Dagblaðið - 17.01.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1980.
Skóflustunga tekin að bamaskóla á bamaári:
„Það er þjóðin á morg-
un sem er bam í dag”
Jónína Jónsdótlir skrifar:
29. des. 1979 tók Ása Jónsdóttir
uppeldisfræðingur fyrstu skóflu-
stunguna að byggingu fyrsta raun-
verulega skólahússins yfir starfsemi
hennar sem er kennsla 5—7 ára
barna. Fjölmenni var við athöfnina.
Ása Jónsdóttir hefur af brennandi
áhuga rekið þessa stofnun sem er for-
skóli á hennar eigin vegum hvað
rekstur og form snertir, fyrst að
Heiðargerði 98, Rvk. og undanfarin
ár í Viðlagasjóðshúsi að Keilufelli
16, Breiðholti. Ríkissjóður átti það
hús en hefur nú selt það og á andvirði
þess að renna til byggingar nýs skóla
að Völvufelli 11, Breiðholti, þar sem
Reykjavíkurborg hefur úthlutað
skólanum glæsilegri lóð.
Helgaði Ása Jónsdóttir skóflu-
stunguna barnaári Sameinuðu þjóð-
anna sem þá var að renna sitt skeið.
Samkvæmt nýju grunnskólalögunum
skulu ríki og sveitarfélög standa að
byggingu slíkra skóla. Eitthvað mun
þó vanta á, að allir endar nái saman í
þeim efnum gagnvart þessari
stofnun.
Reykjavíkurborg lagði til lóðina
endurgjaldslaust og horfir allt til hins
betra með framhaldið þar sem
vinsældir og árangur þessa kennslu-
forms virðast fara saman, og velvilji
hlutaðeigandi bendir til að hér sé um
að ræða starf þar sem sérmenntun
Þroski
Hrauni skrifar:
Ég neita að hafa nokkurn
tima fæðzt
Ég neita að hafa skirzt
og hafa verið til
Ég neita að hafa að nauðum
manna hæðzt
Ég hef nefnilega þroskazt
— hér um bii.
Stundin okkar
er „pabba-
þáttur”
Guðrún Guðlaugsdóttir hringdi
og sagði að Stundin okkar væri orðin
að nokkurs konar pabbaþætti.
Börnin hefðu ekki lengur neina
ánægju af henni en heimilisfeðurnir
gættu þess vandlega að missa ekki af
Stundinni sinni. „Bryndís nær ekki
til barnanna en hún nær prýðilega til
pabbanna. Þess vegna finnst mér
vanta einhvern raunverulegan barna-
þátt i sjónvarpið sem komi strax á
eftir Húsinu á sléttunni sem börnin
hafa mikla ánægju af.”
Dýrtá
Eskifirði
— en dýrara á Grenivík
nýtist strax við fyrstu meðferð barna
í námi og geri þvi eftirleikinn auð-
veldari.
Með Ásu Jónsdóttur starfar einn
kennari við skólann, Jóhanna E.
Stefánsdóttir. Húsasmiðjan mun
reisa hið nýja hús sem samkvæmt
teikningu Njarðar Geirdal arkitekts
er 233 ferm og sérhannað fyrir hreyfi-
hamlaða einnig. Þetta er merkur
áfangi sem hefur byggzt á harðri og
hetjulégri baráttu Ásu og velvilja
þeirra sem hafa skilið að hér er á
ferðinni málefni sem verður ekki
brotið niður.
Kennsluaðferðir Ásu hafa lánazt
vel, og allir sem til þekkja vona, að
nú megi fljótt og vel til takast að
koma hentugu húsnæði upp og ganga
þannig frá málum að hinu erfiða
frumbyggjastarfi Ijúki vel og farsæl-
lega. Það er þjóðin á morgun sem er
barn í dag.
Fjöldi barna safnaðist kringum Ásu þegar hún tók fyrstu skóflustunguna.
Tvær sem slepptu balli skrifa:
Þann 4. janúar siðastliðinn birtist i
Dagblaðinu fréttatilkynning frá
Regínu, fréttaritara á Eskifirði, þar
sem hún hneykslaðist á háu miða-
verði (kr. 8.000) á áramótadansleik
Sem haldinn var þar.
Við erum henni algjörlega sam-
mála en því miður getum við nefnt
enn hærra verð á sams konar dans-
leik, höldnum á sama tíma. Þetta
gerðist norður i Þingeyjarsýslu.nánar
tiltekið á Grenivik. Þar var dans-
leikur haldinn á vegum Lions og stóð
hann frá kl. 12 til kl. 4 e.m. Engin
skemmtiatriði voru en hljómsveit lék
fyrir dansi. Miðaverðið var kr.
10.000. Geri aðrir betur.
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
Spurning
dagsins
Fylgdist þú með f ramhalds-
myndaflokknum And-
streymi?
Inga Einarsdóttir sjúkraliði: Já, það
gerði ég. Mér fannst það mjög góður
myndaflokkur og endaði mjög vel.
Sumir segja að undir lokin hafi þetta
verið grátþáttur en það fannst mér alls
ekki. Ég vona bara að sjónvarpið sýni
annan svona myndaflokk.
Marís Haraldsson húsvörður: Já, ég
hef fylgzt með þeim þáttum. Þetta
voru ágætis þættir, alveg prýðilegir.
Sjónvarpið mætti hafa meira af svona
þáttum. Ég hefði meira að segja viljað
að það hefði verið einn þáttur í viðbót,
svo maður hefði getað séð hvernig hon-
um hafi vegnað í dómarastarfinu.
Hallfríður Georgsdóttir húsmóðir: Já,
ég hef nú gert það. Fyrri parturinn
fannst mér ágætur en hitt fannst mér
lélegt.
Leifur Leifsson húsasmiðanemi: Já,
mjög góöir þættir. Sjónvarpið mætti fá
fleiri slika þætti. Endirinn fannst mér
mjögsanngjarn.
Grétar Jónatansson, verzlunarstjóri i
Vestmannaeyjum: Já, vist gerði ég það.
Mér fannst myndaflokkurinn að mörgu
leyti mjöggóður.
Brynja Hjaltadóttir, starfsstúlka í
Kaupfélaginu á Suðumesjum: Já, ég
fylgdist með Andstreymi og fannst það
mjög góðir þættir. Sérstaklega endaði
hann vel. Það var mikið að eitthvað
gott kom í sjónvarpinu.