Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979. ..... - - ' Ný lög um tryggingar erlendis að engu höfð: Tryggingar Skeljungs og Eimskips eríendis lögbrot? Tryggingaeftiríitið kannast ekki við að hafa gefið samþykki sitt til sliks Tignir gestir í heimsókn: Myndfælinn prins og vélbyssuvarinn kóngur — Nepalkonungur gisti eina nótt, olíuprins í þrjár vikur „Þetta þarf náttúrlega að kanna úr því að þetta hefur komið í ljós. Ég hlýt því að hafa samband við þessa aðila til að reyna að framfylgja þessu einkennilega lagaákvæði,” sagði Erlendur Lárusson, for- stöðumaður Tryggingaeftirlits, er Dagblaðið hafði samband við hann á dögunum eftir að hann hafði fengið staðfest, að Olíufélagið Skeljungur og Eimskipafélag íslands hafa tryggingar sínar, a.m.k. að hluta til, erlendis. Erlendur hafði áður lýst þvi yfir í samtali er birtist i DB, að enginn íslenzkur aðili hefði fengið leyfi til slikra trygginga erlendis. Sagði hann þá, að ef eitthvað væri um slíkar tryggingar væri það á ská við nýsett lög um þetta efni. Lög þessi tóku gildi sl. vor, og fela þau í sér, að islenzkum aðilum er óheimilt að tryggja erlendis, nema að fengnu leyfi ráðherra, sem áður hafi leitað umsagnar Tryggingaeftirlitsins. Ákvæðið um umsögn Trygginga- eftirlitsins um ráðherraleyfi til trygginga erlendis var sett i nýju lögin á síðustu stundu lagasetning- arinnar í vor. Var Erlendur, for- stöðumaður Tryggingaeftirlitsins, andvígur ákvæðinu og gerði tilraunir til að fá breytingar, en fékk ekki áheyrn hjá þingnefnd, sem um frumvarpið fjallaði. Skeljungur og Eimskip tryggja erlendis „Við höfum tryggt erlendis og gerum það enn að nokkrum hluta,” sagði lndriði Pálsson, forstjóri Olíufélagsins Skeljungs, er DB spurði hann hvort Skeljungur sækti tryggingar sínar að einhverju leyti til útlanda. „Ég vil hins vegar taka það fram, að við höfum engar tryggingar erlendis, nema þær sem við höfum ieyfi fyrir,” sagði Indriði. ,,Við höfum alltaf tryggt erlendis. Áður gerðum við það fyrir milligöngu íslenzkra aðila, en nú förum við beint út með tryggingarnar,” sagði Bragi Kr. Vandi Tryggingastof nunar leystur á elleftu stundu: Tveir tignir gestir komu til landsins á meðan á blaðaleysinu stóð, konungur Nepal, Birendra Bir Bikram, ásamt drottningu sinni, Sah Deva, og Faisal prins af Saudi Arabiu. — Prinsinn er hér reyndar enn með eiginkonu, fjórum börnum og fríðu föruneyti. — Verður hann hér til 20. september. Konungur Nepals hafði hér sólar- hringsviðdvöl á leið sinni frá ráðstefnu frjálsra og óháðra ríkja á Kúbu. Var hann í einkaþotu. í fylgd- arliði konungs voru bæði sendiherra Nepals i London og utanríkis- ráðherra landsins, auk þess sem vél- byssuvopnaðir lifverðir gættu konungsins. Gisti konungurinn á Hótel Sögu eina nótt. Konungur skoðaði Þjóðminja- safnið á meðan hann stóð hér við og snæddi hádegisverð í boði forseta ísljnds að Bessastöðum. Nepal konungur er þrjátíu og fjögurra ára gamall og tók við völdum árið 1972. Myndfælinn prins Faisal prins er ákaflega myndavéla- fælinn af prinsi að vera og vill helzt hafa sem minnst samskipti við blaðamenn. Er hann þakklátur fyrir að fá að vera óáreittur og að sögn hefur það tekizt mjög vel. Prinsinn snæðir flestar máltíðir í matsal Hótels Loftleiða, án þess að nokkur veiti honum athygli fram yfir aðra hótelgesti. í fylgdarliði prinsins eru fjögur ung börn hans, auk þess sem einkaritarinn og eiginkona hans eru með tvö börn sín meðferðis. Prinsinn og föruneyti hans hafa ferðazt um nágrenni höfuðborgar- Guðmundsson hjá Eimskipafélagi islands. „Það hefur komið fram, að þessir aðilar treysta sér ekki til að fylgjast með þessum málum,” sagði Bragi er DB spurði hann, hvort Eimskip hefði tilskilin leyfi fyrir þessum tryggingum. „Þessum lögum hefur því ekki verið framfylgt. Þeir voru þó látnir vita, hvemig málin voru,” sagði Bragi. -GAJ/A.St. Magnús hót- Shah Deva drottning og maður hennar, Birendra Bir Bikram, konungur i Nepal heimsóttu Þjóðminjasafnið i sólarhringsviðdvöl sinni á tslandi. innar, farið til Vestmannaeyja og rennt fyrir lax. — Þá hcfur prinsinn verzlað í verzlunum höfuðstaðarins. Ekki er okkur kunnugt um önnur innkaup hans en gallabuxur er hann keypti daginn sem blm. og Ijósmynd- ari DB sátu fyrir honum á Lauga- veginum. Þegar prinsinn kom auga á ljósmyndarann, eða öllu heldur þegar hann heyrði er smellt var af, stökk lifvörðurinn fram fyrir myndavélina og prinsinn skaust á bak við húshorn. Faisal hefur að sögn unað sér vel á íslandi og m.a. fréttist af honum á diskótekinu Hollywood eitt kvöldið í vikunni sem leið, þar sem hann vii skemmta sér hið bezta. -A.Bj. aði afsögn „Ég tilkynnti að ég myndi segja af mér ef vandi tryggingastofnunar yrði ekki leystur þegar í stað. Enda tel ég að stjórninni sé ekki stætt á því að standa ekki við lögbundnar skuld-' bindingar sínar,” sagði Magnús H. Magnússon félagmálaráðherra i samtali við DB. Peningaleysi Tryggingastofnunar ríkisins hefur verið í brennidepli i umræðum stjórnarflokkanna um efnahagsmál undanfarið. Stofnunina skorti stóra upphæð til að standa við skuld- bindingar sinar. Félagsmálaráðherra þótti hægt ganga að bjarga málum í rikisstjórninni. Hann tilkynnti Ólafi Jóhannesyni að hann myndi ganga úr rikisstjórnarstólnum ef ekki yrði gengið í málið strax. Sú hótun virðist hafa hrifið þvi á mánudaginn lá fyrir loforð Tómasar fjármálaráðherra um þá upphæð sem skorti. Heildarupphæð greiðslna Tryggingastofnunar í september til lífeyrisþega, sjúkrasamlaga, lækna o. fl. var 3 milljarðar. Bótagreiðslur voru orðnar á eftir áætlun, þar sem fjármálaráðherra tók ákvörðun um að stöðva bótagreiðslur Trygginga- stofnunar. Tilgangurinn mun hafa verið sá að knýja ráðherra hinna flokkanna til að finna lausn á fjár- hagsvanda stofnunarinnar. Ráðherr- ar Alþýðuflokksins börðu þá i borð og sögðust ekki til viðræðu um eitt eða neitt til úrbóta á vandræðum ríkissjóðs. Afsagnarhótun Magnúsar H. Magnússonar þrýsti enn á um skyndifjárveitingu til Trygginga- stofnunar. -ARH. Féll í tröppum oglétlífið Fjörutiu og níu ára gömul kona, Guðrún Marelsdóttir, Njarðargötu 43, lézt i Borgarspitalanum aðfarar- nótt sl. laugardags. Hún hafði skömmu áður fallið aftur yfir sig i tröppum við hús á Þórsgötu. Það var um miðnætti á föstudag þegar Guðrún var ásamt fleiri konum að yfirgefa hús vinkonu sinnar að slysið varð. í fallinu höfuðkúpu- brotnaði Guðrún. Var hún flutt i Borgarspítalann en lézt þar skömmu síðar. -ASt. Vika £ komu f lóttaf ólksins Nú styttist óðum í komu flótta- fólksins frá Víetnam hingað til lands, en það mun koma hingað þann 20. september. Rauði krossinn hefur keypt húsið Meistaravelli fyrir flótta- mennina, en það hús stendur við Kaplaskjólsveg. Sr. Sigurður H. Guðmundsson, sóknarprestur í Hafnarfirði, sagði i samtali við DB að Rauði krossinn hefði keypt húsið i þeim einum tilgangi að eiga það í eitt ár eða þangað til fólkið er komið í eigið húsnæði. Húsið er 90 fermetrar að flatarmáli og 3 hæðir. Það þarfnast smávægilegrar lagfæring- ar, en að sögn Sigurðar verður það ekk- ert afgerandi, sem gert verður við húsið fyrir komu fólksins. Húsið kostaði 30 milljónir, að sögn Sigurðar. Aðspurður um hvernig söfnun á fatnaði og húsgögnum hefði gengið, sagði Sigurður: „Söfnun á fatnaði hefur gengið mjög vel eins og við bjuggumst við en ennþá vantar okkur eitthvað af heimilistækjum og húsgögnum. Við höfum fengið þó nokkuð af húsbúnaði, en það vantar ennþá nokkurstykki inn í.” Nú er það víst að flóttamennirnir verða 34. Þar af eru þrjár sjö manna fjölskyldur, ein fimm manna fjöl- skylda, fjögur systkin, þar sem elzti bróðirinn er 23 ára, og fjórir einstaklingar, þar af einn túlkur sem verður hér aðeins eitt ár. Nú er unnið af fullum krafti við aö lagfæra hús flóttamannanna og er það allt gert i sjálfboðavinnu að sögn Sigurðar. Verður því allt orðið eins og bezt verður á kosið nk. fimmtudag er llóttafólkið flvtur inn. -EI.A. Unmð að sundurgreiningu fatnaðar, sem gefinn hefur verið til flóttamannanna þrjátiu. DB-mynd: Hörður.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.