Dagblaðið - 13.11.1979, Page 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Nú í haustskammdeginu er kjörið
að hafa gott lambakjöt á borðum.
Neytendasíðan er með fimm góðar og
gildar uppskriftir sem birtast í dag og
næstu daga.
Lambasmásteik Mar-
engo
Rúmt kíló af lambakjöti er höggv-
ið úr framparti í 4—5 cm bita og
kryddað vel með salti og pipar.
Bitarnir eru síðan brúnaðir i oliu á
vel heitri pönnu. Einn vænn laukur er
saxaður smátt og látinn krauma í
smjörlíki. Síðan er kjötið ásamt
lauknum sett í pott og hvítvíni hellt út
í og soðið niður. Þá er kjötið stráð
hveiti og soðið í kjötsoði eða vatni
með einum hvítlauksgeira og 2 dl af
tómatpúrri. Þegar kjötið er um það
bil soðið er það fært upp úr soðinu
og soðið jafnað ef með þarf. Síðan er
sósan sigtuð yfir kjötið. 250 grömm
af brúnuðum sveppasneiðum eru sett/
út í og soðið áfram í 10 mínútur.
Saxaðri steinselju er stráð yfir við
framreiðslu. Borið fram með
eggjum, steiktum í djúpri feiti og
ristuðum brauðsnittum. Uppskriftin
er ætluð fjórum.
Kálfa- og hænsnakjöt má matreiða
á sama hátt. Einnig má nota rauðvín í
stað hvítvíns en þá kallast rétturinn
) Mattlock.
Hráefni:
1 kg lambakjöt úr framparti
1 stk. laukur
1 glas hvitvín
2 dl tómatpúrri
1 hvítlauksgeiri
250 grömm sveppir
4egg
4 brauðsneiðar
LAMBASMASTEIK MARENGO IH
dagsins
Salt, pipar, hveiti, steinselja eftir
þörfum.
Hráefniskostnaður er mjög nálægt
3530 kr. eða um 883 kr. á mann, þvi
uppskriftin á að duga fyrir fjóra.
Hafragrautur og lýsi
ekki lengur nógu fínt
— íslendingar hinar mestu eyðsluklær og snobbarar
„íslendingar eru trúlega heimsins
mestu eyðsluklær í mat og drykk,
hermikrákur og snobb,” segir m.a. i
einu af septemberbréfunum okkar,
frá konu sem býr suður með sjó. Hún
bað sérstaklega um að nafns hennar
væri ekki getið.
„Við hljótum að geta þrifizt sæmi-
lega af því sem landið gefur af sér
eins og fyrri kynslóðir.
T.d. spyr ég hvort íslendingur sem
kyndir hús sitt með olíu hafi efni á að
lifa eins hátt og þeir sem selja okkur
oliuna?
Nú þykir ekki nógu gott eða fínt að
borða hafragraut með lýsi í morgun-
mat, sem yljar þó i kroppinn á við
tugþúsundir i olíukostnað. Það
skapar þar að auki vellíðan og minni
þörf fyrir mat seinni hluta dags.
Sumum er þannig farið að þeir
þurfa fóður í annarri mynd en áti,
þ.e. andlegt fóður (bækur). Einhvers
staðar verður að spara við sig, vilji
fólk eignast annað en spik og óheil-
brigði.
Og síðar í bréfi þessarar Suður-
nesjakonu segir: ,,Það er hægt að
fylla frystikistuna með fieiru nýtilegu
en kjöti, slátri og rjómatertum. Má
nefna nýjan fisk, brauð, kálmeti og
jafnvel gulrófur. Þær eru að sjálf-
sögðu afhýddar, þvegnar, þurrkaðar
og skammtað í pakka, sem er hæfi-
lega stór i eina máltið. Mér hefur
einnig reynzt góð búbót að baka sjálf
brauð úr grófu mjöli. Þannig brauð
eru miklu betri en úr bakaríi og eng-
inn vill álegg með þeim.
Þakka fyrir góðan þátt í blaði
ykkar.”
Þetta er sennilega alveg laukrétt
hjá þessari Suðurnesjahúsmóður.
Við íslendingar erum óttalega miklir
snobbarar og eyðsluklær. En við
megum þó eiga að við erum dugleg að
vinna okkur inn peninga. Því miður
hugsum við minna um hvernig við
eyðum þeim aftur.
Einu megum við þó ekki gleyma.
Islenzk heimili þurfa að vera betur
búin að húsmunum og alls kyns
„græjum” heldur en erlend vegna
þess að hér á landi verðufn við að
eyða mestum frítíma okkar inni á
heimilunum. Erlendis geta menn
verið eins mikið utanhúss, í það
minnsta hálft árið eða meir. Það sem
við kaupum ,,til heimilisins” er
heldur ekki beinlínis eyðsla, heldur
fjárfesting. Auðvitað gengur þessi
fjárfesting út í öfgar hjá sumum, sem
virðast seint eða aldrei vera búnir að
uppfylla þörfina fyrir að safna að sér
hlutum.
- A.Bj.
Vestmannaeyjar:
Fer með 9.400 krónur
á viku í mjólkurvörur
Við eigum enn óbirt nokkuð af
bréfum sem við fengum með septem-
berseðlinum. í bréfi frá A.A. í Vest-
mannaeyjum sagði m.a.:
„Ég er bara anzi ánægð með út-
komuna á septemberseðlinum (þó
sumir væru það eflaust ekki). Hún
var 143.439 kr. (þ.e. nærri 36 þúsund
á mann). Það er rúmum 40 þúsund
kr. lægra en í ágúst í heildina séð.
Ég tók að gamni mínu saman hvað
ég fer með í mjólkurvörur á viku,
eftir nýjustu landbúnaðarvöruverðs-
hækkuninaogútkomaner 9.401 kr.l
Liðurinn „annað” er geysihár að
vanda eða rúm ein milljón. Þar af er
kostnaður við húsbyggingu nærri 700
þúsund, útsvar og þinggjald á mig
nærri 67 þúsund, fasteignagjald,
húsaleiga, olía, brunabótagj., raf-
magn, dagblöðin (við kaupum tvö)
og bensín. Einnig var keypt göngu-
grind á 17.800 handa yngsta fjöl-
skyldumeðlimnum og skólavörur og
fatnaður á þann eldri fyrir dágóða
upphæð.
í liðinn „annað” er allt skrifað
nema matur og hreinlætisvörur og
heldur ekki opinber gjöld og meðlög
sem tekin eru af manninum mínum
áður en hann fær laun sín greidd.
Auðvitað ættu þau útgjöld einnig
heima þar, því það er staðið í skilum
á þeim greiðslum og við fáum aldrei
þá peninga í hendur.
Kær kveðja,
A.A. Vestmannaeyjum."
ELDHÚSKRÓKURINIM
Dilkakjöt er metið í gæðaflokka eftir útliti og gæðum.
Mat á dilkakjöti
Allt dilkakjöt, hvort sem það er
nýtt, fryst eða saltað, skal metið í
eftirfarandi gæðaflokka:
Fyrsti flokkur plús (I. fl. +). Þangað
fara allir sérlega vel vaxnir skrokkar
og holdfylltir. Hæfilega feitir og með
jafnri og hvítri fitudreifingu. Þeir eru
merktir með DI stjörnu. Kr. 1.670.-
pr. kg.*
Fyrsti flokkur (I. fl.). Þar lenda vel
holdfylltir skrokkar með miðlungs-
fitu og gallalausir í útliti. Merking:
DI. Kr. 1.579. pr. kg.
Annar flokkur (II. fl.). Hér hafna
vöðvarýrir og útlitsljótir skrokkar og
einnig skrokkar með mar og minni-
háttar verkunargalla. Þeir eru
merktir með DIIX. Kr. 1.478,- pr.
kg-
Annar flokkur 0 (II. fl. 0) er fyrir
skrokka með mikilti fitu og einnig
skrokka með blóðlitaðri fitu eða fitu
sem stirðnar ekki. Mikil fita telst ef
fitulagið er að meðaltali yfir 10 mm á
baki. Merkt með: DII0. Kr. 1.478.-
Pr • kg.
Þriðji flokkur (III. fl.). Hér eru allir
vöðvarýrir og magrir skrokkar.
Einnig marðir skrokkar og limhöggn-
ir ásamt skrokkum með verulega
verkunargalla. Merkt: DIII XX. Kr.
1.290.-pr. kg.
I næsta þætti verður fjallað um
merkingu á dilkakjöti.
* Verð á öllum flokkum er miðað við
heila skrokka, ósundurtekna.
Upplýsingaseðill
til samanburóar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvaö kostar heimilishaldió?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi I upplýsingamiðlun
meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið
þér von i að fá frfa mánaðarúttekt fyrír fjölskyldu yðar.
Kostnaður í októbermánuði 1979.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö kr.
Alls kr.
m i iriv
Fjöldi heimilisfólks