Dagblaðið - 24.11.1980, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1980.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Oriana Fallaci, blaðakonan fræga, sem rœtt hefur við Khomeini, Kissinger og aðra valdhafa:
Elskaði grísku andspymu-
hetjuna Panagoulis
— og hefur nú
ritað bók um
þriggja ára
samband þeirra
Alexander Panagoulis var grísk and-
spyrnuhreyfingarhetja sem árið 1968
reyndi að sprengja toppfígúruna í
grísku herforingjastjórninni, Papado-
poulos, i loft upp. Það mistókst og
Panagoulis hafnaði' i miður vistlegri
dýflissu þar sem hann var pyntaður á
margvíslegan hátt. Meðal annars var
bandprjónum stungið upp í þvaggöng
hans og rafskaut tengd við kynfærin.
Hann hafði hlotið dauðadóm en var
náðaður við stjórnarskipti eftir fimm
ára fangavist, árið 1973.
Meðal þeirra blaðamanna, sem þá
liggja á banabeði og ég yrði að koma
strax. Ég steig upp í flugvél og það
verður víst að viðurkennast að þá þegar
var Amor eitthvað kominn i spilið.
Þegar ég kem á spítalann liggur hann
þar, í rúminu og virðist að bana kom-
inn. En allt í einu sprettur hann upp
með kamapavínsflösku. Hann hafði
leikið á mig. Og mér var ekki undan-
komu auðið.”
Þetta var upphafið að ástarævintýri
sem stóð í þrjú ár, eða þangað til Pana-
goulis var komið fyrir kattarnef af póli-
tískum andstæðingum i meintu bílslysi
Oriana Faliaci og Alexander Panagoulis: hetjudýrkendur sem elskuðu hvort annað.
höfðu viðtal við hann, var Oriana
Fallaci.
,,Ég fann strax einhverja spennu
milli min og hans,” sagði hún síðar,
,',en ég hugsaði með sjálfri mér. Þetta
er hættulegt. Varaðu þig, Oriana!”
Þóttist vera
að deyja
„Fljótlega eftir aðég komafturheim
til Rómar,” hélt Oriana áfram, ,,fékk
ég skeyti frá honum. Hann sagðist
við bensínstöð í Aþenu árið 1976.
Oriana gat ekki gleymt honum og í
fyrra sendi hún frá sér bók, eins konar
heimildaskáldsögu i formi eins og helj-
arlangt sendibréf sem er um leið óður
til hinnar látnu hetju. Bókin heitir Un
Uomo og er nú komin út á ensku undir
nafninu A man, sem útleggst Karl-
menni.
Þegar óg sá hvað hann
varð hræddur ...
,,Á okkar fyrsta fundi sá ég í honum
hetju,” segir hún. Og eins og við vitum
hlýtur hetjusaga að fá sorglegan endi.
„Hann var ekki mikið fyrir augað
þá, horaður og gugginn eftir fangelsis-
vistina. Svart yfirskeggið undirstrikaði
fölvann á andlitinu. Annað augað var
galöpið og hörkulegt, hitt hálflokað og
blíðlegt. Hann gekk haltur eftir pynt-
ingarnar og var meiddur á úlnliðunum.
Seinna, eftir að ég hafði kynnzt
honum, sá ég hvernig hann í hitasóttar-
óráði endurlifði kvalirnar í fangelsinu.
Ég breiddi faðminn móti honum og
hann starði á mig í hyldjúpri skelfingu
eins og ég væri fangavörðurinn, Theo-
philoiannakos.
Þá sá ég hvað hann gat orðið
hræddur og það var þá sem ég fór
raunverulega að elska hann, því ég er
sjálf alltaf hrædd en neyði mig til að
sýna hugrekki.”
Það göfugasta:
Pólitfk og ást
,,Bæði vorum við miklir hetjudýrk-
endur,” segir Oriana, „og þess vegna
elskuðum við hvort annað. Og við
höfðum bæði sömu barnalegu hug-
myndirnar um pólitík og ást. Þegar ég
var þrettán ára sagði faðir minn mér að
pólitík væri göfugasta viðfangsefni
mannsandans. Seinna var mér sagt eitt-
hvað álika um ástina.”
Panagoulis freistaði gæfunnar í
stjórnmálum síðustu æviárin, en það
var fremur fnisheppnað.
„Hann var fyrst og fremst hétja og
hann vissi það sjálfur. Eins og hann
sagði réttilega við samverkarriann úr
andspyrnuhreyfingunni: „Þegar lýð-
ræðið sigrar í Grikklandi verðum við
atvinnulausir.”
Oriana bætir við: „Hvað á hetja að
gera á friðartímum? Fara á rjúpna-
veiðar? Eða tefla skák? Þaðerekkert
einfalt mál. Margar hetjur úr and-
spyrnuhreyfingunni fóru að drekka
þegar ekki reyndi á kjark þeirra
lengur.”
Vissi Oriana frá upphafi að endirinn
yrði harmsögulegur? Það er ekki gott
að segja. í bókinni A man rekur hún
gamla arabiska sögu um það, hvernig
enginn fær umflúið sitt skapadægur.
Maður í Ispahan kom heim til sín og
Peter Frampton missti
hljóöfœrin í flugslysi
Enska poppstjarnan Peter Framp-
ton er aldeilis ekki feigur . . . enn að
minnsta kosti. Nokkru eftir að hann
sló í gegn með laginu Show Me The
Way lenti hann í alvarfegu bílslysi og
var í marga mánuði að ná sér líkam-
lega og á annað ár andlega. Fyrir
nokkrum dögum var siðan óttazt að
hann hefði lent í flugslysi í Venezu-
ela. í ljós kom við nánari eftir-
grennslan að hann hafði ekki verið
með í vélinni, en hins vegar eyðilögð-
ust hljóðfæri hans og hljómsveitar
hans að verðmæti um ellefu milljóna
króna.
Frampton og félagar áttu að leika
skömmu síðar á miklum útihljóm-
leikum i borginni San Juan. Þúsundir
aðdáenda höfðu þegar keypt sér að-
göngumiða og búazt hefði mátt við
öllu illu ef hljómleikunum hefði verið
aflýst. Hljómsveitin dreif sig því
þegar í að útvega ný hljóðfæri og
annan útbúnað. Sumt var keypt í
Venezuela og annað sent með hraði
frá Bandaríkjunum. Og sjá: það
náðist að smala öllum hlutunum
saman í tima og konsertinn var hald-
inn.
Peler Framplon lét sér ekki bregða þó afl hann
missti öll hijóðfœrin sin í flugslysi. Hann hófst
þegar handa við að smala saman nýjum og ekki
féil úr einn einasti konsert á hljómleikaferðalagi
hans um Mið> og Suður-Ameriku.
DB-mynd: RagnarTh. Sigurðsson.
sá dauðann standa fyrir utan. „Ég kom
til að . . .” sagði dauðinn. Maðurinn
heyrði ekki meira því í skelfingu stökk
hann á bak fráasta reiðhesti sínum og
þeysti dag og nótt í þrjá sólarhringa og
var þá kominn til borgarinnar Samar-
kand. (Báðar þessar borgir eru kunnar
úr Þúsund og einni nótt.)
Hann stanzaði fyrir rutan gistihús,
varp öndinni léttar og hugði sig slopp-
inn úr allri hættu. En þegar hann gekk
inn kom enginn annar en dauðinn á
TÉKKAR:
Gkr.fyrir áramót-
Nýkr. eftir áramót
Það er áríðandi, að tékkar útgefnir í
desember séu undantekningalaust í gömlum
krónum. Eftir áramótin eiga allir tékkar að vera
í nýjum krónum.
Skrifaðu skýra dagsetningu, hafðu
mánuðinn í bókstöfiim til öryggis. Einnig
getur þú skrifað Gkr. fýrir framan fjárhæð
á tékka fýrir áramót og Nýkr. fýrst eftir áramót.
minni upphæóir-meira verógildi
móti honum, ánægður á svip, og sagði:
„Það var gott þú komst svona stund-
víslega. Ég ætlaði einmitt að biðja þig
aö hitta mig hér á þessari stundu, én í
lspahan leyfðir þú mér ekki að ljúka
setningunni.”
Og kannske hefur Panagoulis fremur
óskað að deyja eins og hetja heldur en
lifa eins og meðalmenni. Og Oriana
hefur séð til þess að hann yrði ekki
huslaðurí kyrrþey.
IHH
52.11
IGÖMLUM
KRÓMJM, ÞÓIT
ÞEIR GREIÐIST
A MÆSTA ARI
Almenningur er hvattur til þess að nota
eingöngu gamlar krónur í öllum viðskipta-
skjölum út þetta ár.
Víxlar, sem samþykktir eru fyrir ára-
mót, en eiga að greiðast á árinu 1981, skulu vera
í gömlum krónum og það skýrt tekið fram.
Munið að það er ekki ráðlegt að samþykkja
ódagsetta víxla.
minni upphæóir-meira verógildi