Dagblaðið - 07.01.1980, Síða 3
I
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1980.
Slitlagið sett á götuna í tveimur áföngum:
Handaikakamnubriigð
á Smiðjuveginum?
""V CX:
Ef myndin prentast vel sést hár út úr
súkkuladimolunum.
HÆRT
SÚKKULAÐI
Margrét Magnúsdóttir frá Eyrar-
bakka kom hér við með súkku-
laðiplötur sem hún hafði keypt.
Platan var frá Súkkulaðigerðinni
Síríusi og var með hærðari plötum
slíkrar gerðar. „Engu er líkara en að
starfsfólk verksmiðjunnar hafi verið
að fara úr hárum yfir súkkulaðinu,”
sagði Margrét.
L J
Kópavogsbúi skrifar:
Það hefur lengi verið einn af
bröndurunum í munni þjóðarinnar
hversu léleg gatnagerðin er i Kópa-
vogi. Hafa göturnar þar oft verið
kalfaðar ýmsum óvirðulegum
nöfnum, Holan, svo dæmi sé nefnt.
Við sem búum í Kópavogi vitum allt
of vel að þetta er satt. En við vitum
lika að fleiri eru sekir um lélega
gatnagerð en Kópavogsbúar.
Ég bý austast í Kóþdvoginum’óg
ek oftast Smiðjuveginn til Reykja-
víkur. Smiðjuvegurinn liggur út á
Reykjanesbrautina sem oftast er
kölluð Breiðholtsbraut. Um 20 metra
frá horni þessara tveggja gatna liggur
svo gamli Blesugrófarvegurinn upp á
Smiðjuveg. Í sumar tók Kópavogs-
bær sig til og lét olíumalarbera nýtt
slitlag á Smiðjuveginn. En greinilegt
er að Kópavogslandið endaði við
Blesugrófarveginn, og því nær hin
nýja olíumöl ekki lengra en þangað.
Sá tuttugu metra spotti sem ekki var
sett slitlag ofan á er nú þannig að
stórhættulegur má kallast. Malbikið
er holótt eins og svissneskur ostur og
dag eftir dag má sjá kyrrstæða bíla
sem hreinlega hafa brolnað af þvi að
aka þennan holótta veg.
Reykjavíkurborg lét þetta
dankast fram eftir vetri en á
föstudaginn var ákveðið að við svo
búið mætti ekki standa.
Og þá kemur loksins að
tilefni bréfs míns. Líklega hefur verið
of dýrt að borga götulagningar-
mönnurn næturvinnu til þess að
skóbæta götuna utan mesta
umferðartíma og líklega hefur ekki
Af stjömumessu-
atkvæðum
Hjónmeð
tvöat-
kvæði
J.G. hringdi:
Ég hef tekið eftir þvi undanfarin
ár i sambandi við val tónlistarmanna
á Stjömumessuna að lil að konta í
veg fyrir að smalað sé atkvæðum
fyrir einn sérstakan tónlistarmann,
þá séu atkvæðin gerð ógild. Mig
langar því til að spyrja: Ef hjón hafa
sania álit og skrifa eins seðla, verða
þeir gerðir ógildir?
SVAR: Nei.
Bréfritari segir gatnagerð i Kópavogi lengi hafa verið aðhlátursefm margra en hann segir jafnframt að á fleiri stöðum en i
Kópavogi sé gatnagerð ábótavant.
rukkað svo Reykjavík um þann
kostnað sem fylgdi þessum margum-
rædda kafla? Eða gat Kópavogur
ekki sammælzt við Reykjavik um á-
kveðinn dag er óll gatan skyldi
slitlögð? Kópavogsbær og Reykja-
vikurborg hafa komið sér saman um
annað eins hin síðari ár og slitlag á
einni götu, hvað þá er það hlýtur að
vera miklu betra og ódýrara fyrir alla
aðila. Með von um svar.
þótt verjandi að stöðva umferð um
hádagi.nn. Þvi var einfaldlega ekið á
staðinn vörubíl með oliumöl á
pallinum. Mölinni var mokað ofan í
stærstu holurnar og bílarnir sem
þarna voru á ferð látnir um að aka
hana niður. Eins og nærri má geta er
gatan eftir þá meðferð líkust sviss-
neskum osti með súkkulaðikekkjum.
Hún hefur ábyggilega aldrei verið
hættulegri því nú sjá menn nýja
olíumöl og halda að allt sé komið i
lag og óhætt að aka um á að
minnsta kosti 20 kílómetra hraða
eftir að hafa í marea niánuði silast á
5. Þegar ég var að alast upp hefði
svona lagað veriðkallað handarbaka-
vinnubrögð.
Nú langar mig að vita hvers vegna
í ósköpunum Smiðjuvegurinn var
ekki slitlagður allur í einu? Hefði
Kópavogur ekki getað gert það og
LPTOFRA-
DISKURINN
Ryksugan sem svífur
I
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun, vegna þess hve fullkomlega einföld hún er
Sogstyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rumar 12 lítra, já 12 litra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún líður um
gólfið á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig. svo létt er hún.
KYNNINGARVERÐ:
30% afsláttur
kr. 92.800
Egerléttust...
búin 800Wmótor
og12lítra rykpoka.
(MadeinUSA)
HOOVER er heimilishjálp
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Spurning
dagsins
Heldurðu að Geir
takist að mynda stjórn?
Lilja Kristjánsdóllir húsmóðir: Það
þykir mér ótrúlegt.
Einar Ingimundarson, vinnur i Fri-
höfninni: Nei. Að minnsta kosti ekki í
þessari tilraun.
Malthildur Jónsdóllir húsmóöir: Mér
finnst það afskaplega hæpið. Honunt
tekst það að minnsta kosti ekki á
stutlum tíma.
Jóhann Gunnarsson vélvirki: Ég veit
ekki. Þaðvirðist vera ákaflega erfitt að
komasljórn saman.
Ævar Kvaran leikari: Ég vona það allra
vegna. Allur dráttur hlýtur að verða til
ills eins.
Guörún S. Guömundsdóllir kennari:
Ég held ekki. Þjóðstjórn virðist vera
eini möguleikinn.