Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1979.
Nýtt for-
setafram-
boö?
Fullvíst er talið, að Albert
Guðmundsson verði ekki sjálfkjörinn
i embætti forseta íslands þegar
kosningar fara fram á næsta ári þótt
svo færi að dr. Kristján Eldjárn
drægi sig í hlé.
Ýmsir hafa verið orðaðir við þetta
embætti aðrir en fullvíst er talið, að
enginn þeirra ákveði framboð fyrr
en dr. Kristján hefur tilkynnt að hann
muni draga sig í hlé. Þó munu
stuðningsmenn Péturs Thorsteins-
sonar þegar vera farnir að vinna að
kosningu hans í embætti. Er Páll S.
Pálsson hrl. nefndur meðal þeirra.
Pétur er sem kunnugt er einn reynd-
asti „diplómat” íslendnga og hefur
gegnt flestum sendiherraembættum
þjóðarinnar, s.s. í London, Washing-
ton, París og Moskvu.
Sr. Árelíus hœttir:
MUNDIENGUM ÓSKA ÞESS
aö veröa prestur miöaö viö aöstööuna
,,Er nokkuð annað að gera
fyrir gamalt fólk en að draga
sig í hlé? Þvi er ekki treyst til
annars en að láta aurana sína
í gengisfall og bjarga þannig
þessari verðbólgu. Ég hef
a.m.k. ekki orðið var við að
því byðust nein störf,” sagði
sr. Árelíus Níelsson, prestur í
Langholtsprestakalli, en hann
lætur af störfum um áramót-
in. DB spurði hann hvað
hann hygðist þá fyrir.
,,Ég mundi engum óska
þess miðað við aðstöðuna,”
sagði sr. Árelíus er DB spurði
hann hvort hann mundi
gerast prestur á ný ef hann
mætti lifa lífinu upp aftur.
Hann bætti svo við: ,,Annars
á ég bágt með að svara þessu.
Það er vissulega margt
ánægjulegt að baki og margir
sigrar fyrstu 12—15 árin. Þau
ár voru ævintýri líkust og
margt sem blessaðist vel. Þá
var hér t.d. fjölmennasta
æskulýðsfélag landsins og
kórinn var einu sinni reglu-
legur kirkjukór en er nú kons-
ertkór.”
Sr. Árelíus sagði að það
hefði farið illa með safnaðar-
starfið að skipta söfnuðinum
í tvennt. Hann nefndi einnig
að safnaðarstarf í Reykjavik
og úti á landi væri tvennt
ólíkt. ,,Ég þekkti hvern mann
í sveitinni. Hér eignast maður
engan söfnuð. Ég þekki
næstum alla, en engan vel. Þó
hefur mér alltaf þótt vænt um
þetta starfssvið og umhverfið.
En mig langaði ekki til að
vera í þessu lengur þótt ég
mætti vera eitt ár i viðbót
vegna aldurs,” sagði sr.
Árelíus að lokum. -GAJ
Hilmar Jánsson bókavörður. Leikrit hans fjaliar um samkvæmi i her-
stöðvarklúbb og þann dilk sem þeð dregur é eftír sór.
DB-mynd Árni Péll
Leikfélag Keflavíkur sýnir Ctkall í
klúbbinn:
HILMAR SKRIFAR
UM HERSTÖD
Leikfélag Keflavíkur frumsýndi í
gærkvöld nýtt leikrit eftir Hilmar
Jónsson bókavörð, Útkall í Klúbb-
inn. Leikrit þetta gerist í herstöð og
segir, að sögn Hilmars, frá samskipt-
um smáþjóðar og stórveldis.
í klúbb einum í herstöðinni er
haldið samkvæmi. Meðal gesta eru
hátt settur starfsmaður verktaka-
fyrirtækis og dóttir hans. Ekki fer
þar allt eins og bezt verður á kosið og
einn gestanna sér sig tilneyddan að
kveðja til lögreglu. Leikurinn greinir
svo frá örlögum lögreglumanns þess
sem kemur á vettvang.
Hilmar Jónsson segir í blaðaviðtali
að Útkall í klúbbinn sé byggt á sann-
sögulegum atburðum. Hann starfaði
á Keflavíkurflugvelli um skeið og
hefur verið búsettur i nágrenni her-
stöðvarinnar í rúmlega þrjá áratugi.
Hilmar er því líkt og aðrir Keflvík-
ingar vel kunnugur ýmsum atburðum
sem þar gerast en aðrir landsmenn
frétta lítið af.
Það er Gunnar Eyjólfsson leikari
sem leikstýrir Útkalli í klúbbinn. Með
helztu hlutverk fara Jóhann Gísla-
son, Jenný Lárusdóttir og Jón Sig-
urðsson. — Önnur sýning leikritsins
verður í félagsheimilinu Stapa í kvöld
og tvær sýningar á miðvikudaginn.
SATT formlega
stofnað annað kvöld
Samtök alþýðutónlistarmanna og -
tónskálda, SATT, verða formlega
stofnuð á Hótel Esju annað kvöld.
Um það bil fjörutíu alþýðutónlistar-
menn gengust fyrir undirbúnings-
fundi i byrjun september, þar sem
/ málin voru reifuð og nokkrar nefndir
skipaðar. Þær hafa nú allar skilað
áliti sínu og verður fjallað um
skýrslur þeirra annað kvöld.
Auk þess verður kosið í fyrstu
stjórn SATT. Ekki telja heimildar
menn Dagblaðsins sig geta spáö því
með neinni vissu hver verði fyrsti for-
maður alþýðufélagsins en mörgum
þykir Egill Ólafsson söngvari Þursa-
flokksinsheitur.
Eitt helzta baráttumál SATT er
það að betur verði hlúð aö lifandi
tónlist hér á landi en nú tiðkast. Þá
telja alþýðutónlistarmenn sig vera
setta skör lægra en flytjendur og
semjendur æðri tónlistar svokall-
aðrar. SATT er sett á laggirnar til að
jafna þann mun.
Stofnfundurinn hefst á Esju klukk-
an átta annaö kvöld. Búizt er viö fjöl-!
menni, tvötil þrjú hundruð manns.
Danshljómsveitin
Tívolí endurreist
,,Við ætlum að einbeita
okkur að því að koma okkur
upp góðri danshljómsveit. Ég
nenni hvorki né hef hæfileika
til að fara að spila einhverja
fórnartónlist. Auk þess er
einnig mun skemmtilegra að
hafa tvö hundruð manns að
hlusta á sig en fimm hræður
úti í sal,” sagði Ólafur Helga-
son trommuleikari er Dag-
blaðið spurði hann um fyrir-
hugaða endurreisn hljóm-
sveitarinnar Tívolí.
Ólafur kvaðst vonast til
þess að Tívolí gæti tekið til
starfa öðru hvorum megin við
næstu mánaðamót. — ,,Við
ætlum að vera með vinsæl-
ustu danstónlistina á dag-
skránni en sleppa öllu frum-
sömdu svo að við ættUm ekki
að verða lengi að æfa hljóm-
sveitina upp.”
Ásamt Ólafi Helgasyni
verða eftirtaldir hljóðfæra-
leikarar í Tívolí: Stefán
Stefánsson saxófónleikari,
Gunnar Hrafnsson bassaleik-
ari, Björn Thoroddsen gítar-
leikari, Árni Sigurðsson gítar-
leikari og Hjörtur nokkur
hljómborðsleikari, sem ku
hafa komið við sögu hjá
hljómsveitinni Sturlungum
fyrr á þessu ári. — Sigurður
Sigurðsson Kjötsúputenór sér
um allan söng með Tívolí.
,,Nei, mér Iízt alls ekki illa
á að byrja með hljómsveit
aftur núna. Góð danshljóm-
sveit getur alltaf fengið nóg
að gera og við búumst að
sjálfsögðu við því að vaða í
verkefnum alveg upp að
hálsi,” sagði Ólafur að lokum
er hann var spurður að því
hvort hann teldi markaðinn
bera eina hljómsveit til við-
bótar.
Stefén Stefánsson aðalmaður
Ljósanna i bænum er nú genginn
tíllrðs viö hljómsveitína Tívolí.
Ólafur HeJgason: — Ætíum ekkiað leika neina fómartónlist
Geirala
Thatcher
Þegar stefna Sjálfstæðisflokksins
var kynnt á blaðamannafundi, var
Geir Hallgrímsson spurður að því,
hvort hann vildi leyfa blaðamönnum
að sjá ráðherralista sinn. Skammt
væri til kosninga þar sem sjálfstæðis-
menn stefndu að hreinum meirihluta.
Geir taldi spurninguna góða og
gilda. Hins vegar kvaðst hann ætla,
að hvorki Callaghan né frú Thatcher
hefðu orðið við þeim tilmælum, sem i
henni fælust.
Það gerði Geir heldur ekki.
Pólitískir spekingar eru sammála
um að mjög hafi andlit
Alþýðublaðsins lyfzt eftir að Jón
Baldvin, fyrrum skólameistari á ísa-
firði, tók þar við stjómartaumum.
Hitt þykir einnig tíðindum sæta, að
nýi ritstjórinn slær ekki staf á ritvél.
Efni það sem hann semur er lesið á
segulband og síðan vélritað upp af
starfskrafti í hálfu starfi. Slíkt er nær
óþekkt í blaðamennsku en getur vel
fallið undir skynsamlega verka-
skiptingu.
Muna má að Jón Þórðarson,
prentari í Acta, var sagður eini mað-
urinn sem lesið gat rithönd Jónasar á
Hriflu hiklaust. Segja sumir að Jón
hafi bætt inn þar sem honum þótti
þurfa. Hafi Jónas aldrei fundið að
því.
Andrés Kristjánsson ritstjóri
segir, að Jónas hafi yfirleitt ekki
lesið yfir aftur það sem hann
skrifaði. Það- sem var skrifað var
skrifað. Það var eins og liðinn dagur.
Bara einhvern
andstϚing
Á fundi hernámsandstæðinga
nýverið, gerði Haraldur Jóhannesson
þá tillögu, að hernámsandstæðingar
byðu fram í forsetakjöri, ef svo færi,
að dr. Kristján Eldjárn gæfi ekki kost
ásér.
Var tillagan samþykkt en engin
umræða varð um forsetaefni and-
stæðinga.