Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979
27
Þó að Dustin Hoffman sé
ekki sá allra leiðinlegasti
maður sem sézt hefur á hvíta
tjaldinu hefur kona hans lýst
því yfir að hún sé orðin leið á
honum. Hún tók sig til
skyndilega og flutti með allt
sitt hafurtask og þar á meðal
tvö börn þeirra hjóna til New
York. Dustin má vel sjá börn-
in segir eiginkonan, en hann
verður þá að taka sér flugfar
frá Los Angeles þar sem hann
býr ... og hvað skyldi
hann svo sem muna um það.
ELIÍJ
ALBERTS
DÓTTIR.
Dustin Hoffman:
Konan farin f rá honum
Old Vic leikhúsið í London er nú um
þessar mundir með gestaleikhús í Dan-
mörku. Það sem gerir þetta ferða-
leikhús áhugavert er að það sýnir leikrit
um danska prinsinn Hamlet og að með
aðalhlutverkið fer Derek Jacobi sem
við þekkjum mun betur undir nafninu
Kládíus, en það var einmitt hann sem
lék Kládíus í myndaflokknum sem hér
var sýndur siðasta vetur.
Sagt er að Kládius fari ekki verr
með hlutverkið en meðbræður hans,
Laurence Olivicr, John Gielgud,
Michael Redgrave og Richard Burton
gerðu, þó hann túlki hlutverkið á sinn
hátt.
Leikritið var fyrst sýnt á Grænlandi.
Sýningar urðu þrjár og hálf, en þá
rigndi svo mikið að hætta varð
sýningu.
Á frumsýningu leikritsins í Krón-
borgargarði í Danmörku gerðist það,
að þegar faðir Hamlets sagði við son
sinn: — Af hverju liggja skýin svo
þungt yfir þér, svaraði ekki Derek
Jacobi fyrir Hamlet heldur kom svarið
frá skýjunum. Yfir leikhúsið féll þetta
Iíka steypiregn svo nærri lá að
leikararnir drukknuðu.
Ingrid drottning reyndi að skýla sér
undir regnfrakka en ekkert dugði,
aumingja drottningin varð rennblaut á
svipstundu og að sjálfsögðu þykir það
hneyksli þegar kóngafólk blotnar.
Eftir hálftíma stanzlausa rigningu
gafst fólk upp og hvarf til sins heima
og aflýsa varð sýningunni. Vota frum-
sýningin hefur þó ekki eyðilagt sýning-
aráhugann fyrir ensku leikurunum og
var lekritið sýnt aftur næsta kvöld.
Leikarinn Derek Jacobi fékk ekki
frið fyrir blaðamönnum sem höfðu
mun meiri áhuga fyrir Kládíus en
Hamlet. Derek sagði að ennþá væri
hann ekki búinn að losna við Kládíus
og fengi hann ótal bréf frá fólki sem
jafnvel hafi boðizt til að þrífa fyrir
hann.
Danir hafa ákveðið að taka upp
Hamletsýninguna og sjónvarpa henni í
vetur. Nú er verið að sýna mynda-
flokkinn um Kládius í sæmta sjón-
Derek Jacobi, — fyrrum Kládíus, nú Hamlet.
Alpaábrauöiöog
smjörliki hf ibaksturinn
varpinu við mjög góðan orðstír. Old
Vic leikhúsið mun fara viðar með
sýningu sína á Hamlet og koma m.a.
vjð í Japan og Kina.
-ELA.
c>
Hinn danski Hamlet Shakespeares var
sagður búa í Krónborgarhöll. í garði
þar fer fram sýning á Hamlet og fer
leikarinn enski, Derek Jacobi, með
hlutverk hans. Nú eru 25 ár siðan leikið
hefur verið í þessum alþekkta hallar-
garði.
tpÍ4|í jríi
Toppunnn i
___ Irtsjónvarpstækjum
SJONVARPSBÚÐÍN
BORGARTUNI 18 REYKJAVIK SlMI 27099
Hamlet getur ekki losað
sig við Kládíus