Dagblaðið - 13.11.1979, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979.
Joan Baez, þjóðlagasöngkonan bandariska, brá sér nýverið til Thailands og
heimsótti þar búðir flóttamanna frá Kampútseu. Henni ofbauð hryllingur
hungurvofunnar eins og öllum öðrum sem henni kynnast. Enn er ekki að fullu
frágengið hvernig dreifa á mat meðal þess mikla fjölda sem býr við neyð innan
landamæra Kampútseu. Ráðandi stjórn þar vill annast það á eigin spýtur en
alþjóðlegar hjálparstofnanir telja að þá sé ekki tryggt að matnum verði dreift
meðal allra þurfandi, sem margir hverjir eru andvigir stjórninni. Myndin er af
Joan Baez meðal barna I flóttamannabúðum I Thailandi.
Fyrirlestur
þriðjudaginn 13. nóv. kl. 20.30:
Norski bókmenntafræðingurinn Willy Dahl
heldur fyrirlestur: „Nidelven stille og vakker du
er ... En slagertekst fra 40árene í literatursocio-
logisk perspektiv”.
Allir velkomnir NORRÆNA HÚSIÐ
Tilkynning
frá landskjörstjórn um Ustabókstafi í
kjördæmum.
Samkvæmt tilkynningum yfirkjörstjórna verða
þessir listar í kjöri í öllum kjördæmum landsins
við alþingiskosningarnar sunnudaginn 2. des. og
mánudaginn 3. des. nk.:
A. - LISTI ALÞÝÐUFLOKKSINS.
B. - LISTI FRAMSÓKNARFLOKKSINS.
D. - LISTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS.
G. - LISTI ALÞÝÐUBANDALAGSINS.
í fjórum kjördæmum verða auk jjess eftirfarandi
listar í kjöri:
/ Reykjavíkurkjördæmi:
H. - LISTI HINS FLOKKSINS.
R. — LISTIFYLKINGARINNAR.
/ Reykjaneskjördæmi:
Q. — LISTISÓLSKINSFLOKKSINS.
/ SUDURLANDSKJÖRDÆMI:
L. - LISTI UTAN FLOKKA.
/ Nor&urlartdskjördæmi eystra:
S. - LISTI UTAN FLOKKA.
Landskjtirstjórn, 9. nóv. 1979
Gunnar Möller.
Arnmundur Backman. Baldvin Jónsson.
Vilhjálmur Jónsson. Björgvin Sigurðsson.
Stöðvun olíukaupa frá íran:
Ákvörðun Carters
alls staðar fagnað
—bæði í Bandaríkjunum og í íran en þar segjast menn ekki
verða í neinum vandræðum með sölu olíunnar
Tilkynningu Jimmy Carters
Bandaríkjaforseta um að algjörlega
yrði hætt að kaupa olíu frá íran hefur
verið fagnað mjög í Bandaríkjunum.
Edward Kennedy, helzti keppinautur
Carters um útnefningu sem forseta-
efni Demókrataflokksins, sagði í
morgun að hann styddi þessa ákvörð-
un forsetans allshugar.
Carter sagði í tilkynningu sinni að
pmeð þessu vildi Bandaríkjastjórn
sýna svart á hvítu að hún léti engin
efnahagsleg atriði þvinga sig til að
semja um gíslana í sendiráðinu.
Fyrr hafði stjórn Khomeinis í íran
tilkynnt að oliusala til Bandaríkj-
anna yrði stöðvuð. I morgun var haft
eftir ráðamönnum í Teheran að þeir
fögnuðu ákvörðun Bandaríkjastjórn-
ar. Þangað hefði farið um það bil
20% af allri olíu sem unnin hefði
verið í íran. Það magn yrði nú selt á
öðrum mörkuðum sem ekki væri
skorturá.
Ljóst er að verulegir erfiðleikar
steðja nú að stjórn írans. Atvinnu-
leysingjar gerast nú háværir og Kúrd-
ar hafa aftur farið á kreik og hafa
ráðizt á búðir stjórnarhersins i héruð-
um sínum.
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti
tilkynnti að Bandaríkin mundu
ekki leita eftir kaupum á olíu annars
staðar í heiminum til að vinna upp
minnkað olíumagn vegna stöðvunar
kaupa frá íran. Forsetinn sagðist
treysta á að Bandarikjamenn sýndu
þegnskap og drægju saman olíunotk-
un sína af þessu tilefni. Virðist svo
sem þessi orð Carters hafi hlotið mik-
inn hljómgrunn vestra.
PLO, samtök Palestínuaraba, hafa
nú hætt tilraunum til að leysa mál
gíslanna i bandaríska sendiráðinu í
Teheran. Eru fulltrúar þeirra nú
komnir til Kuwait.
Stjórnin í Teheran tilkynnti i gær
að nú væri verið að kanna hugmyndir
til lausnar deilunni um sendiráð
Bandaríkjanna og gíslana þar. Ekk-
ert hefur verið sagt um efni tillagn-
anna.
Carter leggur áherzlu á að tranir hafi
enga aðstöðu til að þvinga Bandarfkin
með hótunum um oliustöðvun.
Genf:
S-Afríka hugleiðir að mæta
í Namibíuviðræður
Vestrænar og afrískar sendinefndir
bíða þess nú í Genf að Suður-Afríku-
stjórn taki ákvörðun hvort hún muni
taka upp viðræður um Namibíumálið.
Er ákvörðunar vænzt i kjölfar þess að
nú hefur tekizt að leysa það mál á
vegum Sameinuðu þjóðanna sem
Suður-Afríkumenn settu helzt fyrir sig.
Kurt Waldheim aðalritari samtak-
anna hefur tilkynnt Pieter Botha, for-
sætisráðherra Suður-Afríku, að tekið
yrði á móti fulltrúum þeirra stjórn-
málaflokka sem nú fá að starfa i
Namibíu (Suðvestur-Afríku) til
viðræðnanna í Genf.
Swapo samtökin, sem berjast gegn
stjórn Suður-Afríku á Namibíu eru
viðurkenndur stjórnaraðili þar af Sam-
einuðu þjóðunum. Stjórnin i Pretoríu
hafði áður tilkynnt að hún mundi ekki
mæta til viðræðna um framtíð Nami-
bíu nema aðilar þar sem hún viður-
kenndi fengju að mæta á fundinn.
anna þar. Nokkur þúsund manns fóru um götur Washington og kröfðust þess að — öll irönsk svin yrðu send heim —. Lá við
átökum, þegar göngumenn mættu um eitt þúsund irönskum stúdentum, sem kröfðust framsais keisarans til trans. Á mynd-
inni hér að ofan má sjá að einn göngumanna heldur mynd af John heitnum Wayne á lofti. Kannski vegna þess að hann þótti
af mörgum ameriskari en allt ameriskt.
Spánn:
Neita að semja
um þingmanmnn
— ETA hreyf ing Baska vill láta hann í skiptum fyrír félaga
í spænskum fangelsum
Stjórnin í Madrid hefur tilkynnt að
engir samningar verði gerðir við ETA
hreyfingu Baska um að þeir láti,
lausan Javier Ruperez, einn áhrifa-
mesta þingmann Miðflokkasam-
bandsins, sem rænt var í gær. ETA
hreyfingin hefur lýst ráninu á hendur
sér og krefst þess að allir Baskar i
spænskum fangelsum verði látnir
lausir gegn því að þingmanninum
verði sleppt úr haldi.
Ruperez var rænt þar sem hann vaT
á ferð i bifreið sinni. Þingmaðurinn,
sem er 38 ára að aldri, hefur verið
einn helzti aðstoðarmaður Adolfo
Suarez, forsætisráðherra Spánar.
Vegna þessa máls var kallaður saman
fundur helztu leiðtoga Miðflokka-
sambandsins, ríkjandi flokksins á
Spáni. Þar mun hafa verið samþykkt
að til engra samninga skyldi gengið
við ETA samtökin.
Ránið var kallað tilraun til kúg-
unar og framkvæmt af aðilum sem
ekki vildu sætta sig við meirihluta-
samþykki um heimastjórn í Baska-
héruðum á Norður-Spáni.