Dagblaðið - 21.09.1979, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1979.
Kennedy
fær f ram-
bjóðenda-
vemd
Edwards Kennedy öldungadeildar-
þingsmanns er nú hér eftir gætt eins og
venja er að lögreglumenn gæti þeirra
sem opinberlega hafa gefið kost á sér
sem forsetaframbjóðenda i Banda-
ríkjunum. Jody Powell, blaðafulltrúi
Hvíta hússins í Washington, neitaði al-
veg að ræða þann möguleika að þetta
styddi enn frekar þann orðróm að
Kennedy hefði ákveðið að keppa við
Carter Bandarikjaforseta um embætt-
ið.
Sérfræðingar telja að þessi
ákvörðun bendi til þess að Kennedy
hafi þegar tilkynnt Carter forseta bak
við tjöldin að hann ætli að gefa kost á
sér.
Edward Kennedy hefur sjálfur sagt
að hann mundi ákveða sig á næstu
mánuðum og þá taka tillit til stöðu
efnahagsmála í Bandaríkjunum og
trausts þess sem kjósendur bera þá til
Carters forseta.
SEX FARASTIJARÐ-
SKJÁLFTA Á ÍTALÍU
—fomminjar í Róm urðu fyrir skemmdum
Sex manns fórust i jarðskjálfta
sem gekk yfir Mið-ítaliu í gær. Forn-
minjar i Róm munu hafa orðið fyrir
nokkrum skemmdum. Þúsundir
manna misstu heimili sín af völdum
skjálftans. Hann mældist átta stig á
Richterskvarða. Er það sterkasti
skjálfti sem komið hefur í Róm i eina
öld. Urðu nokkrar byggingar og
kirkjur fyrir hnjaski, einkum í borg-
inni San Marco de Norcia, norður af
Róm.
Fimm þeirra sem fórust í jarð-
skjálftunum urðu undir veggjum i
húsum er þeir hrundu. Sá sjötti flúði
ofsahræddur út úr húsi sínu og lenti
þá fyrir mótorhjóli og beið bana.
Listasérfræðingar í Rómaborg
hafa fundið nýjar sprungur í
Colosseum, Forum og fleiri
sögufrægum byggingum. Þó eru
skemmdirnar af völdum jarðskjálft-
ans ekki taldar mjög alvarlegar.
Bændur á jarðskjálftsvæðinu
urðu að eyða nóttinni í að safna
saman skepnum sínum, kúm, svínum
og hestum, en þær flúðu sem fætur
toguðu er skjálftinn byrjaði.
Klukkan á ráðhúsinu í bænum
Triponzo fór aftur að slá á klukku-
stundarfresti en það hafði hún ekki
gert siðustu tuttugu ár. Jarðskjálft-
inn í gær var sá alvarlegasti sem kom-
ið hefur á Ítalíu síðan árið 1976. Þá
fórust nærri eitt þúsund manns í
héraðinu Friuli.
Skagaströnd
Nýr umboðsmaður Dagblaðsins á Skagaströnd
er
Guðný Björnsdóttir
Hólabraut 27
Sími 95-4791.
iBIABIB
Norræna leiklistarnefndin
auglýsir lausa til umsóknar stöðu aðalritara.
Aðalritarinn annast framkvæmdastjórn fyrir norrænu leiklistarnefndina
sem hefur þaö hlutverk að úthluta styrkjum til norrænna gestaleikja og
skipuleggja framhaldsmenntun fyrir ýmsa starfshópa leikhússfólks. Starfið
krefst þvi reynslu bæði af leikhússtarfsemi og stjórnsýslu.
Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 1980 er gert ráð fyrir að til starfsem-
innar verði á því ári varið 1.9 millj. danskra króna.
Aðalritarinn þarf að geta tekið við stöðunni 1. mars 1980 og helst í hluta-
starfi frá 1. janúar 1980. Ráöningartimi er tvö ár, að tilskildu samþykki Ráð-
herranefndar Norðurlanda, en framlenging kemur til greina. Skrifstofa
nefndarinnar er nú í Stokkhólmi, en kynni að verða flutt m.a. með tilliti til
óska aðalritara.
Um laun og önnur ráðningarkjör fer eftir sérstökum samningi.
Umsóknir skulu hafa borist eigi síðar en 4. október 1979 til Nordiska teat-
erkommittén, Karlbergsvágen 44,4 tr., S-113 34 Stockholm.
Nánari upplýsingar um starfið veitir generalsekreterare Lars af Malmborg
í síma 08/309977 i Svíþjóð, eða formaður nefndarinnar regissör Knut
Thomassen í síma 05/25 94 75 i Noregi.
Mcirkll
Gæéa kassettur
á frábæru veréi
High
Energi
Ferro
Chrome
Studlo
Quality
Gæðaprófun á MARK II kassettum (
samanburði við allar aörar kassettur á
markaðnum liggur frammi á útsölu-
stöðum.
BORGARTÚNI 18
BEYKJAVlK SlMI 27099
SJÓNVARPSBÚÐIN
Stöðugt ganga fleiri og fleiri svartir menn i her stjórnarinnar i Suóur-Afriku. Ekki mun þetta vera vinsælt meðal svartra fbúa
þar og einn hermannana svörtu hefur sagt að kunningjar hans spyrji hann oft að þvf hvernig hann geti tekið þátt i her-
mennsku hinna hvitu á meðan hans eigin kynflokkur sé undirokaður. Á myndinni hér að ofan má sjá hvftan iiðsforingja
kanna sveit svartra i Suður-Afrfku. Benda má á að mjög margir svartir hermenn eru f stjórnarhernum f Zimbabwe/Ródesfu.
Ródesíuráðstefnan:
Vonir um samkomu-
lag um stjómarskrá
Nokkuð virðist hafa gengið i sam-
komulagsátt á ráðstefnunni um
Rodesiu/Zimbabwe í London. Er
sendinefnd stjórnarinnar í Salisbury
sögð bjartsýn á að henni takist að fá
Breta til að fallast á nýtt uppkast að
stjórnarskrá. Ekki er þó þar með sagt
að með því hafi allt fallið í Ijúfa löð því
þá eiga Bretar eftir að tryggja sam-
þykki þeirra Mugabes og Nkomos,
leiðtoga svartra skæruliða, sem barizt
hafa gegn Salisbury stjórninni.
í dag ætlaði Muzorewa biskup að
leggja stjórnarskrártillögurnar fyrir
brezku fulltrúana og er þar gert ráð
fyrir að verði þær samþykktar verði
viðskiptahömlur allar felldar niður
gagnvart Ródesiu. Bretar hafa aftur á
móti sagt að allir þrír aðilarnir á
fundinum, þeir sjálfir, fulltrúar stjórn-
arinnar í Salisbury og fulltrúar
skæruliða, verði að ná samkomulagi
áður en viðskiptahömlum verði aflétt
og þessi fyrri nýlenda þeirra fái viður-
kenningu ásjálfstæði sinu.
Heimildir í London segja að
Muzorewa og hans menn hafi komið
þangað til að reyna að ná samkomulagi
við brezku stjórnina um nýja stjórnar-
skrá. Þeir telji enga von til þess að
nokkurt samkomulag geti tekizt milli
þeirra og skæruliðaforingjanna
Joshua Nkomo og Roberts Mugabe.
Sameinuðu þjóðimar:
Rifiztumsæti
Kamputcheu
Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna ræðir i dag hvort Pol Pot
stjórn eða Heng Samrin stjórnin, sem
steyti hinni fyrrnefndu af stóli, eigi að
skipa fulltrúa hjá samtökunum. Helztu
stuðningsmenn Heng Samrin
stjórnarinnar eru Sovétmenn og
Vietnamar. í sérstakri nefnd sem gerir
tillögur um þessi mál hjá Sameinuðu
þjóðunum fór svo að sex fulltrúar
töldu rétt að fulltrúar Pol Pots fengju
réttindin en þrír vildu að nýja stjórnin
fengi þau. Heldur virðist fylgi Pol Pots
stjórnarinnar hafa dalað. Fulltrúar hjá
Sameinuðu þjóðunum, sem áður hafa
sagzt vera þess fullvissir að Pol Pot
fulltrúarnir mundu fá nægilegan
stuðning, sögðust i morgun ekki vera
eins vissir um velgengni hans.
Fremur er þó talið líklegra að stjórn
Heng Samrins lenti í minnihluta. Hún
koms til valda fyrir átta mánuðum
með dyggum stuðningi herja ná-
grannaríkisins Vietnam. Vilja sumir
halda því fram að stjórn Samrins sé
ekkert annað en leppstjórn Vietnama.
Einnig getur verið að ákveðið verði
að hvorug sendinefndin fái atkvæðis-
rétt hjá Sameinuðu þjóðunum. Væri
það sams konar afgreiðsla og varð á
þingi hlutlausra þjóða sem haldin var í
Havana á Kúbu fyrir nokkru. Sovét-
ríkin hafa þegar lýst því yfir að þau
mundu sætta sig við slík málalok.