Dagblaðið - 01.06.1979, Síða 31
35
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ1979.
Diskó-æðið í hnotskum
um John Travolta eða vinstúlku hans,
henni Olivia Newton John.
í þessum sjónvarpsþætti sýna
nemendur úr Dansskóla Heiðars Ást-
valds nýjustu diskódansana.
-GAJ-
Mick Jagger, söngvari hljómsveitarínnar Rolling Stones, skvettir úr vatnsfötu yftr
áheyrendur hljómsveitarinnar á hljómleikum I París 1976.
ALÞÝÐUTÓNUSTIN
—sjónvarp sunnudag kl. 21.35:
Sjaldan eða aldrei hefur verið meiri
gróska i dansmennt islenzkra unglinga
en einmitt núna. Kvikmyndirnar
Saturday Night Fever og Grease sem
sýndar voru hér á landi í vetur við
gífurlega aðsókn, eins og raunar
víðast hvar þar sem þær hafa verið
sýndar, hafa skilið eftir sig sömu spor
hér og víðast annars staðar. Hálf-
gert diskó-æði hefur gripið um sig
meðal unglinga og allir dansskólar
fyllast þvi hver viU ekki Ukjast kappan-
OFT ER GLEÐ-
IN AFTURMJO
— Útvarpsráð tók þá ákvörðun í vikunni
Umsjónarmenn þáttaríns 1 vikulokin, Edda Andrésdóttir, Jón Björgvinsson, Árni
DB-mynd Ragnar Th. Sig.
Á útvarpsráðsfundi á þriðjudag var
ákveðið að þessir þættir verði áfram í
sumar,” sagði Jón Björgvinsson, einn
umsjónarmanna útvarpsþáttarins í
vikulokin. Ekki er að efa að margir
munu fagna þessum tíðindum þar sem
þátturínn hefur þegar náð umtals-
verðum vinsældum og heyrzt hafði að
hann yrði lagður niður t sparnaðar-
skyni.
Jón sagði að sú breyting yrði í röðum
umsjónarmanna þáttarins að Ólafur
Geirsson hætti og Kristján E.
Guðmundsson kæmi i hans stað.
Ýmsar fleiri breytingar væru á döfinni
sem ekki væri tímabært að ræða. A
morgun verður hins vegar óbreyttliðs-
skipan frá því sem verið hefur, nema
hvað Árni Johnsen er ekki staddur á
landinu. Hann hélt í vikunni td
Skandinavíu til að taka þátt í samnorr-
ænum sjónvarpsþættí. Jón sagði, að
ekki væri ósennilegt að Ámi hefði sam-
band við þáttínn símleiðis. Gestur
V____________________________________
Johnsen og Ólafur Geirsson.
þáttaríns að þessu sinni verður Þórir
Baldursson, sá þekkti hljómlistar-
kappi. „Það kemur fram i spjalli okkar
við Þórí að hann er farínn að vinna
með stórum nöfnum í hljómlistar-
bransanum,”sagði Jón. -GAJ-
;
iHeiða á leið til borgarínnar með frænku
„Það er óhætt að segja að það er
ekkert ljótt í þessum þáttum og málið á
þeim er mjög vandað og mikið vandað
til upptökunnar einnig,” sagði Eirikur
Haraldsson menntaskólakennari, þýð-
andi myndarinnar Heiðu, en 9. þáttur
hennar er á dagskrá sjónvarpsins á
laugardag.
„Atburðárásin í myndinni fylgir sög-
unni mjög nákvæmlega,” sagði
Eirikur. Sagan af Heiðu eftir Jóhönnu
Spyri hefur margoft komið út í
islenzkri þýðingu og alltaf selzt upp.
Þetta er ein þeirra bóka sem kaUa
mætti klassíska barnabók. Hún nýtur
alltaf jafnmikUla vinsælda meðal
barna.
Eiríkur sagði að þættirnir fyrir
sumarfrí sjónvarpsins yrðu alls 13 og
að loknu sumarfríi yrði tekið til við
sýningar þáttanna á nýjan leik en þeir
eru alls 26. -GAJ-
f síðasta þættí Alþýðutóniistarinnar
var fjaUað um bítlaæðið svonefnda og
komu þar einkum við sögu hinir einu
og sönnu bítlar, The Beatles.
í þessum þætti er fjallað um nokkrar
hljómsveitir sem fylgdu i kjölfar Bítl-
anna og gengu á ýmsan hátt lengra.
Þekktust þessara hljómsveita er án efa
RolUng Stones en þeir kappar eru enn
að þótt aldurinn sé óneitanlega farinn
að færast yfir þá.
Þeir þóttu á ýmsan hátt fara aðrar
leiðir en Bítlarnir. Þeir létu hár sitt
vaxa i enn meira mæU en Bítlarnir og
þeir lögðu af þann sið, að hljómsveitin
skyldi öU klæðast sams konar klæðn-
aði. Hljómlist þeirra var einnig yfir-
leitt háværari en Bítlanna og yfirleitt
þóttu þeir grófgerðari i allri framkomu
en hinir einu sönnu Bitlar. En það
verður ekki aðeins fjaUað um Rolling
Stones í þessum þætti, Fleiri þekktar
hljómsveitir koma þar við sögu. Þor-
kell Sigurbjömsson, þýðandi myndar-
innar, nefnir þennan þátt Oft er gleðin
aftanmjó. . GAJ
HEIÐA—sjónvarp laugardag kl. 18.30:
Alltaf jaf nvinsæl
Nemendur Heiðars Ástvaldssonar sýna dans.
í VIKULOKIN—útvarp laugardag kl. 13.30:
ÞÁTTURINN VERDUR
ÁFRAM í SUMAR
HVÍTASUNNUGUÐSÞJÓNUSTA—sjónvavp sunnudag kl. 17.00:
HVÍTASUNNUUNDRID HEFUR
ALLTAF An SÉR STAÐ
Gíslason
Sjá útvarps- og
sjónvarpsdagskrá
helgarinnar á bls.
17 og 20
p
„Við köUum okkur hvitasunnumenn
vegna þess að við trúum því að hvíta-
sunnuundrið hafi alltaf átt sér stað,
ekki bara hjá postulunum heldur muni
það aUtaf eiga sér stað,” sagði Einar J.
Gíslason, en hánn mun prédika í hvíta-
sunnuguðsþjónustunni sem sýnd
verður í sjónvarpinu.
„Þama má segja að okkur greini á
við Þjóðkirkjuna og Hjálpræðisherinn
þótt það séu annars ágætís vinir okkar.
Sr. Halldór Gröndal og hans fólk er
V_________________________________
hins vegar talsvert sammála okkur í
þessu.
Við gemm hins vegar ekkert meira
með hvítasunnuhátiðina en aðrir
kristnir trúflokkar. Þessi hátíð er frá
því á dögum Gamla testamentisins en
ísraelsmenn héldu hana sem uppskeru-
hátið. Þegar kristnin kemur þá opin-
berast hún og staðfestist einmitt á þess-
ari hátíð,” sagði Einar.
Hann bætti því við að hvítasunnu-
menn yrðu með ákaflega vandaða dag-
skrá í þessari guðsþjónustu.
„Á samkomunni fer fram skírn,
niðurdýfingarskírn eins og forðum á
hvitasunnudag og eins og á árinu 1000
eftir að Þorgeir ljósvetningagoði kvað
á um að allir menn skyldu vera kristnir
og trúa á einn guð, föður, son og anda
helgan og þeir skyldu láta skirast. En
þar sem Þingvallavatn var svo kalt létu
sunnan- og austanmenn skírast í
Laugarvatni en vestanmenn og norðan
létu skírast í Reykjalaug í Reykjadal,”
sagði Einar að lokum.
-GAJ
Sr. Halldör S-Gröndal, prestur I Grens-
ássókn. Einar Glslason prestur hvita-
sunnumanna segir um Halldór að hann
standi nær hvftasunnumönnum en aðrír
þjóðkirkjuprestar hvað snertír skilning-
inn á hvftasunnuundrinu.
___________________________________;