fór úrskeiðis, við yfir- .hjúkrunarkonu, lækna, eða forstjór- ann? Það var hin rétta leið til úrbóta. Hvernig væri að snúa dæminu við: AUir sem hafa notið þarna góðrar þjónustu, og þeir eru margir, þökk- uðu fyrir sig. Vistfólkinu er enginn greiöi gerður með þeim skrifum sem átt hafa sér stað undanfarið. Kona sem dvalið hefur á Grund í 15 ár, segir að sér hafi aldrei liðið eins vel og eftir að hún kom þar. Það eru ekki margir á meðal okkar sem hafa unnið það þrekvirki að byggja yfir gamla fólkið, við lítinn skilning ráða- manna, sbr. skýrslu Alfreðs Gísla- sonar læknis. Ég hef unnið við þessa stofnun frá árinu 1961. Ég fullyrði að þar starfar margt gott fólk. Þeir sem hafa unnið þama lengst telja 30 ár að baki. Trúi sv0 hver sem vill, að fólk starfaði þarna svo lengi ef hinar ljótu lýsingar væru réttar. Guðrún Guðmundsdóttir frá Melgerði, sem margir kannast við, hefur verið rúm- Liggjandi sjúklingur á Grund i yfir 20 ár. Ég lýk þessu greinarkorni með vísu frá Guðrúnu, sem birtíst i Heim- ilisblaðinu og sýnir hvern hug hún ber til heimilisins: Hér má sjá og sanna sigur þeirra manna er reyna öll sin ár, hið góða og göfga að styðja Guð sinn lofa og biðja og þerra þrautatár. Ég vil að lokum skora á borgaryfir- völd að veita fé til Grundar til starf- rækslu fullkominnar hjúkrunardeild- ar. HVÍTASUNNUHÁTÍÐ KOLVIÐARHOU 1. - 3. júní 1979 Beðið eftir grænu Ijósi. Mynd Hörður. Spurning dagsins Hvað ætlarðu að gera um hvítasunnu helgina? Hilmar K. Jónsson: Fara út úr bænuim og skemmta mér með félögum mínum. Sigurjón Davið Kartsson: Ég verð bara heima og horfi á sjónvarpið. Grima Kristinsdóttir: Ég er ekkert farin að hugsa út i það. Liklega fer ég þó vestur í Dalasýslu. min,-;,.... Elva Hauksdóttir: Ég ætla út á land, tíl Stykkishólms þar sem ég á heima. Guðlaug Ágástsdóttir: Ég fer lika til Stykkishólms og ætia að slappa þar af yfir helgina. Gunnar Jónsson: Hvítasunna? Hvað er nú það. Nei ég er sko ekkert að pæla i svoleiöis hlutum.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.