Dagblaðið - 07.01.1980, Síða 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1980.
Þriðji landsleikurinn við Pólland:
íþróffir
Sóknamýtingin ákaflega
slæm hjá íslenzka liðinu
og Pólland sigraði með fímm marka mun í Laugardalshöll í gær, 20-15
„Þaö er staðreynd, sem ekki verður
litið framhjá, að Pólverjar eru einfald-
lega sterkarí en við,” sagði Jóhann Ingi
landsliðsþjálfarí eftir að Pólland
sigraði ísland með 20—15 í þriðja
iandsleik þjóðanna í handknattleik í
Laugardalshöll i gær, sunnudag. Þetta
var lakasti leikur þjóðanna i landsleikj-
unum þremur — og nú brást sóknar-
leikur íslenzka liðsins illa. Sóknarnýt-
ing aðeins um 33% og það er allt of
litið gegn jafnsterkrí handknattleiks-
þjóð og Pólverjar eru. Hins vegar var
vörnin ekki eins slök og það var til þess
að Pólverjar skoruðu færri mörk en í
fyrri leikjunum.
ekki vafi á þvi að betra liðið sigraði.
Það er óþarfi að fara mörgum orðum
um frammistöðu einstakra leikmanna
ísl. liðsins — og vísast í því tilfelli til
töfiunnar um leikinn. Ólafur fyrirliði
var bezti maður íslenzka liðsins þótt
hann fengi ekki minútu hvíld allan leik-
inn. Þá komst Þorbjörn vel frá leikn-
um. Ákaflega sterkur varnarmaður og
kom á óvart með tveimur mörkum.
Sóknarleikurinn verður þó oft vand-
ræðalegur, þegar Þorbjörn á að leika
þar meiriháttar hlutverk. Kristján stóð
i marki í f.h. Varði fjögur skot.
Brynjar í þeim síðari og varði sex.
íslenzka liðið var þannig skipa:
Kristján Sigmundsson, Brynjar Jens-
son, Ólafur Jónsson, Þorbjörn Jens-
son, Steindór Gunnarsson, Friðrik
Þorbjörnsson, Þorbergur Aðalsteins-
son, Bjarni Guðmundsson, Viggó
Sigurðsson, Sigurður Sveinsson, Sig-
,urður Gunnarsson og Guðmundur
Magnússon. Viggó var markhæstur
með 5 mörk og Kuleozka hjá PóIIandi,
einnig með fimm mörk. Klempel
skoraði aðeins þrjú — tvö úr vitum.
Leikurinn var harður, oft grófur, og
komust Gunnlaugur Hjálmarsson og
Óli Olsen þolanlega frá dómgæzlunni.
Það hlýtur að vera erfitt fyrir íslenzka
dómara að dæma slíkan landsleik i
Laugardalshöll. Fyrsta markið í síðari
hálfleik skoraði pólski markvörðurinn
— kastaði knettinum yfir allan völlinn
og yfir Brynjar, sem hætt hafði sér of
.framarlega. Hann reyndi slíkt siðar í
leiknum svo það jafnaði sig upp,- hsím.
Annar landsleikurínn við Pólland:
Það er líka staðreynd að það hefur
verið lagt of mikið á hið unga íslenzka
landslið siðustu vikuna. Þrír Iandsleikir
við Pólverja, tveir við Bandaríkja-
menn auk tveggja leikja við sterk
íslenzk úrvalslið og ungu piltarnir hafa
enn ekki þrek til að standa í slíkri eld-
raun. Auk þess hvilir þunginn nær ein-
göngu á sömu leikmönnunum — of
margir leikmenn liðsins komu litið við
sögu í leikjunum. Eru enn varla lands-
liðsmenn. Þó „bylting” Jóhanns Inga
hafi að mörg leyti verið jákvæð hefði
verið raunhæfara að hafa 2—3 „gamta
jaxla” með. En úr þvi sem komið er
verður ekki til baka snúið með Baltic-
cup að minnsta kosti. Landsliðið hélt
utan í morgun til þátttöku í þeirri
keppni.
Einnig settu meiðsli Iykilmanna
nokkurn svip á landsleikinn i gær. Þeir
Sigurður Gunnarsson og Þorbergur
Aðalsteinsson, sem voru aðalmenn
liðsins í tveimur fyrstu leikjunum, nutu
sin ekki i gær. Meiðsli í baki tóku sig
upp hjá Þorbergi og gat hann lítið
leikið með — en allt of mikið var lagt á
Sigurð, þótt hann væri greinilega ekki
heill.
Það var fyrst og fremst slakur leikur
íslenzka Iiðsins í byrjun hvors
hálfleiks, sem réð úrslitum. Pólverjar
skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins — og
þeir skoruðu fjögur fyrstu mörkin i
þeim siðari. Sjö mörk án svars. Slík
forgjöf í byrjun hálfleikja, þegar menn
ættu að vera óþreyttir, gengur ekki —
ekki gegn liði á heimsmælikvarða.
íslenzka liðið gerði sig í byrjun sekt
um fjórar slæmar villur upphafsminút-
ur leiksins — og Pólverjar komust í 3—
0. Það var ekki fyrr en á sjöundu min-
útu að islenzka liðið skoraði. — Eins
og góðum fyrirliða sæmir reif Ólafur
Jónsson sig í gegnum pólsku vörnina
og skoraði. Einstaklingsframtak — en
það nægði ekki til að hrífa aðra leik-
menn til dáða. Póíverjar komust í 5—
1. En þá fór isl. liðið að saxa á for-
skotið. Sigurður Sveinsson skoraði
með tveimur þrumuskotum — síðan
Bjarni eftir fallega sendingu Ólafs.
Staðan um miðjan hálfleikinn 6—4 og
siðan tókst íslandi að minnka muninn í
eitt mark, 7—6 og síðan 8—7. En þá
sögðu Pólverjar hingað og ekki lengra.
Skoruðu þrjú síðustu mörkin í hálf-
leiknum. Það var óþarfi. ísland fékk
vítakast en Sigurður Sv. skaut gróflega
framhjá. Staðan í hálfleik 11—7.
Byrjun s.h. var hroðaleg. Pólverjar
skoruðu og skoruðu — og aftur skaut
Siggi Sveins framhjá úr vítakasti.
Staðan varð 15—7 og það virtist stefna
i mikinn yfirburðasigur Póllands. En
Þorbjöm Jensson var á öðru máli —
skoraði tvö góð mörk — og Ólafur og
Viggó fylgdu þessu eftir. Fjögur mörk
íslands í röð — en þá var Friðriki Þor-
björnssyni vikið af velli. Pólverjar
komust í 17—11 og þó varði Brynjar
Kvaran víti frá sjálfum Klempel en
þessi risi pólska liðsins var litið með í
leiknum. Lasinn. Aftur kom góður
sprettur hjá Islandi — bilið minnkaði í
þrjú mörk 17—14 og sex mínútur eftir.
Pólska liðið lék beinlinis illa og mögu-
leiki var að jafna þennan mun alveg.
En tvö dauðafæri voru misnotuð og
fleira misfórst. Lokakaflann skoruðu
Pólverjar þrjú mörk gegn einu — tvö
þeirra á síðustu mínútunni.
Pólskur sigur þvi í höfn, 20—15, og
Harkan réð ríkjum
— og Pólland sigraði með 24-21 á laugardag
Það var gríðarleg harka í öðrum
landsleik íslands og Póliands á laugar-
dag í Laugardalshöllinni. Gífurleg átök
og Póiverjar voru sterkari i þeirri
viðureign. Sigruðu með þríggja marka
mun, 24—21, eftir að íslenzka liðið
hafði veríð heldur slakt í fyrri hálf-
leiknum en náð sér hins vegar nokkuð
vel á strík i þeim síðari. Hélt þá jöfnu
við Pólverja en hafði möguleika til að
ná afgerandi forustu eftir að hafa
komizt yfir, 15—14, um miðjan hálf-
lcikinn. En gæfan var íslenzku strákun-
um ekki hliðholl — Pólverjar sigu fram
úr undir lokin og unnu verðskuldaðan
sigur.
Aðalmaðurinn bak við sigur Pól-
verja var Jerzy Klempel eins og svo oft
áður. Þessi frægasti handknattleiks-
maður heims var hreint óstöðvandi.
Skoraði níu mörk í leiknum og það
merkilega var að hann Iék lasinn.
Læknir pólska liðsins hafði þvertekið
fyrir að Klemepl léki — en þeir sem
ráða hjá pólskum Iétu það ekki á sig fá.
Létu Klempel leika og það er um leið
talsverð viðurkenning fyrir íslenzkan
handknattleik. Pólverjar voru ekki
öruggir um sigur nema Klempel væri á
fjölum Laugardalshallarinnar.
Þó er það skoðun mín að islenzka
liðinu hefði átt að geta áskotnazt sigur
í leiknum. Stjórnun liðsins var ekki
alveg eins og bezt hefði getað verið —
allt of mikið um skiptingar í fyrri hálf-
leik. Örar skiptingar og margir leik-
menn, sem ekki teljast til hinna sterkari
í islenzka liðinu, langtimum saman inn
á. Greinilegt að Jóhann Ingi vill gefa
öllum leikmönnum sinum sem mest
tækifæri — gera þá reynslunni ríkari.
Kannski er það líka rétt í ekki þýðing-
armeiri leik en þessum — vináttuleik —
en íslenzka liðið hefur þó nokkrum
skyldum að gegna gagnvart áhorfend-
um, sem fjölmenntu á alla leikina þrjá.
Þeir studdu vel við bakið á strákunum,
þegar einhverjir möguleikar voru — og
þeir voru mestir í þessum leik. Þá
fannst mér einnig misráðið i stöðunni
19—19 og sjö mínútur til leiksloka að
láta Bjarna Guðmundsson taka Alfred
Kaluzinski úr umferð. Það hafði
gengið vel fram að þeim tíma — mikið
jafnræði með liðunum. En við þessa
ráðstöfun losnaði mjög um Jerzy
Klempel. íslenzku leikmönnunum tókst
ekki að stöðva hann. Á aðeins tveimur
mín. skoraði þessi snjalli leikmaður
þrjú mörj< í röð án svars frá íslenzka
liðinu. Staðan breyttist i 22—19 og úr-
slit voru ráðin.
Frábært mark
Leikurinn var skemmtilegur í byrjun
og fyrsta mark íslenzka liðsins er eitt
hið fallegasta, sem nokkru sinni hefur
verið skorað af ísl. landsliði. Klempel
hafði skorað fyrsta mark leiksins —
Stefán Halldórsson síðan látið verja frá
sér víti. En íslendingar náðu knettinum
aftur — Þorbergur og Viggó tættu í sig
pólsku vömina áður en Viggó gaf háa
sendingu til Bjarna Guðmundssonar
inn í teiginn. Bjarni gaf á Steindór á
línuna og knötturinn Iá síðan í mark-
inu. Pólverjar vissu bókstaflega ekki
sitt rjúkandi ráð — aldrei i leikjunum
þremur var vörn þeirra jafn sundurspil-
uð. Bjarni Felixson verður bókstaflega
að sýna þetta mark i sjónvarpinu.
Það var jafnræði með liðunum upp í
3—3 — fyrstu átta mínúturnar. Siðan
komust Pólverjar i 5—3 en þegar
Klempel var vikið af velli vegna mót-
mæla iafnaði isl. liðið í 5—5. Pólland
komst yfir 6—5 og Jens stöðvaði
hraðaupphlaup þeirra. Bjarni komst
frír að pólska markinu en lét verja frá
sér. Pólverjar upp og skoruðu. Þeir
komust i 8—5 og um tíma var orðinn
5 marka munur, 12—7. Staðan þá
orðin vonlitil. En ísland skoraði tvö
síðustu mörkin i hálfleiknum. Staðan
12—9 í leikhléinu.
í síðari hálfleiknum hélzt þessi
þriggja marka munur framan af — en
þá fór landsliðseinvaldurinn að keyra á
þeim Ólafi Jónssyni og Bjarna í horn-
unum, Steindóri á linu, Sigurði Gunn-
arssyni, Þorbergi og Viggó fyrir utan
og sóknarleikurinn varð mjög sannfær-
andi. Ólafur fyrirliði jafnaði i 14—14 á
elleftu minútu og minútu síðar kom
Bjarni íslandi yfir i 15—14. Það var í
eina skiptið i leiknum, sem ísland hafði
yfir. Klempel jafnaði — síðan var jafnt
17—17, 18—18 og 19—19. Sjö mínútur
til leiksloka, þegar reynt var að taka
Alfred Kaluzinski úr umferð. Það mis-
tókst gjörsamlega og Klempel naut sín
við það aukna frjálsræði, sem það
skapaði honum. Skoraði þrívegis, 22—
19. Sigurður Gunnarsson skaut inn
marki — en þá var gripið til þess ráðs
að taka Klempel einnig úr umferð. Það
tókst ekki heldur og Pólverjar unnu
öruggan sigur.
Steindór Gunnarsson var bezti
maður íslands i leiknum — snjall á lín-
unni og virkari í vörn en oftast áður.
Einhver bezti landsleikur, sem hann
hefur leikið. Þá var Ólafur Jónsson að
vanda sterkur og ég er ekki á þeirri
skoðun, sem margir hafa látið í ljós, að
fyrirliðastaðan sé honum einhver fjötur
um fót. Síður en svo og það sannaðist
kannski enn betur i síðasta leiknum við
Pólverja. Fimm leikmenn skoruðu nær
öll mörk íslands — Steindór, Sig.
Gunnarsson, Þorbergur og Viggó eða
fjögur hver. Viggó gerði marga skin
andi fallega hluti í leiknum — átti frá-
bærar linusendingar — en honum urðu
líka á mistök í slakara lagi. Þá skoraði
Ólafur 3 mörk. Klempel skoraði níu
mörk Pólverja, þrjú viti. Kosma kom
næstur með fimm mörk. Karl Jóhanns-
son og Björn Kristjánsson dæmdu
mjögerfiðan leik.
- hsim,
OTI3mr
autaf t l&O&tM
Hvað vilt þú upp á deltk? er eins og Jerzy Klempel, frægasti leikmaður Pólverja, segi
við Atla Hilmarsson (til vinstri) þegar Atli tók Klempel úr umferð á laugardag.
iþróttir
Annar leikur-
inn í tölum
í öðrum landsleiknum við Pólland á
laugardag var sóknarnýting íslenzka
Iiðsins 43%. Ef litið er á árangur
einstakra ieikmanna islenzka liðsins var
hann þannig — fyrst mörk, síðan
mistök, það er misheppnuð skot eða
knetti tapað. Þcssar töflur eru ekki
unnar af blaðamönnum DB heldur þær
tölur, sem Jóhann Ingi landsliðs-
þjálfari fékk frá aðstoðarmanni sínum.
Steindór Gunnarsson 4/6
Viggó Sigurðsson 4/13
Sigurður Gunnarsson 4/9
Ólafur Jónsson 3/5
Þorb. Aðalsteinsson 4/7
Andrés Kristjánsson 1/2
Bjami Guðmundsson 1/4
Atli Hilmarsson 0/2
Friðrík Þorbjörnsson 0/0
Stefán Halldórsson 0/1
Jens Einarsson var í marki fyrstu 20
minúturnar. Varði fjögur skot þar af
tvö með úthlaupum. Síðan lék Kristján
Sigmundsson í markinu. Varði 9 skot.
Þriðji leikur-
inn í tölum
Það var mikið um mistök í þriðja
landsleiknum við Pólland i gær. Sókn-
arnýting aðeins 33% og segir það sína
sögu. Ef litið er á árangur einstakra
leikmanna kemur þetta út — fyrsl
mörk þeirra, síðan mistök. Það er mis-
heppnuð skot — bolta glatað.
Ólafur Jónsson 3/6
Þorbjörn Jensson 2/4
Steindór Gunnarsson 1/4
Friðrik Þorbjörnsson 0/0
Þorb. Aðalsteinsson 0/2
Bjarni Guðmundsson 1/4
Viggó Sigurðsson 5/13
Sig. Sveinsson 3/6
Sig. Gunnarsson 0/8
Guðm. Magnússon 0/1
ísland fékk fimm vítaköst — Viggó
skoraði úr tveimur en i eitt sinn var
varíð hjá honum. Pólland fékk þrjú
vitaköst, tvö nýtt. Fimm Pólverjum var
vikið af velli i tvær mín. hverjum —
einum íslending, Friðríki. Krístján
Sigmundsson varði fjögur skot í fyrrí
hálfleik — Brynjar Jensson sex í þeim
síðari. Ellefu sinnum í leiknum glataði
islenzka liðið knettinum — oft á
klaufalegan hátt.
-hsím.
K
Heimsmet
í fjórsundi
Tracy Caulkin, Bandarikjunum,
bætti eigið heimsmet í 200 metra fjór-
sundi á móti i Austin í Texas í gær.
Caulkin, sem aðeins er 16 ára, synti
vegalengdina á 2:13,69 min. og stór-
bætti met sitt. Það var 2:14.07, sett i
heimsmeistarakeppninni í Vestur-
Beriin 1978. Þá náði hún frábærum
árangri i 100 metra flugsundi, synti
vegalengdina á 59.98 sek. Það er
mörgum sekúndum betra en íslenzka
karlametið á vegalengdinni.
Margir keppendur frá Austur-Þýzka-
landi kepptu á mótinu en það er af sem
áður var. Barbara Krause varð eini
sigurvegari A-Þýzkalands á mótinu.
Sigraði i 100 m skriðsundi á 55.93 sek.
Keppni var þar mjög hörð. Caren
Metschuck, A-Þýzkalandi, varð önnur
á 56.06 sek. Jill Sterkel, USA, þriðja á
56.61 sek. og Chynthia Woodhead,
USA, fjórða á 56.61 sek. í fimmta sæti
kom Agneta Ericsson, Svíþjóð, á 57,30
sek.
í 200 metra bringusundi voru fjórar
sovézkar stúlkur í fyrstu sætunum.
Lina Kachushite sigraði á 2:30.55 mín.
— langfyrst — en Sveta Varganova
varð önnur á 2:33.60 mín. í 400 m
skríðsundi sigraði Kim Linehan, USA,
og náði frábærum árangrí 4:07.84 mín.
Woodhead varð önnur á 4:11.85 min.
Carmela Schmidt, Austur-Þýzkalandi,
þríðjaá 4:13.16 mín.