Dagblaðið - 21.11.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1979.
9
Sendinefnd frá Fleet-
wood ræðir við LÍÚ og
íslenzka útgerðarmenn
— Fleetwoodmenn óska eftir jafnari löndunum íslenzkra skipa
milli Hull, Grimsby og Fleetwood
Löndun úr fslenzkum báti, Sigurbáru VE, f Fleetwood f sl. mánuði.
DB-mynd JH.
Hér á landi eru nú staddir þrír menn
frá Fleetwood i Bretlandi og ræða þeir
við ráðamenn í útgerð um landanir
íslenzkra báta i Fleetwood. Þeir ræða
m.a. við Kristján Ragnarsson formann
LÍÚ og útgerðarmenn i Vestmanna-
eyjum.
Eins og fram hefur komið i fréttum í
DB óska ráðamenn í Fleetwood mjög
eindregið eftir fiski frá íslandi, en þeir
hafa ekki flota sjáifir tii þess að sjá
sinum markaði fyrir þeim fiski, sem
veiðist á íslandsmiðum.
íslenzkir bátar landa á þremur
stöðum á Bretlandi, í Grimsby, Hull og
Fleetwood. Fleetwoodbúar telja sig
bera skarðan hlut frá borði, sérstak-
lega með tilliti tii þess að þeirra höfn er
opin íslenzkum bátum allt árið um
kring en Grimsby lokar fyrir löndun
islenzkra skipa á sumrin vegna landana
eigin skipa.
Útgerðarmenn velja sjálfir hvert þeir
sigla með afla en Kristján Ragnarsson
hefur lýst þvi yfir að hann telji eðlilegt
að íslenzk skip landi aðallega í Hull og
Fleetwood þar sem þær hafnir byggi á
löndunum íslendinga en Grimsby hafi
eigin flota.
Þeir þremenningamir frá Fleetwood,
Harry Fairbotham, James Cross og A.
H. Long, benda á það að þrátt fyrir
það að Grimsby hafi verið lokuð i
sumar og fyrsta löndun ekki fyrr en 18.
september þá sé löndunarhlutfallið
Fleetwood mjög óhagstætt. Þau skip
sem koma til löndunar með umboði
LÍÚ ná hlutfallinu 11 °7o i Fleetwood á
móti 31% i Hull og 58% i Grimsby.
Við þetta bætast skip sem landa beint
hjá útgerðarfyrirtæki J. N. Ward í
Fleetwood og verður hlútfallið þá 20%
í Fleetwood, 29%, í Hull og 51% i
Grimsby.
Þeir benda á að þegar verð sé borið
saman i þessum þremur höfnum til
lengri tíma, sé munur ekki mikill. Þá sé
löndunarútbúnaður i Fleetwood
nýtizkulegur og styttra sé þangað en á
hina staðina tvo svo munar tveimur
sólarhringum og minni olíueyðslu.
Fleetwoodmenn eru þvi hingað
komnir til þess að leita eftir jafnari
skiptingu milli hafnanna þriggja og
leita skýringa á því af hverju svo er
ekki i raun. Þeir benda á að inn á milli
komi skip til Fleetwood og geri góðan
túren svosjáist þau ekki aftur.
-JH.
Sjátfstæðisflokkurinn spyr:
Vill fólkið skjóta sókn
gegn verðbólgu
— eða langvarandi aðhaldsaðgerðir sem ekki hafa boríð árangur? segir
Geir Hallgrímsson formaður f lokksins
Sjálfstæðisflokkurinn telur þörf á
gjörbreyttu búskaparlagi í íslenzku
efnahagslífi til að stefna flokksins í at-
vinnumálum og öðru verði tryggð.
Grundvallarstefna flokksins í efna-
hagsmálum er: aukin þjóðarfram-
leiðsla, bætt lífskjör, næg atvinna,
stöðugleiki i atvinnu og efnahagslífi,
efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar og
jöfnuður i utanríkisviðskiptum.
Sjálfstæðisflokkurinn spyr fólkið í
landinu, hvort það vilji heldur að ráðist
verði gegn verðbólgunni með leiftur-
sókn og árangurinn komi i ljós innan
eins árs með því að hún verði komin
niður í 10 til 20%. Eða þá hvort fólk
vill aðhaldsaðgerðir miðaðar við tvö til
þrjú ár, sem fyrirfram er vitað að bera
munu lítinn árangur eins og reynslan
sýnir.
Þetta kom fram i máli Geirs Hall-
grímssonar á blaðamannafundi í gær.
Hann sagði ennfremur, að hann
tryði þvi, að fólk vildi nýjar leiðir til
varnar verðbólgunni. — Við verðum að
grípa í taumana, því við blasir enn
aukin verðbólga og atvinnuleysi ef ekki
verðurspyrnt við fótum.
Geir Hallgrimsson sagði aðspurður
að hann óttaðist ekki afleiðingar svo
mikils niðurskurðar verðbólgu á
skömmum tíma. Hann sagðist þvert á
móti telja, að með minnkandi verð-
bólgu með svo skjótum hætti mundu
hjól atvinnulífsins fara að snúast með
eðlilegri hætti og til dæmis mundi vafa-
laust draga úr allskyns verðbólgufjár-
festingu, sem tíðkaðist.
Formaður Sjálfstæðisflokksins út-
skýrði nánar fyrri yfirlýsingar um 35
milljarða samdrátt í ríkisútgjöldum.
Væri þar um að ræða 20 milljón króna
lækkun skatta sem fráfarandi vinstri
stjórn hefði lagt á auk þess sem lántök-
ur erlendis yrðu 15 milljónum lægri en
fyrri stjórn hefði ráðgert. Er þar gert
ráð fyrir lækkun niðurgreiðslna á land-
búnaðarvörum, lækkuðum framlögum
til fjárfestingalánasjóða, s.midrætti
opinberra framkvæn’da og hag-
ræðingu í opinberum rekstri.
Á fundinum var kynnt stefna
flokksins sem sjá á fyrir 15 þúsund
nýjum atvinnutækifærum. Einnig var
kynnt stefna flokksins í fjölmörgum
málaflokkum. Er það undir fyrirsögn-
inni Frelsi til framfara.
Geir Hallgrímsson lagði sérstaka á-
herzlu á það að nú væri meginmálið að
vinna bug á verðbólgunni. Sjálfstæðis-
flokkurinn vildi gera það með skjótum
hætti — eða niður í 10—20%. Engin
dul væri dregin á að til þess að ná þvi
marki þyrftu allir að láta eitthvað af
hendi. Ekki væri hægt að tryggja
neinum óbreytt kjör nema þá hinum
lægstlaunuðu.
Formaðurinn sagði að á árangri
baráttunnar gegn verðbólgunni
byggðust allar frekari áætlanir um
framfarir og bætt kjör. -ÓG.
'LJÓÐA TÓNLEIKAR
Flutt veróa 24 sönglög eftir Sigfús Halldórsson
Rytjendur:
Anna Júliana Sveinsdóttir
Ásdis Stross
Crystyna Cortes
Garöar Cortes
Guðmundur Guðjónsson
Helga Hauksdóttir
Ingveldur Hjaltested
tvar Helgason
Kristinn Hallsson,
Kristinn Bergþórsson
Lára Rafnsdóttir
Lovfsa Fjeldsted
Mágnús Ingimarsson
Ólöf K. Harðardóttir
Sigfús Halldórsson
Sesselja Halldórsdóttir
Sigurveig Hjaltested
Sigrfður Maggý Magnúsdóttir
Snæbjörg Snæbjarnardóttir
Tónleikar: fimmtudaginn 22. nóvember, kl. 7 í
Austurbœjarbíói.
Aðgöngumiðasala í Austurbæjarbíói.
Óvelkomnir gest-
ir í gróðrarstöð
Líklega hafa aldrei komið eins
innilega óvelkomnir gestir i Alaska í
Breiðholti og þokkapiltar — eða
stúlkur — sem komu þar um eða eftir
helgina og eyðilögðu fyrir u.þ.b.
hálfa milljón króna.
Einhverjir hafa gengið um gler-
kassasvæðið rétt ofan við gamla
Breiðholtsbæinn, þar sem Alaska er
til húsa i fjósinu, og brotið tugi glcrja
í gróðurkössunum. Svæðið er vcl girt
og er því talið liklcgt að stálpaðir
krakkar eða jnfnvel fullorðnir hal'i
prilað yfir girðinguna og svalað
fýsnum sinum mcð skcmmdar-
verkum.
-l)B-mynd: Hörflur.
Tveir róttækir íRéttó
Kennarar og starfsfólk i Réttar-
holtsskóla gerðu með sér skoðana-
könnun um fylgi flokkanna fyrir
síðustu helgi. Alls greiddi 31
atkvæði, sem féllu þannig:
A-listi: 7 atkvæði
B-listi: 5 atkvæði
D-listi: 4 atkvæði
G-listi: 6 atkvæði
R-listi: 2 atkvæði
H-listi: 1 atkvæði
Auðir seðlar voru scx.
-<)\ .
■e
tegundir af rúmum sem
ekki fást annars staðar.
JWvMLú WSl ^ Jt ,W//
Bíldshöfða 20 - Sv81410-81199
Sýningahöllin- Ártúnshöfða