Dagblaðið - 08.02.1980, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 08.02.1980, Blaðsíða 12
12 G DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980. 17 íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir Vetrarólympíuleikarnir í Innsbruck 1964 Á 55. þingi Alþjóðaólympíunefndarinn- ar árið 1959 var Innsbruck i Austurríki falið að sjá um leikana 1964. Austurríkis- menn gengu strax rösklega til verks og settu sér það mark að halda einfalda en óaðfinn- anlega leika. Við þetta stóðu heir. í Inns- bruck og nærliggjandi þorpum (Lizum og Seefeld) var aðstaða til keppni hin bezla. Gríðarmikil tölva, sem tengd var við alla keppnisstaðina, sá um að koma upplýsing- um til áhorfenda jafnóðum og keppni fór fram. Starfsmenn voru um 2000. Leikarnir í Innsbruck báru skýran volt um viðgang vetrarleikanna. Alls sendu 38 hjóðir keppendur eða mun fleiri en nokkru sinni áður. Áhorfendur voru um l milljón manns. Forseti Alþjóðaólympíunefndar- innar, Avery Brundage, gat því stoltur sagt við opnun þeirra: ,,Hér í Innsbruck höfum við lifandi dæmi um þrótt hinnar ólympisku hreyfingar.” Eins og oft áður þegar vetrarleikar hafa^ veri haldnir leit svo lengi út i lnnsbruck að snjóleysi myndi valda alvarlegum truflun- unt við framkvæmd leikanna. Ekki hafði komið svo mildur febrúarmánuður i tæp 60 ár. En Austurríkismenn voru við öllu búnir og sóttu í snarheitum snjó yfir landa- mærin til Ílalíu og flultu hann með bílum lil Innsbruck. 'Wi Skautakeppni á leikunum i Garmisch-Partenkirchen 1936. Norðmaðurinn Ivar Bailangrud, sem vann þrenn gullverðlaun, á innri braut. Dr. Ingimar Jónsson Saga vetrarólympíuleika 8. grein Austurrískir ólympíu- leikar í ítölskum snjó íslenzkir göngumenn aftur með Fimm íslendingar voru sendir til Inns- bruck en þeir voru: göngumennirnir Birgir Guðlaugsson og Þórhallur Sveinsson frá Siglufirði og svigmennirnir Árni Sigurðs- son frá ísafirði, Jóhann Vilbergsson frá Siglufirði og Krislinn Benediklsson frá Hnífsdal. Tveir þeir siðastnefndu voru á ferð öðru sinni á ólympíuleikum og höfðu orðið ntargfaldir íslandsmeistarar árin á undan. Birgir sigraði i 15 km göngu á , islandsmótinu 1963 og í 30 km 1962—63. í öllurn greinum skíðagöngunnar var keppnin ntjög Ivísýn. í 30 km hafði Finn- inn Ero Mántyranta þó lalsverða yfirburði. Eftir 10 km hafði hann náð ntiklu forskoii á Sixten Jernberg, sent sigraði í greininni 1960. Mántyranta héll þessari forustu en Jernberg varð að hleypa Harald Grönningen frá Noregi fratn úr sér. Úrslit- in í 15 km urðu á sömu lund nenta hvað Sovélmaðurinn Igor Vorontshín varð þriðji. Mantyranta hlaut svo bronsverð- laun i boðgöngunni. Hann var minnstur göngumannanna en þeirra sterkastur. Margurerknárþótt hannsésmár! Maraþongreinina, 50 km, vann Jernberg og lauk siðan sigursælli þátttöku sinni í velrarleikununt með því að vinna lil gull- verðlauna i 4 x 10 km boðgöngu. Hann var þá 34 ára að aldri. Á þrennum leikum, 1956, 1960 og 1964, tókst honum að vinna fern gullverðlaun, þrenn silfurverðlaun og tvenn bronsvcrðlaun. Enginn hefur enn leikið þetta eftir honum. Birgir og Þórhallur kepplu báðir i 15 km og 30 km. Þeir voru óheppnir með smurn- inguna í bæði skiptin en hún var mjög vandasöm vegna þess hve veðurfar var breytilegt þá dagana sent göngukeppnin fór fram. í 15 km varð Þórhallur 55. og Birgir 64. en 71 tóku þátt í göngunni. Tínii Þór- halls var um 10 mín. lakari en sigurvegar- ans. í 30 km varð Þórhallur að sætta sig við 61. sæti og Birgir 64. Keppendur voru 69. Höfðu heiður að verja í skiðagöngunni höfðu sovézku stúlk- urnar heiður að verja eflir góða'frammi- stöðu i Squaw Valley. Þær létu sig ekki rnuna um það og bættu unt betur þvi nú unnu þær allar greinarnar. Klavdia Bojarskis vann báðar einstaklingsgrein- arnar, 5 og 10 km, og boðgönguna unnu þær sovézku með nokkrum yfirburðum yfir þær sænsku. Bojarskis var arftaki Alevtinu Koltsínu, sem hafði verið í fremstu röð um árabil og orðið m.a. heims- meistari í 10 km göngu 1958 og 1962, i 5 km 1962. Koltsín keppti reyndar á leikun- um í Innsbruck og hlaut þar bronsverðlaun í 5 km og gull í boðgöngu. Tveimur árunt siðar varð hún heimsmeistari í 5 km og boðgöngu. Gull í þriðju tilraun Sumir íþróttamenn hljóta aldrei það hnoss sem þeir reyna að hreppa — alltaf reynist einhver þeim fremri. Norðmaður- inn Tormod Knutsen virtist vera einn þess- ara „ógæfusömu” íþróttamanna. í tvö skipti mistókst honum að vinna norrænu tvíkeppnina á vetrarleikum. í Cortina 1956 varð hann 6 og í Squaw Valley annar á eftir Þjóðverjanum Georg Thoma. Þeir ■mættust nú aflur í Innsbruck. Nú tapaði Tormod ekki i stökkinu og gangan var hans sterka hlið. Í Innsbruck var í fyrsta sinn keppl í tveintur stökkbrautum i skiðaslökki, i ntinni og stærri braut. Sigurvegararnir urðu því tveir. Keppnin var mjög tvísýn, einkunt ntilli stökkvara frá Noregi óg Finn- landi. Í minni brautinni hreppti Veikko Kankonen frá Finnlandi sigurinn en næslir urðu Toralf Engan og Torgeir Brandtzag frá Noregi. í stærri brautinni á Bergisel urðu sömu í tveimur fyrstu sætunum en röð þeirra öfug, þ.e. Engan fyrslur og Kankonen annar. Engan varði þar nteð heimsmeistaratitilinn í skíðastökki sem hann hafði unnið árið 1962. Johannesen sigrar enn i skautahlaupinu kom ekkert eins á óvart og sigur Bandaríkjamannsins Richard MacDerntotl í 500 m. Flestir áttu von á því að Sovétmaðurinn Jewgeni Grishín myndi sigra í þriðja sinn en hann mátti láta sér silfurverðlaunin nægja. Knut Johannesen frá Noregi vann 5000 m á nýju ólympíu- meti en Sviinn Johnny Nilsson, heims- meistarinn í skautahlaupi 1963, sigraði í 10000 m. Norðmaðurinn Fred Anton Maier varð annar á eftir Nilsson og vann auk þess bronsverðlaun i 5000 m. í skautahlaupi kvenna sópuðu sovézku stúlkurnar til sin verðlaununum eins og fjórum árum áður í Squaw Valley. Lydia. Skoblikova vann öll hlaupin með einstök- um yfirburðum og bætti ólympíumetið í þremur þeirra. Landi hennar, Tatjana Sidorova, hlaut silfurverðlaunin í 500 og 1000 m. Sjoukja Dijkstra í listskautahlaupi kvenna urðu úrslit eins og við var búizt. Hollenzka stúlkan Sjoukje Dijkslra tók strax forustuna í skylduæftngunum og jók svo við forskot sitt í frjálsæfingunni. Hún var á þessum árum sú langbezta i heiminum. Sjötta varð ung og upprennandi stjarna frá Bandaríkj- unum, Peggy Fleming. í karlaflokki var keppnin hins vegar hörð á milli Alain Cal- tnat frá Frakklandi, Karol Divin frá Tékkóslóvakíu og Manfred Schnelldorfer frá Þýzkalandi. Á úrslitastundu hafði Cal- mat, sem þótti sigurstranglegastur, ekki nægilegt vald á sér og varð þess vegna af sigrinum sem féll Þjóðverjanum í skaut. Einnig i parakeppninni var keppnin spennandi þvi þar mættust tvö snjöll pör. Sovézku hjónin Ludmilla og Oleg Protopo- pov höfðu betur gegn þýzka parinu Marika Kilius og Hans-Júrgen Baumler, sem tví- vegis höfðu unnið heimsmeistaratignina (1963 og 1964). Þjálfari íslenzkra svigmanna vann í alpagreinunum voru skiðagarpar frá Mið-Evrópulöndunum i sérflokki. Í bruni sigraði Austurrikismaðurinn Egon Zimni- ermann, sá sem þjálfaði íslenzku svig- tttennina fyrir vetrarleikana í Squaw Valley. Landi hans, Josef Stiegler, vann svigið og Frakkinn Francois Bonlieu hreppti sigurinn í stórsviginu en Karl Schranz frá Austurríki annað sætið. Fyrsta keppnisgrein íslendinganna var slórsvigið. Þeir höfðu allir há rásnúmer og þegar röðin kont að þeim var brautin orðin grafin og slænt. Jóhann datt illa neðst i brautinni og varð að hætla. Kristinn stóð. brautina en fékk lakan tíma og varð 63. Árna gekk bezt og hlaut hann 57. sæli. í forkeppni svigsins voru.farnar tvær ferðir og 25 beztu úr hvorri þeirra teknir i úrslitin. Árna tókst einunt Íslendinganna að komast í úrslitin og þar varð hann 39. af 50 keppendum. í fyrri umferð forkeppninnar missti Kristinn úr hlið og var dæmdur úr leik. En hvernig sem á því stóð var timi hans birtur aðfinnslulaust. Tinii hans var sá sjötti bezti og betri en nokkur Austurrikismannanna hafði náð. Blaðamennirnir gleyptu við þessu og þótti Kristinn hafa unnið mikið afrek því rásnúmer hans var 64. Salzburger Nachrichten skrifaði: „Beztum árangri náði íslendingurinn Benediktsson sent með rásnúmer 64 fékk tímann 53.30 og komst þar með i 6. sæti, fram fyrir alla Austiir- rikismennina.” Goitschel-systur Á leikunum vöktu athygli systurnar Marielle og Christine Goitschel frá Frakk- landi. Christine vann svigið og Marielle varð önnur. j stórsviginu varð Marielle hins vegar á undan þannig að báðar unnu ein gull- og ein silfurverðlaun. Brunið vann Christel Haas frá Austurríki. Keppt var i sleðabruni í fyrsta skipti á vetrarleikunum. Keppendur frá Austurríki og þýzka.Alþýðulýðveldinu áttust þar aðal- lega við og fóru leikar þannig að A- Þjóðverjar unnu einstaklingsgreinarnart (karla og kvenna) en Austurríkismenn á tveggja manna sleða. í biathlon bar Sovétmaðurinn Vladimir Melanín sigur úr býtum. Hann var marg- faldur heimsmeistari í greininni, hafði unnið heimsmeistaratitilinn 1959, 1962 og 1963. Göngugarpurinn frægi, Veikko Hakulinen, reyndi sig í þessari keppni, en í skotfiminni brást honum bogalistin. Í íshokkí unnu Sovétmenn gullið.öðru sinni og höfðu nú nokkra yfirburði. í sovézka liðinu voru leikmenn sem voru af- burðamenn á sinu sviði og unnu marga fræga sigra fyrir Sovétríkin. Þeirra á meðal voru Viktor Konovalenko, Alexander Ragulin, Anatoli Firsov og Vjatislav Starshinov. Svíar kræktu sér i annað sætið og Tékkar það þriðja. Kanadamenn urðu fjórðu. ÍR af mesta hættu- svæðinu í 1. deild — eftir sigur á KR í Laugardalshöll í gærkvöld Eftir daufa leiki að undanförnu kom ÍR-liðið verulega á óvart i I. deild íslandsmótsins í handknattleik í Laugardalshöllinni í gærkvöld. Vann öruggan sigur á hinu óútreiknanlega liði KR, 24—21, og lék sinn bezta leik í vetur í fyrri hálfleiknum. Náði þá fimm marka forskoti — og við sigurinn komst ÍR af mesta hættusvæðinu í deildinni. hefur sjö stig eftir 9 leiki. Einu stigi minna en KR — en Haukar, HK og Fram hafa færri stig en ÍR. Það var stórgóður leikur Þóris Flosasonar í marki ÍR, sem var þyngstur á metunum i sigri liðsins á KR. Hann varði stórvel meðan báðir KR-markverðirnir voru hcldur daprir i leik sínum. ÍR-ingar með aðeins tvo skiplimenn léku oft skemmtilegan handknattleik i Blikar enn í efsta sætinu Lítið hefur heyrzt af högum 3. deildarinnar i handknattleik að undan- förnu en frá því við sögðum síðast frá hafa 4 leikir farið fram. Úrslit, sem hér segir: Stjarnan — Selfoss 43—20 í A — Dalvík 24—19 Óðinn — Grótta 22—24 Keflavík — Breiðablik 16—18 Blikarnir eru því enn í efsta sætinu en heldur virðist þeim hafa daprazt flugið frá í haust. Staðan i 3. deildinni er nú þannig: Breiðablik 9 7 1 1 235—175 15 Akranes 9 6 2 1 199—172 14 Stjarnan 8 5 2 1 213—155 12 Óðinn 9 4 3 2 214—193 11 Keflavík 8 3 1 4 161—158 7 Grótta 9 3 1 5 203—222 7 Dalvik 8 1 0 7 164—214 2 Selfoss 8 0 0 8 143—246 0 - SSv. fyrri hálfleiknum — og það var meir en KR réð við. Jafnræði var framan af eða upp í 4—4 en svo seig ÍR hægt og bilandi fram úr. Komsl um miðjan hálfleikinn í 10—6 — síðan 12—7 og staðan í hálfleik var 14—10 fyrir KR. Mikið skorað. hallur SÍMONARSON. í síðari hálfleiknum héldu ÍR-ingar lengi vel fimm til sex marka forskoti, 20—14 um miðjan hálfleikinn. KR- ingar gripu þá lil þess ráðs að taka Bjarna Bessason úr umferð. Við það riðlaðisl leikur ÍR um tíma og KR minnkaði muninn niður í’þrjú mörk, 21 —18, þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka. En það var það lengsta, sem KR-ingar komust. IR-. ingar bitu vel frá sér lokakaflann og unnu verðskuldaðan sigur. Þórir og Ársæll Kjartansson voru heljur ÍR en í heild var barátta leik- manna liðsins góð. Greinilegt að þeir ætluðu sér að hefna fyrir tapið i fyrri umferðinni. Töpuðu þá með eins marks mun fyrir KR, 19—20. KR-liðið náði sér ekki á strik i leiknum — leikur liðsins ákaflega köflónur og mark- varzlan lítil sem engin. Baráttuviljinn, sem ofl er aðall KR-liðsins, nú víðs fjarri. Mörk KR i leiknum skoruðu Konráð 5, Ólafur 4, Símon 3, Björn 3/1, Frið- rik 2, Haukur Geirmundsson 2 og Haukur Ottesen 2/1. Mörk ÍR skoruðu Ársæll 7, Sigurður 4, Bjarni Hákonar- KR-IR 21-24 (7-12) Utandamótið i handknattleik, 1. deild karia. KR-iR 21-24 (10-14) i Laugardalshöll 7. fobrúar. Beztu leikmann, Þórir Hosason, ÍR, 8, Ársœll Hafsteinsson, ÍR, 8 Sigurflur Svavarsson, ÍR, 7, Ólafur Lárusson, KR, 6, Bjami Bessason, ÍR, 6. KR. Pétur Hjálmarsson, Gisli Felix Bjamason, Símon Unndórsson, Friflrik Þorbjömsson, Einar Vilhjálmsson, Konráfl Jónsson, Bjöm Péturséon, Haukur Geirmundsson,' Haukur Ott/er sen, Kristinn Ingason, Ólafur Lámsson, Jóhannes Stefánsson* •. ÍR. Þórir Hosason, Ásmundur Friflriksson, Bjami Hákona'rson, Sigurflur Svavarsson, Bjami Bessason, Guflm. Þórðarson, Pétur Valdimarssoý, Ársœll Kjartansson, Bjami Bjamason, Ólafur Tómasson. , Dómarar Ámi Tómasson og Rögnvakfur Eriingsen. KR fékk 3 vfti. Þórir varfli eltt frá Hauk Ottesen. ÍR fékk einnig 3 vftL Nýtti tvö — Bjami Hákonarson misnotafli eitt. Skaut framhjá. Tveimur KR-ingum var vikffl af velii. Jóhannesi og Einari — og Bjama Bessasyni tvivegis hjé ÍR. son 4/2, Guðmundur 3, Bjarni Bessa- son 3, Péiur 2 og Bjarni Bjarnason l. - hsím. 100 keppend- ur í badminton — á unglingameistara- mótinu á Selfossi • Laugardaginn 9. febrúar verður haldið unglingameistaramót íslands í Íþróttahúsinu á Selfossi. Rafn Viggósson formaður BSÍ setur mótið kl. 11 f.h. Kependur verða um 100 frá Reykja- vík: TBR, KR, Valur, Hafnarfirði, Sel- fossi, Akranesi, Borgarnesi, Akureyri, Siglufirði og Vestmannaeyjum. A laugardaginn verður spilað fram í undanúrslit og verða örugglega mjög margir spennandi leikir. Á sunnudaginn kl. 10 f.h. verða spiluð undanúrslit og kl. 13:30 verða svg spiluð úrslitin. Sími íþróttahússins á Selfossi er 99- 1449. Meistaramót í Hafnarfirði Meistaramól yngstu aldursflokkanna innanhúss fer fram í íþróttahúsinu í Hafnarfirði sunnudaginn 17. febrúar nk. og hefst kl. 13.30. Keppnisgreinar eru háslökk og langstökk án atrennu. Laugardaginn 16. febrúar fer fram í Baldurshaga kl. 14.00 keppni í 50 m hlaupi og langstökki. Keppnisflokkar eru: piltar, telpur, strákar, stelpur. Þátttökutilkynningum skal skila í siðasta lagi þriðjudaginn 12. febrúar til Haraldar Magnússonar Hverfisgötu 23 c Hafnarfirði. sími 52403, ásamt þátl- tökugjaldi, kr. 150 fyrir hverja grein. Frjálsíþróttasamand íslands. MÍ innanhúss fer fram i Laugardals- höll og Baldurshaga 23. og 24. febrúar, nánar auglýsl síðar. FRÍ. Sigurður Sverrisson IR-SIGUR A ELLEFTU STUNDU — minnstu munaði að ÍR glopraði sigrinum niður gegn Stúdentum. ÍS — ÍR 90-91 Það var Stefán Kristjánsson sem tryggði ÍR-ingum sigur á elleftu stundu gegn ÍS í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik i Kennaraháskólanum i gærkvöld, er hann skoraði sigurkörfuna þegar aðeins 7 sek. voru til leiksloka. ÍS tókst ekki að svara fyrir sig og lokatölur urðu því 91—90 ÍR í hag. í raun hefði það ekki verið sanngjarnt ef ÍS hefði farið með sigur af hólmi því ÍR leiddi nærallan leikinn. Leikurinn varð ekkert spennandi fyrr en um 3 min. voru til loka hans. Þá var staðan 85—82 ÍR í hag. Hvorki gekk né rak hjá liðunum og þegar 95 sek. voru enn eftir var munurinn kominn niður í 2 stig, 88—86 fyrir ÍR. Kolbeinn Kristinsson skoraði úr einu vítaskoti en næstu tvær körfur komu frá Stúdentum og þeir komust skyndilega yfir, 90—89 og 17 sek. eftir. ÍR-ingar léku yfirvegað og eins og hendi væri veifað myndaðist glufa i vörninni og Stefán skoraði af öryggi. ÍS fékk knött- inn sem sendur var rakleiðis fram völlinn. Skotmarkið var Atli Arason en knötturinn náði aldrei til hans. Naumur sigur ÍR, en sanngjarn, var í liöfn. Þetta var þriðji sigur ÍR í þremur viðureignum við Stúdenta í vetur og annar eins stigs sigur þeirra á þeim. Um leið var þetta þriðji leikurinn i vetur, sent ÍS tapar með einu stigi. Heppnin svo sannarlega ekki nieð botnliðunum. Leikurinn í gærkvöld var jafn framan af og eftir 5 min. var staðan 10—10. ÍR náði síðan 6 stiga forskoti, 20—14 og hélt því nær óbreyttu til hálf- leiks. ÍS tókst að vísu að jafna og komast yfir en ÍR jók muninn strax aftur. Munurinn í síðari hálfleiknum var lengi 10 stig í R í vil og ekki fyrr en undir lokin að það breyttist eins og að framan er lýst. Leikmenn beggja liða voru afar jafnir. Þó var Smock nokkuð sér á báli hjá ÍS. Fyrri hálfleikur hans var mjög góður en sá siðari ekki nema miðlungs- frammistaða hjá honum. Atli Arason náði sér vel á strik og þá var Jón Héðinsson sterkur. Steinn Sveinsson lék nú aftur með eftir hvild og komst vel frá leiknum. Annars urðu liðinu á allt of margar byrjendaskyssur — einkum undir lokin þegar mest reið á að halda haus. Trent Smock var þar ekki barnanna beztur. Hjá ÍR var Mark Christensen beztur. Stefán Kristjánsson álti einn af sinum beztu leikjum i vetur og óskandi væri að hann léki hvern leik eins og þennan. Hann hefur boltameðferðina og stað- setningarnar en skapið er ekki alltaf i lagi. Kolbeinn Kristinsson og Kristinn Jörundsson áttu báðir góðan ISik en Sigurður Bjarnason, sem sló í gegn fyrir skömmu, sýndi lítið af sinni getu og var snarlega kippt útaf. Jón Jörundsson kom vel frá leiknum en mætti að ósekju skjóta meira. Stig ÍS: Trent Smock 34, Alli Arason 16, Jón Héðinsson 14, Gísli Gislason 8, Gunnar Thors, 6, Ingi Stefánsson, Bjarni Gunnar Sveinsson og Steinn Sveinsson — gömlu mennirnir — voru allir með4 stig hver. Hjá ÍR skoraði Mark Christensen mest eða 21 stig, Kristinn Jörundsson 19, Stefán Kristjánsson og Kolbeinn Kristinsson 17, Jón Jörundsson 7, Jón Indriðason 6 og Sigmar Karlsson 4. -SSv. Tony Knapp náfli frábærum árangri hjá Viking 1 Stafangri sl. ár — þre- faldur sigur félagsins á knaltspyrnu- sviðinu. Hann verflur áfram í Stafangri næstu tvö árin. Knapp áf ram íStafangri — Stóðst freistandi tilbod um landsliðsþjálfarastöðu á íslandi Kappinn kunni, Tony Knapp, sem náfli frábærum árangri afl mörgu leyti mefl íslenzka landsliðifl i knattspyrn- unni hér á árum áður, var sæil og glaflur, þegar enska knatlspyrnu-tima- ritifl Shoot átti nýlega viðtal vifl hann. Tony er í frii frá Viking í Stafangri og hefur verið i Norwich á Englandi, þar sem hann á heimili. Knapp náði hreint ótrúlegum árangri með Stafangurs-liðið á sl. leiktímabili. Það sigraði bæði í deild og bikar og auk þess verða piltalið Víkings í bikar- keppni 2. aldursflokks. Þrefalt. Knapp verður áfram hjá Víking — gerði samn- ing til tveggja ára í viðböt eftir tveggja ára dvöl þar. í grein Shoot segir að Knapp hafi staðizt frcistandi tilboð um að taka á ný við slöðu landsliðsþjálfara á íslandi Greinin i Shoot r til hliðar og lokin eru mcrkileg þvi þar segi:, að á síðasta leiktímabili hafi Stafangursliðið greitt 3000 sterlingspund fyrir nýjan Ieik- mann, sem sé met í Noregi. Af þvi má ráða að atvinnumennskan hefur að ein- hverju leyti haldið innreið sína í norska knattspyrnu. Happy Knapp ENGLISH exile Tony Knapp has been helping to set Scandinavia on fire in the season that has just finished. Tony, former Southampton, Leicester, Coventry and Tranmere centre-half, has just arrived back at his home in Norwich after an unprecedented hat-trick of successes in the Norwegian League. Tony, 42, has won the First Division Championship, the Norwegian Cup and the Youth Cup as coach to the Stavanger club, Viking. Now Knapp faces his sixth year out of the last seven playing in major European competition when he starts next season in the European Cup with Viking. He has coached lceland in the World Cup and European Championship, earned a memorable draw with East Germany w.th his team of amateurs, and in the U.E.F.A. Cup last season also earned a draw with Borussia Mönchengladbach. He has signed anothertwo year contract with Viking after turning down a tempting offer to go back to lceland as national team manager. Says Tony: "We have a great set up in Stavanger. But we have to produce our own players. Last seaáon we paid a record transfer fee of £3,000 for one new player." FH SIGRAÐIÞROTT — I FH tryggfli sér rétt í 8-liða úrslit i bikarkeppni Handknattleiksambands Islands, þegar liðið sigraði Þrótt i spennandi leik i íþróttahúsinu í Hafnarfirði í gærkvöld, 30—26 eftir 17—141 leikhléi. Það var byrjunarkaflinn, sem reyndist FH haldgóður í leiknum. Liðið bikarkeppninni í handknattleik komsl í 7—2 í byrjun og þann mun tókst Þrótti ekki að brúa. Mikið var skorað í leiknum enda heldur slök markvarzla hjá báðum liðum. FH hafði þrjú mörk yfir í hálfleik og spenna var talsverð, þegar Þróttur minnkaði muninn í eitt mark, 22—21. Það nægði Reykjavíkurliðinu ekki Ákveðið hefur verið að bikarleikur Vals og ÍR verði í Laugardalshöll 14. febrúar kl. 19.00. Hinn 12. febrúar leika Fram og Haukar i 1. deild karla — Valur og HK 18. febrúar kl. 19.30 og leikur Vals og Fram í 1. deild kvenna verður, 7. ntarz kl. 18.30. Allir þessir leikir verða í Laugardalshöll. Handboltapunktar frá V-Þýzkalandi Axel ' Axelsson Hellgren átti stærstan þátt í sigri Heim á GW Dankersen — Grambke þýtur upp töfluna í Bundeslígunni Minden 4. febrúar 1980. Leikir í Evrópukeppni meistaralifla og bikarmeistara voru í mifldeplinum sl. tvær helgar. GW Dankersen lék gegn sænsku bikarmeislurunum Heim frá Gautaborg. í leiknum í Gautaborg varð GWD að sætta sig við fimm marka tap, 18—23. Heim hafði forustu allan síflari hálfleikinn, tvö til þrjú mörk. 21—18 var staflan, þegar tæpar tvær mín. voru til leiksloka en mikill klaufaskapur og fljótfærni varfl Dankersen afl falli. Heim náfli tveimur hraflaupphlaupum og jók bilifl i þær lokatölur, sem fyrr er gctið. Það var því ljóst að síðari leikurinn yrði geysierfiður. Leikið var hér i Minden frammi fyrir 2000 áhorfend- um. Sænska liðið byrjaði af miklum krafti og lék hraðan handknattleik. Vörn GWD átti i miklum erfiðleikum með að hemja Iangskyttur Heim og Svi- arnir náðu strax forustu. Við það bætt- ist svo, að markvörður GWD átti ekki sinn bezta dag. 11—9 leiddi Heim í hálfleik. Um miðjan siðari hálfleikinn hafði GWD tekizt að jafna og komst 19—18 yfir, þegar um tíu mín. voru til leiks- loka. Síðustu mín. tók GWD upp á því að leika maður gegn manni og það virtist koma Heim í opna skjöldu. Mikið óöryggi varð hjá leikmönnum liðsins og þeir misstu knöttinn hvað eftir annað. GWD gekk á lagið og náði fjögurra marka forustu einni mínútu fyrir leikslok og var óheppið að ná ekki fimrn marka forustu. Lokatölur urðu 23—19 fyrir GWD og þegar á heildina er litið átti Heint skilið að komast áfram. Liðið lék lengst af betur en GWD þó ekki sé hægl að ganga fram- hjá þeirri staðreynd.að tnark- vörður liðsins, Cales Hellgren, átti stærstan þátt i árangri liðsins. VFL Gummersbach lék einnig i keppni bikarmeistara. Mótherji var Slavia Prag. Fyrri leikur liðanna var leikinn í Dortmund. Þar sigraði Gummersbach með 19—15. Síðan fylgdu 500 stuðningsmenn Gummers- bach til Prag sl. sunnudag en leikið var i Slavia-höllinni. Leiknum var sjónvarpað beint bæði í Tékkóslóvakiu og Vestur-Þýzkalandi. Gummersbaeh hefur átt i nokkrum erfiðleikunt að undanförnu i Bundeslígunni og á nú enga möguleika á meistaralitlinum. Liðið virðist þó vera að finna sitt gamla form, alla vega var þessi síðari leikur liðsins gegn Tékkunum hreint frábær. Sérstaklega var varnarleikurinn stór- kostlegur, stjórnað af bezta varnar- manni i hcimi, Heiner Brand. Athyglis- vert var að Rudi Rauer, einn af mark- vörðum heimsmeislaraliðs Veslur- Þjóðverja, stóð ekki í markinu að þessu sinni heldur komungur piltur, Thiel að nafni. Hann komst mjög vel frá hlutverki sínu. Tékkarnir gripu strax til þess ráðs að konta vel út á móti Erhard Wunderlich, stórskyttu Gummersbach. Þetta opnaði þó glufur i várnarleikinn en áberandi var hversu líkantlegur styrk- leiki leikmanna Gummersbach var ntiklu meiri. Lokatölur leiksins urðu 22—15 Gummersbach í vil. Gumm- ersbaeh er óneitanlega sigurstrangleg- ast í keppni þessari, þegar lekið er tillil til þess, að lið frá austur-blokkinni eru ekki með vegna undirbúnings landslið- anna fyrir ólympiuleikana. Sigurstranglegast í keppni meistara- ,liða er annað vestur-þýzkt lið, nefnilega Evrópu- og Þýzkalandsmeistarar TV Jiirgen Franke, linumaður Dankersen, var bezti maður liðsins gegn Heim. Sex urðu mörkin hans i leiknum. Grosswallstadt. l.iðið lék gegn Partizan Bjclovar í 8-liða úrslitunt. Fyrir leik lið- anna i Júgóslaviu lauk rneð sigri Slav- anna 14—12 eftir að Bjelovar hafði náð 14—7 forustu. Leikur liðanna hér í Þýzkalandi var hreini út sagt Ijótur. Hvað eftir annað urðu danskir dómarar að slöðva leik- inn eftir að einhver leikmaður lá í valn- ttm cftir andlilshögg. Bæði liðin léku af gifurlegfi hörku enda til mikils að, vinna. 11 —10 leiddu Júgóslavarnir i hálfleik og þeir höfðu komið á óvarl fyrir rnjög hraðan og skemmtilegan handbolta. Um miðjan síðari hálfleik- inn var eitts og klippt væri á þráð i leik Bjelovar — svipað og i .lúgóslavíu en þá skoraði liðið ekki mark síðustu 20 mínúlurnar. Grosswallstadt seig hægl og rólega frant úr. 19—14 varð mesti munurinn en 21 —17 vann Grosswall- sladt og er því koniið í fjögurra liða úr- slit. Enn einu sinni var markvörður Grosswallstadl, Manlred Hoffntann, í hörku formi og bjargaði liði sinu á mikilvægum augnablikum. Vegna þessara Evrópuleikja var lílið unt að vera i bundeslígunni. Urslil i þgim leikjunt, sent leiknir voru um síð- usm helgi, urðu þessi: Grambke — Kiel 16—14 Flensburg—Birkenau 15—12 Hofweier — Göppingen 15—12 Húlienberg — Dielzenbach 16—10 I eikjum Dankcrsen Gumniersbach, Grosswallsladl — Tussem Essen var frestað. TV Grantbke hefur lekið slóri siökk fram á við. Hefur sigrað í 6 af siðustu 7 leikjunum. Hefur þar með unnið sig upp úr 13. sæti í það sjöunda. I mikltim baráltuleik frammi fyrir 5000 áltórf- endunt i Bremen vann Grambke Kiel 16—14. Flensbttrg sigraði i þriðja sinn i bundesligunni, nú 15—12 gegn llirke- nau. Bæði þessi lið léku i 2. deild sl. vetur og munu að öllum líkindum leika þar næsta vetnr. Hvað falllið sneriir er mikil barálla um þriðja lallsælið. Hof- weier náði i Ivö mikilvæg slig gegn Göppingen. Hér var unt slagsmálalcik að ræða og margir fengu að kæla sig. Stærsta sigur vann Húttenberg, 16— 10, á Dietzenbach. Dielzenbach á erfiða leiki framundan og það verður örugglega ekkeri gefið efiir lil að forð- asi fallsætið. Staðan er nú þessi: Grosswallst. 15 II 3 1 276—208 25 Milbertsh. 15 9 2 4 238—224 20 Hiitlenberg 16 9 2 5 279—276 20 Gummersb. 15 8 2 5 277—233 18 Essen 15 7 3 5 258—229 17 Netlelstedl 15 8 1 6 240—241 17 Grambke 16 8 1 7 263—258 17 Göppingen 16 7 1 8 266—261 15 Dankersen 14 6 2 6 21 1—228 14 Dielzenbach 15 6 1 8 200—237 13 Hofweier 16 6 1 9 290—284 13 Kiel 16 6 0 10 277—281 12 Birkenau 16 3 2 II 247—291 8 Flensburg 16 3 1 12 236—307 7 Kærkveðja, Axel Axelsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.