Dagblaðið - 06.10.1979, Blaðsíða 5
Vorum að fá þcnnan einstaka bíl í sölu: Autobianchi AII2 F.LEG árt>. '78,
aðeins ekinn 19 þús. km, sem nýr. ÓlrúlcRa spameytinn smábill en þó
rúmtíóður að innan. Vetrardekk. Til sýnis á staðnum. Góð endursala.
■lliiiiiiilllliillllilil lilliiiiiiiiiiihiiiiiii !|I
f\ ii u iiiriiiiiiiiiiirir BILAKAUP ■ ■ 1 1 1 1 1 II ■ ■ ■ 1 ■ 1 1 1 1 J
SKEIFAf vj 5 — SÍMAR 86010 og 86030
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1979
AUTOBIANCHI
Nýirkokkará
Loftleiðum:
Albert og
Agnará
sælkera-
kvöldum
Albert Guðmundsson og Agnar
Kofoed-Hansen hafa yfirumsjón
með matseldinni á Loftleiðahótel-
inu sinn daginn hvor síðari hluta
októbermánaðar á sælkerakvöld-
um sem þar verða haldin. Eru
þeir sagðir hinir mestu smekk-
menn á sælkerafæði, þar með tal-
in vaiin vin.^
Ennþá kemur vatn i munninn á
þeim sem neyttu kræsinganna
sem Jónas Kristjánsson ritstjóri
og Sigmar B. Hauksson útvarps-
maður kokkuðu á sælkerakvöld-
um sem haldin voru í fyrra. Þótti
þá svo vel takast, að nú er ákveð-
ið að byrja þau aftur með lækk-
andi sól.
-BS.
Bukovski
talar í
Súlnasalnum
Bukovsky í bókabúð i London i
maí i fyrra.
Vladimir Bukovski verður
ræðumaður á fundi Samtaka um
vestræna samvinnu og Varðbergs
sem haldinn verður í Súlnasal
Hótel Sögu á morgun kl. 2.
Hann fjallar um lífsreynslu
sina og það hvern lærdóm þjóðir
Vesturlanda geti dregið af ástand-
inu í Sovétríkjunum. Fundurinn
er öllum opinn.
Bukovski er heimskunnur
sovézkur andófsmaður. Hann
var fyrst handtekinn 18 ára gam-
all þegar hann las ljóð sín á Maja-
kovski-torginu i Moskvu. Hann
er nú 36 ára.
-BS.
15 tíma aðgerðaleysi:
Hélt að skipulag lög-
reglu væri gott
— en hef nú komizt á aðra skoðun, segir eigandi
stolins bfls
Auglýsing i hádegisútvarpinu í gær
vakti athygli fyrir að þar auglýsti eig-
andi bifreiðarinnar R-58621 eftir henni
en ekki lögreglan eins og venjulegast er.
Bifreiðin er Chevrolet Malibu árgerð
1972, blá að lit, og hvarf frá Gunnars-
braut aðfaranótt síðastliðins miðviku-
dags.
Ekki var búið að gera neitt af hálfu
lögreglunnar til að finna bifreiðina eða
gera til þess ráðstafanir um það bil 15
klukkustundum eftir að henni barst til-
kynning um grunsamlegt aksturslag
bifreiðarinnar frá leigubifreiðarstjóra
einum.
Eigandinn, Eggert Jónsson borgar-
hagfræðingur, sagði i viðtali við DB að
hann hefði komizt að þvi að mjög hægt
hefði verið farið í að tilkynna hvarf bif-
reiðarinnar. Til dæmis hefði það tekið
lögregluna átta klukkustundir að upp-
gö'va að bifreiðin sem leigubifreiðar-
stjórinn tilkynnti um aðfaranótt mið-
vikudags og bifreið sú sem Eggert til-
kynnti um að hefði verið stolið á mið-
vikudagsmorgun væri ein og sama bif-
reiðin.
Við athugun Eggerts sjálfs, sem fór á
stúlana er honum ofbauð aðgerðaleysi
lögreglunnar, hafði ekki verið haft
neitt samband við leigubifreiðastöðvar
á miðvikudagskvöldið. Engin beiðni
hafði borizt þangað frá lögreglunni um
að bifreiðarstjórar svipuðust eftir hinni
horfnu bifreið hans. Á fimmtudag
hafði heldur ekki verið haft neitt sam-
band við félag farstöðvaeigenda en í
Ijós kom að lögreglan á Selfossi hafði
pata af málinu, hafði þó ekki beðið
mjólkurbílstjóra eða aðra liklega um
að láta vita af grunsamlegum bifreið-
um.
Löj>reglan auglýsti eftir bifreiðinni á
fimmtudagskvöldi í útvarpinu en siðan
ekki meir, að sögn vegna fjárskorts, en
vinna átti að málinu áfram.
,,Ég hef í einfeldni minni haldið að
hjá lögreglunni ríkti góður agi og
skipulag væri gott í allri meðferð mála
sem hún hlýtur að vera býsna vön að
fást við, en hef nú komizt á aðra
skoðun,” sagði Eggert Jónsson borgar-
hagfræðingur.
- ÓG
„Námsmenn fá haustlánin með skil-
um,” sagði i frétt Dagblaðsins nýverið,
og ef eitthvað má marka þá sjón sem
blasir við augum fyrir utan Háskóla
islands á morgnana nú í vetrarbyrjun
þá virðast háskólanemar ekki búa við
sömu fjárhagscrfiðleika og oft áður.
Öflugur bílafloti þeirra ber vitni um
það.
Hvert einasta bilastæði á háskóla-
svæðinu er jafnan skipað og eru þó
nýtt fleiri stæði en þau sem lögleg geta
talizt.
Örugglega fer þvi þó fjarri að hver
einasti háskólanemi keyri um á eigin
bifreið en talsvert stór hluti þeirra
virðist gera það og skal það sízt
harmað. Vafalaust eru þó ýmsir þeirrar
skoðunar að á timum uppsprengds
bensinverðs og orkusparnaðar megi
bilafloti landsmanna citthvað minnka
og þá e.t.v bílafloti háskólanema ekki
síðuren annarra.
-GAJ-
...•>
5?!
Hverl einasta hílastæði á háskólassæðinu er skipað.
DB-mynd Hörður.
Missti Hjálnwhöndina f gin Fenrisúlfsins?
„Það er fískur undir
steini i Grindavík”
—segjr Friðbjöm Gunnlaugsson fyrmm skólastjóri
,,Ég hlýt að harma, ef sögusagnir
eru réttar, að Hjálmar Árnason hefur
gefizt upp í Grindavík. Málið allt
hefur sýnt og sannað að í Grindavik
er fiskur undir steini sem enginn má
sjá. Hjálmar stakk hendi i gin Fenri-
súlfsins. Illt er til þess að vita ef hann
hefur látið höndina,” sagði
Friðbjörn Gunnlaugsson, fyrrum
skólastjóri í Grindavík, við DB.
Friðbjörn var spurður um það
gegn hverjum rannsókn sú myndi
beinast sem menntamálaráðherra
vitnaði til á blaðamannafundi fyrr í
vikunni. Ráðherra sagði þar að lög-
fræðingur Friðbjörns hefði tjáð
menntamálaráðuncytinu að hann
myndi krefjast opinberrar rann-
sóknar á atburðum þeim sem leiddu
til afsagnar Friðbjörns sem skóla-
stjóra í Grindavik.
— Beinist rannsóknin að hlut
menntamálaráðuneytisins, bæjar-
stjórans í Grindavík eða Boga Hall-
grímssonar, Friðbjörn?
,,Ef nógu langt cr skoðað er enginn
þeirra aðila sem þú nefnir ámælis-
laus. Hitt er annað, að ráðuneytið
hefur sýnt málinu meiri skilning
undanfarið en áður.
Ráðherra kaus að leysa tnálið með
þeint saiómonsdómi að lela aðila scm
engra hagsmuna hafði að gæta, það
er Hjálmari, að leysa hnútinn og
víkja hinum tveim til hliðar á meðan.
Það kom til álita að ráðuneytið
sjálft tæki að sér að reka málið fyrir
mig en frá því var horfið. í þess stað
leitaði ég til minna stéttarfélaga,
Félags skólastjóra og yfirkennara og
Sambands grunnskólakennara. Þau
fólu lögfræðingi sínum að annast
málarekstur að sínu leyti og fyrir
mína hönd.
Ég mun láta lögfræðing minn
kanna hvort atvinnurógur og
persónunið felist i þeim smekklausu
ummælum sem Dagblaðið hafði eftir
nafnlausum Grindvíkingum. Þeir
kjósa að kalla sig andstæðinga mína.
Þau ummæli hitta enga frekar en þá
sjálfa og ég vísa þeim beint til föður-
húsa. Ummælin ntunu væntanlega
verða rakin til upphafs sins.
Ég vil svo geta þess að þau ósann-
indi, sem staðgengill minn hefur látið
frá sér fara, að engum skrám hafi
verið breytt í skólanunt, er ef til vill
hægt að telja einhverjum utan
Grindavíkur trú um. En Grindvík-
ingar sjálfir vita betur.
Ég hlýt að harma þau hjaðningavíg
sem nú eiga sér stað i Grindavík. Mér
er annara um skólaæsku þessa lands
en svo að ég kjósi að gera kennurunt
hennar erfiðara fyrir rneð þvi að
tíunda kosti þeirra og galla í fjölmiðl-
um.
Allar staðhæfingar um að ég hafi
látið kaupa mig til að láta af starfi
eru ósannar. Og þau gögn sem vitnað
er til eru byggð á misskilningi, mis-
lúlkun og hreinni óskhyggju,” sagði
Friðbjörn Gunnlaugsson.
-ARH
„Ragnar hefnr kannski
duldarafsakanir”
„Égsagð-
ist aldrei
láta
traðka
ámér”
— segirBogi
Hallgrímsson
,,Ég sagði við Hjálmar Árnason,
þegar ég afhenti honum lyklana að
skólanum, að það yrði hver maður að
taka þátt í að skapa örlög sin sjálfur.
Sé rétt að hann ætli að hætta, þá skil
ég það ákaflega vel,” sgaði Bogi
Hallgrimsson, fyrrum skólastjóri i
Grindavik, i gær.
„Hjálmar og ég unnuni af heilind-
um saman. Mér leizt strax vel á hann
sem mann.
Jafnframt lét ég vita að ég myndi
aldrci láta traðka á mér og mínunt
réttindum.
Það skiptast alllaf á skin og skúrir.
Niðurlag yfirlýsingar kennaranna ylj-
aði mér veruiega. („Þeir kennaranna,
sem undir þessa yfirlýsingu skrifa og
kennt hafa við skólann i áraraðir,
vila að Bogi á cngan sérþáti í þvi
máti, sem ráðherra hefur blásið upp
aðundanförnu . . ."aths. DB.)
Daprasta stundin var hins vegar I.
oklóber, þegar Hjálmar gaf út ytlr-
iýsingu sina í blöðunum. Þá l'annsi
ntér tleslir hlutir orðnir öfugsnúnir.”
Þáltur menntamálaráðherrans?
„Hann á cf lil vill enn i pokahorn-
inu duldar afsakanir, seni ekki hafa
kontið fram, fyrir sinum gcrðum. Ég
ætla að biða með allar yfirlýsingar
þangað til á það reynir. Hilt get ég
sagt að ég hef ekki ástæðu til að hala
mikið álit á ráðherranum. Mest
blöskrar mér að Itann skuli hafa gcri
það scin hann hcfur gerl, nteð það í
huga að hann var á sínum líma skóla-
sljóri sjálfur.
Ragnar Arnalds sjálfan |tekki ég
'ckki. Það barðisl reyndar í mér að
heimsækja Itttnn þegar untsóknir
okkar Hjálmars lágu fyrir, ekki til aö
hafa áhrif á ákvöröun ráðherrans
heldur frckar lil að rcyna hann sem
mann. Úr heiinsókninni varð ekki.
Ragnar þekki ég því aðeins af cntb-
ættisverkunum.
Ráðherrann hefur sagl opinberlega
að rannsökuð verði málsatvik varð-
andi Friðbjarnarmálið. Hann dró
mig inn í það ntál og gerði minn þátt
vægasl sagt tortryggilegan.
Ég fagna rannsókninní, cf úr
verður. Enginn fagnarhenni meiraen
ég," saeði Bogi Hallgríinsson.
- ARH