Dagblaðið - 25.10.1979, Page 19
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979.
19
Nýja flugstööin íEyjum:
STÖDIN TILBÚIN í HRAUNINU
- EN VEGINN ÞANGAÐ VANTAR
~
^ hi mjBdf -J z • , i
,,Við vorum að vonast til.þess að
geta malbikað hlaðið í kring um flug-
stöðina áður en við tækjum hana í
notkun. En vegna fjárskorts verðum
við að láta malarhlað duga til bráða-
birgða. En flugstöðin verður tekin í
notkun strax og hún er tilbúin,”
sagði Hrafn Jóhannsson deildarstjóri
hjá Flugmálastjórn er hann var
spurður um nýju flugstöðina í Vest-
mannaeyjum.
Þar er nú verið að leggja síðustu
hönd á allt innanhúss en Vestmanna-
eyingar höfðu nokkrar áhyggjur af
því að ekki yrði hægt að byrja að
nota húsið fyrr en næsta sumar er
hlaðið við hana yrði klárað. Meðal
annars er haft eftir Steingrimi Agnar
flugvallarstjóra í Vestmannaeyja-
blaðinu Dagskrá að ljóst sé að vegur-
inn til stöðvarinnar og hlaðið við
hana verði ekki tilbúið fyrr en næsta
sumar og þvi standi húsið autt í allt
að ár.
Flugmálastjórn leggur hins vegar
bráðabirgðaveg að húsinu. Er það
gert til þess að taka af veginn sem
legið hefur að gömlu byggingunni
sem kölluð var flugstöð. Sá vegur
liggur það nálægt flugbrautinni að_
hætta gæti skapazt af. Nýi vegurinn
er hins vegar ekki á áætlun Vega-
gerðar fyrr en næsta sumar, þannig
að nauðsyn ber til að leggja bráða-
birgðaveg að nýju flugstöðinni.
Nýja dugstöðin í Eyjum er mikil
bygging á mælikvarða islenzkra flug-
stöðva. Húsið er alls 660 fermetrar á
einni hæð. Þar verður aðstaða fyrir
þau tvö flugfélög sem fljúga milli
lands og Eyja, Flugleiðir og Eyjaflug.
Vel er búið að starfsmönnum vallar-
ins og farþegaafgreiðsla rúmgóð. Þar
er fyrirhuguð veitingasala úr sjálf-
sölum auk hins hefðbundna háttar.
Meðal nýjunga í flugstöðvarbygging-
unni má nefna sérstakt hvíldarher-
bergi fyrir gamalt fólk og lasburða
eða fólk með ungabörn. Ríkið hefur
algjörlega staðið undir byggingu
hússins. Er til lengdar lætur ætti þó
að vera hægt að sjá um rekstur þess
af þeim leigutekjum sem fást af flug-
félögunum tveim.
Það fer eftir þeim fjárlögum, sem
endalega verða samþykkt er nýtt þing
kemur saman, hvenær tekst að Ijúka
fráganginum við flugstöðina en farið
hefur verið fram á fé til þess að ljúka
því algjörlega á næsta ári. -DS.
Nýja flugstöðin I Eyjum er hin glæsilegasta bygging. En Vestmannaeyingar hafa haft af þvi áhyggjur að geta ekki notað hana
fyrr en næsta sumar. DB-mynd: Ragnar Sigurjónsson.
AÐEINS
STORKOSTLEGT TÆKIFÆRI
DROPA skápa- og hillusamstæður
Borðstofusett
25%
ÍSLENZK
HÖNNUN
ÍSLENZK
LISTASMÍÐ
UTBORGUN
MEIRA skápa- og hillusamstæður
Fyrstum sinn bjóðum við þetta tækifærí tilað eignast
þessiglæsilegu húsgögn með 25% útborgun.
Opið
fóstudagatilkl. 7,
laugardaga kl. 10-12.
Allaaðradagatilkl. 6
Á.GUÐMUIMDSSOIM HF
HusgagnaverWsmiriia