Dagblaðið - 08.07.1980, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLL1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
i
Shouse til liðs
við Niarðvíkinga
Danny Shouse, lágvaxni blökku-
maöurinn sem lék með Ármanni i
körfuknallleik sl. leiktimabil gengur að
öllum likindum i raðir Njarðvikinga á
næslunni. Verið er að semja við Shouse
um þessar mundir og kemur hann
hingað lil lands um miðjan ágúst, ef
Anderlecht-
njósnararnirlétu
ekkisjásig
Ofl hafa verið uppi raddir um það að
miðherjinn ungi í IBK-liðinu, Ragnar
Margeirsson, sé mjög til athugunar hjá
hinum ýmsu liðum erlendis og það
ekki af lakara taginu. Seinasl frétlisl að
fulllrúar frá Anderlechl hafi ællað að
fylgjast með honum í leik ÍBK og Vals
á taugardaginn en þeir munu ekki hafa
lálið sjá sig, að minnsta kosli ekki eftir
leikinn, — og enginn hefur orðið var
við þá ennþá, hvað sem seinna verður.
-emm.
Leiknismenn
til Danmerkur
Nú fyrir nokkrum dögum héll 65
manna hópur úr Leikni i Breiðholti
áleiðis til Danmerkur til þátltöku í
Dania Cup. Voru þetta piltar úr 3., 4.
og 5. flokki Leiknis en Breiðholtsliðið
er nú að ná upp sterkum yngri
flokkum. Mörg lið hafa eða munu
senda yngri flokka sfna utan i sumar og
eins og er eru Eyjamenn með húp f
Danmörku.
allt fer eftlr áætlun. Shouse verður
mikill fengur fyrir UMFN, hann er frá-
bær leikmaður og skoraðl mest 100 stig
i leik með Ármanni, en oft á milli 50 og
70.
Hins vegar getur svo farið að
Guðsteinn Ingimarsson leiki ekki með
UMFN f vetur og leggi jafnvel körfu-
knattleikinn á hilluna. Hann er i
hjónabandshugleiðingum og hyggst
flytja i Kópavog á komandi hausti.
-emm.
►
Danny Shouse
næsta vetur.
leikur með Njarðvik
Steini Bjama á ný
í áhugamennskuna
Þorsteinn Bjarnason markvörður
sem leikið hefur með La Louviere í
Belgíu, kemur væntanlega heim um
aðra helgi án samnings, að því að frétt-
ir herma. Vonir stóðu til að Þorsteinn
færi til annars félags og var sami milli-
göngumaður og þegar Þorsteinn réðst
til La Louviere, en tilboðið var ekki svo
gott að Þorsteinn tæki þvi. Eins og
málin standa I dag mun Þorsteinn aftur
koma i hóp félaga sinna i ÍBK i knatt-
spyrnunni og að sjálfsögðu ganga til
liðs við félaga sína i UMFN í körfu-
knattleiknum. -emm.
Dagsbrúnarmenn fengu
70 þúsund króna sekt
Fyrir nokkru var leik Eflingar og
Dagsbrúnar i E-riðli 3. deildar frestað.
Var i sjálfu sér ekki neitt ýkja
merkilegt við það en nú hifa
Dagsbrúnarmenn fengið i hausinn
70.000 króna sekt og leikurinn dæmdur
þeim tapaður.
Þannig var mái með vexti að Dags-
brúnarmenn mættu á völl Eflingar og
hugðust leika kl. 16 eins og til stóð. Á
síðustu stundu varð það óhapp að
dómari leiksins forfallaðist og varð því
nokkur töf fyrirsjáanleg. Var haft
samband við Rafn Hjaltalin og brást
hann vel við og kvaðst myndu geta
dæmt kl. 18.
Það var siðar en nokkrir leikmanna
Dagsbrúnar máttu við því tveir þeirra
gegna störfum barþjóna í Sjálfstæðis-
. beztur
í opna öldungamótinu um Hornið,
hjá Golfklúbbi Ness, sem fram fór 3.
júlí urðu úrslit þessi i forkeppninni:
nettó
1. Óli B. Jónsson, NK 69
2. Hjalti Þórarinsson, GR 70
3. I.árus Arnórsson, GR 71
Næstur holu á 3. braut var Hjalti
Þórarinsson 139 cm. Næstur holu á 6.
braut var Lárus Arnórsson, 75 cm.
Fæst pútt, Bjami Konráðsson, GR, 30.
Lægsta skor án forgjafar:
1. Krislinn Bergþórsson, NK 84
2. Óli B. Jónsson, NK 85
3. Hjalti Þórarinsson, GR 86
16 beztu halda áfram i holukeppni. 1
húsinu og var þvi útséð um að þeir
gætu mætt til vinnu á réttum tima.
Héldu þeir þvi á brott, svo og megnið
af leikmönnum Dagsbrúnar.
Fyrir skömmu barst þeim svo sú
fregn að leikurinn hefði verið dæmdur
tapaður og félagið dæmt til að greiða
70.000 króna sekt að auki.
-GS/SSv.
Úr leik Keflvikinga og Grænlendinga i gærkvöld.
DB-mynd - emm.
Miklar sveif lur er Kefl-
víkingar unnu Grænland
— heimamenn komust í 6-0 en gestimir svöruðu þrívegis fyrir
sigísíöari hálfleik
ÍBK—Grænland
6:3 (6:0)
Grænlenzka landsliðið gerði hvort
tveggja í gærkvöld, suður i Keflavík,
að valda vonbrigðum og koma svo á
óvart í leiknum við 1. deildarlið ÍBK.
Fyrri hálfleikurinn var eins og svartasta
nótt á norðurskautinu, fyrir Grænlend-
ingana, sem sex sinnum máttu sækja
knöttinn i netið, án þess að geta svarað
fyrir sig. í seinni hálfleik birti fljótt til,
— á stundarfjórðungi skoruðu þeir
þrjú mörk og sóttu af miklum krafti að
marki ÍBK. Var engu likara en að um
nýtt lið væri að ræða sem kom inn á
eftir hlé.
Kcflvíkingar áttu alls kostar við
Grænlendingana fyrri hálfleikinn, sér-
staklega eftir að Steinar Jóhannsson
hafði brotið ísinn og skorað með föstu
skoti út við marksúlu, reyndar skömmu
eftir að Grænlendingur, miðherjinn
knái Karl Iversen, hafði misnotað
herftlega gott færi. Hilmar Hjálmars-
son skoraöi síðan annað mark ÍBK og
reyndar fjórða og fimmta þar af eitt
með kollspyrnu. Steinar Jóhannsson,
læddi inn þriðja markinu. Fallegasta
mark leiksins skoraði hins vegar Ólafur
Júlíusson, með skáskoti utan frá víta-
teigslínu, 6:0.
Grænlenzka liðið
heldur hikandi í
sem hafði verið
sóknaraðgerðum
sínum í fyrri hálfleik þrátt fyrir,
gott úthald og leikni, kom nú ákveðið
til leiks. Karl Iversen fyrirliði skoraði
fyrsta markið eftir aukaspyrnu þegar
í upphafi seinni hálfleiks. Martin,
Jeremíasen.braust skömmusíðarí gegn
um ÍBK-vörnina og renndi knettinum
í netið, 6:2 Kristoffer Ludvigsen
skoraði svo þriðja markiö úr víta-
spyrnu 6:3. Nokkur hrollur fór um
áhorfendur, sem voru þó nokkuð
margir i bliðviðrinu, ætluðu Grænlend-
ingarnir að jafna i þessum markaregns-
leik? Heimamenn tóku sig á og leikur-
inn jafnaðist aftur. Undir lokin þjörm-
uðu Keflvikingar mjög að grænlenzka
markinu en sóknarmenn þeirra voru
um of eigingjarnir með knöttinn svo
grænlenzka vörnin sá við þeim áður en
í óefni var komið eða þá að þeir mis-
notuðu marktækifærin með himin-
háum skotum.
Auk þeirra Grænlendinga sem skor-
uðu vöktu athygli varnarleikmennirnir
Lars Olsen og Simon Iuebea. Sterk-
byggðir og sparkvissir. Grænlending-
arnir eiga ýmislegt ólært, sérstaklega
hvað skipulag snertir, en þeir kunna
líka sitt af hverju I þeirri eðlu íþrótt
knattspyrnunni og ættu með sama
áframhaldi að verða vel gjaldgengir í
keppni meðal nágrannaþjóða sinna á
næstu árum, þótt þeir búi við erfiðar
aðstæður. Dómari í leiknum var
Halldór Gunnlaugsson og dæmdi vel.
Sigurður
Sverrisson
Vel heppnuð utan-
landsferð hjá ÍBK
Fjórði flokkur ÍBK, undir leiðsögn
Ástráðs Gunnarssonar, sigraði í
alþjóðlegri keppni i Hjörring i Dan-
Skagamenn hefja söfnun
— ÍA hefur gefið 500 þúsund sem upphafsf ramlag í sundlaugarsjóð
Það hefur lengi verið draumur
manna á Akranesi að eignast almenni-
lega sundlaug. Sú, sem nú er í notkun,
er orðin ærið gömul, byggð í kringum
strið. Hún er aðeins 12,5 metrar á
lengd, en engu að siður hafa Akur-
nesingar átt einhverju harðskeyttasta
sundfólki landsins á að skipa um langt
árabil. Má þar fyrst og fremst þakka
frábærum þjálfurum, Ævari
Sigurðssyni, Helga Hannessyni og nú í
seinni tið Snorra Magnússyni.
Nú sem stendur eru allar götur
bæjarins sundurgrafnar þar sem verið
er að koma hitaveitu fyrir i bænum.
íþróttabandalag Akraness stofnaði fyr-
ir stuttu sundlaugarsjóð með 500 þús.
króna framlagi og nú geta allir þeir er
áhuga hafa á að styrkja þessa byggingu
lagt fé i sjóðinn. Er takmarkið að nægt
fé verði til að hefja framkvæmdir er
hitaveitan verður komin á Akranesi.
Holmes vann auðveldlega
Larry Holmes varði meistaratitil
sinn í þungavigt i hnefaleikum í gær-
kvöldi er hann rotaði mótherja sinn,
Scott Ledoux, i 6. lotu. Ledoux var þó
ekki á þeim buxunum að gefast upp en
varð að hætta strax i 7. lotu þar sem
heiftarlega blæddi úr skurði ofan við
vinstri augabrún hans.
Þetta er sjöundi sigur Holmes i röð
þar sem hann afgreiðir andstæðinginn
með rothöggi og aðeins hinn ódauðlegi
Joe Louis hefur afrekað slikt. Er bar-
daginn var stöðvaður lýstu hinir 8.000
áhorfendur, sem flestir voru á bandi
Ledoux, yfir vanþóknun sinni með því
að baula.
Hér er um brýnt verkefni að ræða og
ekki er að efa að fjölmargir bæjarbúa
hafa áhuga á að leggja þessu málefni
lið.
Steinunn hætt
á skíðunum
Steinunn Sæmundsdóttir lýsti þvi
yfir um helgina að hún væri endanlega
hætt keppni á skiðum. Þessi ákvörðun
hefur legið nokkuð lengi í loftinu þar
sem Steinunn hefur orðið að fresta námi
vegna skiðaiðkana. Mun hún (aka til á
fullu við golfið en hún er nú ein af
þremur snjöllustu golfkonum landsins.
Vissulega er mikil eftirsjá að Steinunni
úr skíðabrekkunum, en hún hefur um
nokkurt árabil verið allra kvenna
fremst í iþróttinni.
mörku sem haldin var dagana 3.—6.
júlí sl. Þátt tóku lið frá Danmörku,
Noregi, Vestur-Þýzkalandi, Frakklandi
Svíþjóð, Finnlandi.
ÍBK lenti i riðli með Þjóðverjum,
Svíum og Finnum. Unnu þeir alla sína
leiki, Finna með 3:1, Þjóðverjana 3:0
og Sviana 1:0.
Urslitaleikurinn var svo á milli Frem
sem er frá vinabæ Keflavíkur,
Hjörring. Hefndu nú Keflvíkingar
harma sinna frá þvi i hittifyrra og
sigruðu með 3:0, eftir skemmtilegan og
góðan leik. Flest mörk i ferðinni
skoraði Sigurður Ingimundarson en
Ragnar örn Jönsson stóð sig jafnbezt
leikmanna ÍBK. Liðið byrjaði ekki vel,
að sögn Ástráðs þjálfara, en sótti sig
méð hverjum leik. Móttökur voru frá-
bærar i alla staði. Hvert lið hafði sér-
stakan leiðsögumann frá Hjörring og
sá sem nú gegndi þvi starfi þekkir orðið
ÍBK eftir fjögur skipti. Aðstaða öll er
til fyrirmyndar, þrír vellir og von á
þeim fjórða, þar af tveir flóðlýstir.
Félagsheimili og búningsherbergi,
þvottavélar og þurrkara fyrir iþrótta-
fötin og fleira mætti upp telja, sagði
Ástráður. Hvað hin liðin snerti sagði
hann þau kannski öllu leiknari með
knöttinn en ÍBK. Skipulagiö væri hins
vegar ekki eins gott og það gerði gæfu-
muninn i leikjunum. Auk Ástráðs voru
i fararstjórninni þeir Elías Jóhannsson
og lngólfur Falsson.