Dagblaðið - 07.01.1980, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1980.
iKtsmidian hf
# 1 1 í hringstigum
X ^ 4| U-stigum og L-stigum
Þýzki
UNIVstiginn
leysir vandann
Glæsilegustu stigar
á markaðnum
ídag.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Síðastí
innrítunardagur
erídag.
ansskóli
onar
INNRITUN HAFINIALLA FLOKKA.
Kennslustaðir — Reykjavík — Tónabær — Kópavogur —
Félagsheimili Kópavogs.
Allir almennir samkvæmisdansar og fl. Einnig brons —
silfur — gull, D.S.Í.
Innritun og uppl. í sfma 41557 kl. 1—7.
V-'
L nnA4áSAM‘1aN0 iSLANjS
OOO
Verziið við þá sem eru
reynslunni ríkarí
Fæst / flestum kaupfélögum
/andsins og varah/utaverz/unum
Rafgeymaverksmiðjan
PÓLAR H.F.
Einholti 6, sími 18401.
Finnbogi Hermannsson á Núpi skrifar:
„Éghefveriðá
vaktinni a/la
mína starfsævi”
— segir prófessor Kristbjöm Tryggvason, sem
gegnir héraðslæknisstörfum á Flateyri eftir
að hafa lokið starfsævi syðra
Kristbjörn TryRgvason á stofunni sinni á Flateyri: Var farið að leiðast aðgerðaleysið.
DB-mynd: FH.
Frá þvi á haustmánuði hefur gulur
Range Rover. merktur Reykjavik, stað-
ið á hlaðinu við heilsugæslustöðina á
Flateyri. Þeir sem oft eiga leið um
Miklubraut eru hins vegar vanir að sjá
þennan sama bíl, R-2445, á stæðinu
móts við Miklubraut 48 en þar hefur
bíll með þessu númeri staðið í um það
bil þrjá tigu ára. Þannig stendur á
ferðum bílsins, að húsbóndi hans Krist-
björn Tryggvason fyrrum yfirlæknir og
prófessor emeritus gegnir Flateyrar-
héraði um þessar mundir. Undirritaður
knúði dyra á stöðinni þegar Kristbjöm
var hættur að sinna fólki þann dag, að
biðja um skýringar á veru hans þar með
þvi eigi er algengt að læknar sem skilað
hafa löngu og drjúgu ævistarfi taki á
sig ok erfiðra héraða i stað þess að hafa
það huggulegt á eftirlaunum.
Leiddist
aðgerðaleysið
Við höfum tyllt okkur inn á stofu i
tvílýsinu og það kemur i ljós, að Krist-
björn á ekki rætur á Vestfjörðum aðrar
en þær sem myndast hafa síðan 1975
þegar hann hætti störfum sem yfir-
læknir á Barnaspítala Hringsins:
Ég var settur hér i tvo mánuði núna
og ætla að vera eitthvað fram á vorið ef
ég dugi. Ég hef verið hér á Flateyri á
veturna síðan ég hætti störfum syðra.
Mér leiddist aðgerðaleysið og enginn
fékkst til að fara. Ég var að vísu ekki
við störf í fyrra þar sem ég þurfti að
gangast undir aðgerð í Bandaríkjunum.
Ég á ekki ættir að rekja hingað vestur,
fæddist á Vesturgötu 51, alinn upp á
Bakkastígnum og síðan inn á Grettis-
götu, og hef alið allan minn aldur í
Reykjavík eftir að ég kom frá námi í
Danmörku með Petsamóferðinni
frægu.
Ég hóf síðan störf sem practicus og
sérfræðingur i barnalækningum í
Reykjavik.
Maður stóð uppi
með ekkert í
höndunum
Talið barst að námi Kristbjörns eins
og fara gerir á tímum framfara og
stökkbreytinga:
Við vorum sjö sem útskrifuðumst
I936, og erum þrir á lífi, Baldur
Johnsen, Oddur Ólafsson og ég. Hinir
voru Ólafur P. Jónsson sem var á
Bíldudal, prófessor Snorri Hallgrims-
son, Brynjólfur Dagsson, síðast i
Kópavogi og Pétur Magnússon sem dó
ungur. Á þessari tíð voru berklarnir
aðalvandamálið, maður stóð uppi með
ekkert í höndunum, en fyrstu súlfa-
lyfin voru að koma þegar ég var i Dan-
mörku í sérnáminu.
Nú eftir að hafa practíserað í 16 ár
frá ’4l-’57 gerðist ég yfirlæknir á
Barnaspítala Hringsins en því fylgir
kennsla. Varð ég fyrst dósent og síðan
prófessor. Þetta hvort tveggja var mér
svo orðið ofviða þegar ég hætti I974,
enda heilsan tekin að bila.
Þeir eru þá býsna margir þínir
nemendur í læknastétt?
Já, það er líklega rétt, hávaðinn af
starfandi læknum, en nokkuð stór
hópur hefur útskrifast síðan ég hætti.
Mér er sama
þótt ég sé einn
Um störf Kristbjörns á Flateyri:
Maður er náttúrlega af gamla
skólanum, þvi voru þetta engin við-
brigði, þetta er ósköp auðvelt hérna og
mér er sama þótt ég sé einn. Menn setja
víst fyrir sig núna að vera einir og geta
ekki verið með fleirum, þurfa að vera á
vakt 24 tima á sólarhring. Ég hef verið
á vakt alla mina starfsævi, en ég hafði
mjög góða menn á spítalanum og
þurfti ekki að vera á bakvakt fyrir þá,
en ég var alltaf i kallfæri. Maður væri
líklega á söniu skoðun og ungu menn-
irnir væri maður ungur núna, en þegar
maður er orðinn rúmlega sjötugur
finnst manni það ekki tiltökumál. Ég
hef einnig verið tvisvar með syni
mínum sem er læknir í framhaldsnámi í
Svíþjóð. Við vorum bæði á Hvamms-
tanga og Patreksfirði. Hann starfar
ævinlega þrjá mánuði á fslandi á
sumrin.
Ekkert
næturkvabb
Varðandi samskipti við fólk i borg
og byggð, eru þau öðruvísi?
Nei, þetta er sama fólkið og ég hef
haft ánægju af að vera hér að hjálpa til
þegar enginn hefur fengist. Hefurðu
verið plagaður af næturkvabbi?
Nei, nei, það er ekkert kvabb á nótt
unni nema þegar eitthvað hefur komið
fyrir, samskipti mín við fólk hafa verið
með ágætum. Mér finnst bera mest á
þvi á landsbyggðinni að fólk heldur að
Reykvíkingar hafi það svo óskaplega
gott og geti alltaf verið í bíó og leik-
húsi. Ég heid það séu tvö ár síðan ég
fór i leikhús.
-F.H. Núpi.
Færri mál hjá borgarfógeta
Dæmt var i mun færri málum við
borgarfógetaembættið sl. ár cn árið
1978. Af skriflega fluttum dóms-
málum var dæmt í I447 málum en
2143 árið áður. Áskorunarmál voru
2994 en 2410 árið áður. Sætt var i 401
máli en 448 árið 1978. Hafinvoru470
mál en 550á fyrra ári.
Af munnlcga flultum málum var
dæmt i 175 málum en 186 árið 1978.
Sætt var í 91 rnáli á móti 109 árið
1978 og hafið 91 málámóti9l. Kjör-
skrármál voru nú 138 en 92 árið áður.
Alls voru afgreidd 5809 mál í fyrra en
6037 árið 1978.
Þingfestingar voru 6034 á sl. ári
og hjónavigslur 1197. Leyfi til
skilnaðar að borði og sæng fengu 186
og skilnaðarmál voru 504.
-jh.