Dagblaðið - 06.10.1979, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1979
15
Torfærukeppni Bflaklúbbs Akureyrar:
íslandsmet í
langstökki jeppa
um og litið út um gluggann sáu þeir að í
bæinn var kominn jeppi einn, svartur
og vígalegur, og fylgdi honum undir-
gangur sá er þeir vöknuðu við.
Brugðu bílaklúbbsmenn hart og
fljótt við, þyrptust þeir upp á keppnis-
svæðið og þar breyttu þeir öllum þraut-
unum og þyngdu þær að mun. Ekki
dugðu breytingar þeirra þó til, því
svarti jeppinn komst allar ófærurnar
og ökumaður hans sigraði í keppninni.
Eftir þetta hafa torfærukeppnir
þeirra norðanmanna þyngst með hverri
keppni sem þeir hafa haldið, og i
síðustu keppninni nú fyrir skömmu
voru torfærurnar svo erfiðar að kepp-
endurnir hefðu þurft að vera á flugvcl-
Það orð hefur legið á torfærukeppn-
um sem haldnar hafa verið á Akureyri
að þær væru erfiðari en aðrar tor-
færukeppnir, en það er álit þeirra sem
farið hafa norður til að keppa. Akur-
eyringar eru stoltir menn og þeir kæra
sig ekkert um að einhverjir utanbæjar-
menn, sem koma til að keppa hjá þeim,
komist allar þrautirnar sem lagðar eru
fyrir þá.
Sumarið 1978 hélt bílaklúbburinn
torfærukeppni að vanda og var búið að
skipuleggja og merkja allar torfærurn-
ar daginn fyrir keppnina. Ekki áttu
Akureyringar von á utanbæjarmönn-
um í keppnina en nóttina fyrir keppn-
ina hrukku bílaklúbbsmenn upp við
mikinn undirgang og drunur. Þegar
þeir höfðu þurrkað stírurnar úr augun-
Krafturinn var ekki sparaóur þegar börð urðu á vegi keppendanna og hér þeytist Guðmundur Gunnarsson yfir eitl slíkt.
DB-mynd Flosi Jónsson.
Allt var gert til að þrautirnar yrðu sem erfiðastar og hér verður Sigurstcinn Þórsson að taka vinkilbeygju i snarbrattri
brekku svo að hann vcrður að hafa sig allan við.
DB-mynd Sigvaldi.
Hlöðver Gunnarsson setti íslandsmet í langstökki á jeppa í keppninni. Sveif jepp-
inn níu og hálfan metra í loftinu og sést hann hér í upphafi flugferðarinnar.
DB-mynd Sigvaldi.
um ef þeir ættu að komast yfir þær all-
ar. Enda fór það svo að enginn af
keppendunum sex, sem þátt tóku i
keppninni, slapp úr henni með ólask-
aðan bil. I fimmtu þrautinni tók Guð-
mundur Gunnarsson langt tilhlaup í
góða brekku en í brekkunni kipptist
drifskaftið í sundur og snerist framhás-
ingin við. Guðmundur brá þá á það ráð
að hlaupa timabrautina sem eftir var,
til að Ijúka keppninni. Sigursteinn
Þórsson beygði framfjaðrirnar, sneri
hásingunni kvarthring og siðan slóst
allt saman i olíupönnuna og tók oliu-
dæluna úr sambandi. Bragi Finnboga-
son braut millikassann í þriðju braut-
inni. Reynir Jóhannsson braut framöx-
ul. Skipti hann um öxulinn en stuttu
seinna braut hann annan öxul og bætti
um betur þvi hásingin bognaði lika.
Hlöðver Gunnarsson beygði stýris-
stöngina svo hressilega að framdekkin
stefndu hvort á annað. Tókst honum
að gera við stöngina og halda keppn-
inni áfram. Benedikt Eyjólfsson
sprengdi olíusiuslöngu og missti alla
olíuna af vélinni. Litlu munaði þá að
hann bræddi úr vélinni.
Þrátt fyrir erfiðleika keppenda og
raunir þótti keppnin takast vel og
höfðu áhorfendur, sem voru fjöl-
margir, mikið gaman af. Úrslitin í
keppninni urðu þau að Sigursteinn
Þórsson lenti í þriðja sæti og fékk hann
850 stig. Hlöðver Gunnarsson lenti í
öðru sæti og hlaut hann 1100 stig en i
fyrsta sæti varð Benedikt Eyjólfsson og
hlaut hann 1 180stig.
Á þessu ári og því síðasta hefur
Benedikt Eyjólfsson tekið þátt í 12 tor-
færu- og sandspyrnukeppnum og þar
af hefur hann sigrað i 9. Í hinum þrem
lenti hann „bara” í öðru sæti.
Bilaklúbbur Akureyrar heldur tor-
færukeppnir sinar í malarnámum
Akureyrarbæjar og eru þær valdar
vegna þess að þar er engin hætta á að
spjöll vcrði á landinu. Sömu sögu er að
segja um aðra aðila sem halda bifreiða-
iþróttakeppni. Kvartmiluklúbburinn
byggði braut sina i gömlum hraunnám-
um og sandspyrnubrautin er á fjöru-
sandinum við Ölfusá. Rally Cross
braut BÍKR er i gömlum malarnámum.
Kcppnissvæði Björgunarsveitarinnar
Stakks í Keflavík er á grónu svæði og
þar er auðvelt að sjá hvar þeir hafa
lálið bílana fara um, en ekki þó vegna
þess hversu svæðið sé illa farið, heldur
hins að þeir hafa alltaf sáð í brautirnar
eftir hverja keppni og borið áburð á
þær, svo að gömlu brautirnar eru
fagurgrænar og gróskumiklar og skera
sig úr umhverfinu fyrir þá sök. Sömu
sögu er að segja um önnur kcppnis-
svæði og af framansögðu niá sjá að
gróðurlifi landsins stal'ar hvergi hætta
af skipulögðum bifreiðaíþróttum.
Jóhann Kristjánsson.
Benedikt Kyjólfsson, sigurvegarinn i keppninni, öslar hér í einn drullupyttinn.
DB-mynd Flosi Jónsson.
[ Pípulagnir - hreinsanlr
Er stíflað? Fjarlægi stíflur
úr vöskum, WC rörum, baðkerum og niður-
föllum. Hreinsa og skola út niðurföll i bila-
plönum og aðrar lagnir. Nota til þess tankbíl
með háþrýstitækjum, loftþrýstitæki, raf-
magnssnigla o.fl. Vanir menn.
Valur Helgason, simi 77028.
Bílaþjónusla
j
MOTOROLA Ljósastillingar og önnur bílaviðgerdarþjónusta
Bifreiðaverkstæði
N. K. SVANE
Skeifan 5 - Sími 34362
Alternatorar i bila og báta, 6/12/24/32 volta.
’Platlnulausar transistorkveikjur I flesta bllá.
Haukur & Ólafur hf.
Ármúla 32. Slmi 37700.