Dagblaðið - 12.11.1979, Blaðsíða 18
18
1
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
KR komst 4 mörkum yf ir —
en Víkingur seig framúr í lokin
— Hörkuviðureign KR og Víkings í 1. deild. Víkingur sigraði 24-21
KR-ingar komu mjög ákveðnir til
leiks í gærkvöld gegn Reykjavíkur-
meisturum Víkings í 1. deild í Laugar-
dalshöll. Gáfu ekki þumlung eftir lengi
vel — náðu um tíma í byrjun síðari
hálfleiks fjögurra marka forskoti. En
Víkingar gáfusl ekki upp — lcikmenn
liðsins voru rólegir þrátt fyrir Ijóta
stöðu. Smám saman tókst Vikingum að
vinna upp muninn. Jöfnuðu í 17—17,
þegar ellefu mínútur voru til leiksloka.
Jafnt var 20—20 og fjórar mínútur
eftir en þá kom styrkleiki Víkingsliðs-
ins vel i Ijós og miklu betri æfing. Á
þessum lokamínútum skoruðu
Víkingar fjögur mörk gegn einu
marki KR. Páll Björgvinsson var mjög
virkur í lokin — skoraði og skoraði —
fimm af sex síöustu mörkum Víkings í
leiknum. í heild skoraði hann 13 mörk
þar af níu úr vítaköstum.
Það er greinilegt að KR-ingar undir
stjórn Bjarna Jónssonar verða erfiðir
hvaða liði sem er á íslandsmótinu í
vetur. Leikmenn liðsins cru sterkir
líkamlega. Harðir í vörn en skortir
meiri yfirvegun í sókninni. Ótimabær
skot í lokin reyndust þung á metunum.
einmitt, þegar nauðsyn var fyrir liðið
að reyna að dempa niður hraðann.
Halda knettinum og skjóta ekki úr
nema góðum færum. Þeir áttu ekki
möguleika í Víking í hröðum leik.
Víkingar voru nokkuð frá sínu bezta
í þessum leik — lengi að ná sér á strik.
llla farið með góð færi i byrjun og það
tviefldi KR-inga. Þá var markvarzlan
slök allan leikinn að þessu sinni hjá
Víking — landsliðsmarkverðirnir Jens
Einarsson og Kristján Sigmundsson
ekki í essinu sínu. Vera kann að gífur-
legt álag i æfingum að undanförnu eigi
Jóhannes Stefánsson, KR, tekur sterklega á móti Árna Indriðasyni. Dæmigerð mynd fyrir leikinn i gærkvöld.
DB-mynd Hörður.
HK misnotaði fimm
vítaköst og tapaði!
— með eins marks mun í 1. deild karla á íslandsmótinu
íhandknattleik
Strákarnir ungu í Handknattleiks-
félagi Kópavogs, HK, köstuðu frá sér
sigri, þegar þeir léku við ÍR í íþrótta-
húsinu að Varmá í gær. Töpuðu með
eins marks mun eftir að hafa misnotaö
fimm vítaköst í leiknum. Það er dýrt i
jöfnum leik — og í lokin stóðu IR-ing-
ar uppi sem sigurvegarar 15—14.
Sigurður Svavarsson skoraði sigur-
markið rétt fyrir leikslok — eftir að
leikmenn ÍR höfðu verið heillum
horfnir mestan hluta siðarí hálfleiksins.
Skoruðu ekki mark í hcilar 25 mínútur.
ÍR-ingar byrjuðu betur í leiknum og
náðu þrívegis tveggja marka forustu,
3—1, 4—2, og 5—3, en HK tókst að
jafna í 5—5. Þá var fyrri hálfleikur
hálfnaður, og Einar Þorvarðarson HK
varði þá vítakast Sigurðar Svavars-
sonar. Rétt á eftir gerði markvörður
ÍR, Þórir Flosason, sér lítið fyrir og
varði tvö vítaköst Ragnars Ólafssonar,
golfmannsins kunna. Ragnar náði þó
knettinum aftur í síðara skiptið og
skoraði. Markverðir liðanna voru áber-
andi beztu leikmennirnir í leiknum.
HK komst í fyrsta skipti yfir með
marki Hilmars Sigurgíslasonar, 6—5,
en Bjarni Hákonarsson jafnaði úr víti
fyrir ÍR. HK komst aftur yfir. ÍR
jafnaði. Síðan var jafnt 8—8 og 9—9
en ÍR-ingar skoruðu tvö síðustu mörk-
in í hálfleiknum. Staðan í hálfleik 11 —
9 fyrir ÍR.
Ársæll Kjartansson skoraði tólfta
mark ÍR í byrjun síðari hálfleiks — og
rétt á eftir kom Bjarni Bessason ÍR í
13—10. En síðan kom hroðalegur kafli
hjá ÍR-ingum. Þeir skoruðu ekki mark
í 25 mínútur — misnotuðu meira að
segja víti. HK tókst jafnt og þétt að
vinna upp muninn. Jafnaði í 13—13,
þegar 13. mín. voru til leiksloka. Þegar
fjórar mínútur voru eftir komst HK
yfir, 14—13 — eitt mark skorað á níu
mínútum. Þá loks vöknuðu ÍR-ingar.
Guðmundur Þórðarson jafnaði í 14—
14 og Sigurður Svavarsson skoraði
sigurmarkið.
Það var ekki margt sem gladdi
augað í þessum leik. Helzt markvarzlan
— en mikið var um skot úr stöðum,
sem lítið tilefni gáfu. Bæði lið eiga að
geta sýnt miklu betri handknattleik en
þeim tókst að þessu sinni. Einkum þó
lR með sína mörgu leikreyndu kappa.
HK hefur misst sinn helzta skotmann,
Stefán Halldórsson í Val, en fengið tvo
leikmenn sem eiga eftir að styrkja liðið
— Magnús Guðfinnsson úr Víkingi og
Ármann Sverrisson úr KA á Akureyri.
Mörk HK skoruðu Friðjón Jónsson
3, Hilmar Sigurgíslason 3, Kristján
Gunnarsson 3, Ragnar Ólafsson 3/1,
Magnús Guðfinnsson og Bergsveinn
Þórarinsson eitt hvor.
Mörk ÍR skoruðu Bjarni Bessason
4, Bjarni Hákonarsson 3/1,
Guðmundur Þórðarson 2, Guðjón
Marteinsson 2, Ársæll Hafsteinsson 2,
Hörður Hákonarson og Sigurður
Svavarsson eitt hvor.
-HJ.
HK-ÍR14-15 (9-11)
íslandsmótið 1. deild karla HK—ÍR 14—15 (9—11). Varmá 11. nóvember.
Beztu leikmenn (hæsta einkunn 10), Þórir Flosason, ÍR, 7, Einar
Þorvarðarson, HK, 6, Bjarni Hákonarson, ÍR, 5, Sigurður Svavarsson, ÍR, 5,
Erling Sigurðsson, HK, 4.
HK. Einar Þorvarðarson, Bergsveinn Þórarínsson, Kristján Ólafsson,
Gissur Kristinsson, Hilmar Sigurgíslason, Ármann Sverrisson, Ragnar
Ólafsson, Erling Sigurðsson, Kristján Þór Gunnarsson, Friðjón Jónsson,
Magnús Guðfinnsson og Nói Björnsson.
ÍR. Þórir Flosason, Bjarni Hákonarson, Guðjón Marteinsson, Sigurður
Svavarsson, Guðmundur Þórðarson, Bjarni Bjarnason, Ársæll Hafsteinsson,
Pétur Valdimarsson, Steinn Öfjörð, Hörður Hákonarson, Ásgrfmur Friðriks-
son og Bjarni Bessason.
Dómarar Gunnar Kjartansson og Ólafur Steingrímsson. Áhorfendur 100.
einhvern þátt i því — og þá hjá
Víkings-iiðinu í heild.
Jafnræði
lengi
Það varð strax mikill darraðardans á
fjölum Laugardalshallarinnar i gær-
kvöld og ekkert gefið eftir. Víkingar
náðu forustu með marki Sigurðar
Gunnarssonar, sem áður hafði mis-
notað víti. Siðan sáust allar jafnteflis-
tölur upp í 9—9. Bæði lið höfðu þó
tækifæri til að ná öruggri forustu en
ýmislegt fór öðru visi en skykli. KR-
ingar skoruðu tvö síðustu inórkin í
hálfleiknum og það þó þeir misstu
mann út af — Hauk Ottesen.
I byrjun síðari hálfleiks reyndu
Víkingar að taka Símon Unnsteinsson
úr umferð. Það gafst illa. KR-ingar
skoruðu tvö fyrstu mörk hálfleiksins og
staðan allt i einu orðin 14—10 fyrir
KR. En Vikingar minnkuðu fljótt
muninn 15—14 eða þegar 10 mín. voru
af hálfleiknum. Þá rrieiddist Símon og
varð að yfirgefa völlinn um t'ima. Það
var áfall fyrir KR en aðrir leikmenn
börðust vel og Konráð Jónsson, fyrr-
um leikmaður Þróttar, kom í hans
stað. KR-ingar komust í 17—15 um
miðjan hálfleikinn en Páll og Ólafur
Jónsson jöfnuðu fyrir Víking. Konráð
kom KR yfir en svo komst Víkingur i
fyrsta skipti yfir i síðari hálfleiknum.
Steinar og Páll skoruðu, 18—19.
Símon kom inn á og jafnaði fyrir KR,
19—19, Páll skornði. Ólafur Lárusson
jafnaði og Árna Indriðasyni, Víking,
vikið af velli. En ákafinn var of mikill í
KR-ingum. Dæmt var á þá vítakast,
sem Páll skoraði úr, og Konráði var
vikið af velli. Leikmenn liðanna þá
jafnmargir. En Páll hafði ekki sagt sitt
síðasta orð. Náði knettinum eftir mis-
heppnað skor Símonar. Brunaði upp
og skoraði — og rétt á eftir komst Þor-
bergur inn í sendingu. Aftur hraðaupp
hlaup og sigur Víkings í höfn 20—23.
Fljótt skipast veður i lofti. Símon
skoraði á lokamínútunni fyrir KR en
Páll svaraði. Lokatölur KR 21 —
Víkingur 24 og spennandi leik var
lokið, leik, sem því miður var of
harður. Of mikið leyft og leikmenn lið-
anna gengu á lagið.
Mörk KR skoruðu Ólafur Lárusson
9/6, Simon 6, Friðrik Þorbjörnsson 3,
Haukur Ottesen 2, og Konráð eitt.
Mörk Víkings skoruðu Páll 13/9,
Sigurður Gunnarsson 4, Ólafur Jóns-
son 3, Steinar 2 og Þorbergur Aðal-
steinsson 2. Erlendur Hermannsson
skoraði ekki én fiskaði flest vitaköst
Víkings. -hsím.
KR-Víkingur 21-24 (12-10)
Íslandsmótið 1. deild karla Laugardalshöll 11. nóvember. KR—Vikingur
21—24(12—10).
Beztu leikmenn. Páll Björgvinsson, Viking, 8, Simon Unndórsson, KR, 7,
Ólafur Lárusson, KR, 7, Sigurður Gunnarsson, Víking 6, Friðrik Þorbjörns-
son, KR, 6.
KR. Pétur Hjálmarsson, Svavar Ásmundsson, Sigurður Páll Óskarsson,
Ólafur Lárusson, Simon Unndórsson, Friðrík Þorbjörnsson, Jóhanncs
Stefánsson, Þorvarður Höskuldsson, Krístinn Ingason, Konráð Jónsson,
Haukur Ottesen og Björn Pétursson.
Vikingur. Jens Einarsson, Kristján Sigmundsson, Páll Björgvinsson, Árni
Indríðason, Steinar Birgisson, Erlendur Hermannsson, Ólafur Jónsson,
Magnús Guðmundsson, Þorbergur Aðalsteinsson, Heimir Karlsson og
Guðmundur Guðmundsson.
Dómarar Guðmundur Kolbeinsson og Rögnvaldur Erlingsson. Vikingur
fékk 10 vitaköst i leiknum — misnotaði eitt. KR fékk sex vitaköst. Skorað úr
öllum. Þremur KR-ingum var vikið af velli Sigurði Páli, Jóhannesi og Konráð.
Tveimur Vikingum, Árna og tvivegis og Steinarí. Áhorfendur 700.
Úr leik Víkings og Eyfirðinga á laugardag. Víkingur vann þar sinn fyrsta sigur
i l.deild.
DB-mynd Hörður.
r
Laugdælir skelltu IS
Islandsmeistarar Laugdæla voru
ekki í vandræðum með bikarmeistara
Stúdenta er liðin mættust í 1. deildinni í
blaki á laugardag. Laugdælir sigruðu
harla auðveldlega 3—0 og áttu
Stúdentar ákaflega lélegan leik. Fyrstu
hrinunni lauk 15—10, þá 15—6 og loks
15—5. Öruggur og sannfærandi sigur.
Á eftir þeim leik áttust við Víkingur
og lið UMSE. Vikingar hlutu sín fyrstu
stig í deildinni með 3—0. sigri. Fyrstu
hrinunni lauk 15—13, þá kom 15—3 og
loks 17—15. Þar voru Eyfirðingar
komnir í 13—5 en gátu samt ekki halað
inn sigur i hrinunni.
Þriðji leikurinn í 1. deildinni var svo
leikinn í gær og léku þá Þróttarar og
Eyfirðingar. Þróttur sigraði 3—1.
Hrinunum lauk þannig: 15—7, 13—15,
15—9 og 15—5. Næsta víst er að Þrótt-
arar hafa lítið í Laugdæli að gera á
miðvikudag með slíkum leik. Eyfirð-
ingar virðast öllu lakari en í fyrra.
I 1. deild kvenna vann Breiðablik
Laugdæli 3—0, 15—6, 15—8 og 15—7.
Þetta voru fyrstu stig Breiðabliks í
deildinni í eitt og hálft ár. í 2. deild
gerðu Völsungar góða ferð suður og
unnu bæði Fram og Breiðablik. Fyrst
Fram 15—10 6—16, 9—15, 15—8 og
15—9 ogsvoBlikana 15—8, 15—6,7—
15 og 15—12. Sannarlega góðir sigrar.
Staðan í 1. deildinni er nú þannig:
UMFL 2 2 0 6—1 4
Þróttur 2 2 0 6—2 4
ÍS 2 11 3—4 2
Víkingur 3 1 2 5—6 2
UMSE 3 0 3 2—9 0