Dagblaðið - 15.11.1979, Blaðsíða 32
Frestur Rússa rennur út á miSnætti:
Stórar ákvarðanir teknar
ásíöushi klukkutímunum
—ákveðnir möguleikar opnir, segir talsmaður Norsk Hydro
„Verið er að vinna að þessum
málum í ráðuneytinu af fullum
krafti,” sagði Kjartan Jóhannsson,
viðskiptaráðherra í viðtali við DB í
morgun, er fréttamaður spurði hann
um gang viðræðna um olíuviðskipti.
Hann bætti við að á þessu stigi væri
ekki hægt að fullyrða um niður-
stöður málsins. Þær yrðu naumast
ljósar fyrr en eftir 5—6 klukkutíma,
þ.e. síðdegis í dag.
„Viðræður eru í gangi og hafa
raunar verið og ákveðnir möguleikar
á viðskiptum standa opnir af okkar
hálfu,” sagði talsmaður Norsk
Hydro í Osló í viðtali við DB í
morgun.
Horfur virðast á því að samningar
verði gerðir við Sovétmenn um kaup
á svartolíu, bensíni og gasoltu. Áður
tiltekinn frestur af hálfu Sovétmanna
til að skrifa undir samningsdrög sem
gerð voru í Moskvu sl. sumar rennur
út á miðnætti í nótt.
Sovétmenn geta fallizt á fyrirvara
um að minna magn verði keypt en
samningurinn gerir ráð fyrir, ef
ákvörðun af hálfu ísiands verður til
kynnt á samningstímanum. Þetta
gefur möguleika á því að haldið verði
áfram að kanna aðra möguleika á
olíukaupum en frá Sovétríkjunum.
Þannig yrði stefnt að því að við
yrðum ekki háðir einum aðila um öll
okkar olíukaup, þegar frá er talið
þotueldsneyti og smurolíur, sem við
kaupum annars staðar.
-GS/BS
JOFN PROSENIUHÆKK-
UN Á ÖLL LAUN1. DES.
—reikna frekar með hærri tölunni, segir Magnús ráðherra
„Það hefur verið reiknað með því
að kauphækkunin 1. desember verði í
prósentum jafnmikil á lægri sem
hærri laun,” sagði Magnús H.
Magnússon ráðherra í morgun.
„Ekki hefur verið endanlega
ákveðið hvaða tala verður valin í
prósentuhækkanirnar, en ég reikna
með því að hærri talan verði valin,”
sagði Magnús.
Samkvæmt siðustu fréttum um
visitöluútreikninga virðist stefna í að
kauphækkun á hærri launin ætti að
verða um 13 prósent og um 11
prósent á hin lægri, ef farið yrði eftir
Ólafslögum. Siðastliðið vor var 2%
kjaraskerðingu á lægri launin frestað
til 1. desember, svo að skerðing lægri
launanna var þá minni en hinna
hærri. Nú hefur ríkisstjórnin
ákveðið, að skerðing lægri launanna
komi ekki til framkvæmda. Jafn-
framt verður ekki farið út í almenna
skerðingu verðbóta 1. desember.
Spurningin er þá hvort 13 eða 11
prósent yrðu valin eða tala þar á milli
sem kauphækkun allra. Yrðu 11%
valin væri um að ræða skerðingu á
verðbótum hærri launanna. Magnús
H. Magnússon reiknar með að hærri
talan, það er um 13%, verði valin
sem kauphækkun fyrir alla. -HH.
Ungum manni, er sagðist
viðriðinn dauðsfall,
sleppt úr gæzluvarðhaldi:
Ástæða til
frekari
rannsókkar
„Það eru ýmis atriði enn óljós, en
ekki þótti ástæða til að fá gæzluvárð-
haldsúrskurðinn framlengdan,” sagði
Þórir Oddsson vararannsóknarlög-
reglustjóri í viðtali við DB í morgun.
Ungum manni var í gær sleppt úr
gæzluvarðhaldi eftir að hafa fyrir viku
sagzt vera viðriðinn andlát manns i
Reykjavík fyrir rúmu ári. Þann fram-
burð hefur hann dregið til baka.
Er Þórir var spurður hvort frelsi
unga mannsins þýddi minnkandi líkur
á aðild hans að andlátinu svaraði hann:
„Alla vega að því er hann varðar.”
Að svo komnu hafa engir aðrir verið
yfirheyrðir vegna þessa máls en í þágu
rannsóknarinnar vildi Þórir ekki segja,
að svo stöddu, hvort ástæða væri til
þess eða ekki.
- GS
Flugleiðir
kaupa íKóreu
— ogseljaaftur
Flugleiðir hafa fest kaup á fjórum
Fokker Friendship skrúfuþotum i
Suður-Kóreu. Hér er um að ræða þrjár
F-27—200 vélar, sem taka 48 manns i
sæti, og eina F-27—500, sem tekur 56
manns í sæti.
Flugleiðir og Korean Airlines undir-
rituðu kaupsamninga í Seoul, höfuð-
borg Suður-Kóreu, i fyrradag. Flug-
vélarnar verða afhentar í janúar-
byrjun.
Fyrirhugað er að selja tvær af eldri
F-27 vélum Flugleiða, en að ein 27—
200 vélin og 27—500 vélin komi í þeirra
stað. Finnair kaupir svo tvær 27—200
vélar úr Kóerupakkanum af Flug-
leiðum.
-ARH
■ r
r
„Hvað er þctrn, þarf maður ekki einu sinni að borga? Nei, hann þurfti ekkert að borga, viðskiptavinur Tryggingastofitunar
rikisins, þegar hann tók við endurskinsmerki úr hendi Lúðvlks Eiðssonar lögreglumannsfyrir utan húsakynni Trygginga -
stofitunar I gœr. Lögregiumenn stóðu þar vakt og dreifðu ókeypis endurskinsmerkjum til tryggingabótaþega og annarra er
hofa vildu. -ARH/DB-mynd: Sveinn
frjúlst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 15. NÓV. 1979.
Sjávarútvegsráðherra
á Fiskiþingi:
Af latölur á
borðið eftir
2 sólarhringa
— tilað auðvelda
stjórnun veiðanna
„Stjórnunaraðgerðir í fiskveiðum og
ákvarðanir í þvi sambandi krefjast
stöðugs aðgangs að nýjustu og beztu
upplýsingum um aflamagn og aflasam-
setningu,” sagði Kjartan Jóhannsson
sjávarútvegsráðherra m.a. í ræðu sinni
á Fiskiþingi, sem nú stendur yfir.
Falaðist hann eftir aðstoð þingheims
i þeim efnum og hét jafnframt að beita
sér fyrir fjámiagni til að mæta auka-
kostnaði við slíkt.
Fiskifélagið hefur safnað saman
slíkum upplýsingum og haldið til haga í
fjölda ára, en upplýsingastreymið er
það hægfara að það kemur ekki að
gagni við stjórnun.
„Mér dettur t.d. i hug að aflatölur
hvers laugardagskvölds gætu legið fyrir
hjá Fiskifélaginu á mánudagsmorgni.
Ákvarðanir sem taka þarf i stjórnun
fiskveiða geta verið mjög afdrifaríkar,
það má ekkert til spara að þær séu
byggðar á beztu fáanlegum upplýsing-
um,” sagði Kjartan. -GS
Skoðanakönnun í Lands-
bankanum á Akureyrí:
Sólnes efstur
Starfsmenn í Landsbankanum á
Akureyri gerðu sér til dundurs að
efna til skoðanakönnunar um fylgi
flokkanna i sínum röðum. Af um 50
starfsmönnum tóku 39 þátt í leikn-
um. Úrslit urðu sem hér segir:
Alþýðuflokkur 9 atkvæði,
Framsómnarflokkur 6 atkvæði,
Sjálfstæðisflokkur 7 atkvæði,
Alþýðubandalag I atkvæði,
Sólness-listinn 13atkvæði.
Auðir seðlar voru 3. -ARH
Krafla:
Vaxandi
titringur
í morgun
Um klukkan 9 í morgun höfðu 12—
13 litlir skjálftar komið fram á mælum
skjálftavaktarinnar við Mývatn frá þvi
á miðnætti sl. Er það jafnmikill fjöldi
og varð allan sólarhringinn þar á
undan.
„Þetta er hálfgerð berjatinsla hjá
okkur,” sagði Eysteinn Tryggvason
jarðeðlisfræðingur í morgun. „Skjálft-
arnir hafa verið þetta um og yfir 20 á
sólarhring undanfarna daga þar til i
gær að þeir urðu aðeins tólf. Nú virðrst
eitthvað líflegra undir niðri.”
Eysteinn kvað land halda áfram að
rísa hægt. Og nú tekur á þolinmæðina
aðbíðaþróunarinnar. -A.St.