Dagblaðið - 01.06.1979, Qupperneq 18
22
-Í
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
s
Grundfirðingar
skoruðu sjö!
Þriðji flokkur Keflvikinga, íslands-
meistararnir frá í fyrra, hóf titilvörn
sina i Vestmannaeyjum um siðustu
helgi með stórgóðum sigri yfir heima-
nönnum, 3—1, Ólafur Þ. Magnússon,
geysilega efnilegur leikmaður hjá ÍBK,
skoraði tvö marka gestanna en hið
þriðja skoraði Þór Kristjánsson. Eina
mark ÍBV skoraði Heimir Einarsson.
Að sögn FÓV í Eyjum er lið ÍBK efni i
íslandsmeistara á nýjan leík i sumar.
Annars voru það Grundfirðingar,
sem stálu senunni í fyrstu leikjunum i
3. flokki því þeir unnu Skallagrím úr
Borgarnesi 7—1 á þeirra eigin heima-
velli, en við skulum kíkja á úrslitin
áður en við höldum lengra.
3. flokkur, A-riðill:
Akranes-KR 0—2
Víkingur-Þróttur 2—1
Breiðablik-Fylkir 0—3
ÍBV-Keflavik 1—3
FH-Fram 1—2
B-riðill:
Haukar-Víðir 1—2
Stjarnan-ÍR 1—0
Selfoss-Þór, Þorl. Þór gaf
Þá vantar DB upplýsingar um leik
‘Leiknis og Snæfells en ógjörningur
reyndist að hafa uppi á um Leiknis. forráðamönn-
C-riðill:
Skallagrímur-Grundarfj. 1—7
Ármann-lK 3—0
Grindavík-Afturelding 2—2
Grótta-Reynir 3—3
KR byrjaði mótið vel með góðum
sigri upp á Skaga og þá kom stórgóður
sigur Fylkis yfir Breiðabliki, sem hefur
haft einhverju bezta liði 3. flokks á að
skipa í mörg ár, mjög á óvart.
í B-riðlinum töpuðu Haukar nokkuð
óvænt fyrir Víði úr Garði og greinilegt
er að þar er mikill efniviður knatt-
spyrnumanna. Stjarnan vann ÍR 1—0 á
sjálfsmarki þrátt fyrir að ÍR-ingar ættu
80% leiksins. Óheppnin var hins vegar
þeirra fylgifiskur að þessu sinni.
Leikmenn Gróttu fóru herfilega að
ráði sínu gegn Reyni úr Sandgerði.
Gróttustrákarnir voru komnir í 3—0 og
ieiddu 3—1 í leikhléi. Suðurnesjamenn
eru þekktir fyrir allt annað en að gefast
upp og þeim tókst að jafna metin áður
en yfirlauk.
Islandsmeistarar Vikings i 4. flokki f fyrra.
Fram hefur oftast
unnið 3. f lokkinn
—alls 12 sinnum á 39 árum
Það er ekki úr vegi svona rétt í upp-
hafi íslandsmótsins að renna yfir það
hvaða félag hefur oftast unnið 3.
flokks og 2. flokks titilinn í íslands-
mótinu. Lengi framan af voru Fram,
KR og Valur einráð i þessum flokkum
en upp úr 1955 fóru önnur lið að
blanda sér meira f baráttuna.
Keppni í 2. og 3. flokki hófst 1940 og
Framarar urðu fyrst Islandsmeistarar í
3. flokki 1941. Síðan hafa þeir unnið
titilinn 11 sinnum í þessum flokki eða
12 sinnum alls. Valur hefur 9 sinnum
orðið meistari, KR 8 sinnum, Akranes,
Vestmannaeyjar og Breiðablik hafa tví-
vegis unnið titilinn og Þróttur, Vík-
ingur og Keflavík einu sinni hvert félag.
Ekki var keppt í 3. flokki 1946. ,
í öðrum flokki hafa KR og Valur
oftast orðið íslandsmeistarar eða 9
sinnum hvort félag. Framarar hafa 6
sinnum unnið titilinn og Eyjamenn
fjórum sinnum. Þá hafa Akurnesingar
þrívegis unnið til titilsins og Keflvíking-
ar tvivegis, þ.á m. i fyrra.
Eitt árið tefldu Reykjavíkurfélögin
fram sameiginlegu liði og það lið vann.
2. flokkinn með yfirburðum 1948.
íþróttabandalag Suðurnesja tefldi
einnig einu sinni fram sameiginlegu liði
og þeir unnu titilinn árið 1953. Önnur
félög sem unnið hafa eru Þróttur, Sel-
foss, og Víkingur. Þróttarar tvívegis en
hin einu sinni hvort.
Þessir ungu strákar vöktu mikla athygli á leik Fram og Vals i 1. deildinni á miðvikudagskvöld. Þeir létu vel f sér heyra og
veifuðu Fram-fánum sinum af miklum eldmóði eins og þessi mynd Bjarnleifs sýnir.
íslandsmeistaramir
fengu stóran skell!
íslandsmótið í 2. flokki hófst um
síðustu helgi og alls voru leiknir 9 leikir
i þeim tveimur riðlum, sem leikið er í.
Það kom einna mest á óvart, að ís-
landsmeistaramir frá i fyrra, Keflvík-
ingar, fengu stóran skell er þeir léku
gegn Valsmönnum að Hlíðarenda.
Valur vann 4—0 og var sá sigur fylli-
lega sanngjarn.
Áður en lengra er haldið skulum við
skoða úrslitin í 2. flokki í vikunni:
A-riðill:
Valur—Keflavík 4—0
Fram—Breiðablik 2—2
Vestmannaeyjar—FH 0—0
Stjarnan—Þór, Ak. 2—1
KR—KA.Ak. 2—0
Keppni f 4. og
5. f lokki hefst
um helgina
Keppni í 4. flokki hófst í gærkvöldi
með leik Vals og Fylkis. Sá leikur var i
A-riðli og í sama riðli áttu einnig að
leika í gærkvöldi Ármann og Þróttur
og Breiðablik og Vikingur, en Viking-
arnir urðu Íslandsmeistarar í þessum
flokki i fyrra.
Keppni í 5. flokki hefst kl. 15 á
morgun og þá leika fyrsta leik íslands-
meistarar Vals gegn Vestmannaeyjum í
Eyjum og geta þeir varla fengið erfiðari
andstæðing í upphafi titilvarnarinnar.
Þá leika einnig á morgun Bolungarvík
og Þór, Þorlákshöfn og Ármann og
Skallagrímur í C-riðli. Keppnin í 5.
flokki fer síðan af stað af fullum krafti
nú í vikunni og fyrirfram er ógjörning-
ur að spá um hugsanlega sigurvegara.
Til gamans skulum við birta lista yfir
sigurvegara í 4. og 5. flokki frá upp-
hafi: Ár 4. flokkur 5. flokkur
1954 KR
1955 Fram
1956 Fram
1957 Fram
1958 Valur KR
1959 ÍBK Fram
1960 Valur Valur
1961 KR Víkingur
1962 Fram Valur
1963 Víkingur KR
1964 ÍBV Valur
1965 Fram Valur
Voru mættir út á völl en enginn leikur!
Selfyssingar urðu tvívegis fyrir
óþægilegri reynslu um sl. helgi. Á
sunnudeginum áttu lið Selfoss og Þórs
frá Þorlákshöfn að leika kl. 16 á Sel-
fossvelli i 3. flokki B. Selfyssingarnir
voru mættir út á völl og tilbúnir i slag-
inn þegar hringt var frá Þorlákshöfn og
sagt að Þór gæfi leikínn. Strákarnir
urðu að sjálfsögðu svekktir yfir þvi að
vera komnir út á völl og þurfa siðan að
fara heim án þess að hafa spilað.
Þá átti 2. flokkur Selfyssinga að
leika gegn Ármenningum í 2. flokki B á
mánudagskvöldið, en þar sem Ármenn-
ingar munu hafa dregið sig út úr mót-
jnu varð ekkert af þeim leik.
Þetta vekur upp þá spumingu, af
hverju lið eru að boða þátttöku og eigai
síðan ekki nægan mannskap í lið eins
og tilfellið mun hafa verið með Þór frá
Þorlákshöfn? Slíkt hefur ekkert nema
leiðindi í för með sér og ættu lið að
reyna að komast hjá sliku.
-SSv.
1966 Valur Fram
1967 ÍBV Valur
1968 Víkingur KR
1969 KR ÍBV
1970 ÍBV .Valur
1971 Valur KR
1972 Valur Víkingur
1973 Þróttur, R Breiðablik
1974 Breiðablik Breiðablik
1975 Breiðablik Þróttur, R
1976 Breiðablik ÍBV
1977 ÍBK ÍÁ
1978 Vikingur Valur
B-riðill:
Reynir.S—Víkingur frestað
Leiknir—ÍK 3—0
Haukar—Fylkir 1—0
Selfoss—Ármann gefið
Ármenningar hafa dregið sig til baka
i mótinu. i,
Leikur Fram og Breiðabliks var mjög
fjörugur og skemmtilegur og úrslitin
voru ekki ósanngjörn, en,heldur voru
Framarar nær sigri ef eitthvað var.
í Eyjum fengu heimamenn FH í
heimsókn. Það kom stórlega á óvart
með því að hirða annað stigið af Eyja-
mönnum, sem fram til þessa hafa þótt
harðir í hom að taka á heimavelli. Að
sögn fréttaritara DB í Eyjum, FÓV, var
þessi leikur slakur i alla staði.
Stjarnan vann góðan sigur á Þór,
Ak. með mörkum frá Jónasi Skúlasyni
og Herði Filipssyni. Norðanmenn
gerðu ekki góða ferð í bæinn þvi KA
frá Akureyri lék við KR um helgina og
mátti einnig þola tap, 0—2.
Leik Reynis, Sandgerði og Víkings
var frestað þar sem margir 2. flokks
strákanna í Reyni leika með meistara-
flokki félagsins. M.fl. lék bæði á mið-
vikudag og á laugardag og það þótti því
einum of mikið að láta strákana leika
lika á föstudag. Þá unnu Haukarnir
Fylki 1—0 með marki miðherjans
Kristjáns, hvers föðumafn DB er
ókunnugt um.
Ármenningar hafa dregið 2. flokks
lið sitt til baka úr íslandsmótinu, enda
munu margir leikmanna leika með
meistaraflokki.
RENNT UR HLAÐI
Fram tU þessa hafa fréttir af
yngri flokkunum i knattspyrnu
verið af skornum skammtí á
iþróttasíðum dagblaðanna. Svipaða
sögu er að segja af yngra fólkinu i
flestum öðrum iþróttagreinum.
Ástæður fyrir því eru margar, en
vafalítið eru þyngstir á metunum
mjög margir leikir og svo erfiðleik-
ar sem fylgja þvi að ná saman öllum
úrslitum. Vikulega fara fram 30—
50 leikir þannig að það útheimtir
talsverða vinnu og fleiri símtöl en
marga grunar til að safna úrslitun-
umsaman.
Dagblaðið hefur nú ákveðið að
ráðast í að birta reglulega fréttir og
úrslit úr yngri flokkunum i knatt-
spyrnu í sumar. Við höldum úr
hlaði í dag, en framvegis mun ein
iþróttasiða á hverjum laugardegi
verða helguð þessu efni.
í dag birtum við úrslit allra leikja
i vikunni að leikjum gærdagsins
frátöldum. Framvegis mun þaö
verða þannig i sumar aö í laugar-
dagsblaðinu birtast úrslit allra
leikja hverrar viku, nema þeir leikir
sem fram fara á föstudögum. Þeir
komaívikunniáeftir.
Talsverðir erfiðleikar hafa verið
nú i upphafi við að ná úrsUtunum
saman, en það gekk þóað lokum og
hvarvetna leizt mönnum vel á hug-
myndina. Það yrði engu að síöur
ómetanleg hjálp, ef félögin vísuðu
DB á einhvern einn ákveðinn aðila
innan hvers félags, sem leita mætti
til með úrsiit leikjanna. Þá vill DB i
leiðinni hvetjá forráöamenn félag-
anna til að senda blaðinu myndir
bæði af Uðum og efnilegum eins-
taklingum.
Það yrði ógjömingur aö ætla sér
að gera öllum leikjunum viðunandi
skil — til þess eru þeir allt of
margir. Framvegis munum viö þó
leitast við að birta umsögn um 2—3
leiki, sem leiknir hafa verið i vik-
unni.
Þá látum við þetta gott heita að
sinni og vonumst til þess að þessi
nýbreytni mælist vel fyrir hjá les-
endum blaðsins og þá ekki sizt hjá
yngra fólkinu.
-SSv.