Dagblaðið - 15.11.1979, Qupperneq 17
16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1979.
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
ÍR náði stigunum gegn Fram
Enn tapar Fram i úrvalsdeildinni í
körfuknattleiknum. Lengi vel leit þó út
fvrir að liðið mundi hljóta sín fyrstu
stig í gærkvöld gegn ÍR í Hagaskóla.
Fram hafði forustu lengstum — meðal
annars átta stig, þegar fimm mínútur
voru eftir. En Fram tókst ekki að halda
fengnum hlut. ÍR seig framúr og
sigraði með litlum mun, 78—75.
Leikurinn var heldur slakur og deyfð
ríkjandi lengstum — en leikreynsla ÍR-
inga var þung á metunum lokakafla
leiksins. Þá unnu þeir upp forskot
Fram með skynsaml. leik og tryggðu
sér sigurinn.
Fram komst í 8—2 i byrjun en ÍR
komst yfir í 17—16. Þá náði Fram
aftur forustu, sem liðið hélt út fyrri
hálfleikinn. 40—35 i hálfleik. Þann
mun jók Fram í níu stig í byrjun síðari
Laugdælir íham
Islandsmeistarar Laugdæla i blakinu
voru í ham gegn Þrótti á Laugarvatni í
gær í 1. deildinni. Sigruðu í þremur
hrinum, 3—0, eða 15—10, 15—8 og
15—13. Laugdælir hafa sigrað í
þremur fyrstu leikjunum sínum í 1.
deild karla og verða erfiðir fyrir hin
liðin í vetur.
hálfleiks, 44—35 — og þá virtist allt
benda til þess að Fram mundi ná sínum
fyrstu stigum. En það varð ekki. ÍR
jafnaði í 51—51. Enn kom góður kafli
hjá Fram og liðið náði aftur góðri for-
ustu, 61—53 — skoraði þá tíu stig í röð
án svars frá ÍR. En það var aðeins
skammgóður vermir. ÍR saxaði á
forskotið — komst yfir og sigraði,
þrátt fyrir að liðið léki verulega undir
getu í þessum leik. ÍR-ingar geta miklu
meira.
Stig ÍR: Mark Christiensen 26, Krist-
inn Jörundsson 22, Jón Jörundsson 12,
Kolbeinn Kristinsson 10, Guðmundur
Guðmundsson 4, Jón Indriðason og
Stefán Kristjánsson tvö hvor. Stig
Fram: John Johnson 30, Símon Ólafs-
son 21, Hilmar Gunnarsson 8, Þor-
valdur Geirsson 8, Björn Magnússon 4,
Björn Jónsson og Ómar Þráinsson tvö
hvor.
Ipswich
George Best, kappinn kunni hér á árum
áður, lék með Ipswich i ágóðaleik fyrir
stjóra liðins, Robson, á þriðjudag. Það
var gegn úrvalsliði Ron Greenwood,
enska landsliðseinvaldsins. Jafntefli
varð 2—2. Ipswich vann upp tveggja
marka forustu enska liðsins, en Ken
Reeves og Glen Hoddle, nýju menn-
irnir í landsliðshóp Greenwood, höfðu
skorað mörkin tvö snemma leiks.
46. tbl. 41. árg. 15. nóvember 1979.
Verð kr. 1000
80-85% íslenskra kvenna
nota getnaðarvarnir og fæðingum fer ört fækkandi
- VIKAN ræðir við Gunnlaug Snædal kvensjúkdómalækni
Jólin nálgast - jólaföndur í Vikunni
Atli Þór Héöinsson.
Atli Þór mark-
hæstur hjá Herfölge
Dönsku knattspyrnunni er lokið. Esbjerg varð
Danmerkur-meistari — varð sex stigum á undan KB,
sem um tíma hafði mikið forskot en missti allt niður
í lokin. Aðeins einn íslenzkur knattspyrnumaður lék 1
i Danmörku á keppnistímabilinu, Atli Þór Héðins-
son, með Herfölge i 2. deild. Liðið varð um miðja
deild. Hafði unnið sig upp úr 3. deild í fyrrahaust.
Atli Þór var markhæsti leikmaður liðsins. Skoraði
níu mörk. Næstir komu Erling Pedersen og Lasse
Henriksen með sex mörk hvor.
, Norðmenn á
i Ólympíuleikana
— Sigruðu V-Þjóðverja 1-0 í gær
Norðmenn tryggðu sér rétt í úrslit knattspyrn-
unnar á Ólympíuleikunum í Moskvu næsta sumar,
þegar þeir sigruðu Vestur-Þjóðverja 1—0 í Baunatal
í V-Þýzkalandi í gær. Arne Larsen Ökland skoraði
eina mark leiksins á 78. mín. og norski þulurinn,
sem lýsti leiknum beint í gærkvöld, sló þá jafnvel
ítölskum og spænskum útvarpsmönnum við. Eftir
að hafa hrópað og hrópað á „frábærri norsku” goal
— mark, norskt mark, klökknaði hann á eftir. V-
Þjóðverjar þurftu að sigra með tveggja marka mun
til að komast til Moskvu en Jupp Derwall, landsliðs-
einvaldur Þjóðverja með atvinnulið þeirra, sagði
eftir leikinn. „Þeir voru framar okkur á öllum
sviðum og höfðu allan rétt á því að vinna sér sæti á
Olympíuleikunum.”
Lokastaðan í riðlinum var þessi.
Noregur 4 3 10 7
V-Þýzkaland 4 112 3
Finnland 4 0 2 2 2
Markatalan var ekki gefin í skeyti Reuters.
Hamilton komst
í undanúrslitin
Fresta varð leik Celtic og Aberdeen í 8-liða úr-
slitum skozka deildabikarsins í gærkvöld. Einnig
leik Morton og Kilmarnock. Hins vegar voru tveir
leikir háðir og kom mjög á óvart, að Hamilton úr 1.
deild komst í undanúrslitin á kostnað Dundee úr úr-
valsdeildinni. Dundee sigraði 1—0 á heimavelli í gær
— markið skorað þremur mín. fyrir leikslok eftir
gífurlega pressu nær allan leikinn — en það nægði
ekki. í heimaleik sínum sigraði Hamilton 3—1.
Þá komst Dundee Utd. einnig í undanúrslitin —
sigraði Raith Rovers 1—0 á útivelli í gær. Paul
Heggerty skoraði eina mark leiksins í síðari hálf-
leik.Fyrri leik liðanna lauk án þess mark væri
skorað .
íþróttir eru einnig á bls. 18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1979.
17
flDANpI A ISLANDI: SJÖFN. A
POLYTIX
plastmálnin
S \j i |=> J
Plastmálning
Grænt
fRAMLEIÐAND!
Á
ÍSL
vegna
þess að:
Hvers veéna
er íslenzk framleiðsla
með mestum gæðum fyrir minnstan pening.
1 POLYTEX
■ með mestum gæðum f;
O POLYTEX
lykt, sem hverfur fljótt í
3 POLYTEX
hefur jafna og fallega á
4 POLYTEX
■ umferðum svo bú átt e
hefur litla en þægilega
lykt, sem hverfur fljótt úr húsinu.
er auðvelt í notkun og
hefur jafna og fallega áferð.
þekur algjörlega í 2-3
umferðum svo þú átt ekki á hættu að þurfa að
mála 5-6 umferðir.
5
6
7
8
POLYTEX, glært til íblöndunar,
gefur þér möguleika á að ráða glansáferðinni
og þvottheldni.
POLYTEX ýrist lítið úr rúllu og
þess vegna er hægt að mála án þess að breiða
yfir aila hluti í herberginu.
POLYTEX litir eru allir Ijósekta og
því þarf ekki að hafa áhyggjur af upplitun.
POLYTEX er framleitt í 30 staðal-
litum og fæst að auki í 1380 Óskalitum.
POLYTEX og ÓSKALITIR fást í öllum helztu málningarverzlunum
Aðrar
eftirsóttar
málningar-
vörur
TEXOLIN AKRYLHÚÐ er vatns-
þynnt plastefni. Þeir, sem hafa
reynslu af þessu efni eru sam-
mála um, að þac hsfur fráþæ.t
veörunarþol og viðloðun vió tré,
svo sem glugga, hurðir, kai.na,
grindverk og margt fleira.
MET HÁLFMATT lakk gefur
jafna og fallega silkimatta áferð.
Það hentar einkar vel á glugga,
hurðir, í eldhús, forstofur, böð
og margt margt fleira.
É-21 GÓLFHÚÐ er grimmsterkt
gólflakk og þvi mjög gott á
vinnusali, í sláturhús, verk-
stæði, þvottahús, bifreiöar-
geymslur og alls staðar annars
staðar, þar sem mikið mæðir á.
MET VÉLALAKK er fljótþorn-
andi lakk, með háum glans.
Fjöldi notkunarmöguleika, s.s. á
bifreiðar, vinnuvélar, járngrind-
ur og ýmis verkfæri. Einnig má
nota það á tréverk.
fagleg
þjónusta
í
fyrirrúmi
w
0
Knstiin Knsiiínsson
T.Amsiola £» •uglýtmg.þiónusla sl