Dagblaðið - 07.01.1980, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1980.
4-
HEBA heldur
við heilsunni
Nýtt námskeið
Dag- og kvöldtímar tvisvar eða fjórum
sinnum í viku.
Megrunarkúrar — Nuddkúrar.
Sértímar fyrir þær sem þurfa að léttast um 10
kg eða meira, fjórum sinnum í viku.
Leikfimi — Sauna — Ljós — Megrun
— Nudd — Hvíld — Kaffi — o. fl.
- Þjálfari Svava, sími 40935.
tpa
Heilsurœktin HEBA Auðbrekku 53 sími 42360
utsala
Buxur (Easy)
Kr. 12.900.-
Skyrtur
Kr. 4.900.-
Bolir
Kr. 4.900.-
Shetlands-
peysur
Kr. 9.900.-
Vesti
Kr. 8.900.-
VALLARTORGI
AUSTURSTRÆTI 8
Útboð
Dúka- og teppalögn
Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík óska
eftir tilboðum í dúka- og teppalögn í fjölbýlishús,
sem nú eru í byggingu í Hólahverfi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu VB Skafta-
hlíð 4 gegn 20 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verði opnuð á sama stað föstud. 11.
janúar n.k. kl. 15.
Sovézkir hermenn á verði á götu i Kabui, höfuðborg Afghanistan. Ljóst þykir nú að svonefnd bylting i landinu var að mestu
framkvæmd af sovézkum hermönnum, sem eru þar tugþúsundum saman. Auk Kabul munu þeir vera i þrem öðrum stærstu
borgum landsins.
Sovétríkin munu
beita neitunar-
valdi í 113. sinn
Talið er víst að stjórn Sovétríkjanna
muni nota neitunarvald sitt i Öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna til að koma í
veg fyrir samþykkt kröfu um að þeir
verði með lið sitt á brott frá Afghanist-
an. Verður þetta þá í 113. skiptið sem
Sovétstjórnin beitir neitunarvaldinu á
þessum vígstöðvum. Stórveldin,
Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kina
og Sovétríkin hafa slíkt vald í Öryggis-
ráðinu.
Ljóst er að nær öll ríki nema al-
nánustu samstarfsriki Sovétríkjanna
eru því fylgjandi að fordæma íhlutun
Sovétrikjanna í Afghanistan.
Aðgerðir þær sem Jimmy Carter
Bandaríkjaforseti boðaði gegn Sovét-
ríkjunum vegna málsins eru þegar
farnar að koma til framkvæmda.
Bannaðar hafa verið allar sölur á korni
og hveiti. Er það bæði gert vegna
stöðvunar á afgreiðslum til Spvétríkj-
anna og einnig til að koma i veg fyrir
verð verðhrun þegar svo mjög mun
draga úr eftirspurn eftir þessum
vörum.
Tilkynnt hefur v'erið að Saudi Arabía
muni hætta við þáttöku í ólympíuleik-
unum í Moskvu á næsta sumri vegna
aðgerða Sovétmanna i Afghanistan. Er
þetta fyrsta ríkið sem tekur ákvörðun
um slíkt.
Zimbabwe/Ródesía:
Óvissa með skæruliða
sem eru enn í felum
— Muzorewa biskup segir að aðilar með úrelt vopn
komi í stað þeirra fram opinberiega
Nú þegar vika er liðin síðan vopna-
hlé komst á milli hinna stríðandi fylk-
inga í Zimbabwe/Ródesíu og allir
skæruliðar þjóðfrelsisfylkingarinnar
eiga að vera komnir til sérstakra búða
er allsvóvíst hve margir þeirra felast
enn i skógum landsins. Einnig er
mikil óvissa um hve mikið af vopnum
þeir hafa enn undir höndum.
Í gærkvöldi tilkynnti Soames lá-
varður, landstjóri Breta í Zim-
babwe/ Ródesíu þar til eftir væntan-
legar kosningar, að allir skæruliðar
væru sýknir saka þó þeir væru enn á
leið til hinna opinberu búða. Samt
sem áður eru nú komnir fleiri skæru-
liðar fram en gert var ráð fyrir við
friðarviðræðurnar í London í desem-
ber.
Muzorewa biskup, sem var for-
sætisráðherra í Salisbury i rikisstjórn
hvítra og svartra til skamms tima,
sagði að leiðtogar skæruliða lékju nú
þann leik að láta ýmsa menn gefa sig
fram sem skæruliða vopnaða úreltum
sovézkum byssum. Hinir raunveru-
legu skæruliðar væru hins vegar enn í
felum i skógunum.
Stjórnin í Salisbury hafði talið
skæruliða vera um það bil ellefu þús-
und talsins en leiðtogar þeirra
Nkomo og Mugabe sögðu í 1 ondon
að þeir hefðu rúmlega þrjátiu þús-
und manns undir vopnum.
Ljóst er nú að alls er óvíst um
fjölda skæruliða eða hvort þeir muni
allir koma fram áður en kosningabar-
áttan hefst i landinu.
26908_
• Danska, enska, þýzka, franska, ítalska,
spænska og íslenzka fyrir útlendinga.
• Innritun daglega kl. 1—7 e.h.
• Kennsla hefst 14. janúar.
Næsta vor eru fyrirhugaðar námsferðir til:
Spánar, ftalíu, Frakklands og Þýzkalands.
.—76908______________________HALLDÓRS___________
MALASKOLI
BEGIN 0G SADAT
RÆÐASTVIÐ
Menachem Begin forsætisráðherra
ísrael kom í morgun til borgarinnar
Aswan í Egyptalandi til að ræða við
Anwar Sadat forseta landsins.
Viðræður þjóðarleiðtoganna um frið
milli landanna fara nú fram í skugga
atburðanna i Afghanistan þar sem
Sovétríkin hafa staðið fyrir stjórnar-
byltingu.
Egypzka stjórnin hefur þegar for-
dæmt aðgerðir Sovétríkjanna og
ákveðið að krefjast þess að þeir fækki
verulega i sendinefnd sinni í Kairö.
Bæði Egyptaland og Ísrael hafa þegar
boðið Bandaríkjastjórn að setja á fót
hérstöðvar í löndum sínum til að vinna
upp það hernaðarlega tjón sem þau
urðu fyrir er keisarinn var rekinn frá
völdum í íran. Egypzk stjórnvöld segja
að atburðirnir í íran og Afghanistan
reki mjög á eftir að ákvörðun verði
tekin um sjálfstæði Palestínuaraba og
stöðu Jerúsalemborgar.