Dagblaðið - 13.06.1979, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNf 1979
Fyrsti tapleikur Vals
í í. deild Í25 mánuði
issonar á 7. mínútu leiks Hauka og Akraness. Þrátt fyrir aö hafa náö forystu máttu Skagamenn
DB-mynd Höröur
UGLAÐIR HAUKAR
IKARMEISTARA ÍA
Ivaleyrarholtsvellinum í gærkvöldi
Gunnlaugur að verja með betri staðsetningu.
Skagamenn voru mun betri til að byrja
með, en það var einhver værð yfir liðinu og
slíkt er aldrei hægt að leyfa sér. Þeir voru
.miklu tekniskari og spil þeirra var allt annað
og áferðarfallegra en Haukanna, en það er
ekki nóg. Á tímabili voru Haukarnir gersam-
lega yfirspilaðir, en eftir að Ólafur
Jóhannesson hafði átt skot rétt framhjá á
12. mín. var eins og þeir vöknuðu og áttuðu
sig á þvi að það var hægt að komast í gegn-
um vörn Skagamannanna.
Leikurinn var mjög fjörugur þrátt fyrir
að leikið væri á möl og boltinn gekk marka á
milli — oft með miklum hraða. Sigþór fékk
ágætt tækifæri á 15. mín. og á 21. mín.
Skaut Ólafur Torfason rétt framhjá, er öll
Skagavörnin hopaði undan honum.
Haukarnir komu smám saman meira inn í
myndina og á 34. mín. kom reiðarslagið fyrir
Skagamenn. Steingr'unur Hálfdánarson
hafði betur í baráttu við Jóhannes Guðjóns-
son og sendi vel fyrir markið þar sem Lárus
Jónsson afgreiddi knöttinn með glæsilegum
skalla í netið. Skagamenn vissu vart hvaðan
á þástóð veðrið og aðeins 5 mín. síðar höfðu
Haukarnir náð forystu og verður það mark
algerlega að skrifast á reikning Sigurðar
Lárussonar.
Sigurður var með boltann á vítateig og
hugðist gefa á Jón Þorbjörnsson, sem var
kominn út á móti honum. Skyndilega snerist
honum hugur og ætlaði að spyrna frá mark-
inu. Honum tókst þó ekki betur til en svo að
hann sendi boltann beint á Guðmund Sig-
marsson, sem sendi knöttinn rakleiðis í
íþróttir
mannlaust Skagamarkið, 2—1 og Haukarnir
ærðust af fögnuði.
Síðari hálfleikurinn var hreint út
sagt afspyrnuslakur. Haukarnir eftirlétu
Skagamönnum að mestu vallarmiðjuna, en
nokkrum sinnum skall þó hurð nærri hælum
við mark Haukanna, en aldrei þó eins og á
85. min., er Gunnlaugur markvörður, sem
var óöruggur, missti boltann fyrir fæturna á
Árna Sveinssyni, sem stóð á markteig. Árni
hafði nógan tíma, en skot hans fór rétt
framhjá markinu. Rétt á eftir átti Andrés
Ólafsson nokkuð lúmskt skot að marki
Hauka, en Gunnlaugur varði þá vel. Sigþór
Ómarsson skallaði rétt yfir markið á 78.
mín. og þar með voru tækifæri Skagamanna
upptalin. Haukarnir áttu engin færi að heitið
gat og sóknir þeirra byggðust á sendingum
langt fram völlinn, sem Skagavörnin átti
ekki í erfiðleikum með. Þeim tókst þó
ætlunarverk sitt — að halda aftur að Skaga-
mönnum og í leikslok brauzt út mikill
fögnuður á meðal leikmanna liðsins og þeir
hefðu varla fagnað meira þó þeir hefðu lagt
sjálfa Argentinumenn.
Þetta var vafalítið langbezti leikur
Haukanna í sumar. Leikmenn börðust allir
sem einn mjög vel og i fyrri hálfleik brá oft
fyrir skemmtilegu spili hjá liðinu og greini-
legt er að Haukarnir verða erfiðir heim að
sækja á Hvaleyrarholtið í sumar. Beztur í
liði þeirra var eins og oft áður Guðmundur
Sigmarsson, leikmaður, sem myndi sóma sér
vel í hvaða 1. deildarliði, sem væri. Þá áttu
Ólafarnir þrír mjög góðan leik allir með tölu
og Gunnar Andrésson var sterkur í vörninni.
Lárus var skeinuhættur frammi svo og
Sigurður Aðalsteinsson og Steingrímur en
þeir virtust báðir þreytast fljótlega.
Af Skagamönnum var Sveinbjörn beztur,
sivinnandi allan leikinn. Hann má þó vara
sig á skapinu í sér og er reyndar allt of góður
leikmaður tii að vera með skæting. Þá átti
Kiistján Olgeirsson góðan leik svo og Árni
Sveinsson. Sigþór Ómarsson er nú allur
annar og betri leikmaður, eldsnöggur sem
fyrr, en skilar boltanum vel frá sér —
nokkuð sem ekki sást til hans áður. Þeir
Andrés Ólafsson og Guðbjörn Tryggvason
komu inn á fyrir Matthías og Jón
Gunnlaugsson og Andrés sér í lagi stóð sig
vel.
Dómari var Rafn Hjaltalín og dæmdi
mjög vel.
-SSv.
—Vestmannaeyingar sigruðu Val 2-0 á Laugardalsvelli í
gærkvöld—Fyrsti tapleikur Vals í 1. deild í 37 leikjum
„Ég er mjög ánægður. Strákarnir
léku eins og ég ætlaðist til. Mjög vel í
aðeins sjötta leik sínum á árinu. Þeir
verðskulduðu sigurinn, fengu fleiri
tækifæri, og það er gott að sigra Val.
Valsmenn hafa góðu liði á að skipa,”
sagði Viktor Helgason, þjálfari Vest-
mannaeyinga, eftir að lið hans sigraði
íslandsmeistara Vals 2-0 í 1. deild á efri
Laugardalsvellinum í gærkvöld. Loks
kom að því að Valsmenn töpuðu í 1.
deildinni — fyrsti tapleikur þeirra í
deildinni í nákvæmiega 25 mánuði eða
frá því 12. maí 1977, þegar Valur
tapaði fyrir Akranesi á Melavellinum.
Siðan lék Valur 36 leiki án taps, þar til í
gærkvöld. Frábært afrek, sem varla á
sér hliðstæðu í islenzkri knattspyrnu —
en það hlaut að koma að því að Vals-
menn töpuðu. Þeir hafa verið allt ann-
að en sannfærandi í leikjum sínum í
vor.
Valsmenn höfðu ekki kraft á við
Vestmannaeyinga í gær — og í Hafnar-
firði lágu bikarmeistarar í A fyrir nýlið-
um Hauka. Þetta sannar að mörgu
leyti þá staðhæfingu landsliðsþjálfar-
ans, dr. Youri Ilitchev, að leikmenn
okkar beztu liða, íslandsmeistara Vals
og bikarmeistara ÍA, séu ekki t eins
góðri æfingu og undanfarin ár. Kann-
ski ekki hægt til þess að ætlast eins og
veðráttan hefur verið á þessu blessaða
landi okkar síðustu mánuðina — en úr-
slitin í leikjunum í gærkvöld ættu að
verða til þess að deilur um ummæli
landsliðsþjálfarans leggist niður.
En nóg um það. ÍBV vann sann-
gjarnan sigur á Val í gærkvöld, þegar
upp var staðið. Þó benti fátt til þess í
byrjun að svo mundi fara. Valsmenn
voru mun hættulegri framan af. Albert
Guðmundsson komst i opið færi strax
á 2. mín. en spyrnti laust framhjá
marki ÍBV — síðan komst Atli Eð-
valdsson í dauðafæri eftir undirbúning
Inga Bjarnar og Jóns Einarssonar. En
Atli hitti knöttinn illa og tækifærið
rann út í sandinn. Þannig hefðu Vals-
menn getað náð tveggja marka forskoti
á fyrstu tíu mínútum leiksins.
Síðan komu Vestmannaeyingar
meira inn i myndina með dugnaði sín-
Þór áf ram
íbikarnum
Þór frá Akureyri tryggði sér þátt-
tökurétt í næstu umferð bikarkeppni
KSÍ með því að sigra HSÞ i gærkvöldi
með 4 mörkum gegn 2. í hálfleik var
staðan 3-0 fyrir Þór.
HSÞ náði að minnka muninn í 3-2
með tveimur mörkum frá Jónasi Þór
Hallgrímssyni, en Hafþór Helgason
innsiglaði sigur Þórs skömmu síðar.
Hafþór skoraði tvö mörk Þórs og hin
tvö mörkin gerði Jón Lárusson.
- St.A.
Sovézkt met
í5000m
Sl. laugardag setti Valery Abramov
nýtt, sovézkt met í 5000 m hlaupi.
Hljóp á 13:15.6 mín. á móti í Sotju í
Sovétríkjunum. Þetta er jafnframt
bezti timi ársins á vegalengdinni. Á
sama móti stökk Valery Podlusjni 8.10
metra i langstökki.
Á móti í Bratislava í Tékkóslóvakíu
stökk Benjamin Field, USA, 2.27 m í
hástökki. Heimsmethafinn Vladimir
Yashensko, Sovétríkjunum, varð annar
með 2.24 m.
um og krafti. Léku oft vel. Óskar
Valtýsson átti skot, sem hinn ungi
markvörður Vals, Guðmundur
Ásgeirsson, varði en missti knöttinn.
Náði honum aftur á síðustu stundu.
Tómas Pálsson, sem var vörn Vals
mjög erfiður, komst í gegn en Sævar
Jónsson bjargaði skoti hans á marklínu
Vals. Síðan varð Valur fyrir áfalli —
Hörður Hilmarsson meiddist og Hálf-
dán Örlygsson kom i hans stað. Leikur
Vals staðnaði — en Vestmannaeyingar
efldust.
Tómas átti skalla rétt yfir Valsmark-
ið og mínútu síðar, á 32. mín., urðu
Vilhjálmi Kjartanssyni á afdrifarík
mistök. Missti knöttinn til Ómars Jó-
hannssonar, sem þakkaði gott og
óvænt boð. Gaf vel áTómas, sem var á
auðum sjó við vítateig Vals. Tómas lék
nær markinu og skoraði af miklu ör-
ygg>-
„Rangstaða” hrópuðu áhangendur
Vals. ,,Alls ekki,” sagði Óli Olsen línu-
vörður. „Tómas hafði varnarmann
tveimur metrum fyrir innan sig, þegar
gefið var á hann,” sagði Óli enn-
fremur.
Valsmenn tóku kipp við markið —
Atli lagði fallega á Guðmund Þor-
björnsson, sem skaut himinhátt yfir
innan vítateigs. Siðan vildu Valsmenn
fá víti, þegar knötturinn virtist snerta
hönd varnarmanns ÍBV —- en ekkert
var dæmt. Á sömu mín., þeirri 37.,
varði Ársæll Sveinsson meistaralega
fasta spyrnu frá Albert — en undir lok
hálfleiksins kom mark hinum megin.
Tómas lék upp hægri kantinn, gaf
mjög vel fyrir á Gústaf Baldvinsson,
sem sendi knöttinn í mark Vals af
stuttu færi.
Vestmannaeyingar voru aðgangs-
harðir í byrjun s.h. og þá voru Vals-
menn heppnir að fá ekki á sig mark.
Ómar átti skot í stöng — og skaut
nokkru síðar framhjá í opnu færi. Óli
Dan. kom i stað Jóns um miðjan s.h.
og lokakaflann kom Ingi Björn aðeins
inn í myndina. Fékk tvö færi en Ársæll
varði auðveldlega frá honum. Það var
líka ólga í vítateig Vals — tvívegis
björguðu varnarmenn, þegar boltinn
virtist stefna í Valsmarkið. Valur átti
síðasta orðið. Atli lék laglega í gegn en
spyrnti rétt yfir. Það var ekki dagur
Vals við mark mótherjanna að þessu
sinni.
Vörn ÍBV, Viðar Elíasson, Snorri
Rútsson, Örn Óskarsson og Friðfinnur
Finnbogason, var traust/í leiknum og
Ársæll snjall i marki. Óskar vann mjög
vel — dugnaðarforkur, sem aldrei gefst
upp. Ómar og Gústaf bráðefnilegir
leikmenn en Tómas maður liðsins í
þessum leik. Mjög snjall.
Hjá Val bar Atli af — frábær leik-
maður, og Dýri Guðmundsson átti
góðan og yfirvegaðan leik. Vörnin var
‘hins vegar lakari en oftast áður en Guð-
mundi markverði verður ekki kennt um
mörkin. Framlína Vals var algjörlega
bitlaus — Ingi Björn sást varla í leikn-
Staðaní
2. deild
Staðan í 2. deild er nú þessi:
Breiðablik 5 3 2 0 10-3 8
FH 5 4 0 1 11-5 8
Selfoss 4 2 11 11-5 5
isafjörður 4 2 11 10-6 5
Fylkir 5 2 12 10-8 5
Þróttur 5 2 12 6-5 5
Reynir 5 2 12 4-7 5
Þór 5 2 0 3 8-10 4
Austri 5 0 2 3 6-13 2
Magni 5 0 14 3-17 1
Markahæstu menn:
Sumarliði Guðbjartsson, Selfossi 6
Andrés Kristjánsson, ísafirði 5
Guðmundur Skarphéðinsson, Þór, 4
Ingólfur Ingólfsson, Breiðabliki, 3
Þórir Jónsson, FH, 3
Heimir Bcrgsson, Selfossi, 3
Hafþór Helgason, Þór, 3
Sigurður Friðjónsson, Þrótti, 3
Sigurbjörn Marinósson, Austra, 3
Hilmar Sighvatsson, Fylki, 3
um og sama má segja um Jón, auk
þess, sem Guðmundur Þorbjörnsson
var ekki sjálfum sér líkur í leiknum.
Dómari Þorvarður Björnsson.
- hsím.
ÓskarTómasson.
Óskar leikur
ekki f ramar
. Litlar sem engar líkur eru á því, að
hinn kunni leikmaður Víkings, Óskar
Tómasson, leiki knattspyrnu framar
eftir hin alvarlegu meiðsli, sem hann
hlaut í leiknum við KR á mánudag.
Óskar snérist illa — hnéð gaf sig alveg
og það án þess nokkur mótherji væri
nálægt. Óskar féll og var borinn af
velli.
Óskar Tómasson er 23ja ára. Hann
komst í íslenzka landsliðið aðeins 17
ára fyrir rúmum fimm árum og lék
fjóra landsleiki. Var í hópi alefnileg-
ustu leikmanna íslands en slasaðist illa
i leik á íslandsmótinu fyrir nokkrum
árum. Eitt vanhugsað spark mótherja,
þegar knötturinn var að fara úr leik,
hefti feril Óskars sem knattspyrnu-
manns. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir
lækna til að bjarga hnénu með
uppskurðum og fleiru varð árangur
ekki viðunandi — og nú er bundinn
endi á knattspyrnuferil þessa leikna
sóknarmanns.
J.S. HELGASON HF.
SKEIFAN 3J - SÍMI 37450