Dagblaðið - 08.07.1980, Side 12

Dagblaðið - 08.07.1980, Side 12
12 íþróttir íþróttir . Iþróttir DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1980. Myndin til vinstri sýnir annað mark KR i uppsiglingu. Júl af fastri yfirgjöf Eliasar Guðmundssonar. Á myndinni myndinni) sent knöttinn i netið or þeir F.lías (t.v.) og Ágúsl ® REYNIST BETUR! Mesta úrva/ bílhljómtækja. Mestu gæði—Roadstar gæði. Hvergi betra verð. Sendum um alftlandl ísetning á staðnum. BÚÐIN SkiPho,ti19 BUÐIN s|m| 298oo. Fram i kennsli h já KR í gærfc —Vesturbæingarnir möluðu toppliðið 4-1 og Hal KR-ingar sýndu og sönnuðu fyrir landslýð i gærkvöld að þeir geta leikið knattspyrnu eins og hún gerist bezt hér á landi. Þeir tóku topplið deildarinnar, Fram, i algera kennslu- stund i sfðari hálfleiknum i gærkvöld og sigruðu með yfirburðum, 4—1. Var sá sigur fyllilega sanngjarn og með honum hafa KR- ingar opnað 1. deildina upp á gátt. Vestur- bæingamir geta heldur betur vel við unað því þeir hafa krækt sé f 7 stig i sfðustu 4 leikjum eftir afleita byrjun i mótinu. Það er óhætt að segja að KR-ingar hafi loks f gær sýnt sitt rétta andlit i sumar en Framarar voru að . sama skapi dauflr. Virtust þeir alls ekki vilja trúa því að þeir gætu tapað fyrir KR. Bæði liðin léku af mikilli varfærni í byrjun og var leikurinn lítt spennandi á að horfa framan af. Kristinn Jörundsson fékk mjög gott færi á 16. mínútu en var allt of seinn og KR-ingar náðu að bjarga. Síðan tók að færast fjör í leikinn. Á 28. mín. átti Trausti Haraldsson, hinn sókndjarfi bakvörður Framara, hörkuskot að marki en Stefán Jóhannsson, ungur, efni- legur en dálítið gloppóttur markvörður ennþá, varði mjög vel. Tveimur mínútum síðar gerðist afar umdeilt atvik. Jón Odds- son sneri þá á vörn Fram og skoraði faiiegt Staðan í 1. deild Eftir hinn gifurlega óvænta en sanngjarna 4—1 sigur KR á Fram í 1. deildinni í gær- kvöld er staðan nú þannig: Valur 8 6 0 2 21- -9 12 Fram 8 5 2 1 10- -6 12 Akranes 8 4 2 2 12- -9 10 KR 8 4 1 3 9- -8 9 Víkingur 8 2 4 2 8- -8 8 ÍBV 8 3 2 3 14- -15 8 Keflavik 8 2 3 3 7- -11 7 Breiðablik 8 3 0 5 13- -13 6 Þróllur 8 1 2 5 5- -10 4 FH 8 1 2 5 12- -22 4 Markahæstu menn: Matthias Hallgrfmsson, Val 9 Sigurlás Þorleifsson, ÍBV 5 Ingólfur Ingólfsson, Breiðabliki 5 Sigþór Ómarsson, Akranesi 4 SigurðurGrétarsson, Breiðabliki 4 Helgi Ragnarsson, FH 4 mark af vítateig en það var dæmt af vegna rangstöðu. Þótti mönnum sem þarna hefði línuvörðurinn verið og fljótur á sér. Fljótt skipast veður í lofti og á 32. mínútu tóku Framarar forystu. Trausti óð þá inn í vítateig KR og tókst að skora með miklu harðfylgi. Með því að vera betur vakandi átti KR- vörnin að koma i veg fyrir þetta mark. Hafi einhver búizt við því að KR-ingarnir gæfust upp var það helber misskilningur. Markið gerði hreinlega ekki annaðen að koma þeim í gang og svo um munaði. Frá þeirri mínútu er Fram komst yfir lék aldrei neinn vafi á því hvorum megin sigurínn lenti. Vesturbæing- arnir gáfu aldrei þumlung eftir og börðust eins ogijón útígegn. Strax á næstu minútu munaði ekki miklu að Sigurður Pétursson jafnaði metin en skalli hans eftir fyrirgjöf Jóns Oddsonar hafnaði í þverslá. Framarar rönkuðu aðeins við sér og ekki munaði nema hársbreidd að Sigurður Indriðason sendi knöttinn í eigið net af markteig. Á lokaminútu fyrri hálfieiks gerðist margt í senn. Fyrst skaltaði Marteinn svo naumlega framhjá að fiestir voru farnir að fagna marki og síðan jöfnuðu KR-ingar. Elias Guðmundsson átti allan heiður af því marki. Hann lék eldsnöggt upp vinstri væng- inn og dró til sín tvo varnarmenn. Renndi síðan knettinum út á Hálfdán sem gaf vel fyrir. Júlíus missti boltann langt yfir sig og þar var Sæbjöm Guðmundsson réttur maður á réttum stað og skoraði af markteig. Frá upphafi síðari hálfieiks var það aug- Ijóst að KR-ingarnir ætluðu sér ekkert nema sigurinn. Sóttu þeir látlaust fyrstu 15 mínút- urnar en Framarar áttu næstu 5 og fengu þá tvö færi. Fyrst gaf Guðmundur Steinsson vel fyrir eftir glæfralegt úthlaup Stefáns og síðan greip Stefán snaggaralega inn í er Kristinn Jörundsson skallaði af markteig. En þar með var þætti Fram lokið. Á 67. mínútu tóku KR-ingarnir verðskuld- aða forystu. Elías Guðmundsson gaf þá hörkufast fyrir markið og Jón Oddsson skoraði af markteig. Rétt áður hafði Magnús Jónatansson skipt þeim Ágústi Jónssyni og Sverri Herbertssyni inn á fyrir Sæbjörn Guðmundsson, sem var orðinn þreyttur, og Hálfdán Örlygsson. Snjöll ráðstöfun atarna hjá Magnúsi því bitið í sókn KR jókst til muna. Tvívegis skapaðist hætta við mark Fram áður en KR bætti sínu þriðja marki við á 77. mínútu og þvílíkt glæsimark! Ágúst renndi

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.