Dagblaðið - 06.10.1979, Page 15

Dagblaðið - 06.10.1979, Page 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1979 15 Torfærukeppni Bflaklúbbs Akureyrar: íslandsmet í langstökki jeppa um og litið út um gluggann sáu þeir að í bæinn var kominn jeppi einn, svartur og vígalegur, og fylgdi honum undir- gangur sá er þeir vöknuðu við. Brugðu bílaklúbbsmenn hart og fljótt við, þyrptust þeir upp á keppnis- svæðið og þar breyttu þeir öllum þraut- unum og þyngdu þær að mun. Ekki dugðu breytingar þeirra þó til, því svarti jeppinn komst allar ófærurnar og ökumaður hans sigraði í keppninni. Eftir þetta hafa torfærukeppnir þeirra norðanmanna þyngst með hverri keppni sem þeir hafa haldið, og i síðustu keppninni nú fyrir skömmu voru torfærurnar svo erfiðar að kepp- endurnir hefðu þurft að vera á flugvcl- Það orð hefur legið á torfærukeppn- um sem haldnar hafa verið á Akureyri að þær væru erfiðari en aðrar tor- færukeppnir, en það er álit þeirra sem farið hafa norður til að keppa. Akur- eyringar eru stoltir menn og þeir kæra sig ekkert um að einhverjir utanbæjar- menn, sem koma til að keppa hjá þeim, komist allar þrautirnar sem lagðar eru fyrir þá. Sumarið 1978 hélt bílaklúbburinn torfærukeppni að vanda og var búið að skipuleggja og merkja allar torfærurn- ar daginn fyrir keppnina. Ekki áttu Akureyringar von á utanbæjarmönn- um í keppnina en nóttina fyrir keppn- ina hrukku bílaklúbbsmenn upp við mikinn undirgang og drunur. Þegar þeir höfðu þurrkað stírurnar úr augun- Krafturinn var ekki sparaóur þegar börð urðu á vegi keppendanna og hér þeytist Guðmundur Gunnarsson yfir eitl slíkt. DB-mynd Flosi Jónsson. Allt var gert til að þrautirnar yrðu sem erfiðastar og hér verður Sigurstcinn Þórsson að taka vinkilbeygju i snarbrattri brekku svo að hann vcrður að hafa sig allan við. DB-mynd Sigvaldi. Hlöðver Gunnarsson setti íslandsmet í langstökki á jeppa í keppninni. Sveif jepp- inn níu og hálfan metra í loftinu og sést hann hér í upphafi flugferðarinnar. DB-mynd Sigvaldi. um ef þeir ættu að komast yfir þær all- ar. Enda fór það svo að enginn af keppendunum sex, sem þátt tóku i keppninni, slapp úr henni með ólask- aðan bil. I fimmtu þrautinni tók Guð- mundur Gunnarsson langt tilhlaup í góða brekku en í brekkunni kipptist drifskaftið í sundur og snerist framhás- ingin við. Guðmundur brá þá á það ráð að hlaupa timabrautina sem eftir var, til að Ijúka keppninni. Sigursteinn Þórsson beygði framfjaðrirnar, sneri hásingunni kvarthring og siðan slóst allt saman i olíupönnuna og tók oliu- dæluna úr sambandi. Bragi Finnboga- son braut millikassann í þriðju braut- inni. Reynir Jóhannsson braut framöx- ul. Skipti hann um öxulinn en stuttu seinna braut hann annan öxul og bætti um betur þvi hásingin bognaði lika. Hlöðver Gunnarsson beygði stýris- stöngina svo hressilega að framdekkin stefndu hvort á annað. Tókst honum að gera við stöngina og halda keppn- inni áfram. Benedikt Eyjólfsson sprengdi olíusiuslöngu og missti alla olíuna af vélinni. Litlu munaði þá að hann bræddi úr vélinni. Þrátt fyrir erfiðleika keppenda og raunir þótti keppnin takast vel og höfðu áhorfendur, sem voru fjöl- margir, mikið gaman af. Úrslitin í keppninni urðu þau að Sigursteinn Þórsson lenti í þriðja sæti og fékk hann 850 stig. Hlöðver Gunnarsson lenti í öðru sæti og hlaut hann 1100 stig en i fyrsta sæti varð Benedikt Eyjólfsson og hlaut hann 1 180stig. Á þessu ári og því síðasta hefur Benedikt Eyjólfsson tekið þátt í 12 tor- færu- og sandspyrnukeppnum og þar af hefur hann sigrað i 9. Í hinum þrem lenti hann „bara” í öðru sæti. Bilaklúbbur Akureyrar heldur tor- færukeppnir sinar í malarnámum Akureyrarbæjar og eru þær valdar vegna þess að þar er engin hætta á að spjöll vcrði á landinu. Sömu sögu er að segja um aðra aðila sem halda bifreiða- iþróttakeppni. Kvartmiluklúbburinn byggði braut sina i gömlum hraunnám- um og sandspyrnubrautin er á fjöru- sandinum við Ölfusá. Rally Cross braut BÍKR er i gömlum malarnámum. Kcppnissvæði Björgunarsveitarinnar Stakks í Keflavík er á grónu svæði og þar er auðvelt að sjá hvar þeir hafa lálið bílana fara um, en ekki þó vegna þess hversu svæðið sé illa farið, heldur hins að þeir hafa alltaf sáð í brautirnar eftir hverja keppni og borið áburð á þær, svo að gömlu brautirnar eru fagurgrænar og gróskumiklar og skera sig úr umhverfinu fyrir þá sök. Sömu sögu er að segja um önnur kcppnis- svæði og af framansögðu niá sjá að gróðurlifi landsins stal'ar hvergi hætta af skipulögðum bifreiðaíþróttum. Jóhann Kristjánsson. Benedikt Kyjólfsson, sigurvegarinn i keppninni, öslar hér í einn drullupyttinn. DB-mynd Flosi Jónsson. [ Pípulagnir - hreinsanlr Er stíflað? Fjarlægi stíflur úr vöskum, WC rörum, baðkerum og niður- föllum. Hreinsa og skola út niðurföll i bila- plönum og aðrar lagnir. Nota til þess tankbíl með háþrýstitækjum, loftþrýstitæki, raf- magnssnigla o.fl. Vanir menn. Valur Helgason, simi 77028. Bílaþjónusla j MOTOROLA Ljósastillingar og önnur bílaviðgerdarþjónusta Bifreiðaverkstæði N. K. SVANE Skeifan 5 - Sími 34362 Alternatorar i bila og báta, 6/12/24/32 volta. ’Platlnulausar transistorkveikjur I flesta bllá. Haukur & Ólafur hf. Ármúla 32. Slmi 37700.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.