Dagblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 10
10 BIAÐIÐ fijálst, ohád dagblað r‘ ' ~ •' Útgefandi: Dagblaðiö hf. Framkvœmdastjórí: Sveinn R. Eyjótfsson. Ritstjórí: Jónas Krístjánsson. Ritstjómarfulltrúi: Haykur Holgason. Skrífstofustjórí rítstjómar Jóhannes Roykdal. Fróttastjórí: Ómar Valdimarsson. íþróttir Hallur Simonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aðstoðarfréttastjóri: Jóqas Haraldsson. Handrít Ásgrímur Pólsson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómassop, Atii Steinarsson, Bragi Sigurösson, Dóra Stofónsdótt- ir, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Helgi Pótursson, Ólafur Geirsson, Sigurður Sverrísson. Hönnun: Guðjón H. Pólsson. Ljósmyndir: Ámi Póll Jóhannsson, Bjamleifur BjamleHsson, Hörður Vilhjólmsson, Ragnar Th. Sigurðs- son, Sveinn Pormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkerí: Próinn Poríeifsson. Sölustjórí: Ingvar Sveinsson. Droifing arstjóri: Mór E.M. Halldórsson. Ritstjóm Siðumúla 12. Afgreiðsla, óskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þvorholti 11. Aöalsimi bla^sins er 27022 (10 línur). Áskríft 3000 kr. ó mónuði innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaðið hf., Siöumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf. Síðumúla 12. Prentun: Árvaj<ur hf. Skeifunni 10. ffver vill gúmmítékkana ? Launþegum yrði lítill akkur í að fá nú úr höndum atvinnurekenda innistæðu- lausa gúmmítékka upp á verulega krónutöluhækkun kaups. Horfur eru á minnkun þjóðartekna. Kakan smækkar, og því er minna til skipta. Við ríkjandi aðstæður ber > verkalýðshreyfingunni að stefna að tvennu. í fyrsta lagi að reyna að varðveita kaupmátt launa með sér- stakri áherzlu á láglaunin. í öðru lagi að hindra, að launahlutföllin milli hópa launþega fari úr skorðum vegna tiltölulega meiri hækkunar hærri launa en hinna lægri. Reynslan hefur sýnt verkafólki tilgangsleysi þess að knýja fram krónutöluhækkanir, jafnvel með fórnum i verkföllum, ef þær renna beint út í verðlagið. Síðustu sjö árin hefur aðeins eitt prósent af kauphækkunum skilað sér til launþega i bættum kaupmætti. Hitt hefur einfaldlega farið út í verðbólguna. Raunverulegar kjarabætur verða að eiga stoð í bættum hag þjóðar- innar sem heildar eða að sá hópur, sem kjarabótum nær, nái til sín hærra hlutfalli en áður miðað við aðra hópa. Ef launþegar eiga sem heild að fá kjarabætur við óbreyttar þjóðartekjur, verða þeir því að ná til sín stærri hlut með því að ganga á tekjur fyrirtækjanna. Við núverandi aðstæður er augljóst, að staða fyrir- tækja í landinu er að jafnaði ekki með þeim hætti, að þangað verði sóttar umtalsverðar kjarabætur. Verulegar kauphækkanir mundu því fljótlega velta yfir í verðlagið. Þetta er ekki nýtt, og oft hafa atvinnu- rekendur og verkalýðsforingjar náð góðu samkomu- lagi í lok kjarasamninga með vitorði ríkisstjórnar og málum verið „reddað” með því að snúa verðbólgu- hjólinu einn hring. Við það hafa foringjar þessa þrístirnis talið sig fá stundargrið. Foringja almennu verkalýðsfélaganna fýsir nú ekki að ganga til þessa leiks, af því að þeir hafa flestir hverjir nokkra samúð með stefnuyfirlýsingum ríkis- stjórnarinnar. Þeir kunna hins vegar að eiga þann kost einan og geta þá vafalítið sett sig í stellingar til þess eins ogsvooft áður. Launastefna ríkisstjórnarinnar er í mörgu hrunin. Hún sagðist stefna að óbreyttu grunnkaupi til ársloka- í ár og varðveitingu kaupmáttarláglauna.Rikisstjórnin varð undan að láta með launaþak, þegar stjórnarliðar sjálfir í stjórn Reykjavíkurborgar rufu þakið og það var síðan afnumið hjá opinberum starfsmönnum með dómi. í kjölfarið var þakinu svipt af launum flug- manna, sem olli mikilli hækkun þeirra háu launa. Nú um mánaðamótin fá opinberir starfsmenn og fleiri hópar þrjú prósent grunnkaupshækkun. Augljóst er, að sú kauphækkun verður að ganga yfir alla. Almennt verkafólk getur ekki tekið við launa- lækkun í samanburði við betur setta hópa, hvað sem verðbólgunni liður. Þjóðfélagið verður því að rúlla þeim gúmmítékka, en miklu meiri er hættan á al- mennri og umfangsmikilli útgáfu gúmmítékka til laun- þega landsins í kjölfar þess, að yfírmenn á kaupskipum fengju launahækkun, sem einhverju skipti. Vafalaust má leiðrétta með ýmsum hætti kjara- samninga farmanna og annarra launþegahópa, þar sem misfellur finnast. Hins vegar vita forystumenn far- manna jafnvel og aðrir, að önnur launþegafélög munu hiklaust fylgja á eftir, verði niðurstaða farmannaverk- fallsins umtalsverð kauphækkun. Að því loknu mun þjóðfélagið standa uppi með stórum meiri verðbólgu vegna allra gúmmítékkanna en engu meiri kaupmátt, hvorki hjá farmönnum né öðrum launþegum. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR I. JÚNÍ 1979. Noregur: Fjárhagsvandi fískiflotans eykst stööugt Norskur fiskiðnaður og fiskveiðar hafa um langt árabil veriö mjög styrkt af ríkinu og hefur það stöðugt farið vaxandi. fslenzkur sjávarútveg- ur hefur goldiö þessa mjög bæði hvað varðar sölu á saltfiski og fryst- um ftski þar sem Norðmenn hafa veitt okkur harða samkeppni. Eftir því sem fram kemur í norsk- um blöðum telja forsvarsmenn norsks fiskiðnaðar og -veiða alls ekki nóg að gert og krefjast frekari að- stoðar af opinberri hálfu. f norska blaðinu Fiskaren frá 21. þessa mánaðar kemur fram að þeir hyggjast fara á fund fískimálaráö- herrans og krefjast úrbóta, einkum varðandi reglur um lán tíl fjárhags- legrar endurskipulagningar fyrir- tækjanna, sem norskir fiskverkendur og útgerðarmenn telja ábótavant. — Við urðum fyrir miklum von- brigðum, þegar við fengum aö vita hverjar hugmyndir ríkisvaldiö gerði sér um hvernig aðstoða þyrftí þessa atvinnugrein, segir Jöm Krog, for- maður samtaka norskra bátaút- gerðarmanna, í viðtali við Fiskaren. — Við munum samstundis koma því á framfæri að við teljum þetta engan veginn nægilegt tíl að leysa okkar vanda. Samtökin hafa hvað eftir annað sett fram óskir um mjög aukið fjár- framlag frá ríkinu til að færi gefist á að endurskipuleggja norskar fisk- veiðar. Til þess að bæta aðeins úr hinu allra nauðsynlegasta hafa for- ustumenn þeirra sagt að þurfi í það minnsta eitt hundrað og fimmtíu milljónir norskra króna eða jafnviröi um það bil tíu milljarða islenzkra króna. Stór hlutí norskra togara hefur til skamms tíma fengiö 40 aura uppbót á hvert kilógramm sem þeir hafa fært að landi. Er það jafnvirði 26 ís- lenzkra króna. Samkvæmt tillögum norsku ríkisstjómarinnar verður ekki hægt að halda greiðslum á þeim upp- bótum áfram. Kæmi það sér mjög illa fyrir útgerð þeirra þar eð nýverið hafa verið settar strangari veiöitak- markanir þar sem þeir einkum stunda veiðar. Norski hringnótabátaflotínn kemur einnig til meö að bera skaröan hlut frá borði ef tíUögur ríkisins munu gilda. Þar er gert ráð fyrir að aðeins þeir bátar sem styrkhæfir eru njóti hans. Hefur þetta meðal annars það í för méð sér, að sögn forustu- manna útgerðarinnar, að þeir bátar sem helzt hafa þörf á styrk munu ekkert fá. Forustumenn norsks fiskiðnaðar og útgerðar kvarta mjög yfir skiln- ingsleysi þarlendra stjómvalda og þá einkum yfir því hve illa gengur að sannfæra þau um nauðsyn skjótra aðgerða. Segja þeir aö með þessu háttalagi hafi þau valdið því að mikill söluhugur sé i mörgum eigendum fiskiskipa. Endurskoðun varnarsamningsins Margir eru þeirrar skoðunar, að éngu megi breyta í varnarsamningn- um, aðrir telja endurskoðun hans nauðsynlega og svonefndir hernáms- andstæðingar vilja að herinn fari sem allra fyrst. Umræður um varnar- málin hafa oftast einkennst af þekk- ingar- og viljaleysi og hvers konar of- stæki, enda virðast umfjöUunaraðilar hafa haft mjög takmarkaðan áhuga á að kynna sér þessi mál á raunhæfan hátt. í þessu sambandi er nauðsynlegt að hugleiða og skoða gaumgæfUega ýmsar greinar varnarsamningsins frá 1951. í inngangsorðum samningsins segir orðrétt: „Þar sem íslendingar geta ekki sjálfir varið land sitt, en reynslan hefur sýnt, að vamarleysi lands stofnar öryggi þess sjálfs og friðsamra nágranna þess í voða, og þar sem tvísýnt er um alþjóöamál, hefur Norður-Atlantshafsbandalagið farið þess á leit við ísland og Banda- ríkin að þau geri ráðstafanir tU að látin verði í té aðstaða á íslandi tU varnar landinu og þar meö einnig tU varnar svæði því, sem Norður- Atlantshafssamningurinn tekur til meö sameiginlega viðleitni aðUa Norður-Atlantshafssamningsins til að varðveita frið og öryggi á því svæði fyrir augum.” Rétt er að ís- lendingar hugleiði í fullri alvöru, enda þótt langt sé um liðið, hvað það þýddi i raun og veru fyrir vopnlausa smáþjóð að fela stærsta herveldi ver- aldar að annast varnir landsins, enda þótt það hafi verið gert samkvæmt beiðni NATO. Óneitanlega var þessi ákvörðunartaka alvarleg skerðing á sjálfsforræði þjóðarinnar, a.m.k. á afmörkuðums viðum, en hið tvisýna ástand sem þá var ríkjandi í alþjóða- málum var talin nægjanleg réttlæting fyrir varnarsamningum. Ekki varnarstöð fyrir okkur Lítum nánar á varnarsamninginn. í 4. gr. hans segir orðrétt: „Það skal háð samþykki íslensku ríkisstjórnar- innar, hversu margir menn hafa setu á íslandi samkvæmt samningi þess- um.” Hins vegar er hvergi minnst á það í samningnum, að það sé háð samþykki rikisstjórnar tslands hvers konar vopn skulu staðsett hér á landi og hvernig þeim skuli verða beitt. í 5. gr. samningsins segir m.a.: „Bandaríkin skulu framkvæma skyldu sína samkvæmt samningi þessum þannig, að stuðlað sé svo sem frekast má verða að öryggi íslensku þjóðarinnar.” Nú eru senn liönir þrir áratugir frá því varnarliðið kom hingað til lands, en hvaða sjáanlegar ráðstafanir hafa verið gerðar af hendi Bandarikjanna til verndar og öryggis íslenskum þegnum. Alls eng- ar, enda vita sjálfsagt flestir nú, að hér er um að ræða hernaðariega eftir- litsstöð, en ekki vamarstöö fyrir ís- lendinga. Ýmsar fleiri greinar varnarsamn- ingsins eru mjög íhugunarverðar eins og t.d. 2. gr. 10. tl., þar segir orðrétt: „Liði Bandarikjanna er rétt að fara með lögregluvald á samningssvæðun- um og gera allar viðeigandi ráðstaf- anir til að halda uppi aga, allsherjar- reglu og öryggi.” Þessi grein hefur valdið miklum erfiðleikum í fram- kvæmd og orsakað ýmiss konar leið- indi i samskiptum þjóðanna. Grein þessi virðist brjóta í bága við stjórn- arskrána, en samkvæmt henni skulu íslendingar einir fara með lögreglu- og dómsmál í landinu. Samkvæmt 8. gr. 4., 5., 6. tölulið varnarsamningsins mega menn úr liði Bandaríkjanna og skyldulið þeirra, þegar þeir koma í fyrsta sinn tíl ís- lands til að taka við starfa sinum þar, flytja tollfrjálst persónulega muni sina og húsgögn til afnota, meðan á starfa þeirra stendur þar. Menn úr liði Bandaríkjanna og skyldulið mega flytja inn einkabifreiðir og bifhjól til eigin nota, meðan þeir dveljast á ís- landi. „Nú flytja menn úr liði Bandaríkj-' anna eða skyldulið þeirra inn aðrar vörur en þær sem tilgreindar eru í 4. og 5. tölulið þessarar greinar, þar. imeð taldar sendingar fyrir atbeina pósthúsa Bandaríkjanna, og skal þá slíkur innflutningur ekki samkvæmt þessari gtein undanþeginn tolli eða öðrum skilyrðum” (tilvitnun lýkur). Margsinnis hefur verið reynt á und- anförnum áratugum að fá staðfest hver beri ábyrgð á toUfríðindum J

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.