Dagblaðið - 23.07.1979, Side 20

Dagblaðið - 23.07.1979, Side 20
20 1 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 23. JULI 1979. Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir AUSTRIKOM- INN Á SKRIÐ —Selfoss vann Magna naumlega Selfyssingar hirtu bæði stigin af Grenvíkingum í 2. deild íslandsmótsins á föstudagskvöldið og verður ekki ann- að sagl en að nokkur heppnisblær hafi verið yfir sigrinum hjá þeim að þessu sinni. Lokatölur urðu 2—1 þeim í hag eftir að staðan hafði verið jöfn í hálf- leik, 1—1. Leikurinn var annars mjög jafn allan tímann og sigurinn gat lent hvor- um megin sem var. Heppnin var á bandi Selfyssinganna að þessu sinni og það gerði útslagið. Á 25. mín. náði Ámundi Sigmundsson forystunni fyrir gestina en Jón lngólfsson jafnaði metin á 34. mín. fyrir heimamenn úr auka- spyrnu af um 35 metra færi. Þegar um 10 min. voru til leiksloka tókst Gísla Sigurðssyni að skora sigur- mark Selfyssinga og var það fremur af ódýrari gerðinni hjá þeim. Austri virðist heldur vera að ná sér upp úr þeirri lægð sem einkennt hefur liðið allt íslandsmólið fram til þessa. Þeim tókst að hirða bæði stigin af Þórsurum i ágætum leik á Eskifirði á laugardaginn. Eina mark leiksins skoraði Bjarni Kristjánsson á 57. mínútu. Þetta vr annar sigur Austra í röð og liðið á nú góða möguleika á að bjarga sér frá falli að þessu sinni. -SI.A/-VS. Staðan í 2. deild að loknum leikjum helgarinnar er nú þessi: FH 11 8 2 1 32—12 18 Breiðablik II 8 2 1 26—7 18 Fylkir 10 5 2 3 22—14 12 Selfoss 11 4 3 4 16—11 11 Þór 11 5 1 5 14—15 11 Þróttur 9 3 2 4 7—10 8 ísafjörður 10 2 4 4 14—19 8 Reynir 11 2 4 5 8—22 8 Austri 11 2 3 6 9—20 7 Magni 11 2 1 8 9—28 5 Markhæstu menn: mörk Sigurður Grétarsson, UBK 10 Hilmar Sighvatsson, Fylki 8 Pálmi Jónsson, FH Andrés Kristjánsson, ÍBÍ 7 Sumarliði Guðbjartsson, Selfossi 7 Guðmundur Skarphéðinsson, Þór 7 Þórir Jónsson, FH 6 Leifur Helgason, FH 5 Sigurður Grétarsson skorar fyrsta mark Blikanna úr vitaspyrnu. Litla myndin er einnig af Sigurði. DB-myndir Þorri. Sigurðamir skoraðu Blikarnir úr Kópavoginum gerðu svo sannarlega góða ferð til lsafjarðar um helgina er þeir sigruðu heimamenn 5-1 Gripið simann geriðsóð kaup Smáauglýsingar iBIAÐSINS É Þverholti11 sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld á malarvellinum þar i bæ. I hálfleik var staðan 2-0 fyrir Breiðablik. Sigur Blikanna var sanngjarn en einum of stór miðað við gang leiksins. Fyrstu 20-25 mín. leiksins var jafnræði með liðunum og skiptust þau á um að sækja en með litlum árangri. Sókn Blikanna bar þó loks árangur á 22. mín. er dæmd var mjög vafasöm vítaspyrna á Rúnar Vífilsson. Sigurður Grétarsson skoraði örugglega úr vítinu, 1-0. Annað mark Blikanna kom síðan skömmu fyrir leikhlé. Eftir hornspyrnu skallaði Sigurður Grétarsson mjög fallega í netið af stuttu færi, 2-0 og þannig var staðan í hálfleik. Síðari hálfleikurinn var ekki ýkja gamall þegar Sigurður fullkomnaði þrennu sína með marki af stuttu færi úr þröngri aðstöðu. Þar með var þætti Sigurðar Grétarssonar lokið hvað varðar mörkin i þessum leik en nú tók félagi hans og nafni Sigurður Halldórs- son við. Hann skoraði fjórða mark Blikanna er hann skallaði í netið eftir fyrirgjöf, 4-0. Skömmu síðar skoruðu ísfirðingar sitt eina mark er Örnólfur Oddsson skoraði fallegasta mark leiksins. Áður áttu ísfirðingarnir skot i stöngina. Þegar um 10 min. voru til leiksloka bætti Sigurður Halldórsson sinu öðru marki við og Blikarnir 5. er hann skoraði af stuttu færi. Bestu menn Blikanna voru þeir Sigurður Grétarsson, sem er geysilegt efni, Vignir Baldursson og Hákon Gunnarsson, en af heimamönnum bar Örnólfur Oddsson af — barðist eins og Ijón allann tímann og gafst aldrei upp. Þá var Haraldur Stefánsson traustur t vörninni. Rétt er að geta undarlegs atviks sem átti sér stað í síðari hálfleik. Sigurður Grétarsson rak sig, að því er virtist óviljandi í Jón Björnsson, sem hafði engar vífilengjur og réðst á Sigurð með látum. Dómari leiksins, Páll Árnason, hafði áður veitt Jóni gult spjald en sá enga ástæðu til að vísa honum af leik- velli sem hefði þó verið rökrétt ráðstöfun. -Þorri MARKAHAHÐ í FIRDINUM FH-ingar nýttu sér svo sannarlega góða veðrið á laugardaginn til hins ítrasta er þeir fengu Reyni, Sandgerði í heimsókn. Þeir léku við hvern sinn fingur og þegar dómarinn flautaði til leiksloka hafði FH skorað 10 mörk en Reynir 2. Sannkallað markaregn. í hálfleik leiddi FH 6-1. Það kom í ljós strax í upphafi leiks, að Júlíus Jónsson, sterkasti varnar- maður Reynis, var á varamannabekkn- um, hver svo sem ástæðan var. Enda fór svo að vörn Reynis var eins og höfuðlaus her og mörkin bókstaflega hlóðust upp. Strax á 5. mínútu lék Atli Alexandersson laglega upp vinstri kant- inn og gaf yfir markið þar sem Helgi Ragnarsson skoraði örugglega, 1-0. Á 8. mín. gaf Atli fyrir markið á nýjan leik. Jón Örvar hélt ekki knettinum, en varnarmaður hugðist bjarga. Tókst ekki betur til en svo að hann skaut beint i Benedikt Guðbjartsson og þaðan fór boltinn í netið, 2-0. Þriðja markið kom á 14. mín. en áður hafði Pálmi átt tvö mjög góð færi. Leifur Helgason fékk þá mjög góða stungusendingu inn fyrir vörn Reynis og skoraði fallegt mark af um 25 metra færi í bláhornið. Fjórða markið kom fjórum mín. síöar. Bræðurnir Pálmi og Þórir unnu mjög fallega saman að því og Þórir skoraði örugglega, 4-0. Á 23. mín. varði Þórir aukaspyrnu með höndunum og Hjörtur Jóhanns- 'son skoraði örugglega úr vítinu, sem dæmt var 4-1. Tveimur mín. síðar fékk FH víti. Viðar Halldórsson skoraði af öryggi úr henni, 5-1. Síðan var gert hlé á markaskorun þar til á 45. mín. Atli Áíexanders gaf þá lagalega á Viðar, sem gaf stungu inn á Leif, sem siðan renndi fyrir markið á Pálma. Pálmi skoraði örugglega — mjög fallegt mark, 6-1. Síðari hálfleikurinn byrjaði nokkuð rólega a.m.k. markaskorunarlega séð bg ekkert var skorað fyrr en á 61. mín. er Guðjón Guðmundsson bók- staflega gekk í gegnum vörnina og skoraði, 7-1. Júlíus Jónsson kom nú inn á en það var um seinan — leikurinn koltapaður. Á 76. mín. gaf Þórir lag- lega fyrir markið og Leifur skallaði af öryggi í netið enda enginn til að trufla hann, 8-1. Markaregninu var ekki þar með lokið en hlé var nú gert í 10 mín. en á 85. mín. bætti Helgi Ragnarsson 9. marki FH við með laglegu skoti utan úr teig alveg út við stöng, 9-1. í næstu sókn Reynis urðu Guðjóni Guömunds- syni á mistök i vörninni og Jón B. G. Jónsson komst i gegn og skoraði örugg- lega framhjá góðum markverði FH, Friðriki Jónssyni, 9-2. FH tók miðju og brunaði upp og vörnin hjá Reyni hopaði öll rétt eins og þegar Guðjón skoraði en nú var það Leifursem skoraði sitt þriðja mark, 10- 2. Það er ekki sanngjarnt leikmanna beggja liða vegna að vera að skera úr um frammlstöðu hvers og eins. FH- ingar gátu leyft sér nær allt sem þeir vildu — mótstaðan var engin. Því verður hins vegar ekki neitað að FH lék lengst af stórkostlegan fótbolta. Allar sendingar gengu upp og menn skoruðu með tómum skotum út við stangirnar. Slíkir leikir koma ekki oft. Reynismenn voru hvorki fugl né fiskur — ekki einu sinni flugfiskur og liðið komst aldrei yfir hina herfilegu byrjun. Liðið getur miklu meira, það vita allir. -SSv. WI0.'0^IIC01,l!4V4V*,íV*4’4Vé4 é *é iVéVéVéVéVé'éV*'*’•'*'*'*'•’ • *’*’* ♦’ ♦’ i

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.