Dagblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979. 9 Nicaragua: Sex erlendir námsmenn féllu í bardögum Sex erlendir námsmenn voru drepnir i átökum í borginni Rivas i Nicaragua í gær. Samkvæmt fregnum frá ná- grannaríkinu Honduras eru miklir bar- dagar þar á milli herliðs Somoza ein- ræðisherra og skæruliða sandinista sem vilja steypa honum úr stóli. Námsmennirnir, sem lögðu stund á landbúnaðartækni í Nicaragua, sem er að mörgu leyti fremra nágrannaríkjun- um á tæknisviðinu, voru frá Honduras, E1 Salvador og Guatemala. Létu þeir lífið þegar sprengja sprakk í háskólan- um í Rivas. Fregnir frá Nicaragua eru heldur óljósar og útvarpssendingar þaðan óreglulegar. Óvinsældir Somoza virðast þó vera verulegar meðal lands- manna en ekki vist að sandinistaskæru- liðar hafi bolmagn til að steypa honum. Somoza segir að sandinistar, sem nefndir eru eftir fyrrum forseta lands- ins sem Bandarikjamenn steyptú i inn- rás árið 1926, séu ekkert nema útsend- arar Castros á Kúbu. Fimmtu hverri DC-10 þotu áfátt Burmeister og Wein Kaupmannahöf n: Helmingi starfsmanna sagtuppígær —ef þessi stærsta skipasmiðja Danmerkur fær ekki nýjar pantanir mun hún lokafyrirl.febrúar næstkomandi Burmeister og Wein skipasmíða- stöðin í Kaupmannahöfn mun hætta starfsemi sinni hinn 1. febrúar nk. takist ekki að tryggja aukin verkefni fyrir þann tíma. í gær fékk helm- ingur starfsliðsins uppsagnarbréf vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem fyrirtækið er í. Forráðamenn skipa- smíðastöðvarinnar segja að tryggja verði ný verkefni fyrir lok ágúst- mánaðar næstkomandi. Uppsagn- irnar, sem lenda á um það bil tvö hundruð starfsmönnum verða á átta mánaða tímabili. Nokkur hluti þeirra mun hætta störfum í ágústmánuði en auk þess verður komið á vaktafyrir- komulagi þar sem sumir vinna ekki nema aðra hvora viku. Bæði forustumenn fyrirtækisins og trúnaðarmenn skipasmiða hafa lýst því yfir að þeir séu bjartsýnir á að takast muni að ná samningum um smíði skipa þannig að ekki þurfi að koma til uppsagnar í þessarri stærstu skipasmíðastöð Danmerkur. Að sögn er vandinn sá að Burmeister og Wein þarfnast að- stoðar svo bjóða megi væntanlegum kaupendum venjulega lánafyrir- greiðslu. Einnig hefur komið til tals að aftur verði hafizt handa við við- gerðir skipa eins og áður auk þess sem rætt er um að stoð við að byggja upp fiskiskipaflota fyrir Suður- Amerikurikið Uruguay. Þó sh'k verk- efni fengjust er þau þó ekki talin næg til að rétta við erfiðan hag skipa- smíðastöðvarinnar. Burmeister og Wein og forstjóri fyrirtækisins Jan Bondum Nielsen hafa mjög verið milli tannanna á Dönum síðustu mánuði. Þykir sumum undarlegt hvemig sá maður gat náð meirihluta í fyrirtækinu áriðk 1974. Nielsen er sagður vehauðugur.' Mun hann einkum hafa auðgast á þvi að selja vörur i tengslum við hjálp Dana við þróunarlöndin. í fýrstunni jókst hagur Burmeister og Wein mjög undir stjórn hans en tvö síðastliðin ár hefur mjög hahað á ógæfuhhðina og verkefni skort. Meira en fimmta hver þeirra DC-10 farþegaþotna, sem rannsakaðar vom í kjölfar flugslyssins í Chicago þegar 273 manns fórust.reyndust bilaðar eða áfátt á einhvern hátt. Fá þær ekki flugheim- ild fyrr en bætt hefur verið úr. Mun það einkum vera í sambandi við marg- umtalaðar festingar hreyflanna. Aftur á móti telja sumir komið í ljós að bolti sá sem tahnn. var hafa gefið sig í hreyfilfestingu þotunnar sem fórst við Chicago hafi aðeins gefið eftir vegna mikils átaks vegna annarrar bilunar en ekki að hann hafi verið orsök þeirrar bilunar. Zimbabwe-Ródesía: Kyrrlát stof nun nýs ríkis Zimbabwe-Rodesía, sem nú er stjórnað af blökkumönnum í meiri- hluta, var stofnað í gærkvöldi án mik- illa hátíðarhalda. Nýju leiðtogarnir standa frammi fyrir auknum skæru- hemaði, einangrun frá öðrum rikjum heims og versnandi afkomu. Hljóðlát tilurð hins nýja ríkis, undir forsæti Abel Muzoreva biskups, kemur í stað 88 ára stjórnar hvítra manna þar í landi. Leiðtogar frelsissamtaka blökku- manna í landinu hafa hins vegar hótað því að berjast með jafnmiklum krafti gegn stjóm Muzoreva og þeir börðust gegn minnihlutastjórn Ian Smith. Smith sagði á blaðamannafundi í Sahsbury í gær að hann teldi stjóm blökkumanna hafa komið til of snemma en hann lýsti sig bjartsýnan á framtíðina. Muzoreva biskup hefur lýst því yfir að hans hjartans mál séu að stöðva skæruhernað í landinu, halda uppi nægri matvælaframleiðslu og halda góðu sambandi við eina bandamann ríkisins í nágrenninu, Suður-Afríku, enda þótt þar ráði hvítir menn. Þúsundir danskra kvenna — og karla — mættu á útihátiðahöld, sem haldin voru nýlega við Arúsa á Jótlandi. Þykir dönsku jafnréttisfólki Jótar standa sig vel i baráttunni. SENDUM LITMYNDA- LISTA EF ÓSKAÐ ER INGVAR OG GYLFI SF. GRENSASVEGI3 SÍMI81144. ÚSK NR.21. Vwö m/dýnum kr. 12«. 100 NAttborfi kr. 3t.100.atk REKKJAN NR. 23. VmrB m/dVnum kr. Ht.200. FURANR.27. Vari m/dýnum og nAttborflum kr. ANTIK NR. 28. Vtrð m/dýnum og náttborðum kr. 3M.000. VENUS NR. 2S. Varð m/dýnum og nMborðum kr. ÁSTARKÚLA m/tttsiónvarpí, myndsoqutoondl, útvarpi, sogubandl og toskáp. Vmó kr. 6.400.000. *mMmms m REKKJANNR. 23 W. Vorð m/dýnum, koM og spogl kr. 470.000. HJÖNASÆLAN NR. 26. Vorfi m/dýnum kr. K0.000. REKKJAN NR. 23 P. Vorfi m/dýnum kr. 3*1.600. NÓTTNR.24. Vorð m/dýnum kr. 266.700. VERONA m/Crtvarpsklukku og dýnum. Vorð kr. 493.000. TROGIÐ m/náttboröum og dýnum. Vorð kr. 207.000 ROSY m/snyrtiboði, s|ónvarpi og útvarpL Vorðkr. 034.600. ANTIKHVtT m/dýnum og náttborði. Vorð 306.000. HREIÐRIÐ ► m/dýnum. Vorð kr. 170.700. Kaupið rúmin af framleiðanda — Það tryggir lœgra verð.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.