Dagblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980.
Carter Bandaríkjaforseti:
Frekari ögrunum í Miðaustur-
löndum svarað með hervaldi
Bandaríkin nuinu ekki liða Sovél-
mönnum frekari aðgerðir i útþenslu-
ált i Miðausturlöndum eða umhverfis
Persaflóann og munu beita hervaldi
til að koma i veg fyrir slíkt, sagði
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti í
gærkvöldi. Hann ávarpaði jiingið i
Washington og er ræða hans þar
sögð sú harðorðasta síðan hann tók
við völdum.
Yfirlýsing hans um þetta el'ni er
studd af þingmönnum beggja flokka,
demókrata og repúblikana. Þar segir
meðal annars að allar tilraunir sem
gerðar verði af utanaðkomandi
valdaaðila til að ná frekari tökum á
hinum mikilvæga heimshluta við
Persaflóann verði mætt af fullri ein-
beilni óg hörku af Bandarikja hálfu.
Verði beitt hervaldi ef þörf verði talin
á sliku.
Þrátt fyrir stuðning manna við
þessa yfirlýsingu forsetans hefur
hann verið gagnrýndur harðlega af
ýmsum leiðtogum stjórnarandstöðu-
flokksins, repúblikönum. Segja þeir
að nú feli forsetinn sig bak við ein-
tómar háværar munnlegar yfirlýs-
ingar eftir að hafa liðið það að áhrif
Bandaríkjanna hafi farið hraðminnk-
andi i þessum heimshluta á þeim
undanförnum þrem árum sem hann
hefur setið í stóli forseta Bandaríkj-
anna.
Ford fyrrum forseti og sá sem
tapaði í kosningunum um það emb-
ætti fyrir Carter árið 1976 hefur tekið
undir þessa gagnrýni. i gær sakaði
Ford Carter um að eiga sök á íhlutun
Sovétríkjanna í Afganistan.
Sagði Ford að minnkandi Tramlög
til hernaðarmála í Bandarikjunum
og tregða Carters til að mæta
sovézkri ógnun í öðrum heimshlutum
hefði liklega orðið þess valdandi að
ráðamenn í Moskvu haft talið sér
óhætt að gripa til beinnar íhlutunar
um innanlandsmál i Afganistan.
Repúblikanar segjast þó viður-
kenna að Carter forseti sýnist hafa
hug á að taka upp nýja stefnu og þvi
sé rétt aðgefa honum tækifæri.
Að gefnu tilefni skal framleiðendum, dreifingar-
og söluaðilum alifuglakjöts bent á að framfylgja
ákvæðum reglugerðar nr. 286/1973, um meðferð
og merkingu sláturafurða af alifuglum.
Sérstök athygli er vakin á, að óheimilt er að
bjóða til sölu eða hafa á boðstólum sláturafurðir
alifugla, sem ekki eru í umbúðum og merktar
skv. ákvæðum reglugerðarinnar, t.d. varðandi
nafn eða auðkenni framleiðenda og slátrunar-
mánuð.
í samráði við yfirdýralækni mun heilbrigðiseftir-
litið í Reykjavík stöðva sölu á alifuglakjöti í
Reykjavík, frá og með 1. apríl n.k. sem ekki er
merkt í samræmi við ákvæði ofangreindrar reglu-
gerðar. Reykjavik, 23. janúar 1980.
Heilbrigðisráð Reykjavíkur.
OPID
KL. 9—9
Allar skreytingar unnar af fag-
, mönnum.
Nasg bllastiaSI o.m.k. ó kvöldln
itioMíAMxnn
HAFNARSTRÆTI Slmi 12717
Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjáUgötu 49 — Sími 15105
Norsku kvenkulda
stígvéfín nýkomin
Litur: Miiiibrúnt
Stærðir 37 til 411/2
Verð kr. 29.800.-
■jmtÞQsz',
Litur: Ljósbrúnt
Stærðir 37 til 411/2
Verðkr. 27.800.-
Póstsendum
Stigah/íð 45 — Sími83225.
&
SKIPAUTGCRB RIKISINSj
Ms. Coaster Emmy
fer frá Reykjavik þriðjudaginn 29.
þ.m. vcstur um land til Akureyrar
og tekur vörur á eftirtaldar hafnir:
Þingeyri, ísafjörð, (Flateyri, Súg-
andafjörð og Bolungarvik um ísa-
fjörð), Akureyri, Siglufjörð og
Sauðárkrók.
Vörumóttaka alla virka daga til
28. þ.m.
Ms. Baldur
fer frá Reykjavik þriðjudaginn 29.
þ.m. og tekur vörur á eftirtaldar
hafnir: Patreksfjörð, (Tálknafjörð
og Bildudal um Patreksfjörð) og
Breiðafjarðarhafnir.
Vörumóttaka alla virka daga til
28. þ.m.
TUDOR
rafgeymar
—já þessir meö
9líf
SKORRIHF
Skipholti 35 - S. 37033
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTÍG 29
MYLETO gefur gráum hárum
sinn upprunalega lit.
MYLETO gegn gráum hárum.
PÓSTSENDUM
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTÍG 29
SÍM112725.
KHOMEINI
HJARTVEIKUR
Khomeini, valdamesti trúarleiðtogi
irans, er nú á sjúkrahúsi i Teheran
vegna hjartasjúkdóms. Læknar segja
hann ekki á alvarlegu stigi. Khomeini
kom til Teheran í gær frá aðsetri sínu
i hinni heilögu borg Qom i fylgd með
mönnurn úr byltingarráðinu.
i opi'nberri tilkynningu frá frétta-
stofunni í Teheran segir, að hinum 79
ára gamla trúarleiðtoga líði vel og
ekki sé nein ástæða til aðóttast um lif
hans. Áður hafði verið tilkynnt að
læknar Khomeinis hefðu ráðlagt
honum að framlengja hvíldarleyfi sitt
um hálfan mánuð í viðbót við þá
fjórtán daga sem hann hefur verið frá
opinberum störfum.
Hópur lækna og starfsmanna
írönsku heilbrigðisstjórnarinnar
korrtu til Qom i gær og gekkst trúar-
leiðtoginn þá undir nákvæma læknis-
aðstoð, þar á meðal hjartaskoðun.
Þetta er i fyrsta skipti sem Kho-
meini fer frá hinni heilögu borg siðan
i byltingunni, sem hann hafði forustu
um gegn keisaranum fyrrverandi i
febrúar siðastliðnum. Hann kom ein-
mitt til írans I. febrúar eftir sextán
ára útlegð í irak og Frakklandi.
Skákmótið í Hollandi:
GUÐMUNDUR SIGR-
AÐILIGTERINK
Guðmundur Sigurjónsson vann skák
sina gegn Ligterink frá Hollandi i sjö-
undu umferð skákmótsins i Hoogovens
i Hollandi í gær. Seirawan, hcims-
meistari unglinga í skák, sem er frá
Bandarikjunum hcfur enn forustu á
mótinu með 5,5 vinninga. Hann gerði
jafntefli við landa sinn Robert Byrne.
Qnnur úrslit í sjöundu umferð voru
þessi: Timntan frá Hollandi sigraði
landa sinn John Van Der Wiel, Böhm
frá Hollandi og Kanadantaðurinn
Biyiasis eiga biðskák. Ree sem er
heimamaður gerði jalntefli við stór-
meistarann Kortsnoj, Alburt Irá
Bandarikjunum gerði jafntefli við
Jaime Sunie frá Brasilíu, Kovacevic frá
Júgóslavíu tapaði fyrir Bandaríkja-
manninum Browne. Biðskak þeirra
Browne og Alburt úr sjöttu umferð
lauk þannig að hinn fyrrnefndi sigraði.
Staðan á mótinu í Hollandi er þá
þessi: I. Seirawan 5,5, 2 . Browne 5,
3.—6. Alburt, Byrne, Ree og Kortsnoj,
7. Biyiasis 3,5 og biðskák, 8. Kovacevic
3,5, 9/Sunie 3, 10. Böhm 2,5 og bið-
skák, I 1.—12. Timman og Guðmundur
Sigurjónsson 2,5 og lestina reka þeir
I igterink og Van der Wiel með 2 vinn-
inga.
Kórea:
Takaaftur
uppsamein■
ingarfundi
Stjórn Suður-Kóreu féllst i gær á
tillögu stjórnar Norður-Kóreu um að
aflitr væru teknar upp viðræður um
samciningu landshlutanna. Eiga þar
að mætast forsætisráðherrar landsins
og stingur stjórn suðurhlutans upp á
þvi að viðræðurnar fari fram i borg-
inni Panmunjom, sem er rétt við
landamæri rikjanna. Verði fyrsti
fundurinn hinn 6. febrúar næstkom-
andi.
í bréfi forsætisráðherra Suður-
Kóreu til starfsbróður sins segir hann
að hann trúi því að það sé heilagt
skylduverk þeirra að sjá svo um að
ekki komi til styrjaldar aftur þjóðar-
brola þeirra á milli og að koma á
endursameiningu.
Það tók suður-kóranska forsætis-
ráðherran tólf dága að semja svar við
tillögunni frá Norður-Kóreu. Landið
hefur verið skipt í tvo hluta síðan við
lok siðari heimsstyrjaldarinnar. Áður
var það löngum nýlenda japanska
kcisaraveldisins.