Dagblaðið - 14.09.1979, Side 35

Dagblaðið - 14.09.1979, Side 35
39 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979. ANDUT KOMMÚNISMANS - sjónvarp kl. 21.05: ítölsku kommamir fara eigin leiðir í kvöld kl. 21.05 sýnir sjónvarpið fyrsta þátt af þremur um kommún- isma. Kommúnisminn er einhver öflug- asta stjórnmálahreyfing vorra tíma og svo fjölskrúðug, að engin tvö komm- únistaríki útfæra kenninguna á sama hátt. í þessum þætti fjallar brezki rit- höfundurinn Robert McKee um komm- únistaflokkinn á Ítalíu. Kommúnistaflokkurinn á Ítalíu hefur verið annar öflugasti stjórnmála- flokkur þar síðan Mussolini var steypt af stóli og lýðræðiskerfi tekið þar upp að nýju við lok siðari heimsstyrjaldar- innar. Lengi vel fylgdi kommúnistaflokkur- inn á Ítalíu dyggilega „línunni” frá Moskvu, eins og aðrir vestrænir kommúnistaflokkar. Heldur fór þó að bresta í hlýðnistoðunum við uppreisn- ina í Ungverjalandi 1956 og á árunum þar á eftir. Hafa þeir síðan fylgt sífellt sjálfstæðari stefnu og látið skoðanir Moskvuvaldsins sem vind um eyru þjóta. Enrico Berlinguer núverandi for- maður kommúnistaflokksins á Ítalíu hefur verið einn fremsti kommúnista- leiðtogi í Vestur-Evrópu við mótun hins svonefnda Evrópukommúnisma. Sú stefna byggist á því að kommún- istaflokkur hvers lands skuli móta stefnu sína miðað við aðstæður á hverj- um stað. Sem dæmi um þetta má nefna að Berlinguer hefur lýst því yfir að Ítalía eigi ekki að segja.sig úr Atlants- hafsbandalaginu þótt kommúnistar færu i rikisstjórn. Það hafa þeir ekki gert síðan skömmu eftir lok heimsstyrjaldarinnar síðari. Margir telja nú að ekki sé hægt að stjórna ítaliu án stjórnarþátttöku kommúnistaflokksins. Flokkurinn fæst nú ekki lengur til að verja stjórn kristiiegra demókrata falli sem hann gerði í u.þ.b. tvö ár fram til síðasta vors. í þeim tveimur þáttum, sem sjón- varpið mun sýna síðar, verður greint frá kommúnismanum í Kongó og Júgó- slavíu. Þýðandi myndarinnar er Þórhallur Guttormsson og þulur Friðbjörn Gunnlaugsson. Myndin er hálftíma löng. - ELA ÆRSLADRAUGURINN - sjónvarp fkvöld kl. 21.35: Rex Harrison situr uppi með dauða konu sína Ærsladraugurinn (Blithe Spirit) nefnist bíómynd sjónvarpsins í kvöld. í henni er greint frá rithöfundi nokkrum sem fer á miðilsfund í efnisleit. Miðill- inn kemst í samband við látna eigin- konu rithöfundarins en þegar fundi lýkur neitar hún að yfirgefa samkvæm- ið og hyggst vera áfram. Rithöfundur- inn er vitaskuld ekki allt of hrifinn. Myndin er gerð eftir leikriti Noels Coward og er frá árinu 1945. Leikstjóri er David Lean og í aðalhlutverkum er hinn frægi gamanleikari Rex Harrison. Rex Harrison kemst liklega aldrei út úr því að vera þekktur sem prófessor Higgins. Það hlutverk lék hann i mynd- inni My Fair Lady sem gerð var árið 1964. Þetta er ein þekktasta mynd allra tima og Rex eftir þvi þekktur i hlut- verkinu. Áður en My Fair Lady kom tii sög- unnar, er Harrison var á miðjum aldri, hafði hann leikið mikið á sviði jafnt sem í myndum. En þó að hann þætti ágætur leikari þótti hann það lítið sér- stakur að hann fékk engin stórhlut- verk. Rex Harrison fæddist í Lancashire á Englandi árið 1908. Þegar hann var 16 Enrico Berlinguer, formaður kommúnistaflokksins á ítaliu, en um hann verður fjallað 1 þættinum Andlit kommúnismans 1 sjónvarpi i kvöld. Rex Harrison I hlutverkinu frxga, prófessor Higgins I May Fair Ladv. Með honum er Audrey Hepburn. ára fór hann til Liverpoo! og hóf að leika þar, föður sinum til mikillar gremju. Árið 1930 hóf hann að leika í Lundúnaborg og þá smáhlutverk til að byrja með. Árið 1936 gekk honum i fyrsta sinn virkilega vel og lék hann þá meðal annars í New York borg. En á þeim tíma var Harrison ekki beinlínis ímynd kvennagullsins og því var það ekki fyrr en hann fór að eldast að Hollywood menn fóru að hafa áhuga á honum. Myndin sem við sjáum í kvöld vakti mikla athygli á Harrison og má segja að hún hafi gert mönnum fyrst Ijóst að hér var á ferðinni gaman- leikari sem taka bæri eftir. Og Harrison hélt til Hollywood. En þar féll honum ekkert of vel og hann fór til Broadway í New York. Árið 1956 var svo gerð söngleikjaútgáfa af leikritinu Pygmalion og hin nýja útgáfa nefnd My Fair Lady. Harrison var boðið aðalhlutverkið eftir að nokkrir brezkir leikarar höfðu hafnað þvi. Og stykkið sló i gegn og hann hélt aftur til Hollywood. Þegar kvikmyndin My Fair Lady var gerð þar árið 1964 fékk Harrison hlutverkið eftir að nokkrir aðrir leikarar höfðu hafnað því. Og fyrir það hlutverk fékk hann óskars- verðlaun og fleiri verðlaun. Eftir það hefur Harrison leikið í nokkuð mörg- um myndum en engin þeirra hefur náð tiltakanlegum vinsældum. Þó var myndin um Dagfinn dýralækni með honum í aðalhlutverki töluvert vinsæl á tímabili. - DS FLANDRAÐ MILLIHUSA - útvarp kl. 20,40: ÁRNI í BÆJARFERÐ „Ég fer í bíltúr um Reykjavík og Kópavog og kem við fyrst hjá Lárusi Ingólfssyni leikara og leiktjaldamálara og spjalla við hann og aö sjálfsögðu tekur hann einn reviubrag,” sagði Árni Johnsen blaðamaður, sem er með þátt i útvarpi í kvöld er nefnist Flandrað milli húsa. „Því næst heimsæki ég Róbert Arn- finnsson leikara og spjalla við hann um garðinn hans og hitt og annað. Róbert mun grípa i hljóðfærin og syngja eitt lag. Svo kem ég við hjá Baltasar. Ég spjalla við hann og Baltasar syngur eitt spænskt lag og leikur undir á píanó. Að siðustu heimsæki ég síðan Rut lngólfs- dóttur fiðluleikara og hún spilar eitt lag. Þetta er svona meginefni þáttarins.” • agði Árni. Þátturinn er á dagskrá út- varpsins kl. 20.40 og er hann þrjátiu og fimm min. langur. - ELA Meðal þeirra sem Árni heimsækir i þættinum í kvöld er Lárus Ingólfsson leikari. DB-mynd: Bj. Bj. ALLT Á AÐ SEUAST Vegna brottfarar af landinu er heil bú- slóð til sölu. Sófasett, ísskápur, þvottavélasamstæða, stólar, borð, rúm, reiðhjól og margt fleira. Einnig Lada sport árg. '78, ekinn 18 þús. km. ggl2singarísíma43627j 0PIÐ Á LAUGARDÖGUM NAMSFÓLK! NOTIÐ LUXO VIÐ LESTURINN VERNDIÐ SJÓNINA VARIZT EFTIRLÍKINGAR ALLAR GERÐIR - ALLIR LITIR PÓSTSENDUM LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJOS & ORKA Suðuriandsbraut 12 simi 84488

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.