Dagblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 29
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979.
PICASSO SKAL HtlN HEITA — Eftir ströng fundahöld á miðvikudagskvöldifl var ákveðið að nýjasta hljómsveitin I
bransanum skyldi hljóta nafnið PICASSO. Pétur Kristjánsson heldur þvi þeim vana að syngja einungis i hljómsveitum.
sem heita nöfnum með P sem fyrsta staf. Ekki er þó regla þessi einhlit, þvi að Pétur starfaði fyrr á árum bæði með
Náttúru og Svanfriði, en undantekningarnar sanna regluna. P-röðin er því orðin Pops, Pelican, Paradís, Poker og
Picasso. DB-mynd Ragnar Th.
Þursaflokkurinn og Ljósin í bænum
leika saman á hljómleikum í Höllinni
Með Duke Jordan leika á tónleikun-
um þeir Richard Korn bassaleikari úr
Sinfóníuhljómsveit Islands og Guð-
mundur Steingrímsson trommuleikari.
Upphaflega var áformað að fá Jordan
hingað til lands fyrir síðustu jól, en af
þvi gat ekki orðið þá. Því þótti tilvalið
að Ijúka vetrarstarfi Jazzvakningar.
með heimsókn hans nú, eins og segir 1
fréttatilkynningu frá félaginu.
Duke Jordan er orðinn gamall í
hettunni. Hann vakti fyrst á sér heims-
athygli árið 1947 er hann gekk til liðs
við Charlie „Bird” Parker og menn
hans, Miles Davis, Tommy Potter og
Max Roach. Eftir að hann hætti störf-
um með kvintett Parkers starfaði
hann með ýmsum mætum mönnum,
svo sem Coleman Hawkins, Stan
Getz, Roy Eldridge og Oscar Petti-'
ford.
Á ferli Duke Jordan hafa skipzt á
skin og skúrir. Eftir mörg glæsileg ár i
jazzheiminum neyddist hann til að
framfleyta sér meö leigubílaakstri i
New York. Það var á árunum 1967—
72. Frá árinu 1973 hefur stjama hans
farið hækkandi á nýjan Ieik. Það ár lék
hann í fyrsta skiptiö inn á plötu fyrir
dönsku útgáfuna Steeple Chase og ári
síðar gerði hann samning við þá út-
gáfu.
Auk þess að vera píanóleikari semur
Duke Jordan tónlist. Meðal annars
hefur hann samið fyrir kvikmyndir, til
dæmis mynd Rogers Vadim, Les Liai-
sons Dangereuses. Aö sögn Jazzvakn-
ingar flokkast stíll Jordans undir be-j
bop, lýrískur og yfirvegaður. Hann er
tilfinninganæmur meistari ballöð-
unnar og litríkur píanóleikari.
Jazzkvöldið I kvöld hefst klukkan
níu og stendur til kl. eitt eftir
miðnætti. Annað kvöld er opið frá níu
til miðnættis.
-ÁT-
■á ^
tilfinnlnganæmur
DUKE JORDAN — be-bopari af Iffi og sál, en Ijóðrænn og
meistari ballöðunnar.
bænum. Þá er ætlunin að skemmta öllum þessum dansleikjum flytur Disco Frisco, sem kemur út 12.—13.
Vestfirðingum og Austfirðingum. Á hljómsveitin lög af nýrri plötu sinni, júni. -ÁT-
Þursaflokkurinn, Ljósin í bænum,
Helgi Pétursson og Magnús og
Jóhann koma fram á hljómleikum sem
fyrirhugað er að halda í Laugardals-
höllinni þriðjudaginn 12. júní. Þar
munu Þursarnir og Ljósin kynna efni
af plötum sínum sem koma út um
svipað leyti. Að sögn aðstandenda
hljómleikanna er stefnt að því með
ráðum og dáð að stilla aðgöngumiða-
verði í hóf.
„Það vekur kannski athygli að
hljómsveitir eru hvor frá sinni útgáf-
unni, Steinum og Fálkanum,” sagði
Steinar Berg útgefandi á blaðamanna-
fundi vegna hljómleikanna. „Við
ákváðum einfaldlega að leggja niður
riginn og slíðra sverðin eitt kvöld, þvi
að okkar áliti eru Þursaflokkurinn og
Ljósin í bænum að gera það bezta sem
fyrirfinnst í íslenzkri músíkgerð um
þessar mundir.”
Laugardalshöllin er fyrsti viðkomu-
staður Ljósanna I bænum á fyrri
hluta ferðar þeirra um landið. Að öðru
leyti er ferðaáætlunin sem hér segir:
LÁRUS ÞURS — Lárus Grimsson mun taka sæti Karis Sighvatssonar við hljómborfl
Þursaflokksins er hann heldur utan nú i sumar. Kari leikur þó með á hljómleikunum í
Laugardalshöllinni. — Áðuren Þursarnir fara utan munu þeir koma fram a nokkrum tón-
leikum hérlendis. Nánar verður greint frá þvi á poppsiðu á þriðjudag.
Bandaríski jazzpíanistinn Duke
Jordan verður gestur Jazzvakningar á
tvennum tónleikum nú um helgina.
Þeir verða haldnir að Hótel Esju í
kvöld og annað kvöld og eru enda-
punkturinn á vetrarstarfi félagsins.
LJÓSIN t BÆNUM skipa
Stefán Stefánsson, Eyþór
Gunnarsson, Ellen Kristjánsdótt-
ir, Gunnlaugur Briem, Gunnar
Hrafnsson og Friðrik Karlsson.
Plata þeirra, Disco Frisco, kem-
ur út um svipað leyti og hljóm-
leikarnir verða haldnir.
14. júníDynheimar, Akureyri
15. júníHúsavlk
16. júni Miðgarður
2Ö. júní Menntaskólinn við
Hamrahlið
23. júníÁrnes
24. júni Klúbburinn
28. júni Klúbburinn
29. júni Stapi, Njarðvikum
30. júni Stykkishólmur.
1 för með Ljósunum verða Magnús
og Jóhann, sem flytja eigin lög. Þá er
einnig i ráði að Helgi Pétursson
skemmti á nokkrum dansleikjum Ljós-
anna.
Um verzlunarmannahelgina hefst
siðan seinni hluti ferðalags Ljósanna i
Endapunkturinn á vetrarstarfi Jazzvakningar:
JAZZPÍANISTINN DUKE
JORDAN HELDUR TVENNA
HUÓMLEIKA UM HELGINA