Dagblaðið - 14.09.1979, Síða 8

Dagblaðið - 14.09.1979, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979. LADA-ÞJÓNUSTA OG ALMENNAR VÉLASTILLINGAR PANTIÐ TÍMA í SIMA 76650 LYKILU Bifreiðaverkstæöi Simi 76660. Smiðjuvsgi 20 - Köp. Atii Rúnar Halldórsson FjörugtmannlífíTungnaréttum: „Vertu kátur og fáðu þér einn Jónka röltara” —sum lömbin reyndust„helvrtis kettlingar" „Það er nú aldeilis ekki amalegt að rétta í svona blíðu," gæti þessi aldni heiðursmaður verið að segja. DB-myndir RagnarTh. Sigurðsson eftir koma, þegar fegursta lamb endar sem sviðahaus, gæra, kótelettur, læris- sneiðar, hryggur og ég veit ekki hvað. Bændur stungu saman nefjum um holdafar lambanna eftir sumarveruna á fjallinu. Ófá lömb urðu fyrir klipi í hrygginn til að rannsaka líkamlegt ástand þeirra. „Helvítis kettlingur er þetta,” var athugasemdin um eitt lambið. „Þetta er alveg rígvænt, maður,” heyrðist annars staðar. í „Já, hafðu hann bara nógu stóran!” Vaskir sveinar ruddust inn í urrandi kösina, tóku í skott og hnakkadramb og hentu áflogahundtim í allar áttir. Ríkti eftir það friðurí Tungnaréttum. Kvenfélagskonur önnuðust vel þegna þjónustustarfsemi við réttargesti. Þær seldu gosdrykki, sælgæti og pulsur með tómat, steiktum lauk og álagningu úr heildina þóttu lömbin i meðallagi væn. Þegar líða tók á daginn og fé fækk- aði í almenningnum, fjölgaði fleygum á lofti og kæti manna óx. Hefðbundnir réttarslagarar voru sungnir fullum hálsi: „Og siðan ætl’ég að sofa hjá þér, María, María . . .” Hún María þarf sko ekki að kviða einverunni. Eins og menn syngja til hennar á mannamót- um! Ungmenni úr Reykjavík slöngruðu fram og aftur um réttina og kyrjuðu „Hafið bláa hafið”. Það hljómaði eins og skrattinn úr sauðarleggnum á réttar- degi í uppsveitum Árnessýslu. „Ósköp er að sjá hvernig unglingarnir geta hag- að sér,” sagði kona og hristi mæðulega höfuð yfir ungdómnum. Hundarnjr áttu daginn á tímabili. Heil hundahersing lenti i blóðugum slagsmálum við réttarvegginn. Voru hvergi spöruð bit og glefsur, þrátt fyrir hróp og formælingar viðstaddra. Ótrúlegustu aðferðum var beitt við að draga féð í dilka. hjólhýsi og tjaldi. „Djöfuls okur er þetta,” tautaði kona ein sem sneri frá sölugatinu pulsulaus. „Þú kemur á ballið í kvöld,” sagði einn við aldinn höfðingja við réttar- vegginn. „Fáðu þér snafs og svo kem- urðu á ballið!” „Æi, nei.” Gamla manninum leizt betur á hugmyndina um snafsinn en ballið. „Ég hef aldrei á ball komið og fer varla að byrja á því núna . . .” En viðmælandinn var al- deilis ekki á því að gefast upp. Hann var enn að sannfæra gamla manninn um nauðsyn ballferðarinnar, þegar undirritaður yfirgaf staðinn í blikk- belju Ragga ljósmyndara. Já, svona er mannlífið í réttum. Ljómandi var þetta gaman. - ARH Hundar slógust og héngu saman á kjöftunum tímunum saman. Þessi beitti fangbrögðum í slagsmálunum. Annað er það nú ekki sem fram fer á myndinni. Annars hefðum við bannað hana innan 16. „Blessaður, vinur, bara mættur i réttirnar! Ja, þó nú væri. Hana, fáðu þér einn og vertu kátur. Já, manni blöskrar ekki að bjóða upp á Jónka röltara á svona dögum. Svona, þér er alveg óhætt að koma við þetta!” Og vinurinn fékk sér einn og annan — og var kátur. Raunar voru allir kátir. Enda réttardagur í Biskupstungum, fyrstu réttir haustsins. Sólin átti góðan þátt i að gera daginn þægilegan. Hún yljaði Tungnamönn- um vel og lengi. Annan yl sóttu menn gjarnan í gler sem gægðist upp úr rass- vösum. Af þeim ylnum hirðir Tómas ófáar krónur í ríkishitina. Enn hefur honum ekki hugkvæmzt að skattleggja sólarylinn. Það verður kannski næsta skrefið. Fólk á öllum aldri kepptist við að draga sitt fé i dilkana. Krakkarnir réðust til atlögu við þau lömb sem sýndust í rýrara lagi og reyndu að toga þau með sér „heim” í dilkinn. Árang- urinn var misjafn. Oft höfðu lömbin betur. Þeir sem eldri voru komu til hjálpar. Og lömbin urðu að sætta sig við þá auðmýkingu að vera dregin á hornunum út og suður. Þvílíkt líf. Hvað þá að hugsa til daganna sem á „Brrr . . . hohoho . . .” Kindurnar voru skelfingu lostnar yfir öllum hama- ganginum í þeim tvífættu og hlupu lengi vel í hringi. En að lokum urðu þær að láta i minni pokann. Inter Rent ÆTLIÐ ÞER I FERÐALAG ERLENDIS? VÉR PÖNTUM BÍLINN FYRIR YÐUR, HVAR SEM ER í HEIMINUM! BÍLALEIGA AKUREYRAR Reykjavík: Skeifan 9, Tel. 91-86915. Akureyri: Tryggvabraut 14, Tel. 21715.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.