Dagblaðið - 07.01.1980, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Tvö heimsmet í
60 m hlaupum
Bandarísku hlaupararnir Houston
McTear og Evelyn Ashford settu ný
heimsmet innanhúss í 60 metra
hiaupum í gær á móti á Lönguströnd í
Kaliforníu. McTear tvíbætti heims-
metið í karlafiokki. Hljóp fyrst á 6,53
sek. í undanrásum og i úrslitum bætti
hann heimsmetiö i 6,38 sek. í kvenna-
flokki hljóp Ashford á 7,04 sek. Eldra
metið átti Marlies Gohr, Ausfur-
Þýzkalandi, 7,10 sek. McTear átti
sjálfúr eldra heimsmetið í karlaflokki
— 6,54 sek. sett 1978.
Fleiri góð afrck voru unnin á
mótinu. Franklin Jacobs stökk 2,27
metra í hástökki en fyrrum heimsmet-
hafinn Dwight Stones stökk 2,24
metra. Það var fyrsta keppni hans eftir
að hann hlaut áhugamannaréttindi sin
á ný. Heimsmethafinn i 400 m hlaupi,
John Smith, keppti i fyrsta sinn sem
áhugamaður eftir 30 mánuði. Hann
sigraði i sinni grein á 47,2 sek. í 3000 m
hlaupi setti Steve Smith nýtt ameriskt
met. Hljop á 7:43,2 mín.
Anna-María
komin í
ef sta sætið
Anna-Maria Moser Pröll byrjaði
ólympíuárið vel. Sigraði þá í fjóröu
brunkeppni heimsbikarsins í alpagrein-
um í Pfronten i Vestur-Þýzkalandi í
gær. Við það náði hún forustu í stiga-
keppni heimsbikarsins. Úrslit í keppn-
inni urðu þessi.
1. Anna-Maria Moser, Aust.
2. M.T. Nadig, Sviss,
3. Hanni Wenzel, Lichtenst,
4. Irene Epple, V-Þýzkal.
5. Caroline Attia, Frakkl.
6. Cindy Nelson, USA,
7. Evi Mittermaier, V-Þ.
1:19.84
1:21.21
1:21.58
1:21.92
1:22.41
1:22.49
1:22.91
Staða efstu ■ stigakeppninni er nú
þannig.
1. Anna-Maria, Austurriki, 148
2. Maria-Theresa Nadig 145
3. Hanni Wenzel 138
og þessar stúlkur eru í algjörum sér-
flokki. Síðan koma Jana Soltysova,
Tékkóslóvakíu, með 65 stig, Perrine
Pelen Frakklandi, með 63 stig. Cindy
Nelson, USA, með 57 stig. Fabienne
Serrat, Frakklandi, með 55 stig. Irene
Epple, V-Þýzkalandi, með 46 stig.
Lokeren
tapaði
Lokeren tapaði í gær í 1. deildinni
belgisku fyrír Belgíumeisturunum
Beveren og við það minnkaði forusta
liðsins niður í tvö stig. Standard Liege
vann stórsigur á Waregem á útivelli.
Ekkert var leikið í Hollandi um helgina
vegna veðurs og slæmra vallarskilyrða.
Úrslit í Belgíu.
Anderlecht— CS Brugge 3—0
FC Brugge — Charleroi 7—0
Berchem — Hasselt 1—0
Waregem — Slandard 0—4
Beveren — Lokeren 1—0
FC Liege — Beerschot 2—1
Antwerpen — Winlerslag 1—2
Beringen — Molenbeek 1—1
Leik Waterschei og Lierse var frestað
vegna vatnselgs. Staöa efstu liða:
Lokeren 28, FC Brugge 26, Molenbeek
og Standard 23, Anderlecht 22,
Beveren 21 og CS Brugge 20.
Real Madríd
í efsta sæti
Úrslit í 1. deildinni á Spáni i gær
urðu þessi. Vallecano — Barcelona 0—0
Valencia — Ameria 1—1
Bilbao — Zaragoza 3—1
Atl. Madrid — Real Mad. 1—1
Sevilla — Salamanca 2—0
Malaga — Sociadad 0—0
Burgos — Hercules 1—1
Espanol — Sporting Gijon 1—0
Real Madríd er efst með 24 stig. Real
Sodadad i öðru sæti með 23 stig. Siðan
kemur Gijon með 19 stig og Valencia
16.
'Dr. Janus Ccrwinski medal leikmanna eftir landsleikinn á laugardag. Lengst til vinstri er Jens Einarsson markvörður.
DB-mynd Bjarnleifur.
„Útilokað að Island komist í ak
fremstu röð við slíka aðstöðu”
— sagði dr. Janusz Cerwinski, aðalforustumaður pólska handknattleiksins
„Eg veit að íslenzku landsliðsmenn-
irnir sumir hverjir verða að leggja mjög
hart að sér við vinnu — vinna allt að tíu
klukkustundum á dag og þurfa svo að
stunda æfingar á eftir. Það er útilokað
að ísland komist í alfremstu röð hand-
knattleiksþjóða heims við slikar
aðstæður, því leikmenn annarra þjóða
vinna lítið sem ekkert með handknatt-
leiknum,” sagði dr. Janusz Cerwinski,
fyrrum landsliðsþjálfari íslands, en
hann er nú aðaistjórnandi i pólskum
handknattleik — á blaðamannafundi
eftir þiðja landsleik íslands og Póllands
i gær. Janusz gjörþekkir íslenzkan
handknattleik — og einnig handknatt-
leik fremstu þjóða heims á þvi sviði.
Á fundinum kom fram að leikmenn
pólska iiðsins eru stúdentar, sem þurfa
ekki aðstunda vinnu með námi sinu og
íþrótt — og þessir íþróttastúdentar eru
oft 2—3 árum iengur i námi vegna
handknattleiksins. Pólverjum er víða
spáð miklum frama á næstu ólympiu-
leikum — en þegar forustumenn Pól-
verja voru i gær spurðir að því hvar
Pólland stæði meðal hinna fremstu,
sögðu þeir að það væri erfitt að segja.
Það væri gott að aðrir hefðu áiit á þeim
en þeir vildu ekki vera með yfirlýsingar
um það. En væru miklir möguleikar til
að þróa taktískan handknattieik og
Klempel, sem lengi hefur verið talinn
bezti handknattleiksmaður heims, er
nú ekki lengur aðalmaður pólska
liðsins, sem allt byggist á.
Dr. Janusz var spurður um áiit á
þeim miklu breytingum, sem gerðar
hafa verið á ísl. landsliðinu. Hann
sagði. ,,Éf ykkar takmark er B-keppni
heimsmeistarakeppninnar 1981 þá er
rétt að farið. Helzti veikleiki isl. liðsins
nú er að það hefur ekki langskyttur. Ég
vil ekkert um það segja hvort eldri
menn ættu að vera í liðinu”. Jóhann
Ingi landsliðsþjálfari var ekki alveg á
sama máli hvað langskyttum viðkemur.
Benti á þá Sigurð Gunnarsson og Sig-
urð Sveinsson í því sambandi.
Talið barst að Baltic-cup, sem hefst
á morgun í V-Þýzkalandi. ísland og
Pólland eru meðal þátttakenda. Pól-
verjarnir spáðu því að ísland mundi
keppa um 5.—6. sætið þar. Þýzku
liðin, það vestur- og austur-þýzka,
væru of sterk fyrir ísland en Pól-
verjarnir spáðu þvi að island myndi
sigra Noreg auðveldlega i sínum riðli.
Þá voru Póiverjarnir spurðir að þvi
hvað ísland þyrfti að gera til að ná
góðum árangri i B-riðli heimsmeistara-
keppninnar 1981 og svarið kom fljótt.
Leika 25—30 landsleiki fyrir þá keppni
og sem flesta erlendis. Landsleikir
erlendis fyrir ísland væru miklu
þýðingarmeiri en hér í Laugardalshöll.
-hsím.
-Hef ekki tekið ákvöiðun hvort
ég held áfram með landsliðiðr
— sagði Jóhann Ingi landsliðseinvaldur eftir leikina við Pólland
„Það c| enn allt á huldu hvort ég
verð landsljðseinvaldur næsta leiktíma-
bil. Samningur minn við Handknatt-
leikssamband ísiands rennur út í vor og
það er ekkert víst hvort hann verður
endurnýjaður. Ég hef ekki tekiö
ákvörðun hvort f held áfram með
landsliðið,” sagði Jóhann Ingi
Gunnarsson, landsliðseinvaldur, eftir
leik íslands og Póllands i gær. Það yrði
áreiöanlega mikið áfall fyrir íslenzkan
handknattleik ef hinn geðþekki piltur
og mikli ræðusnillingur, Jóhann Ingi,
hyrfi úr forustusveit handknattleiksins
hér — maöur, sem greinilega hefur
mikla hæfileika á því sviði þar sem
hann hefur haslað sér völl. Auðvitað
spila peningar þarna inn í.
,,Ég er orðinn langþreyttur á þessu
peningaleysi og veit ekki hvað verður
— og íslenzku landsliðsmennirnir eru
það einnig. HSÍ á enga peninga og það
er ekki von að piltamir séu ánægðir
eins og málum er nú háttað með þátt-
töku okkar i Baltic-cup. Hver þeirra
20 þúsund krónur í vinnutap
meðan öðrum þátttakendum er borgað
upp í topp. Til dæmis fá dönsku leik-
mennirnir stórpeninga fyrir að keppa
þar fyrir hönd Danmerkur,” sagði
Jóhann lngi ennfremur.
Þá var hann spurður um landsleikina
við Pólland. „Sá síðari var erfiðastur.
Leikmann liðanna gjörþekktu þá
hverjir aðra og þá kemur í ljós munur-
inn á þjálfuninni. Það stóð ekki steinn
yfir steini hjá okkur í byrjun siðari
hálfleiks en þaðva; ánægjulcg; að ekki
var gefizt upp. I lokin hrönnuðust
mistök aftur upp og því tapaðist leikur-
innmeðþetta miklummun.
Ég hef verið misánægður með
leikina. Fyrsti leikurinn var beztur og
annar leikurinn var e nig góður að
mínu mati. Sveiflukenndur en ísleqzka
liðið gafst ekki upp. Fimm mínútum
fyrir leikslok hafði það jafnað í 19—19
og hafði möguleika á að sigra. Það tókst
ekki og við vorum heldur óheppnir í
tveimur fyrstu leikjunum. Þar skipti
reynslan líka miklu máli — Pólverj-
arnir mjög leikreyndir þó ungir að
árum séu flestir og nýttu sér það til
fullnustu lokakaflann,” sagði Jóhann
Ingi.
,,Ég vona að okkur takist vel upp í
Baltic-cup og að við getum látið hinar
þjóðirnar vita að ísland er enn á landa-
kortinu í handknattleiknum. Ég tel að
erfiðasti leikur okkar þar verði við
Norðmenn. Þar fara allir fram á að við
sigrum — og auk þess verður það
þriðji leikurinn í keppninni hjá okkur á
þremur dögum,” sagði Jóhann Ingi
að lokum.
íslenzka liðið hélt utan í morgun og
meðal þess var Sigurður Sverrisson,
blaðamaður DB. Hann mun skrifa um
leikina og skýra frá því sem á fjörurnar
rekur. Fyrstu greinar hans verða i
blaðinu á morgun. Landsliðsmennirnir
16, sem að undanförnu hafa leikið við
USA og Pólland, voru allir með í
förinni. Nokkrir þeirra eiga þó við
litilsháttar meiðsli að striða — verst
meiðsli Þorbergs Aðalsteinssonar en
hann ætti þó að geta leikið.
Jóhann Ingi Gunnarsson landsliðsein-
valdur. Hættir hann i vor?