Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.01.1980, Qupperneq 7

Dagblaðið - 07.01.1980, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1980. '7 „Niðurgreiðslu- keðjan” í Þykkvabænum komin til sýslumanns: Kartöflumálið í Þykkvabæ, eða fjársvikin út úr niðurgreiðslukerfinu á kartöflum, er enn við lýði í kerfinu og mun nú væntanlega á næstunni ganga til sýslumannsins í Rangár- vallasýslu til frekari upplýsingaöfl- unar og rannsóknar. Eins og DB skýrði frá í ágúst- mánuði varð það altalað í Þykkva- bænum að þar stæðu nokkrir menn Frekari rannsókn kartöflusvikanna — Ríkisendurskoðun taldi þörf dómsrannsóknar að því sem gefið var nafnið „niður- greiðslukeðjan”. Var altalað að þeir verzluðu með kartöflur með eins konar millifærsluleið, þ.e. að kartöflur gengju „kaupum og sölum” milli bænda og kæmust þannig inn á skýrslur til niður- greiðslu, en I raun væri enginn kartöflupoki fluttur úr stað. Talað var við fjölda manna áður en fréttin var birt, en allir þeir ráðamenn töldu útilokað að nokkur svik gætu verið i tafli. Daginn sem fyrsta fréttin um málið birtist i DB komst Framleiðsluráð landbúnaðarins að því að um tví- skráningu kartaflna hafði verið að ræða til að ná fé úr niðurgreiðslu- kerfinu. Svavar Gestsson þáverandi viðskiptaráðherra sendi málið um- svifalaust til nánari endurskoðunar hjá Ríkisendurskoðuninni. Þar tók rannsókn málsins margar vikur en skriflegu áliti mun hafa verið skilað i öktóberlok, að því er DB veit bezt. í þeirri niðurstöðu- skýrslu mun Ríkisendurskoðunin hafa talið þörf á frekari rannsókn málsins á öðrum vettvangi t.d. í Sakadómi Rangárvallasýslu. Yngvi Ólafsson deildarstjóri i viðskiptaráðuneytinu staðfesti fyrir helgi að mál þetta yrði nú sent sýslu- manni Rangárvallasýslu til með- ferðar. Yrði hann bcðinn að „afla nánari vitneskju um ákveðin atriði.” Yngvi staðfesti að nokkrir aðilar í Þykkvabæ ættu þátt í þessu máli, en taldi ólíklegt að nokkur endalok fengjust á því „fyrr en undir vorið.” -A.St. Unnið við nýbyggingu lækna- og tannlæknadeildar neðan við Landspftalann f vetur. DB-mynd: Sv. Þorm. 1900 milljónir af happdrættisfénu til nýbygginga HÍ Fjöldi innritaðra nemenda i Háskóla íslands fór á yfirstandandi skólaári i fyrsta sinn yfir 3000 og eru nú á fjórða hundrað fleiri i skólanum en i fyrra. Þetta aukna aðstreymi gerir úrbætur í húsnæðismálum háskólans enn brýnni, sagði Guðmundur Magnússon háskóla- rektor á fundi með fréttamönnum fyrir helgi, þegar stjórn Happdrættis Háskólans kynnti nýtt happdrættisár og greint var frá framkvæmdum á vegum HÍ á næstu árum. Á næstu þremur árum eru fyrirhug- aðar nýbyggingar bæði á Landspítala- lóð og Háskólalóð. Meiri hluti bygg- ingafjár er af rekstri Happdrættis Háskóla Íslands eða um 1900 milljónir á verðlagi dagsins. Á móti kemur fram- lag úr rikissjóði — í fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir að það verði um 3.6 milljarðar. Á Landspítalalóðinni var unnið fyrir um 175 milljónir á síðasta ári. Þar rís nýbygging fyrir lækna- og tannlækna- deild. Á háskólalóðinni er gert ráð fyrir tveimur húsum, öðru austan Suðurgötu i þágu viðskipta-, félagsvísinda- og heimspekideildar. Vestan Suðurgötu verður byggt hús fyrir verkfræði- og raunvísindadeild. Happdrætti Háskólans verður með sama sniði i ár og undanfarin ár — heil- miði hækkar nú í 1400 krónur á mánuði og verð trompmiða hækkar í 7000 krónur á mánuði í takt við verð- bólguna. Lægsti vinningur hækkar nú úr 25000 krónum i 35 þúsund og aðrir vinningar hækka lika, en hæsti vinningurinn verður áfram 5 milljónir, sem yrði 25 milljónir með trompmið- anum og 45 milljónir fyrir þann sem á alla miðana af vinningsnúmerinu, eins og ungu hjónin í Stykkishólmi á dögunum. -ÓV. Minna atvinnuleysi núenfyrirári ThSi Húsavík sker sig úr af kaupstöðun- um með mikið atvinnuleysi nú um ára- mótin. Annars er mun minna um atvinnuleysi á landinu en var fyrir einu ári, um áramótin 1978—79. Á Húsavík fjölgaði atvinnuleysingj- um úr 17 í hvorki meira né minna en 156 í síðasta mánuði. Rúmlega lOOfóru á atvinnuleysisskrá við lokun hjá fisk- iðjusamlaginu, og atvinnuleysi varð í rækjuvinnslunni. 564 voru atvinnulausir samtals I kaupstöðunum nú um áramótin en 750 á sama tíma fyrir einu ári. Atvinnu- lausum fjölgaði þó um 157 í kaupstöð- unum nú í desember frá því sem var í nóvemberlok. Atvinnuleysisdagar voru samtals 7180 nú I desember en 9024 í desember fyrir ári. Félagsmálaráðuneytið hafði fyrir helgi ekki fengið tölur úr öllum þorpunum. Ljóst var að mikið atvinnu- leysi var sums staðar, til dæmis á Vopnafirði. Útkoman á landinu í heild verður þó vafalaust betri en var fyrir einu ári. í fimm kaupstöðum var alls enginn skráður atvinnulaus nú um áramótin, Seltjarnarnesi, Bolungavik, ísafirði, Grindavík ög Garðabæ. 156 voru atvinnulausir i Reykjavik og hafði fækkað um 28 i desember. í Hafnarfirði voru 52 á skrá, sem var fækkun um 47 i desember. í Keflavík varð hins vegar fjölgun um 33, og voru 46 skráðir atvinnulausir. Atvinnu- leysingjum á Akureyri fjölgaði úr 23 í 35, á Siglufirði úr 3 í 28 og á Sauðár- króki úr 26 i 27. i öðrum bæjum voru innan við 20 á skrá. -HH. „ Við byrjuðum árið 1980 með Ayds og þannig ætlum við að halda ájram ” Hvernig Ayds verkar Ayds hjálpar til að hafa hemil á matarlystinni. Það hjálpar til að borða hita- einingasnauða fœðu og forðast fitandi mat. Það er eina leiðin til að grennast og halda áfram að vera grannur. Og — vegna þess að það tekur tima að venj- ast nýjum matarsiðum — fœst Ayds í pökkum sem innihalda fjögurra vikna birgðir. Hver skammtur inniheldur 25 hitaeiningar. Liz or Joanna Lawrence eru mæðgur. Hvoru(rþéirra var feit en báðar máttu við því að missa fáein kiló. Þær voru báðar ákveðnar i því að byrja árií 1980 fallcga grannar. Svo að þær tóku að fækka við sig hilaeiningum i byrjun desember og héldu matarlystinni í skefjum nteð aðstoð Ayds — líka um jólin! Og þær nutu máltiðanna með hinum í fjölsky Idunni. Hvernig fóru þær að þessu? Liz: „Kg þurfti að losa mig við 3—4 kíló. Þessi fáu aukakíló voru nóg til þess að ég var svolitið feitabolluleg i bikinibaðfötunum mínum þegar ég heim- sótti systur mína í Kaliforníu siðasta sumar. Kg ákvað því að prófa Avds. Ástæðan til pess að mér geðjast svo vel að Ayds er sú að mér finnst gaman að borða og ég vil njóta máltíðanna með fjölskyldunni. Ayds hjálpar mér að borða minni skammta og forðast fitandi fæðu." Joanna: „Ég er nýbyrjuð að vinna sem Ijósmyndafyrirsæta ég varð að losa mig við 7—8 kiló til þess að passa í nr. 10, sem er það númer sem fyrirsætur nota. Það krefst heilmikillar orku að þjóta um á milli Ijósmyndara og maður verður að borða almennilega- Og það er cinmitt það sem Ayds gerir — það hjálpar mér að borða almennilega.” Það er álit margra visindamanna að þegar hlóðsykurinn minnkar. segi heilinn: „Kg er svangur!" Augljóslega gerisl þelta oftasl skömmu Ivrir venjulegan inaliiiálslinia en það gelur lika ger/t á milli inala. I I þú borðar eill eða Ivo Avds (giarnan nieð heiluni drvkk sem hjálpar þér að mclta þaðl hálllima Ivrir mallið. evksl hlóðsvkurinn og matarlvstin minnkar. Hvers vegna Ayds verkar

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.