Dagblaðið - 01.06.1979, Side 14

Dagblaðið - 01.06.1979, Side 14
14 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979. i Allar skreytingar unnar af fag- , mönnum.______ Ncag bllaitasSI a.oi.k. á kvöldia iíidmlwixiih HAFNARSTRÆTI Slml 12717 Skrifstpfustarf Heildverzlun í Reykjavík óskar að ráða vanan starfskraft til framtíðarstarfa við símavörzlu, vélritun og sölustörf. Enskukunnátta nauðsynleg. Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða og geta byrjað 15. ágúst eða fyrr eftir samkomulagi. Góð laun í boði fyrir hæfan starfskraft. Tilboð merkt „Skrifstofustarf 815” sendist til auglýsingadeildar Dagblaðsins fyrir 7. júní. Þegar olíulítrinn fer í 150 krónur: Togaramir hafa naumast fyrír olíu og launum — ekkert eftir í viðhald, tryggingar, veiðarfæri, afskriftir o.fl. >að er ekki bara bátaflotinn, sem stendur nú andspænis mestu rekstrar- örðugleikum sem yfir flotann hafa dunið í fjölda ára, heldur stefnir einnig í að togaraflotinn geti ekki gert út í sumar nema með umtalsverðum hjálparaðgerðum þar sem þeir munu vart fiska fyrir meiru en olíu og laun- um. Er þá eftir að greiða fyrir veiðar- færi, tryggingar, viðhald o.fl., auk þess að afskrifa skipin eðlilega og standa undir afborgunum. Ágúst Einarsson, fulltrúi hjá LÍÚ, reiknaði dæmi meðaltogara af minni gerð fyrir DB í gær. Miðað við olíu- og fiskverð í júní í fyrra og aflatekjur upp á 300 millj- ónir, eyddi útgerð slíks togara 51 milljón króna í olíu, eða 17% afla- tekna miðað við 13 þús. lítra árs- eyðslu. Miðað við fiskverð nú (fyrir hækk- unina) má áætla aflatekjur yfir árið 365 milljónir, en olíukostnað 134 mUijónir, eða 36,7% af aflatekjum. Sé dæmið reiknað áfram á núgild- andi fiskverði og 150 króna lítraverði í sumar, verður olíukostnaðurinn 53,4% af aflatekjum. Af þessu er ljóst að fiskverð verður að hækka gífurlega nú til að halda í 36,7%, sem þó er meira en tvöfaldur hlutur af aflatekjum miðað við 17% í júní í fyrra. - GS Aðstoðarf ramkvæmdastjóri Sjávarafurðadeildar SÍS: Af urðahækkanir ekki í sjónmáli — svo ekki kemur hjálpin úr þeirri átt „Markaðirnir í Bandaríkjunum SÍS, í viðtali við DB í gær. eru mjög góðir nú eftir hækkanirnar Engu vUdi hann þó spá um verð- nýlega og ég sé engin áþreifanleg þróunina í náinni framtíð, tók aðeins merki væntanlegra hækkana í bráð,” fram að hækkanir væru ekki sjáan- sagði Ólafur Jónsson, aðstoöarfram- legar. kvæmdastjóri SjávarafurðadeUdar Það kom fram í viðtali við Ólaf í DB í gær að þegar skortir nú á að ís- lenzku verksmiðjumar í Bandaríkj- unum geti annað eftirspurn kaup- enda, sem kann að hafa alvarlegar af- leiðingar. - GS Sáluhjálp i viólögum Ný þjónusta — Sfmaþjónusta frá kl. 17—23 alla daga vik- unnar. Sfmi 81515. Þjáist þú af áfengisvandamáli? Er áfengisvandamál einhvers náins að eyðileggja þitt iíf? Hringdu — og ræddu málið. Jt7] MMTÖK ÁHUGAFÓLKS n^LLrUJ UM ÁFENGISVANDAMÁLIÐ PERMANENT KLIPPINGAR BARNAKLIPPINGAR LAGNINGAR BLASTRAR LITANIR GERUM GÖT I EYRU emgi 4JEA1Í ragnhildur bjarnadóttir OllVll 4*1990 HJÖRDÍS STURLAUGSDÓTTIR 77/ söíu: Renauh 4 Van árg. 75 Renauh 5TL árg. 74 Renauh 12 station árg. 75 Renauh 20 árg. 77 Renauh 4F6 árg. 78 Ford Cortina árg. 74 Opiö laugardaga kl. 2-6. Knstinn Guðnason Suðurlandsbraut 20 - Sími 86633. Jón Bjarnason, bóndi í Dufþaksholti. Kýraar komast líklega ekki út fyrr en um miðjan juni. JóníDufþaksholti: Sjaldan vorað svo seint og illa „Þetta hefur verið mikil og fádæma harðindatíð,” sagði Jón Bjarnason bóndi í Dufþaksholti á RangárvöUum er hann var inntur eftir afkomu bænda á Suðurlandi. Virðist svo sem víðast hvar um landið, ekki aðeins á hafís- svæðunum fyrir norðan heldur og sunnanlands, hafi veturinn verið ein- hver sá harðasti í manna minnum, snjóþyngsli og fádæma kuldi. „Ég reikna ekki með að við getum sett kýmar út fyrr en í fyrsta lagi um miðjan júní,” sagði Jón. Enda er á næturnar hörkukuldi og næstum gaddur og gróður lítið farinn að hreyfa sig. Vonaðist Jón hins vegar tU þess að hafa sloppið við kal að mestu leyti. Þótti honum sumarið sjaldan eða aldrei hafa verið svo seint á ferðinni, varla tekið að vora svo heitið gæti og júníaðbyrja. Að Dufþaksholti er búið allstóru búi, hefur Jón um 50 kýr á fóðrum, 130—140 kindur og um 60 hross. Hrossin á Jón mörg hver sjálfur auk þess sem hann heldur talsvert af hross- um fyrir aðra. Mikið af folöldunum verður sent í sláturhúsið í haust og virðist þvi svo sem fordómar gagnvart hrossakjötsáti hindri ekki þó þetta mikið hrossakjötsát. íslenzk „baggatínsluvél" Niðri á túni hjá Dufþaksholti var verið að prófa nýja íslenzka fram- leiðslu, svonefnda „baggatínsluvél”. En innfluttar baggatínsluvélar hafa gefizt afar misjafniega, svo vélsmiðja Kaupfélags Rangæinga afréð að smíða eina vél, sérhannaða fyrir ís- lenzkar aðstæður. Var baggatínslu- vélin nú nýkomin út úr skemmu og var þetta fyrsti reynsluakstur hennar á túninu að Dufþaksholti. Þótti hún gefa allgóða raun, svo ekki er ólíklegt að áframhald verði á smíði fleiri véla af þessu tagi. Svo ekki er ósennilegt að ferðamenn um Suðurlandið sjái bændur um sláttutímann i sumar nota íslenzkar baggatínsluvélar, framleiddar þar í sveitinni, hjá Kaup- félagi Rangæinga. -BH.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.