Dagblaðið - 01.06.1979, Qupperneq 6

Dagblaðið - 01.06.1979, Qupperneq 6
6 HAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979. .Við grunnskóladeild Fjölbrautaskólans á Akranesi eru lausar kennarastöður. Kennslugreinar: stærðfræði, eðlisfræði og líffræði. Æskilegt er' að umsækjendur hafi B.S. eða B. Ed. próf í: þessum greinum. Upplýsingar veitir skólameistari í síma 93- 2544 kl. 9—15 virka daga. Sk6tanefnd. Auglýsing um aðalskoflun bifreiða í lögsagnar- umdæmi Reykjavíkur í júnímánuði 1979. Föstudagur 1. júni R-35201 til R-35600 Þriöjudagur 5. júní R-35601 til R-36000 Miövikudagur 6. júni R-36001 til R-36400 Fimmtudagur 7. júni R-36401 til R-36800 Föstudagur 8. júni R-36801 til R-37200 Mánudagur ll.júni R-37201 til R-37600 Þriðjudagur 12. júni R-37601 til R-38000 Miövikudagur 13. júni R-38001 til R-38400 Fimmtudagur 14. júni R-38401 til R-38800 Föstudagur 15. júni R-38801 til R-39200 Mánudagur 18. júni R-39201 til R-39600 Þriðjudagur 19. júni R-39601 til R-40000 Miðvikudagur 20. júni R-40001 til R-40400 Fimmtudagur 21. júni R-40401 til R-40800 Föstudagur 22. júni R-40801 til R-41200 Mánudagur 25. júnl R-41201 til R-41600 Þriöjudagur 26. júni R-41601 til R-42000 Miðvikudagur 27. júni R-42001 til R-42400 Fimmtudagur 28. júni R-42401 til R-42800 Föstudagur 29. júni R-42801 tii R-43200 Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar- sínar til Bifreiðaeftirlits ríkisins, Bíldshöfða 8 og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl. 08:00—16:00. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að bifreiðaskattur sé greiddur og vá-. trygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Athygli skal vakin á því, að skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjald- mælir í leigubifreiðum sem sýnir rétt ökugjald á hverjum tíma. Á leigubifreiðum til mann- flutninga, allt að 8 farþega, skal vera sérstakt merki með bókstafnum L. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tíma verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum. Lögreglustjórinn í Reykjavík 30. maí 1979. Sigurjón Sigurflsson. IÐNAÐURINN HRÁEFNISLAUS EFTIR VIKU Mestur hluti íslenzkra iönfyrir- hvort að segja upp starfstólki i skorts, en skv. sérstöku samkomulagi tækja verður orðinn hráefnislaus stórum stíl eða beita verkbanni. verður fólkinu ekki sagt upp né sett á eftir aöeins eina viku, skv. könnun Um 40 manns missa vinnu sina nú það verkbann, heldur fer það á at- sem gerð hefur veriö meðal þeirra. Þá um helgina hjá efnaverksmiðjunni vinnuleysisbætur. verða þau að hætta rekstri og annað- Sjöfn á Akureyri vegna hráefnis- -GS Prínsessan á bauninni. Bessi Bjarnason og Róbert Arnflnnsson I hlutverkum Kyn- frefls kóngs og Hugapríns. Sýningum á Prinsessunni lokið: KOSTNAÐUR FÆST EKKIUPPGEFINN — samdóma álit manna að efni söngleiksins væri rýrtoglélegt Rafmagns- laust í Seljahverfi Rafmagnið fór af Seljahverfi í Breið- holti fyrri hluta dags í gær. Skemmd varð á strengnum miili Flúðasels og út- varpsstöðvarinnar. Nokkuð tíðar bilanir hafa verið i Seljahverfi að undanfömu og sagði starfsmaður bilanadeildar' Rafmagns- veitu Reykjavikur að þær stöfuðu af þvi að vinnuvélar slitu rafstrengi. Svo var einnig í gær, en strengurinn sem slitinn var var svo til nýr. í hverfum sem eru í byggingu má alltaf búast við truflunum af þessum sökum. -JH Umsókn um íssölu á Lækjartorgi synjað Borgarráð hefur synjað Þorsteini Erni Þorsteinssyni um leyfi til að fram- leiða og selja ísvörur úr ísbíl á Lækjar- torgi. Samþykkt um þetta var gerð á fundi borgarráðs 29. mai og var hún byggð á umsögn heilbrigðisráðs frá 9. mai, sem lagðist gegn því að leyfið yrði veitt. _____________________-GM Grundarfjörður: Sparisjóðurinn 25ára Sparisjóður Eyrarsveitar, Grundar- firði, átti 25 ára afmæli á dögunum og af því tilefni bauð stjórn sparisjóðsins ábyrgðarmönnum, starfsfólki og gestum til samsætis í matstofu Soffaní- asar Cecilssonar og voru þar saman- komnir um 50 manns. Rakin var saga Sparisjóðsins í stórum dráttum og getið um tengsl hans við uppbyggingu kauptúnsins í Grundarfirði. í tilefni afmælisins var ákveðið að gefa 500 þúsund til byggingar Grundar- fjarðarkirkju. Sparisjóðsstjóri er Hall- dór Finnsson. - JH Síðasta sýning á söngleik Þjóðleik- hússins, Prinsessunni á bauninni, var í gærkvöldi. Aðeins 10 sýningar voru og voru gagnrýnendur fjölmiðla nokkuð sammála um að verkið sem slíkt væri misheppnað, þrátt fyrir bærilega frammistöðu leikara. Áhorfendur hafa greinilega verið á svipuðu máli og gagnrýnendur, því verkið fékk ákaflega litla aðsókn. Sýn- ingin var fjölmenn og iburðarmikil og án nokkurs efa mjög dýr. Illa hefur gengið að fá upplýsingar um kostnað við sýningu þessa og vísar hver á annan í því efni. Dagblaðið hafði samband við Svein Einarsson þjóðleikhússtjóra og spurði hann um ástæður þess að söngleikur þessi fékk svo hraklega útreið. Sveinn bar við timaskorti og vísaði á Þórhall Sigurðsson, sem var aðstoðarleikstjóri. Þórhallur sagöi að fram hefði komið í dómum, að verk þetta þótti býsna rýrt og lélegt. „Slikir söngleikir byggja oft ekki á miklu efni,” sagöi Þórhallur, ,,en þá hefur góð músík oft bjargað þeim. Þvi var ekki til að dreifa i þessu tilfelli. Þegar þetta tvennt fer saman, rýrt efni og fremur lélegt efni þá þolir verkið ekki þá yfirbyggingu, sem það fékk hjá hinum erlenda leikstjóra.” Þórhallur sagðist ekki geta sagt um kostnað vegna sýningarinnar, en visaði á fvar H. Jónsson skrifstofustjóra Þjóðleikhússins. Hann sagði þó að bæði núverandi og fyrri þjóðleikhús- stjórar hefðu fylgt þeirri reglu aö gefa aldrei upp kostnað einstakra sýninga. Slíkt væri raunar ekki auðvelt að reikna. ívar H. Jónsson skrifstofustjóri sagði að ekkert lægi fyrir um kostnað. Hann sagðist ekki vita hvort kostnaður yrði gefinn upp. Kostnaður er ekki sundurliðaður á einstök verkefni í bók- haldi, heldur aðeins „fyrir okkur”, eins og ívar orðaði það. Það kom fram hjá ívari að um 3500 manns höfðu séð Prinsessuna á baun- inni fyrir síðustu sýningu. - JH Stœrsta úrval svefnherbergishúsgagna á landinu INGVAR OG GYLFI GRENSÁSVEGI3 108 REYKJAVÍK, SÍMI: 81144 OG 33530. Sérverzlun með rúm

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.