Dagblaðið - 14.09.1979, Qupperneq 33
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979
37
Badminton-
bolta í hárið
Nú er málinu reddað fyrir þær sem
ekki vilja fá permanent í allt hárið,
nefnilega með badmintonboltum.
Það er hárgreiðslustofa sem nýlega
opnaði í Kaupmannahöfn sem býður
þessa þjónustu og hefur henni verið
vel tekiðaðvonum.
Hárið er þrætt gegnum badminton
boltann og síðan vafið upp á perman-
entpinnann. Þetta gerir það að verk-
um að lokkarnir eru mjúkir og eðli-
legir og koma aðeins neðst í hárið.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd er hugmyndin ekki svo vitlaus
og útkoman hreint og beint ótrúleg,
eða hver hefði getað trúað þvi að
stúlkan á myndinni væri að koma úr
permanenti.
Þýtt-ELA.
Badmintonboltarnir komnir í
hárið. Dálítið sérstakt eða
hvað?
Og útkoman, hreint ekki sem
verst. Hárið getur vart verið
eðlilegra og engin leið að sjá að
stúlkan sé að koma beint úr
permanenti.
Alana léttari
— Rod pabbi
Rokkstjarnan og fótboltaáhugamað-
urinn Rod Stewart fékk sinn súperdag
uppfylltan 21. ágúst. Þá fæddist hans
fyrsta barn, stúlka sem vó 10 mörk.
Eftir vitneskjuna sagði Rod.aðþetta
væri betra en ef Skotland keppti við
England i fótbolta.
Eftir giftingu sina sagði Rod sem
orðinn er 34 ára: „Þetta verður
drengur, drengur sem á eftir að verða
fótboltastjarna.”
Núna hugsar hann ekki um það.
Hann er ekki kominn niður úr skýjun-
um svo montinn er hann af dóttur
sinni. Hún hefur ljóst hár og Rod segir
í sífellu: „Þetta er yndislegt.”
Eiginkona hans, Alana 32 ára, var
áður gift leikaranum Georg Hamilton
og eiga þau saman fimm ára gamlan
son.
Ekki hefur enn verið ákveðið
nafn á litlu Stewart en nöfnin Natasja
og Kimberley koma til greina.
Fyrsta fólkið sem Rod hringdi í til að
láta vita voru foreldrar hans i London.
Hann vakti þau upp um miðja nóti til
aðsegja þeim frádótturinni.
Hin káta móðir Rods, Elsie sagði:
„Þetta er áttunda barnabarn okkar og
við opnuðum viskíflösku af tilefninu.”
Það sem ensku blöðin hafa mestar
áhyggjur af þessa dagana er að aðeins
eru fimm mánuðir siðan þau Rod og
Alana giftu sig, en það er nú önnur
saga.
Þýtt-ELA.
Alana og Rod Stewart. . . barnið
er miklu bctra en að England og
Skotland kepptu saman i fót-
bolta.
V.nHl!
■jiíiiiiiki
• * ’yJ®
ýiiíýj:-
5
„Mór var sagt að ég
yrði að hætta að borða
$eglulegar máltíðir ef
ég vildi grennasL En
með hjáip Ayds hefur
mér iærzt hvernig ég
get borðað á réttan
hátt
t september 1977 var Doreen Fox 82,5 kiló að þyngd.
Hún byrjaði þá að nota Ayds til þess að hafa hemil á
matarlystinni og i janúar 1978 var hún komin niður f 65
' kiló að þyngd. 1 janúar 1979 var hún enn 65 Idló. Hvernig
hefur henni tekizt þetta?
Doreen segir: „Eg vil taka það skýrt fram að ég'borða
reglulega og hef alltaf gert. Ég borða sama mat og maður-
inn minn og börnin okkar tvö. Ég hef ekki efni á — og
langar heldur ekki til — að kaupa sérstakt megrunarfæði
fyrir mig. Galdurínn er fólginn f minni skömmtum. Og þar
er það Ayds sem hjálpar. Með hjálp Ayds hef ég lagt niður
þann ósið að klára leifar barnanna. (Ég er vön að segja við
sjálfa mig að ég sé engin ruslatunna!) Ég hét sjálfri mér þvf
að ég skyldi ALDREI FRAMAR verða 82,5 kiló að
þyngd og ég hef haldið þyngdinni i skefjum i meira en ár.
Það merkir ekki að ég sé i stöðugum megrunarkúr. Ég
elska mat og ég elska Ayds fyrír að hafa átt þátt i að
kenna mér að borð» Á RÉTTAN HÁTT.”
Hvernig Ayds verkar
Það er álit margra vfsindamanna að þegar blóðsykurínn
minnkar, segi heilinn: „Ég er svangur!” Augljóslega geríst
þetta oftast skömmu fyrir venjulegan matmálstfma en það
getur lika gerzt á milli mála. Ef þú borðar eitt eða tvö
Áyds (gjarnan með heitum drykk sem hjálpar þér að melta
það) hálftíma fyrir máltíð, eykst blóðsykurínn og matar-
lystin minnkar.
Hvers vegna
Ayds verkar
Áyds hjálpar til að hafa
hemil á matarlystinni. Það
hjálpar til að borða hitaein-
ingasnauða fæðu og forðast
fitandi mat. Það er eina leiðin
til að grennast og halda áfram
að vera grannur. Og — vegna
þess að það tekur tima að
venjast nýjum matarsiðum —
fæst Ayds í pökkum sem inni-
halda fjögurra vikna birgðir.
Hver skammtur inniheldur 25
hitaeiningar.