Dagblaðið - 24.11.1980, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 24.11.1980, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1980. Eslent Erlent Erlent Miklir jarðskjálftará Suðurítalíu: Kirkjan hrundi ímidrimessu —Tugir manna látnir og mörg hundruð særðir Góðar fréttir frá Þetta er nýja FUJICA STX-1 Ijósmyndavélin. Vönduö „reflex" Ijósmyndavél meö innbyggöum Ijósmæli. FUJICA STX-1 er sterkbyggö og einföld í notkun. Skiptanleg linsa, - ný „bayonet" linsufesting. Úrval fylgihluta. Vegna innkaupa beint frá Japan getum viö boöiö FUJICA STX-1 á aöeins Kr. 187.790 Nýkr. 1877,90 sem er mun lægra verö en nokkur önnur sambærileg Ijósmyndavél fæst fýrir. Líttu inn og kynntu þér nýju FUJICA STX-1, - þaö borgar sig. LJÓSMYNDAVÖRUVERZLUNIN AMATÖR Laugavegi 55 simi 12630 1 Björgunarsveitir leituðu í nótt að fórnarlömbum mjög öflugs jarð- skjálfta sem varð á Suður-italiu í gær- kvöld. í morgun var ekki orðið ljóst hve mörg fórnarlömb jarðskjálftans höfðu orðið en talsmaður stjómvalda sagði: „Það eru að minnsta kosti sextíu látnir og hundruð manna særðir og eigaeftir að veröa fleiri.” Upptök jarðskjálftans virðast hafa verið í fjallahéraðinu Potenza þar sem sjúkrahús voru orðin troðfull af særðu fólki, sem slasazt hafði á einn eða annan háttí jarðskjálftanum. Þúsundir manna flúðu út á götur i skelfingu og lögreglan bað um blóðgjafir og tjöld. Alls varð vart sjö jarðskjálfta á Suður-Ítalíu í gærkvöldi og mældist sá sterkasti 6,8 gráður á Richterskvarða. Hann fannst um alla Ítalíu. Talsmenn sjúkrahússins f Potenza sögðust óttast mjög alvarlegar afleiö- ingar jarðskjálftans í Balvano, sem er lítill bær fjörutíu kílómetrum fyrir vestan Potenza. „Aðstæður hér eru skelfilegar,” sagði lögregluforingi í Balvano, sem ítölsku fréttastofunni Ansa tókst að ná simasambandi við. „Það voru hundr- uð manna, þar á meðal börn, við sunnudagsguösþjónustu i kirkjunni þegar hún hrundi. Við leggjum okkur alla fram en það sker hjarta manns að sjá sundurkramda líkama hinna látnu og særðu,” sagði hann. Lögreglan í Potenza sagði að svo virtist sem helmingur húsanna í Bal- vano hefðu eyðilagzt. Innanrikisráð- herra ftalíu, Emilio Colombo, hélt til Potenza strax að loknum viðræðum sem hann átti við Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sem nú er í opinberri heimsókn á Ítalíu. REUTER Afganistan: Stórsókn Rússa Að sögn brezku útvarpsstöðvarinnar BBC hafa Sovétmenn nú hafið stór- sókn í Afganistan, þá mestu sem um getur síðan íhlutun þeirra í landinu hófst. Kabul útvarpið greindi frá því í gærkvöldi að „heræfingum” yrði haldið áfram í fjórum héruðum Afgan- istan. Samkvæmt indverskum heimild- um eiga Sovétmenn i hörðum bardaga við uppreisnarmenn í tveimur af þess- um héruðum, Nangahar og Parwan. Bremsu- - klossar Og borðar I flestaH® Límum og rennum diska og skálar Límum á kúplingsdiska o. fl. © Qlímingar sf Ármúla 22 Símar 84330 og 84181 Walesa og félagar hans i hinu sjálfstæðu verkalýðsfélögum hafa enn einu sinni sett stjórnvöldum Póllands úrslitakosti. Verkamenn hóta stjómvöldum Samtök hinna sjálfstæðu pólsku verkalýðsfélaga hafa sett stjórnvöldum landsins úrslitakosti: Krefjast félögin þess að prentari úr samtökum þeirra, sem handtekinn var síðastliðinn föstu- dag, verði látinn laus fyrir miðjan dag í dag eða að ríkissaksóknari Póllands mæti á fund verkarhanna og útskýri handtöku prentarans. „Verkamenn- irnir munu þá taka ákvörðun um til hvaöa aðgerða skuli gripið,” sagði einn talsmanna hinna sjálfstæðu verkalýðs- samtaka. Virðist nú sem átök verkamanna og stjórnvalda fari harðnandi á ný í Pól- landi auk þess sem Lech Walesa, leið- togi hinna sjálfstæðu verkalýðssam- taka, hefur verið gagnrýndur mjög harðlega i tékkneskum og austur-þýzk- um fjölmiðlum um helgina. Var hann þar kallaður and-kommúnisti og and- stæðingur slökunarstefnunnar. ‘i* Handunninn matarsett tesett kaffisett HÚFÐABAKKA 9 JU SÍMI85411 WM~ [ITOfiW TtfwH Réttarhöldin íPeking: „ÉG HLÝDDf LIN «40" Sérstakur dómstóll í Peking hóf um helgina yfirheyrslur í máli Wu Faxian, fyrrum herforingja í flughernum. Hann er einn fimm háttsettra herfor- ingja sem gefið er að sök að hafa ætlað að myrða Maó Tsetung og gera bylt- ingu í Kínaárið 1971. Athygli vakti, að bæði í dagblaði í Peking og útvarpi voru stuðningsmenn fjórmenningaklíkunnar varaðir við að reyna að spilla réttarhöldunum. Stutt mynd var sýnd frá réttarhöld- unum í sjónvarpi og þar kom fram að Wu mælti kröftuglega fyrir vörn sinni. Eina setningin frá honum sem náði að yfirgnæfa rödd þulsins var: „Ég hlýddi því sem Lin Biao sagði mér að gera.” Fyrir tveimur dögum hafði Dagblað al- þýðunnar í Peking eftir honum: „Mér eru glæpir mínir fullkomlega ijósir og ákæran er byggð á staðreyndum. Hún er mjög sanngjörn og nefnir þá sem hlut áttu að máli.” Afstaða Wus virðist hafa orðið þess valdandi að hann er yfirheyrður fyrstur sakborninganna. Ceausescu Rúmeniuforseti var siðasti útlendingurinn sem boðið var upp á áfengi í opinberri veizlu i Noregi. CEAUSESCU FÉKK SÍDASTA S0PANN Norska ríkisstjórnin hefur nú ákveð- ið að hætta að veita áfengi í opin- berum veizlum. Norðmenn hafa ákveð- ið að feta í fótspor Svía í þessum efnum og veita aðeins' létt vin í veizlum á vegum rikisstjórnarinnar. Siðasti útlendi gesturinn sem fékk veitingar af sterkara taginu var Ceausescu Rúmeníuforseti sem var á ferð um Norðurlönd í síðustu viku. Með þessari ákvörðun sinni vill ríkis- stjórnin ganga á undan með góðu for- dæmi í baráttunni við áfengisbölið.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.