Dagblaðið - 21.11.1979, Page 27

Dagblaðið - 21.11.1979, Page 27
 VÉUVBRÖGD ÍWASHINGTON - sjónvarp kl. 21,45: ÍTALSKUR USTMALARI í STAÐ VÉLABRAGÐA ENDURSYNDUR TEIKNIMYNDA- FLOKKUR—sjónvarp kl. 18,05: Höfuðpaurinn á nýjan leik Yngstu áhorfendur sjónvarpsins ættu að gleðjst yfir þeirri frétt að Höfuðpaurinn hefur göngu sína að nýjuídagkl. 18.05. Höfuðpaurinn er bandarískur teiknimyndaflokkur sem fjallar um kattahöfðingja í stórborg og fylgiketti hans. Að vísu er þessi myndaflokkur endursýndur. Þeir sem eldri eru muna eflaust eftir Höfuðpaurnum' enda sýndi Gamla bíó biómynd með honum ekki alls fyrir löngu. Þátturinn var áður sýndur árið 1975. Hann er tuttugu og fimm mínútna langur og þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. - ELA Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir októbermánuð 1979, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 26. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viðurlögin 4,5% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Fjármálaróðuneytið, 19. növwnbar 1979. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1979. BARNALÆKNIR TALAR - útvaip kl. 22,35: LYSTARLEYSIBARNA ALGENGT VANDAMÁL „Ég ætla að ræða um lystarleysi barna,” sagði Ólafur Stephensen barnalæknir í samtali við DB. Ólafur er með erindi sitt á dagskrá kl. 22.35 í útvarpi í kvöld. „Lystarleysi er töluvert algengt vandamál hjá velmegunarþjóðum. Það kemur fyrir hjá flestum yngri börnum og hættir oftast á skólaaldr- inum. Þetta fyrirbrigði er oft erfitt við að eiga en hægt er að koma í veg fyrir það ef beitt er réttum ráðum,” sagði Ólafur. ,,Ég bendi í erindi mínu á orsakir lystarleysis og leið til úrbóta. Lystar- leysi getur verið uppeldislegt vanda- mál. Það getur verið auðvelt að lenda í því og það getur líka verið auðvelt að leysa það ef rétt er haldið á málun- um.” Erindi Ólafs Stephensens barna- læknis er tuttugu og fimm mínútna langt. - ELA Á meðan börn velmegunarþjóðanna eiga við lystarleysisvandamál að striða svelta börn í þróunarlöndun- HALLAR UNDAN FÆTI FYRIR FORSETANUM Næstsíðasti þáttur Vélabragða er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 21.45. í síðasta þætti gerðist það einna helzt að Bennett Lowman hóteleigandinn er kvaddur fyrir þing- nefnd þar sem Atherton öldunga- deildarþingmaður sakar hann um skatt- oggjaldeyrissvik. Hann styðst við upplýsingar sem hann hafði fengið hjá ástkonu Martins, Sally Wahlén. Vegna uppiýs- inga CIA er dregin til baka sendi- herraembættisveiting konu Lowmans og hætt er við að halda þing flokksins á Hawaii. Forsetinn, Monckton, kemst fljót- lega að þætti Martins og þá jafn- framt CIA í máli þessu og hugsar honum þegjandi þörfina. Monckton ákveður að auka stríðs- reksturinn í Suðaustur-Asíu og kynn- ir hann þessa ákvörðun sína í sjón- varpsræðu. Hann lætur Hank Ferris blaðafulltrúa falsa jákvæðar undir- tektir við ræðunni. Hank sendir því forsetanum skeyti og stuðnignsbréf á meðan hann les.ræðuna. Herferð Moncktons heppnast vel að öðru leyti en því að háskólanem- um gremst og fjölmenna þeir til Washington til að mótmæla styrjöld- inni. Heldur er farið að síga á seinni hluta myndaflokksins og ætti því spenningurinn að aukast að mun í þættinum í kvöld. Þýðandi er Ellert Sigurbjörnsson og er myndin einn og hálfurtímiaðlengd. -ELA m—------------------------► Cliff Robertsson fer með hlutverk Williams Martins í Vélabrögðunum. Cliff er frægur leikari og hefur m.a. hlotið óskarsverðlaun einu sinni. Það var fyrir leik sinn i myndinni Charly. Myndin er úr þeirri kvikmynd og með honum er leikkonan Claire Bloom. í stað Vélabragða í Washington mun sjónvarpið sýna ítalskan mynda- flokk í þremur þáttum Hann nefnist Vita Di Ligaeue. Að sögn Björns Baldurssonar dagskrárritara hjá sjón- varpinu fjallar þessi myndaflokkur um listmálara. Ekki er þó vitað meira um þennan þátt ennþá. Hann verður nánar kynntur hér á síðunni þegar hann hefst. - ELA SETIÐ FYRIR SVORUM —sjónvarp M. 20,35: EINVÍGI-útvarpM. 19,40: PÓLITÍK í FYRIRRUMI í RÍKISFJÖLMIÐLUNUM Stjórnmálaeinvígi rikisfjölmiðlanna heldur áfram í kvöld. í sjónvarpi kl. 20.35 sitja fyrir svörum talsmenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins. Þeir munu svara spurningum fulltrúa andstöðuflokkanna. Ómar Ragnarsson er fundarstjóri. í útvarpi verður einvíginu haldið áfram undirstjórn Hjartar Pálssonar. í kvöld eru það Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubandalag sem heyja bardagann. Þ ir munu kIjást í tuttugu mínútur, eða liá 19.40 til 20.00. - ELA HREYCTÍi Slmi 8 55 22

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.