Dagblaðið - 29.01.1981, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. JANUAR 1981.
1
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Sanjay Gandhi.
Sanjay Gandhi
endurfæddur?
í Nýju Delhí á Indlandi hefur sjö
mánaða gamalt barn orðið tilefni mik-
illar múgæsingar. Indverjar eru nefni-
lega þeirrar skoðunar að barnið sé San-
jay Gandhi endurfæddur.
Sanjay, sonur Indiru Gandhi, var
einn af vinsælustu stjórnmálamönnum
landsins er hann lézt í flugslysi í fyrra.
Það var dagblaðið Hindustan Times í
Nýju Delhí, sem greindi frá því að
barnið, sem er fætt sama dag og Sanjay
Gandhi lézt, hafi vaknað upp og sagt
við móður sína: ,,Ég er Sanjay Gandhi.
Ég vil fá að sjá son minn ...”
Eftir að fréttin birtist hefur lögreglan
orðið að vernda foreldra barnsins fyrir
ásókn forvitins fólks. Foreldrarnir hafa
reynt að hvetja ungbarnið til að gefa út
fleiri slíkar yfirlýsingar en allt hefur
komið fyrir ekki. Sá stutti hefur tekið
þann kostinn að tjá sig ekki meira að
svo komnu máli.
Suður-Afríka:
Njósnari
handtekinn
og kosning-
ar boðaðar
Pieter Botha, forsætisráðherra Suð-
ur Afríku, hefur boðað tO þingkosninga
í landinu í aprílmánuði næstkomandi.
Talið er að ástæðan sé sú, að hann vilji
með því styrkja stöðu sína innan
stjórnarflokksins.
Botha sagði jafnframt við umræður i
þingi S-Afríku, að rússneskur njósnari
hefði verið handtekinn i landinu. Hann
sagði að njósnarinn væri háttsettur í
sovézkuleynilögreglunni, KGB.
FrúTruman
enn hin
hressasta
Bess Truman fékk um helgina að
fara heim af sjúkrahúsi eftir að hafa
legið þar í einn mánuð. Læknarnir
sögðu að frú Truman, ekkja Harry S.
Truman, forseta Bandaríkjanna
(1945—52) hefði fengið bót meina
sinna. Frú Truman er nú 95 ára gömul,
og er sögð hin hressasta eftir sjúkrahús-
dvölina.
Nýi utanríkisráðherrann harðorður í garð Sovétmanna:
Sakar Sovétmenn um að
styðja hryðjuverkamenn
— Alexander Haig þykir ómyrkari í máli en fyrirrennari hans
Alexander Haig, hinn nýi utan- inn og bætti því við að hryðjuverka-
ríkisráðherra Bandarikjanna, gerðist starfsemin tæki nú yfir sæti mann-
I gær ákaflega harðorður í garð réttinda í afskiptum Bandaríkjanna
Sovétmanna og sakaði þá um stuðn- vegna þess að hryðjuverkin ,,væru
•ing við hryðjuverkastarfsemi í heim-' meginorsökin fyrir mannréttinda-
inum. brotum.”
Á sínum fyrsta blaðamannafundi Aðrir talsmenn bandaríska utan-
frá því hann tók við embætti þótti rikisráðuneytisins sögðu að Haig
hann nota hvassara orðalag gagnvart hefði í gagnrýni sinni fyrst og fremst
Sovétmönnum en tíðkazt hefur i átt við það, að Sovétmenn hafa
bandariska utanrikisráðuneytinu þjálfað skæruliða PLO og sent vopn
undanfarin fjögurár. tilLíbýu.
Haig sagði að vilji Bandarikjanna
til að ræða um takmörkun vígbún- Haig sagði einnig á fundi sínum í
aðar við Sovétrikin réðist af því hver gasr, að Bandaríkjamenn mundu
framkoma Sovétmanna yrði á næst- ekki senda vopn til Írans, jafnvel
unni. ekki þau vopn sem þegar hefði verið
Haig sagði að Sovétmenn fóstr- greitt fyrir. Þá gagnrýndi hann ísra-
uðu og styddu við bakið á hryðju- elsmenn fyrir að gera Jerúsalem aö
verkamönnum víðs vegar um heim- höfuðborg landsins.
Alexander Haig, annar frá hægri, á fundi mcð Ronald Reagan forseta, Richard
Schweiker heilbrigðisráðherra og James Watt innanrikisráðhcrra.
Bandarisku gislunum 52 hefur verið fagnað gifurlega hvar sem þeir hafa komið i
Bandarikjunum og hefur mikil eining bandarisku þjóðarinnar orðið skýrari vegna
gislamálsins.Gislarnir hafa lýst þvi yfir að þeir vilji hverfa sem fyrst til vinnu og leitast
við að taka upp eðlilega lífshætti.
762 FARÞEGANNA
HEILIR Á HÚFI
Alls hefur tekizt að bjarga 762 af far-
þegum indónesíska farþegaskipsins
Tampomanas sem sökk á Jövu-hafi í
fyrradag eftir að kviknað hafði i því.
Staðfest hefur verið að 87 hafi farizt og
ekkert er vitað um afdrif 287 farþeg-
anna. Þykir borin von að nokkur þeirra
sé á lífi þar sem veður hefur verið mjög
vont á leitarsvæðinu. Talið er að eldur-
inn hafi kviknað út frá bifreið sem var
um borð.
DREKKTIMÓÐUR
SINNI í BAÐKARI
Nítján ára gamall Kaupmanna-
hafnarbúi hefur verið dæmdur til með-
ferðar á geðsjúkrahúsi eftir að hafa
myrt 55 ára gamla móður sína. Hann
réðst á móður sína eftir rifrildi þeirra í
milli, sló hana í höfuðið með síma og
flösku, dró hana síðan inn á baðher-
bergi þar sem hann drekkti henni.
Stuttu síðar hringdi hann sjálfur i
lögregluna og játaði að hafa framið
morðið.
Sænskt Altamál?
Svo kann að fara að Svíar eignist sitt
Altamál. Fyrirhugaðar virkjunarfram-
kvæmdir við Kalix-ána í sænska Lapp-
landi hafa mætt mikilli andstöðu íbú-
anna og talið er að þeim kunni að vaxa
ásmegin vegna atburðanna í Alta í
Norður-Noregi.
EBE heimilar V-Þjóðverjum veiðar:
„Ekkertannað
enþjófnaður"
— segja Grænlendingar um þorskveiðar
V-Þjóðverja
Grænlendingar eru mjög óánægðir
með að V-Þjóðverjum skuli leyft að
stunda þorskveiðar í sjó við Græn-
land. Ákvörðun um það efni var tek-
in á fundi sjávarútvegsráðherra Efna-
hagsbandalags Evrópu í gær.
Danir létu undan þrýstingi V-Þjóð-
verja á fundinum varðandi þetta mál
og þykja með því hafa aukið verulega
líkurnar á að Grænlendingar felli
aðild að efnahagsbandalagi Evrópu.
Efnahagsbandalagið lítur svo á, að
fiskimiðin við Grænland séu sam-
eiginleg eign Efnahagsbandalagsins.
Grænlendingar eru ekki sama sinnis
og segja, að hér sé ekki um neitt ann-
að að ræða en þjófnað.
Á fundi sjávarútvegsráðherra /
Efnahagsbandalagsins 9. febrúar
næstkomandi verður tekin ákvörðun
um hversu mikill afli V-Þjóðverja
megi vera.
Kjeld Olsen utanríkisráðherra Danmerkur á blaðamannafundi vegna þorskveiða
V-Þjóðverja við Grænland.
^HEWLETT^ PACKARD HEWLETT^ PACKARD HEWLETT^ PACKARD HEWLETT ^PACKARD HEWLETT^ PACKARD^
Einkaumboð á Islandi fyrir vasa- og borðtölvur — Upplýsingar, sala, þjónusta STALTÆKI, Bankastrætis simi 27510