Dagblaðið - 21.11.1979, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1979.
Iþróttir
Iþróttir
gþróttir
Iþróttir
„Við unnum þennan leik
á frábærri samvinnu"
—sagði Ted Bee eftir stórkostlegan endasprett Njarðvíkinga er þeir unnu KR
100-92 eftir framlengdan leik
Garth Crooks, Stoke.skoraði þrennu.
Þeirsvörtu
skoruðu
fjögur mörk
— þegarEngland
vann Búlgariu
Engiand, sem þegar hafði tryggt sér
úrslitasæti í Evrópukeppni landsliða,
leikmenn 21 árs og yngri, vann
auðveldan sigur á Búlgariu i 1. riðli í
Leicester i gær. Úrslit 5—0. Miðjutríó
Englands var óstöðvandi, Garth
Crooks, Stoke, skoraði þrjú mörk, eitt
víti, en Garry Birtles, Forest, og Vince
Hilaire, C. Palace, eitt mark hvor.
Markvörðurinn Chris Woods, QPR,
var næstum áhorfandi að lciknum —
svo rniklir voru yfirburðirnir. Áhorf-
endur 5.758.
í sömu keppni sigraði Skotland
Belgiu 1—0 í Beveren. George
McClusky, Celtic, skoraði eina markið
á 40 mín. Þá gerðu Holland og A-
Þýzkaland jafntefli 1—1 i Utrecht í 4.
riðli. A-Þýzkaland komst með þvi í
úrslit í keppninni — leikmanna 21 árs
og yngri.
Fram-Valur í
Hagaskólanum
í kvöld klukkan 20 mætast i Haga-
skólanum Fram og Valur í úrvalsdeild-
inni i körfuknattleik. Valsmenn hafa
nú tapað tveimur leikjum í röð en
Framarar unnu á laugardag sinn fyrsla
sigur i deildinni. John Johnson úr
Fram lýsti þvi yfir að Fram ætlaði sér
sigur í mótinu og ætti góða möguleika
á því. Bæði liðin þurfa því nauðsynlega
að sigra í þessum leik ef þau vilja verða
áfram með í baráttunni um titilinn.
Staðan í úrvalsdeildinni er nú þessi er
öll liðin hafa lokið 5 leikjum.
KR—Njarðvík 92—100
Njarðvík 5 4 1 430—406 8
KR 5 3 2 406—374 6
Valur 5 3 2 430—414 6
ÍR 5 3 2 389—411 6
Fram 5 1 4 417 —436 2
ÍS 5 1 4 414—445 2
Haukar-ÍR
íFirðinum
í kvöld kl. 20 fer fram einn leikur i 1.
deild íslandsmótsins í handknattlcik.
Þá mætast i Hafnarfiröi Haukar og ÍR.
Haukar hafa byrjað íslandsmótið
heldur brösulega að þessu sinni og er
það ekki óvanalegt úr þeim herbúöum.
Fyrst jafntefli gegn Fram, þar sem
Haukar voru heppnir að ná öðru
stiginu og síðan stórt tap fyrir
Vikingum. Það er þvi að duga eða
drepast fyrir Haukana i kvöld.
ÍR-ingar hófu mótið með sigri yfir
HK en töpuðu siðan fyrir KR mjög
naumlega. Margir hafa spáð ÍR-liðinu
fallbaráttu í vetur en með sigri i kvöld
hafa þeir sent Hauka í fallbaráttuna í
sinn stað. Hver svo sem úrslitin kunna
að verða má búast við hörkuleik.
Á eftir þessum leik eigast lið FH og
Fram við í 1. deild kvenna.
„Það var fyrst og fremst liðsheildin
og samheldnin, sem skapaði þennan
sigur okkar,” sagði Njarðvíkingurinn
Ted Bee eftir að Njarðvík hafði sigrað
KR 100—92 i úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í Laugardalshöllinni í gær-
kvöld eftir framlengdan leik. „Fram til
þessa hefur liðið viljað brotna niður
undir lokin hafi gengiö illa, en nú
börðust allir sem einn. Ég hef alltaf
verið bjartsýnn á veturinn en er e.t.v.
enn bjartsýnni eftir þennan glæsilega
sigur okkar,” sagði þessi geðþekki
Bandaríkjamaður. Sigur Njarðvikur í
gærkvöld var í raun stórkostlegt afrek.
Þegar aðeins þrjár og hálf mínúta voru
til leiksloka leiddi KR 82—93—9 stiga
munur. Undirritaður, sem reyndar
hefur aldrei talizt á meðal meiri háttar
spámanna i þessu landi, hafði þá á orði
við einn koilegann að nú yrði erfitt
fyrir Njarðvíkinga að vinna muninn
upp. En það var eins og við manninn
mælt. Njarðvíkingar tvíefldust og
skoruðu næstu 8 stig. Staðan 82—81 —
allt á suðupunkti í Höllinni — og 118
sekúndur til leiksloka.
Sigur KR sem fyrir 90 sek. hafði virzt
nokkuð öruggur hékk á bláþræði. Jón
Sigurðsson kom KR í 84—81 þegar 84
sek. voru til leiksloka. Ted Bee minnk-
aði muninn í 84—83 og voru þá 64 sek.
eftir. KR-ingar brunuðu upp og brotið
var á Jóni. Hann skoraði úr tveimur
vítaskotum og munurinn aftur orðinn 3
stig, 86—83, og 53 sek. til leiksloka.
Stemningin í Höllinni var einstök og
fylgismenn Njarðvíkinga, sem höfðu
verið nokkuð daprir að vonum fram til
þessa, létu heyra í sér svo um munaði.
Þegar 40 sek. voru eftir var brotið á
Guðsteini Ingimarssyni, sem átti stór-
góðan leik, i skoti. Þrjú vítaskot. Guð-
steini, sem hafði hitt úr ólíklegustu
færum í leiknum, brást hins vegar illa
bogalistin því hann hitti aðeins úr einu
vítinu. Það var þó lán í óláni fyrir
Njarðvík að Ted Bee náði frákastinu úr
síðasta víti Guðsteins og sendi knöttinn
í körfuna. Jafnt, 86—86, og aðeins 36
sek. eftir af leiktímanum. KR hóf sókn
og ætlaði greinilega að láta klukkuna
vinna með sér. En leikmenn KR gættu
sín ekki sem skyldi og misstu knöttinn
eftir 30 sekúndur. Hvernig sem á stóð
voru aðeins 2 sek. eftir á klukkunni
þegar Njarðvikingar fengu boltann í
hendurnar. Virtust flestir sammála um
að sókn KR hefði staðið í rúmar 30 sek.
en ágætir dómarar leiksins ekki tekið
eftir þvi strax að 30. sek. merkið var
komið á ljósatöfluna. Brynjar
Sigmundsson reyndi skot langt utan af
velli og minnstu munaði að knötturinn
hafnaði í körfunni. Ekki hafðist það og
þvi varð að framlengja um 5 mínútur.
Ekki minnkaði spennan við það.
Það var svo Marvin Jackson, sem
opnaði stigareikning KR í framlenging-
unni er hann kom KR enn yfir 88—86.
Gunnar Þorvarðarson, sem átti nær
lýtalausan leik í gærkvöld, reyndist KR
erfiður í framlengingunni. Hann
jafnaði metin með góðri körfu og fékk
vítaskot að auki, sem hann skoraði
örugglega úr. Njarðvík var yfir, 89—
88, í fyrsta sinn síðan rétt fyrir hálfleik.
Jackson kom KR aftur yfir, 90—89, og
voru þá rétt tæpar þrjár mínútur eftir.
Gunnar var ekki hættur og hann átti
tvær næstu körfur og kom Njarðvík í
93—90. Ted Bee bætti um betur —
skoraði körfu, fékk vítaskot að auki og
skoraði örugglega úr þvi. Sex stiga
forysta Njarðvíkur, %—90 og 110
sekúndur eftir af framlengingunni. Já,
á skammri stund skipast veður í lofti í
körfunni.
Birgir Guðbjörnsson minnkaði
muninn í 92—96 og viti menn —
Njarðvíkurvélin virtist vera að hiksta
eitthvað. KR-ingar fengu boltann fljótt
aftur. Jón Sigurðsson „dripplaði” upp
völlinn en Brynjar Sigmundsson
fylgdist náið með honum. Um leið og
færi gafst stal hann knettinum af Jóni,
brunaði upp og skoraði. í stað þess að
KR minnkaði muninn í 2 stig var
forysta Njarðvíkur aftur orðin 6 stig,
98—92 og aðeins 55 sek. eftir.
Leikur KR riðlaðist undir lokin og
Jónas Jóhannesson kórónaði glæsi-
legan endasprett Suðurnesjamanna
með fallegri körfu rétt fyrir leikslok.
Lokatölur 100—92 Njarðvík í vil.
Sigur Njarðvíkinga í gærkvöld var
fyllilega sanngjarn og þeir sigruðu
Caen sigraði
íSvíþjóð
Franska liðið Caen, sem KR lék við í
Evrópukeppninni, sigraði í gær sænska
liðið KFM Uppsala 86—73 (44—41) i
fyrri leik liðanna i 2. umferð keppn-
innar i Uppsala.
í sömu keppni vann CSKA Sofia,
Búlgaríu, Panathinaikos, Grikklandi,
96—93(47—50).
einfaldlega á meira baráttuþreki og
dæmalausri seiglu. Þegar allt virtist um
seinan settu þeir undir sig hausinn og
neituðu að gefast upp.
Varla verður á nokkurn hallað þótt
Gunnar Þorvarðarson sé fyrstur
nefndur. Þótt hraði hans sé e.t.v. ekki
eins mikill og áður er hittni hans oft á
tíðum með ólíkindum góð. Yfirvegunin
er aðalsmerki Gunnars og það er hverju
liði ómetanlegt að hafa slíkan mann
innan sinna raða. Guðsteinn Ingimars-
son átti ennfremur stórleik og virtist
geta hitt hvar og hvenær sem var.
Sjalan leikið betur í sókninni. Þá átti
Ted Bee mjög góðan leik og skoraði
drjúgt. Það er ekki látunum fyrir að
fara hjá honum, en hann skilar sínu á
öruggan hátt. Þeir Jónas, Júlíus, Jón
Viðar og Brynjar falla óumflýjanlega
nokkuð í skugga þeirra þriggja áður-
nefndra. Jónas var geysigrimmur í frá
köstunum að vanda og Brynjar vann
leikinn að öllum líkindum fyrir Njarð-
vík er hann stal knettinum listilega af
Jóni Sigurðssyni.
KR-ingar áttu margir hverjir mjög
góðan leik þótt ekki hafi þeim tekizt að
vinna sigur að þessu sinni. KR hafði
undirtökin í leiknum lengst af ef undan
er skilinn upphafskafli hans. Staðan í
hálfleik var 37—36 KR í vil og í síðari
hálfleik sáust tölur eins og 53 —46,
61—54 , 69—61 og 82—73 á ljósatöfl-
unni, KR alltaf yfir. Það var hins vegar
hinn kraftmikli endasprettur Njarðvík-
inga, sem setti þá út af laginu. Hins
vegar máauðvitað alltaf segja sem svo,
að KR hefði aldrei átt að missa leikinn
út úr höndunum á sér, en það er önnur
saga og höfuðverkur Gunnars
Gunnarssonar þjálfara.
Marvin Jackson átt sinn bezta leik
með KR til þessa og skoraði alls 40 stig.
Hins vegar heldur hann uppteknum
hætti og fær á sig óþarflega klaufalegar
villur. Aftur á móti er leikur KR allur
annar og betri eftir að hann tók stöðu
Dakarsta Webster í liðinu. Jón Sigurðs-
son átti að vanda stórleik og varla
kemur sá leikur hjá KR að Jón sé ekki
allt i öllu hjá liðinu. þá átti Garðar
Jóhannsson mjög góðan leik og
skoraði grimmt í síðari hálfleiknum.
Geir Þorsteinsson átti fremur rólegan
dag gegn sínum gömlu félögum og það
tók hann 6 mín. og 30 sek. að finna
leiðina í körfuna. Fyrsta karfa hans
gegn sinu gamla félagi.
Stig KR: Marvin Jackson 40, Jón
Sigurðsson 20, Garðar Jóhannsson 14,
Birgir Guðjömsson 6, Geir Þorsteins-
son 4, Árni Guðmundsson 4, Ágúst
Líndal 2 og Þröstur Guðmunmdsson 2.
Stig Njarðvíkur: Ted Bee 27, Gunnar
Þorvarðarson 24, Guðsteinn Ingimars-
son 21, Jónas Jóhannesson 12, Brynjar
Sigmundsson 10, Júlíus Valgeirsson 4
og Jón Viðar Matthíasson 2.
Dómarar voru þeir Guðbrandur
Sigurðsson og Sigurður Valur
Halldórsson og dæmdu mjög vel. Það
eina, sem e.t.v. mætti finna að var
dálítil smámunasemi Guðbrandar á
köflum.
-SSv.
Skíðalyftumar komnar í gagnið
—Nægur sn jór í Bláfjöllum og vetrarstarfið hafið—Brekkumar flóðlýstar
Skiflalyftumar i Bláfjöllum hafa nú
veríð opnaöar og vetrarstarfiö er hafiö.
Nægur snjór er i Bláfjöllum, eins og
stendur. t sumar hefur veríð unnið að
endurbótum á veginum. Hefur hann
veríð hækkaður verulega allt niður að
Rauðuhnúkum. Einnig hefur verið
boríð ofan i hann allan.
Tvö ný bílastæði voru gerð í sumar.
Annað þeirra er suður af gömlu bíla-
stæðunum viö Kóngsgil og ætti að
henta göngufólki vel, en hitt er austan
vegarins skammt innan við Eldborg.
Brekkurnar beggja vegna stólalyftu
hafa nú verið flóðlýstar upp á brún og
þær verið jafnaðar nokkuð og lagaðar.
Fram að áramótum verður, eftir því
sem veður leyfir, haft opið frá kl. 10—
18 á laugardögum og sunnudögum,
svo og frá 13—22 á þriðjudögum og
fimmtudögum.
Upplýsingar um Bláfjöll eru gefnar 1
símsvara 25582.
Frá áramótum verða lyftur opnar kl.
10—18 laugardaga og sunnudaga, kl.
13—22 þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga og kl. 13—18 mánudaga
og föstudaga.
Verð aðgöngumiða er:
1. ferð fyrir fullorðna kr. 200.-
1. ferð fyrir böm kr. 100.-
8 miða kort fyrir fullorðna kr. 1.000.-
8 miða kort fyrir börn kr. 500.-
Verð í stólalyftu er tvöfalt, þ.e. að
skila þarf tveimur miðum við upphaf
ferðarí henni.
Dagkort verða seld virka daga og
gilda tU kl. 18 mánudaga og föstudaga,
en aðra daga tU kl. 18.30.
Dagkort fyrir fuUorðna er kr. 2.800,-
Dagkort fyrir börn er kr. 1.400.-
Kvöldkort verða seld þriðjudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga og gilda
frákl. 18—22.
Verð fyrir fuliorðna er kr. 2.000,-
Verð fyrir börn er kr. 1.000.-
Árskort, sem gilda að fuUu í allar
lyftur Bláfjallanefndar þ.á m. stóla-
lyftu kosta kr. 40.000,- fyrir fullorðna
og kr. 20.000,- fyrir böm.
Árskort eru tU sölu á skrifstofu
íþróttaráðs Reykjavíkur, Tjarnargötu
20, simi 28544.
Bláfiallanefnd hvetur aUt skíðafólk í
BláfjöUum, til þess að sýna varúð og
tiUitssemi bæði í brekkum og í biðröð-
um og stuðla þannig að fækkun slysa
og meiri ánægju þeirra sem ski'ða-
svæðið sækja.