Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1979.
il
Kanada:
250.000 URDU AÐ YF-
IRGEFA HEIMILISIN
— eitrað klórgas komst í andrúmsloftið og óttazt að sprengingar fylgdu í kjölfarið
Allir íbúar borgarinnar Missis- klóri mundi springa í loft upp. Sjö brott. Ekki er vitað um nein slys á fólki andrúmsloftinu.
sauga í Ontario í Kanada hafa fengið aðrir tankar sprungu, er lestarvagn- Lögreglubifreiðum var ekið um en ýmsir sögðust finna fyrir svima, ■ morgun voru slökkviliðsmenn
fyrirskipun um að fara á brott vegna inn fór út af teinunum i gærkvöidi. Mississauga og fólk vakið upp með sárindum í augum og höfuðverk enn að reyna að slökkva eldana sem
hættu á gaseitrun. Seint í gærkvöldi Lögreglan hvatti alla íbúa borgar- hátölurum og hvatt til að hverfa á vegna hinna eitruðu lofttegunda. kviknuðu er lestin fór út af sporinu.
fór lest sem flutti klórgas út af tein- innar Mississauga til að yfirgefa brott. Einnig gengu lögreglumenn í Lögregluyfirvöld sögðust óttast að Unnið var að því að flytja sjúklinga á
unum og eiturefnið komst út i and- heimili sín. Hún er nærri Toronto en hús og sögðu fólki hvers kyns væri. eitrið breiddist yfir viðara svæði með sjúkrahúsum og öðrum stofnunum
rúmsloftið. Lögreglan óttaðist einnig einnig var ætlunin að flytja íbúa Eto- Aðvörunum var einnig útvarpað í vaxandi vindi. Vísindamenn sögðust og voru notaðar fimmtíu sjúkrabif-
að vagn með 90 tonna tanki fullum af bicoke, einnar útborgar Toronto, á sjónvarpi og hljóðvarpi. þó ekki hafa merkt nein eiturefni í reiðir við það.
Verkalýðsfor-
ingi skotinn
Vinstri sinnaður verkalýðsleiðtogi og
stjórnmálamaður var skotinn til bana
af hermönnum í gærmorgun þar sem
hann var á ferð í bifreið í Baskahéruð-
um Spánar. Tveir farþegar í bifreiðinni
særðust. Boðað hefur verið til tveggja
daga verkfalls i nokkrum bæjum á
Norður-Spáni í mótmælaskyni. Verka-
lýðsleiðtoginn var að aka fram hjá
varðstöð þegar hann var skotinn. Far-
þegarnir segja að engin merki hafi verið
gefin um að stöðvá ætti bifreiðina.
Varðstöðin hafði verið sett upp vegna
árásar ETA skæruliða á tvo hermenn
sem munu hafa særzt alvarlega.
Að sögn yfirvalda var ætlunin að
koma í veg fyrir að skæruliðarnir
kæmust til Frakklands. Skömmu eftir
að fréttist af falli verkalýðsleiðtogans
safnaðist hópur fólks saman i
Pamplona og hrópaði vigorð gegn
stjórnarhernum.
Bandaríkin: r
14 ALDRAÐIR UET-
UST Á ELUHEIMIU
Að minnsta kosti fjórtán aldraðar
manneskjur létust er elliheimili í
borginni Pioneer í Ohiofylki í Banda-
ríkjunum brann til grunna í gær. Ótt-
azt er að tveir í viðbót hafi látizt en
þeir hafa ekki fundizt ennþá.
Eldur kom upp er fjögurra ára
drengur var að leika sér með eld-
spýtur á heimili sínu sem var sam-
byggt elliheimilinu. Byggingarnar
voru úr timbri.
Á elliheimilinu voru tuttugu og þrir
vistmenn, nokkrir þeirra andlega
sjúkir. Af þeim sjö sem sluppu undan
eldinum brenndust nokkrir en þó
ekki alvarlega. Drengurinn sem var
að leika sér með eldspýturnar slapp
ómeiddur.
Ali vill koma
í stað gísla
Muhammad Ali fyrrverandi heims-
meistari í hnefaleik hefur boðizt til að
koma í stað gíslanna í bandaríska
sendiráðinu í Teheran. Hann mun nú
vera í London og bíða þar frekari
fregna frá íran en skilaboðum frá
honum hefur verið komið til yfirvalda
þarí landi.
Ali sagði við fréttamen’i að honum
hefðu borizt einhvers konar svör frá
írönskum yfirvöldum en vildi ekki
skýra þau nánar út.
— Ég mundi telja mér heiður að því
að falla fyrir góðan málstað, sagði
heimsmeistarinn fyrrverandi. AUir
verðum við eitt sinn að deyja —. Ali er
múhameðstrúar. Hann sagði að betra
væri að hann félli en hinir 60 landar
hans i sendiráðinu. Hann sagði að
múhameðstrúin byggði á friði og í
grundvallaratriðum væru íranir
friðsamir.
Ali sagði að hann hefði gert sér grein
fyrir í hvert óefni málið væri komið er
hann hefði frétt af óeirðum á milli
Irana og reiðra Bandaríkjamanna í
Beverly Hills í Kaliforníu
Skákmótið í Hollandi:
S0S0NK0 0G KAR-
P0V í F0RYSTU
Helztu tíðindi úr sjöundu umferð
skákmótsins í Hollandi voru þau að
hollenzki stórmeistarinn Sosonko
komst í efsta sæti er hann sigraði
Vestur-Þjóðverjann Robert Húbner.
Húbner er einn þeirra, sem leika mun
um áskorunarréttinn gegn Karpov
heimsmeistara. Larsen frá Dan-
mörku bætti einnig stöðu sína með
þvi aðsigra Ungverjann Sax.
I áttundu umferðinni gerðu þeir
Karpov og Spassky jafntefli. Einnig
Kavalek og Sosonko, Hort og
Timman. Biðskákir urðu hjá
Smyslov og Portisch, Larsen og
Romanishin, Húbner og Sax.
Staðan eftir átta umferðir er þessi:
I. Karpov og Sosonko með fimm
vinninga.
3. Romanishin og Larsen með 4,5 og
biðskák.
5.Spassky4,5
6. Sax með fjóra vinninga og
biðskák.
7. Hort og Kavalek með 3,5 vinninga.
9. Húbner og Portisch með þrjá vinn-
inga og biðskák.
II. Timman með þrjá og
12. Smyslov með 1,5 og biðskák.
ÞANNIG Á HERRATÍZKAN AÐ VERA. Breytingarnar á karlmannafatatizkunni eru sjaldnast örar en að ofan sjáið þið
hvernig André Courréges f Parls segir að hún verði næsta sumar. Annars mun André þessi vera fæddur Baski sem þó hefur
lagt fyrir sig friðsamlegrí störf en sumir ættmenna hans. Nú mun vera boðið upp á meira af sportklæðnaði fyrír karlmenn
eins og sést á myndinni tii vinstri. Jakkafötin eru siðan söm við sig og á þeim sjást litlar breytingar gegnum árín.
30 ÁRA ÞJÓNUSTA
1979
SENDIBÍLASTÖDIN H.F.
B0RGARTÚNI21
1949
Eigum mikiö úrval
N0TAÐRA BIFREIÐA
Kynnið ykkur verð og greiðsluskilmála
TÖGGUR H/F
8MB UMBOÐIÐ
Bíldshöfða 16 - SIMI81530