Dagblaðið - 08.02.1980, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 08.02.1980, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980. Washington: Hætt við frekari efna- hagsþvinganir gegn íran — tilboð um samstarf gegn ógnun frá Sovétríkjunum endumýjað Stjórnin i Washington hefur lagt allar frekari hugmyndir um efnahags- legar þvinganir gegn stjórn írans á hilluna, í það minnsta að sinni. Jafn- framt hefur óformlegt tilboð um samvinnu ríkjanna gegn sameiginleg- um óvini, Sovélríkjunum, verið endurnýjað. Þelta er j)ó háð því að samkomulag náist um að gíslarnir fimmtíu í sendiráðsbyggingunni í Teheran verði látnir lausir. Tilboð jietta hefur legið í loftinu undanfarna daga en var gert opinbert til þess að auka líkurnar á að samn- ingar um gíslana náist sem fyrst við hinn nýkjörna forseta irans, Bani- Sadr. Jimmy Carter, forseti Bandarikj- anna, sagðist i gær vera ákveðinn í að auka öll tengsl Bandaríkjanna við Bandarikjamenn gera sér vonir um að samningar um frelsun gislanna i Teheran gangi betur eftir að Bani-Sadr hefur tekið við embætti forseta trans. ríki múhameðstrúarmanna. Kom þetta fram í ávarpi hans á fundi með menntaskólakennurum í Washington af trú Múhameðs. — Við viljum ieggja fram aðstoð okkar við allar þær þjóðir sem vilja vinna að friði. Við viljum berjast gegn stórum valdablokkum. Forsel- inn lók fram að hann væri einn úr þeim hópi Bandaríkjamanna sem væru reiðir við íransstjórn vegna löku gíslanna í bandaríska sendiráð- inu í Teheran. Slík reiði væri þó eng- an veginn þannig að hún beindist gegn öllu því fólki sem aðhylltist múhameðstrú. Jimmy Carter gætti þess vandlega að nefna aldrei íran beint eða stjórnina þar. Gaf hann aðeins óbeint í skyn að hann ætti við íran er hann nefndi reiði sína. Akvörðun Bandaríkjastjórnar um að hætta við aukningu á viðskipta- þvingunum hefur verið metin þannig að aukinnar bjarlsýni gæti í Washington um að takast megi að semja um frelsun gíslanna í sendiráð- inu sem búnir eru að vera í haldi í níutiu og sjö daga. lnnrás stúdem- anna í sendiráðið var hinn 4. nóvem- ber síðastliðinn. Talið er að Bani-Sadr, nýkjörinn forseli Írans, hafi fullan hug á að ná samkomulagi um gíslana. Ekki er þó ljóst enn hve völd hans og áhrif verða mikil í framlíðinni. Bani-Sadr er þegar kominn í háværar deilur við stúdentana sem halda sendiráðsbygg- ingunni og ekki er heldur ljóst hvort hann getur skipað þeim fyrir verkum. —rr) Smurbrauðstofqn BJORNINN Njáisgötu 49 - Simi 15105 Það skeðurhjá Skeifunni Óaðfinnanlegur, betri en nýr. Simca 1508 GT árg. 1979, ekinn 9000 km. Rafknúnar rúður, útvarp + segulb. Verð 6.500.000. Einn mesti dekurbill sem við höfum fengið til sölu. Mercury Monarch árg. 1977, sjálf- skiptur m/öllu, 6 cyl. Verð 6.100.000. Þessi glæsilega fasteign á hjólum er til sölu, árgerð 1978, ekinn 32.000 km, útvarp og segulband. Bfll i 1. flokks á- standi. Verð 7.500.000. Til sölu Scout Traveller árgerð 1978, ekinn 6.000 km, 8 cyl. beinskiptur með útvarpi og segulbandi. Eyðsla ca 14 Iftrar pr 100 km. Aðallitur rauður, mjög fallegur bfll. Verð 9,8 millj. Skipti koma til greina. Austin Mini árg. 1978, ekinn 20.000 km, silfurgrár með svörtum vinyltoppi. Verð 3.100.000. Rover 3500 árg. 1978, gulur, ekinn 28.500 km sjálfskiptur, aflstýri, afl- hemlar, sportfelgur, segulband. Verð 9,3 millj. Auk þess í sýnignarsa/ Mazda 929 2 dyra árg. 1977. Mazda 929 2 dyra árg. 1975. Range Rover árg. 1976. Mercury Comet 2 dyra árg. 1974. AMC Concord 2 dyra árg. 1978. Lada 1600 árg. 1978. Saab 99 GL sjálfsk. árg. 1978. Ford Bronco árg. 1972 auk fjölda annarra bifreiða því aö sýningarsalur okkar rúmar 70 bifreiðir. Bílasa/an --------------Skerfan---------- Skerfunni 11 Símar84848 — 35035 , mm Brezkur stáliðnaður er enn nær algjörlega lamaður vegna verkfalla, sem ekki sér fyrir endann á. Myndin sýnir kröfugöngu verkfallsmanna f suðurhiuta Wales. Lake Placid: TAIWAN FÆR AB KEPPA UNMR fAna KÍNA Dómari í Plattsburgh í New York- ríki úrskurðaði í gær að keppendur frá Taiwan skyldu hafa heimild til að keppa undir kínverska fánanum og láta leika kínverska þjóðsönginn við sigur á vetrarólympíuleikunum i Lake Placid. Er þá átt við þann fána sem Taiwanstjórn notar og þann þjóðsöng sem hún kýs að nota i nafni Kínverska lýðveldisins. Taiwan- stjórn, sem er skipuð þeim sem biðu ósigur fyrir kínverskum kommúnisl- um árið 1948, hefur ávallt talið sig eiga að stjórna öllu á meginlandi Kína og koma fram fyrir hönd fólksins þar. Það var reyndar ekki fyrr en eftir að ráðamenn í Peking og Washington sættust að Taiwanstjórn missti sæti Kína hjá Sameinuðu þjóðunum. Dómsúrskurður þessi fer algjör- lega i bága við samþykkt alþjóða- ólympiunefndarinnar frá þvi i desem- ber síðastliðnum. Samkvæmt henni. áttu keppendur frá Taiwan að keppa sem Tapeikinverjar á leikunum. Á sama fundi voru Kínverjar eða þeir ráðamenn sem sitja i Peking teknir inn í alþjóðaólympiusamtökin. Mál þetta reis vegna kröfu skíða- manns frá Taiwan, sem krafðist þess að vetrarólympiuleikunum yrði frestað á meðan hann næði andlegu jafnvægi eftir vonbrigðin yfir því að fá ekki að keppa undir merkjum kín- verska lýðveldisins. Talsmaður alþjóðaólympíuleik- anna sagði í Lake Placid i gær að nær víst væri að þessum úrskurði dóm- arans i Plattsburgh yrði áfrýjað til æðri dómstóls.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.