Dagblaðið - 07.01.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1980.
9
Erlendar
fréttir
STÓRSIGURINDIRU
í MNGKOSNINGUM!
— jafnvel taldar horfur á að flokkur hennar fái tvo þriðju þingsæta
Átti að truf la
friðarviðræður
írani einn sem handtekinn var í
Egyptalandi og sakaður um að hafa
ætlað að fremja þar hryðjuverk sagðist
hafa verið sendur af yfirvöldum í
Teheran. Hafi hlutverk hans með ferð-
inni til Egyptalands verið að reyna að
trufla friðarviðræður ísraels og
Egyptalands.
í fimm daga
í skottinu
Sextíu og átta ára gamall leigubif-
reiðarstjóri í Texas varð að dúsa í fimm
sólarhringa í farangursrými bifreiðar
sinnar. Tveir ungir menn rændu bif-
reiðinni i borginni Galveston og stungu
ökumanninum í farangursrýmið. Slapp
hann ekki þaðan fyrr en eftir fimm
daga en þá voru þremenningarnir
komnir til Houston.
Allar horfur voru á þvi i morgun
að Indira Gandhi mundi vinna stór-
sigur í þingkosningunum í Indlandi
og flokkur hennar Kongressflokkur-
inn jafnvel fá tveggja þriðju sæta
meirihluta i neðri deild þings
landsins.
Þegar úrslit voru kunn i atkvæða-
greiðslu um 95 þingsæti af 544 hafði
Kongressflokkur Indiru fengið 71
þingsæti eða öll nema 24. Kosningun-
um lauk í gær en fóru einnig fram á
miðvikudaginn í sumum fylkjum
Indlands.
Kongressflokkurinn var í forustu í
flestum kjördæmum, þar sem talning
var hafin í morgun.
Ef svo heldur fram sem horfði i
morgun eru úrslit kosninganna gifur-
legur sigur fyrir Indiru Gandhi sem
orðin er 62 ára að aldri. Hún beið
Gullið komið í
675 dollara
Verð á gulli hélt enn áfram að
hækka og var komið upp i 675 doll-
ara fyrir únsuna (28,6 grömm) i
morgun á markaði í Hong Kong. Á
tímabili fór það meira að segja upp i
680 dollara, eða jafnvirði um það bil
tvö hundruð og sjötíu þúsund
islenzkra króna.
Sérfræðingar höfðu spáð því að
gullverð mundi halda áfram að
hækka í kjölfar tilkynningar um að-
gerðir Jimmy Carters gegn Sovétrikj-
unum vegna atburðanna í Afghanist-
an. Má þar meðal annars nefna bann
við sölu á hveiti. Fór það eftir.
í liðinni viku var mjög lítið um
sölur á gulli þar sem mjög fáir
óskuðu eftir að selja gull þegar það
hækkaði svo mikið sem raun ber
vitni.
Kurt Waldheim aðalritari keisarastjórnarinnar. Þar á meðal var
Sameinuðu þjóðanna er nýkominn úr þessi ungi piltur. V^r leynilögregla
ferð til Irans sem mun hafa borið keisarans sögð hafa skotið af honum
hefdur lítinn árangur. Hópur írana báða handleggi til þess að reyna að fá
hafði skipuiagt fund þar sem Wald- föður hans til að gefá upplýsinÉar.
heim var boðið að koma. Þar var Vegna óeirða i Teheran komst
fyrir hópur fólks, sem hafði ient í Waldheim ekki á fundinn en hann
höndum 1 fyrrum leynilögreglu var haldinn engu að síður.
Missti báð-
ar hendur
mikinn ósigur í þingkosningum sem
haldnar voru árið 1977. Fóru þær
fram eftir að Indira hafði verið for-
sætisráðherra i skjóli neyðarlaga í 21
mánuð. í kosningunum árið 1977 var
Janata flokkurinn sigurvegari en sá
flokkur klofnaði fljótlega eftir sigur-
inn þar sem hið eina sem þingmenn
hans gálu orðið sammála um var að
vera á móti Indiru Gandhi.
Hún hefur ferðazt gífurlega i þeirri
fjögurra mánaða kosningabaráttu
sem að baki er. Gagnrýndi hún bæði
Janata flokkinn fyrir óstjórn, óreiðu
og verðbólgu og einnig flokk núver-
andi forsætisráðherra, Lok Dal
flokkinn, fyrir verðbólguna og ráða-
leysi gagnvart henni.
Talping í Uttar Pradesh fylki, sem
hefur fiesta fulltrúa, 85, hófst fyrir
hádegi.
OPIÐ
KL. 9-9
Allar skreytingar unnar af fag-
mönnum.
Noag bllastceBi o.m.k. é kveldln
HIOM£\YI\TIR
HAFNARSTRÆTI Slmi 12717
Þessi bíll, Citroén CX 2400 Pallas árgerð 1977, verður til
sýnis og sölu næstu daga. Bíllinn er ekinn 38 þús. km. Er
með leðuráklæði, C-matic skiptingu, lituðu gleri, raf-
magnsupphölurum og sóltjöldum. Verð kr. 7.200.000.
Nánari upplýsingar hjá sölumanni
í síma 81555.
Stjörnumessa Dagblaösins og Vikunnar 1980
óskar eftir tilboðum í eftirtalda þcetti Stjörnu-
messu ’80, sem haldin verður í Súlnasai Hótel
Sögu þann M.febrúarnœstkomandi:
— Skreytingar á sal og sviði.
— Hljóðstjórn — innifalin leiga á nauðsynlegum hljóm-
flutningstœkjum, uppsetning þeirra ogflutningur til ogfrá
æfingastað og Hótel Sögu.
— Ljósastjórn — uppsetning og stjórn Ijósa á Stjörnu-
messu ’80.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Pétursson á rit-
stjórn V'ikunnar, sími 27022. Tilboðum skal
skilað skriflega fyrir 15. janúar næstkomandi
merkt. Stjörnumessa DB og Vikunnar
Box 5380, Reykjavík.