Dagblaðið - 23.07.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 1979.
7
NÚ ER ÞAÐ SKRÝPLAÆfHD
Það var sannkallað stuð í mann-
skapnum sem sótti Hollywood í gær-
dag frá kl. 2 til 4, en þar fór fram
skrýplaball.
Haraldur Sigurðsson og skrýplarnir
í eigin persónu mættu og sungu söngva
frá Skrýplalandi með aðstoð ungmenn-
anna í Hollywood.
Þau voru á aldrinum 2—15 ára
ásamt mömmum og pöbbum.
Aðgangur var ókeypis og allir vel-
komnir enda var húsfyllir, bó veður
hafi verið jafngott og raun bar vitni.
Gestir fengu skrýplaplötu, skrýpla-
kalla og skrýplamiða, en allt virðist
þessa dagana snúast um skrýpla.
Skrýplaplatan hefur verið mest selda
hljómplatan hér á landi í þrjár vikur.
Þó eru ekki bara til íslenzkir skrýpl-
ar, skrýplaæði virðist ganga um heim-
inn og á hinum Norðurlöndunum, sér-
staklega í Noregi, virðast skrýplar jafn-
vinsælir og hér heima.
Upphaflega komu skrýplar frá Holl-
andi og er undirspilið á íslenzku
skrýplaplötunni hollenzkt. Bókar-
skrýplarnir eru þó komnir frá Belgíu.
Það er hljómpiötuútgáfan Steinar
sem geíur ■; plötuna, en bókaforlagið
lðunn bækurnar. í bókunum eru
skrýplarnir kallaðir strumpar og
gerðist það vegna þess að hvorugur
aðilinn vissi um hinn við útkomuna.
Það var t.d. búið að taka upp plöt-
una þegar vitnaðist um bókina og
Haraidur i Skrýplalandi mátti hafa sig allan við að gefa eiginhandaráritanir fynr sina
hönd og skrýplanna.
DB-myndir: Bjarnleifur.
„Vantar bara hlýindin”
,,Ég kom til Gjögurs á Ströndum 2.
júlí og að þremur dögum undanskild-
um hefur hér verið þoka og súld,”
sagði Regína, fréttaritari DB á Eski-
firði, sem nú dvelur á Gjögri. „Tún eru
græn að lit hérna, en spretta engin og
óvíst hvenær sláttur getur hafizt í
Árneshreppi. Bændur segja að ef reglu-
leg hlýindi kæmu næstu 2-3 vikur, gæti
orðið sæmileg spretta. En þá yrði að
hlýna fljótt. Tún eru vel undirbúin, það
vantar bara hlýindin.”
Regina/-ARH.
Skrýplarnir og umsjónarmenn þeirra úr Leikbrúðulandi.
öfugt og var því ekki hægt að breyta
npfninu.
Það er leikbrúðuland sem sér um
skrýplakarlana og er jafnvel fyrirhugað
ferðalag með skrýplana. Þó hefur enn
ekki verið ákveðið hvert farið verður né
hvenær. Við höfum sem sagt fengið
enn eitt æðið yfir okkur, skrýplaæðið.
-EI.A
f...
Hagkvæmari rekstur útvarpsins
— nefnd skipuð til þess að endurskoða lög um ríkisútvarpið
Menntamálaráðherra, Ragnar
Arnalds, skipaði 18. þ.m. nefnd til að
fjalla um skipulag, rekstur og verka-
skiptingu innan rikisútvarpsins með
það að markmiði að rekstur stofnun-
arinnar verði hagkvæmari og mark-
vissari. í því sambandi er nefndinni
m.a. falið að taka núgildandi lög
rikisútvarpsins til nauðsynlegrar
breytingar.
í nefndinni eiga sæti eftirtaldir:
Ólafur R. Einarsson, menntaskóla-
kennari, sem jafnframt er formaður
nefndarinnar, Andrés Björnsson,
útvarpsstjóri, Árni Gunnarsson,
alþingismaður, Njörður P. Njarðvík,
dósent við H.Í., Vilhjálmur Hjálm-
arsson, alþingismaður, Örlygur
Geirsson, deildarstjóri i menntamála-
ráðuneytinu.
KJARAKAUP — MIKIL VERDLÆKKUN
Tog. 853.
Litur Ljósbrúnt leður
Teg.852
Litun Beinhvitt nubuk leður
Teg. 855 Utun Ljösbrúnt nubuk leður
T Stæröir: 37-41
■ÉÉÍK7 Æ Áðurkr. 11.470.
W&dfr' Nú kr. 7.500.-
Stserðir: 36-41
Áðurkr. 9.995.-
Nú kr. 5.995.-
Stærðin 36—41
Áðurkr. 11.470.
Nú kr. 7.500.-
Teg. 857.
Litin Natur leður eða bsige nubuk leður
Stærðin 36—41
ðurkr. 11.470.-
Nú kr. 7.500.-
Litin Gulbrúnt leður
eða beige nubuk leður
Stærðin 36-41
Áðurkr. 11.470.
Nú kr. 7.500.-
Teg. 75201.
Litir: Brúnt demin
eða beige demin.
Teg. 75309
Litin Beige demin eða
blátt demin.
Stærðin 36—41.
Teg. 63/414
Litir: Brúnt nubuk leður
eða ólrfugrænt
nubuk leður.
Áðurkr. 17.885.-
Nú kr. 7.885.-
Teg. 8.
Litir: Beige, blátt eða
svart denim
Stærðir: 36—41
Verð kr. 1.995.-
L
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti8 v/Austurvöll
Sími 14181 — Póstsendum
V.